Tíminn - 28.05.1988, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. maí 1988
HELGIN
13
'AMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKÁMÁL SAKAMÁ
um.
Nú voru höfuðstöðvar rannsókn-
arinnar fluttar á lögreglustöðina í
Burgess Hill og þaðan var öllunt
lögreglustöðvum á svæðinu send lýs-
ing á Ijóshærða manninum og hún
einnig birt í dagblöðum. Pá var
skorað á fólk, sem kynni að hafa
fundið hníf, að gera lögreglunni
viðvart.
Þar sem talið var að maðurinn
byggi í Brighton, var athugað, hve-
nær áætlunarbílar færu frá borginni.
í ljós kom að vagn fór daglega til
Burgess Hill klukkan 21.50 og annar
kl. 22.20. Farþegar með þessum
vögnum á föstudagskvöld, voru
beðnir að gefa sig fram við lögregl-
una.
Með þann möguleika í huga, að
morðinginn hefði dvalið í Burgess
Hill yfir nóttina, voru sendir lög-
reglumenn á öll hótel og gistiheimili
í bænum.
Farið var með sporhund um garð-
inn og nágrennið, í leit að hnífnum,
en hann fannst aldrei. Mánudaginn
11. ágúst hafði ekkert komið fram,
sem varpað gæti Ijósi á málið, eða
leitt til morðingjans. Hins vegar
kom nú nýr harmleikur til sögunnar.
Annar harmleikur
Russell Mills hafði verið á góðum
batavegi eftir hjartaáfallið og læknar
því talið óhætt að segja honum frá
dauða konu hans. í fyrstu varð ekki
annað séð en hann tæki fréttunum
eins vel og búast mátti við, en að
morgni mánudagsins, fékk hann
annað áfall og varð ekki bjargað.
Læknar töldu líklegt að áfallið staf-
aði beinlínis af slæmu fréttunum.
Eins og málin horfðu nú við, var
lögreglan að leita manns, sem orðið
hafði tveimur manneskjum að bana.
Almenningur, sem flykktist á sól-
arstrendur við Brighton, hafði augun
hjá sér, ef vera kynni að Ijóshærðum
náunga með háa. hvella rödd brygði
fyrir. Mörg hundruð manns hringdu
til lögreglunnar og kváðust hafa séð
manninn. Rætt var við tugi ljós-
hærðra náunga og fjarvistarsannanir
þeirra kannaðar, en enginn reyndist
sá rétti, að lögreglan taldi.
Eins og venjan er undirt slíkum
kringumstæðum, fóru lögregluntenn
yfir fjöll af skýrslum yfir glæpamenn
þá af svæðinu, sem setið höfðu inni
fyrir kynferðisaflirot. f>ó höfðu allir
þeirra eins konar fjarvistarsannanir
og þegar 12. ágúst rann upp, voru
menn engu nær og morðinginn enn
laus.
Við krufningu líksins kom ekkert
fleira fram, en læknirinn vissi fyrir,
en hann lagði áherslu á, að morðing-
inn væri nánast kynóður. Hann væri
heilbrigður frá lagalegu sjónarmiði,
en ef hann yrði ekki settur undir lás
og slá bráðlega, myndi hann eflaust
brjóta af sér aftur. Læknirinn bætti
við að hann teldi afar ólíklegt að
þessi maður væri ekki einhversstaðar
á skránt lögreglunnar.
Grunsamlegur náungi
Þá var það loks 14. ágúst, að
hringt var til Scotland Yard frá
rannsóknarlögreglunni í litla strand-
bænum Hastings í austurhluta
landsins.
- Við höfum hérna upplýsingar
um náunga, sem þið gætuð haft
áhuga á, sagði sá sem hringdi.
- Lýsingin á þeim sem þið leitið,
kemur heim við hann og hann hefur
þegar setið tvisvar inni fyrir nauðg-
anir. Hann heitir Grant MacMillan,
er 26 ára og atvinnulaus bygginga-
verkamaður.
Hjá Scotland Yard brugðust menn
fegnir við, en þegar spurt var um
fjarvistarsönnun mannsins, reyndist
fátt um hana vitað, því ekki var enn
búið að hafa uppi á honum til að
spyrja hans eins eða neins. Konan
hans var kennari í sunnudagaskóla
og sagði mann sinn hafa verið að
heiman í nokkra daga, án þess að
hún vissi hvar. Hún sagði hann ekki
hafa verið heima 8. ágúst, kvöldið,
sem frú Mills var myrt.
