Tíminn - 07.05.1988, Page 23

Tíminn - 07.05.1988, Page 23
LaugkrdagUr 7. hiaí 1988 'fíminrv 23 SPEGILL Allir í ARMANI-fötum“ Nýlega var opnuð Armani-tísku- verslun í Los Angeles, en annars er fyrirtækið ítalskt. Pá var auðvit- Cheryl Tiegs sagðist hafa átt þenn- an Armani-kjól inni í skáp. Hann hékk þar við hliðina á sportblússu sem ég átti í skápnum - og blússan var síðari! að mikil auglýsingaherferð í gangi og var slagorðiðAllir í Armani!“ Haldið var samkvæmi þar sem boðið var fjölda af leikurum og öðru frægu fólki, - og auðvitað fóru þær í Armani-kjólana sína sem áttu þá, en sumar létu nægja að úða yfir sig ilmvatni frá Armani. Herrarnir voru ekki eins tfsku- sinnaðir, og komst ljósmyndarinn ekki í tæri við neinn karlmann, sem viðurkenndi að vera í Armani- fötum. Larry Hagman (JR) sagði að þau væru hönnuð fyrir Itali en ekki stóra og stæðilega Texas- karlmenn. Hér sjáum við nokkrar myndir úr Armani-samkvæminu: Glenn Close, John Starke og Mi- chael Douglas ræða málin. Glenn og Michael eru mjög góðir kunn- ingjar síðan þau léku saman í Oscars-myndinni Hættuleg kynni. John Starke er eiginmaður Glenn, - og hann segir að þau hjónin eigi von á litlum Oscar í vor. Frúin er sem sagt ófrísk, og ef fæðist dreng- ur þá á að skíra hann Oscar, en skyldi barnið verða stelpa þá verð- ur hún líklega skírð Osk upp á íslenskan máta. Maj og Larry Hagman sögðu: Nei, við erum ekki í Armani-tískuföt- um. „Ég cr í gömlu silkipilsi og blússu," sagði frúin, - „en ég er með fínu perlurnar mínar“ - en hann sagði, að Armani framleiddi ekki föt á stóra Texasmenn. Betsy Bloomingdale og Anjelica Huston. Anjelica setti á sig svip þegar blaðamaður- inn spurði hana hvað til væri í þeim orðrómi að þau Jack Nicholson ætluðu nú loks að fara að gifta sig. „Trúðu aldrei orðrómi, góði minn,“ sagði hún snúðugt. Victoria Principal (Pam í DALLAS) og eiginmaður hennar dr. Harry Glassman brosandi og ánægð, en Armani-fyrirtækið lét senda ilugleiðis kjól handa Victoriu tii að vera í þetta kvöld. Jacqueline Onassis var auðvitað í tískufatnaði frá Armani og tók sig út fyrir Ijósmyndarann, en vinkona hennar, rithöfundurínn Jane Hitchcock, kom sér út úr sviðsljósinu. Brigitte syrgir vinkonu Brigitte Bardot var augsýnilega mjög sorgmædd er hún kom til að vera viðstödd jarðarför bestu vin- konu sinnar, Marie Ferrandi- Lepapes. Marie og Brigitte kynntust er þær unnu báðar að dýravernd í Frakklandi og víðar í heiminum, og urðu þær miklar vinkonur. Reyndar orsakaði dýravernd- un dauða Marie Ferrandi-Le- papes, því að hún lést í bílslysi cr hún reyndi að bjarga lífi hunds, sem hljóp fyrir bíl hennar á ferð. Marie beygði frá dýrinu og lenti í hræðilegum árekstri. Bíllinn eyðilagðist og hún sjálf lét lífið. Brigitte Bardot kemur sjaldan fram opinberlega nú orðið, en hún kom þarna í kirkjuna ásamt nokkrum vinum sínum, sem reyndu að forða henni frá ljós- myndurum, sem alls staðar sitja um þessa frægu konu. Brigitte, sem var ein frægasta kynbomba allra tfma, þykir hafa elst mikið á fáum árum. Hún helgar sig aðallega dýraverndun og starfi fyrir dýr en hugsar minna um útlit sitt nú orðið. Brígitte Bardot er fædd í París 1935 og er því orðin 53 ára. Nú eru orðin mörg ár frá því hún hefur leikið í kvikntynd.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.