Tíminn - 07.05.1988, Blaðsíða 14

Tíminn - 07.05.1988, Blaðsíða 14
Laugardagur 7. maí 1988 14 Tímin FRÉTTAYFIRUT VARSJÁ - Stjórn Póllands hyggst banna allar mótmæ- laaðgerðir til ársloka með sér- stakri lögsetningu sem kynnt verður bráðlega. Stjórnin mun þar veita sér rétt til að banna verkföll sem lögleg verkalýðs- félög hafa hingað til haft rétt á. Munu skipuleggjendur verk- falla hljóta eins árs fangelsi. Þeir sem skipuleggja eða standa fyrir annars konar mót- mælaaðgerðum munu einnig eiga von á svipaðri refsingu. Framkvæmdastjóri Lenin skipasmíðastöðvarinnar út- varpaði skipun til Lech Walesa og 3.000 verkamanna sem nú eru í verkfalli, um að yfirgefa stöðina ellegar verði gripið til aðgerða. WELLINGTON - Domin- ique Prieur, sem tók þátt í skemmdarverkunum á Rain- bow Warrior, var sleppt úr varðhaldi í franskri eyju í Suð- ur-Kyrrahafinu, og hélt heim- leiðis. Brottför hennar frá Hao Atoll reitti Ný Sjálendinga til reiði og jýsti Davið Lange, forsætisráðherra Nýja Sjálands, því yfir að hann mundi ræða málið við frönsk yfirvöld eftir forsetkosningarn- ar þar í landi n.k. sunnudag. BEIRUT - Búðir Palestínu- I manna og suðlæg úthverfi shíta múslíma í Beirút, urðu fyrir stórfelldri skotárás fyrir helgi. Minnst fjórir létust og þrír særðust í bardögum milli Pal- estínumanna innbyrðis í Sha- tila flóttamannabúðunum í borginni, se0a palestínskar heimildir. í úthverfum Beirut létust þrír er óvinveittir hópar shíta tókust á. TEL AVIV - Lögreglan í Israel mun kæra aðfluttan gyð- ing sem skaut palestínskan fjárhirði til bana á Vesturbakk- anum, segir útvarp hersins. Gyðingurinn skaut fjárhirðinn þegar hann neitaði að færa hjörð sína úr högum sem lágu að Shiloh hverfi aðfluttra gyð- inga nálægt Ramallah. RASHAYA, LÍBANON - Hópur sem styður atlögu (sra- ela inní Suður-Líbanon yfirgaf Maidoun þorpið eftir að hafa lagt 60 hús í rúst, segja heim- ildir öryggisliðs. Hizbollah hóp- urinn (Flokkur Guðs) kom að þorpinu til að meta skemmdir og meiðsl. WASHINGTON -Atvinnu- y leysi i Bandaríkjunum hefur minnkað um 0,2% í apríl og er nú 5,4%, og hefur það ekki verið minna síðan i júní 1974, segir Atvinnumáladeildin. Þótt fyrirtæki utan landbúnaðar hafi aðeins ráðið 174.000 starfs- menn í síðasta mánuði, um 75.000 færri en von var á kann þessi samdráttur á vinnu- markaðinum að ýta undir ótta um vaxandi verðbólgu og hærri vexti, segja hagfræöingar. ÚTLÖND llllllill Shítar berast á banaspjótum í Beirútborg ísraelskir landnemar I vígahug: estínskan TjárhSrðT ísraelskir landnemar á hernumda svæðinu á vesturbakka Jórdan skutu palesti'nskan fjárhirði til bana og særðu annan í deilum um beitarrétt. Hinn 28 ára Judeh Abdullah Awwad sat í gær yfir fjárhóp sínum sem var á beitt ekki langt frá nágrannaþorp- inu Shiloh þegar vopnaðir ísraelskir landnemar komu að og skipuðu Awwad á brott. Þegar Awwad neit- aði og sagði að landið tilheyrði sínu þorpi, hófu ísraelarnir skothríð, drápu Awwad og særðu aðstoðar- mann hans. Landnemarnir, sem nú hafa verið handteknir og verða að líkindum ákærðir fyrir skotárásina, sögðu að þeir hefðu hafið skothríð í sjálfsvörn þegar arabarnir hófu grjótkast að þeim. Nú hafa að minnsta kosti 177 Palestínumenn fallið á hernumdu svæðunum í þeim róstum sem þar hafa verið undanfama fjóra mánuði. Tveir ísraelar hafa látið lífið. Fimmtán ára gamall drengur varð fyrir skoti á Gazasvæðinu í gær en mun ekki vera í lífshættu. Að minnsta kosti sextán manns hafa látið lífið í átökum sem staðið hafa í suðurhluta Beirút milli skæruliða shíta sem eru hliðhollir Sýrlendingum annarsvegar og shíta sem hliðhollir eru Irönum hins vegar. Þá voru fimm drepnir og að minnsta kosti tuttugu og fimm særðir í átökum milli tveggja hópa Pale- stínumanna nærri Shatilla flótta- mannabúðunum í gær. Átökin í Beirút hófust strax í dagrenningu og linnti þeim ekki þó að íranska sendiráðið reyndi að koma á vopnahléi milli þessara tveggja hópa shíta. Þetta eru ekki fyrstu átök hópanna tveggja. I síðasta mánuði létust að minnsta kosti þrjátíu og átta manns í hörðum átökum þessara trúbræðra og áttatíu og tveir særðust áður en sendinefnd lrana kom á friði. Amal skæruliðar sem hliðhollir eru Sýrlendingum sögðust hafa unn- ið sigur á skæruliðum Hizabollah hreyfingarinnar sem hliðholl er írön- um. Hins vegar áttu þessi skærulið- asamtök hvor tveggja í bardögum við ísraelsher á dögunum þegar ísraelar stormuðu yfir suðurhluta Líbanons í leit að andstæðingum sínum. Suðurhluti Beirút þar sem átökin fóru fram hefur meira og minna verið stjórnlaus undanfarin þrjú ár og stríðandi hópar múslíma tekist þar á. Talið að flestir þeir gíslar sem í haldi eru í Líbanon séu faldir í þessum borgarhluta Beirút. Kólumbíska lög- reglan klekkir á kókaínkóngum Kólumbíska lögreglan hefur held- ur betur komist í feitt að undanförnu í baráttu sinni gegn eiturlyfjahring- um. í gær fann hún stóra kókaín- verksmiðju nærri höfuðstöðvum kólumbískra eiturlyfjasmyglara og er þetta þriðja kókaínverksmiðjan sem lögreglan finnur á einni viku. Lögreglan sagði að verksmiðjan hafi verið dreifð um fjóra samliggj- andi búgarða sem eru miðja vegu milli borganna Bogota og Medellin, en Medellin er talin miðstöð kólumbískra eiturlyfjahringa. Um hundrað verkamenn hafa að líkind- um unnið í þessari verksmiðju þar sem lögreglan fann fimmlíu og tvo þurrkunarofna, þúsund lítra af eter sem notaður er til hreinsunar á kókaíni, sjöhundruð tunnur af gasol- íu sem notuð var til að keyra rafstöð sem framleiddi rafmagn fyrir verk- smiðjuna. Starfsmenn verksmiðjunnar kom- ust undan lögreglunni með kókaínið með flugvélum, en tveggja kíló- metra löng flugbraut er í nágrenni verksmiðjunnar. Lögreglan sagðist telja að þær þrjár verksmiðjur sem þeir hafa gert nú upptækar hafi verið í eigu eitur- lyfjabarónanna í Medellin og hafi framleitt um 80% þess kókaíns sem smyglað er frá Kólumbíu til Banda- ríkjanna. Yfirvöld eyðilögðu fimm tonn af kókaínmauki og kókaíndufti þegar lögreglan náði hinum tveimur verk- smiðjunum á vald sitt á dögunum. Jaruzelski forseti Póllands ætlar að mæta andófsmönnum með fullri hörku og ætlar að stinga andófsmönnum í fangelsi í eitt ár ef þeir láta á sér kræla. Þessi ákvörðun linaði baráttuþrek Samstöðumanna. Pólsk stjórnvöld með lög gegn mótmælaaðgerðum: Lina baráttu hjá Samstöðu í gær dró snarlega úr hinum almenna stuðningi sem pólskir verkamenn í Gdansk höfðu við verkfallsaðgerðir hinna óháðu verkalýðssamtaka Samstöðu undir stjórn Lech Walesa í Lenín skipasmíðastöðinni. Um helmingur þeirra þrjúþúsund verka- manna sem lagt höfðu hluta skipasmíðastöðvarinnar undir sig hætti aðgerðum og hélt heim á leið eftir að stjórnvöld boðuðu að sett yrðu lög sem banni mótmælaaðgerðir fram til áramóta. Samkvæmt lögunum verður pólsk- um yfirvöldum heimilt að banna verkföll viðurkenndra verkalýðs- félaga sem hafa hingað til átt kost á því að leggja niður vinnu. Þá vofir eins árs fangaelsisvist yfir þeim sem brýtur þetta bann og fer í verkfall. Þá munu allir þeir er ýta undir verkföll eða aðrar mótmælaaðgerðir eiga yfir höfuð sér sama fangelsis- dóm. Frumvarp pólsku stjórnarinnar verður lagt fram í Sejm, pólska þinginu strax eftir helgi. Það veitir stjórninni einni rétt til að koma efnahagsaðgerðum sínum í fram- kvæmd að vild. Stjórnin mun því geta fryst laun og verðlag, sett á nýja skatta, sagt upp verkafólki, haft hönd í bagga með fjárfestingum fyrirtækja, flýtt uppgjöri gjaldþrota fyrirtækja og fleira í þeim dúr. Árás á Stokkhólm Stokkhólmsbúum brá heldur betur á brún þegar vopnaðir bardaga- klæddir hernienn streymdu inn í borgina dyggilcga studdir af skriðdrekum. Sem betur fer voru þetta sænskir hermenn á heræfingu. en mörgunt Stokkhólmarbúanum brá samt ntjög í brún. Nær þrjúþúsund hermenn tóku þátt í þessari mcstu heræfingu sem haldin hefur verið í Stokkhólmi. Var hcrnum skipt í fimmtíu sveitirsem tóku sér stöðu á hernaðarlcga mikilvægum stöðum í borginni. Æfingin tók þrjá tíma og var tilgangur hennar að kanna hæfni sænska hersins í að verja höfuðborg landsins. ÚTLÖ UMSJÓN: Hallur Magnússon BLAÐAMAÐUR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.