- Ég skil ekki, hvers vegna þið
komið hingað, sagði konan við lög-
regluna. - Maðurinn minn gæti ekki
hafa framið slíkan glæp. Hann er
gjörbreyttur síðan við giftum okkur.
Þið mynduð ekki einu sinni hafa
hann grunaðan nema vegna fyrri
brota. Hann losnar aldrei við þau.
Vissulega var það rétt, að lögregl-
an hafði ekkert á Grant nema skýrsl-
ur um fyrri brot hans, en þær voru
alveg næg ástæða til að athuga
nánar, hvað hann væri að aðhafast.
Hann hafði fyrst lent í útistöðum við
lögin 13 ára, er hann réðist hrotta-
lega á 12 ára telpu. Pá var hann
sendur á stofnun fyrir afbrotaung-
linga.
Þegar hann var 18 ára og bjó í
Grant MacMillan var „einkar til-
litssamur" að dómi Margaret.
Aðrir vissu að hann var nánast
kynóður.
Dolking í Surrey, hitti hann 16 ára
stúlku á jólaskemmtun. Daginn eftir
ók hann með hana út á Ástarbraut í
lánuðum bíl, greip fyrir kverkar
henni og hótaði að drepa hana.
Síðan nauðgaði hann henni. Fyrir
það fékk hann 21 rnánuð í fangclsi.
Tveintur árum eftir að hann losn-
aði, bauð hann laglegri stúlku í
lautarferð, réðist á hana og var
næstum búinn að kyrkja hana, auk
þess scm hann hótaði að selja hana
í ánauð. í þetta sinn fékk hann fimrn
ára dóm.
Grant MacMillan hafði gengið
laus í minna en ár. þegar Margaret
Mills var myrt.
Flúði af hræðslu
- Hvenær sástu manninn þinn
seinast? spurði lögreglan konu
Grants. - Á laugardaginn, svarað
hún. - Þegar hann las í blaðinu um
konuna, sem var nauðgað og hún
myrt, komst hann allur í uppnám.
Hann sagðist hafa þekkt frú Mills
lauslega og væri hræddur, vegna
fyrri brota sinna. Ég reyndi að róa
hann, en hann fór samt.
- Nefndi hann, hvert hann ætlaði?
vildi lögreglan vita. Konan hristi
höfuðið. - Hann sagði að best væri
fyrir mig að vita það ekki. En síðan
hef ég hvorki séð hann né heyrt frá
honum.
Konan skýrði frá því að hún hefði
kynnst Grant rétt áður en hann var
dæmdur fyrirseinast brot. Þau hefðu
orðið ástfangin og ákveðið að giftast,
en þá hefði hann verið tekinn frá
henni og settur í fangelsi.
Hún fullyrti að hann hefði ekki
komið heim fyrr en seint á föstudags-
kvöldið. Hún hefði ekki spurt hann
hvar hann hefði verið og hann ekkert
sagt. Raunar væri slíkt ekki óalgengt
og honum hætti til að fá sér einum
um of neðan í því. - Ef hann vissi
eitthvað um dauða konunnar, hefði
hann sagt mér það. Við eigum engin
leyndarmál fyrir hvort öðru, sagði
hún að lokum.
Konan virtist tala af fullri hrein-
skilni, en lögregluna grunaði að
Grant hefði farið að heiman um leið
og hann vissi að búið var að upp-
götva morðið. Nú var lýst eftir
Grant og hann beðinn að gefa sig
fram á næstu lögreglustöð, hvar sem
hann væri. Ekkert gerðist þann
daginn. Næsta dag var hringt til
lögreglunnar í Dolking, þar sem
Grant hafði átt heima áður.
Eftir tvo tíma hringdi lögreglan
þar aftur. í Ijós kom, að Grant hafði
verið hjá ættingum sínum í nokkra
daga og var nú kontinn á stöðina.
Hann sagðist ekki hafa haft hug-
mynd um, að lögreglan leitaði hans.
Ekið var með hann til Burgess
Hill og svo sannarlega kom lýsingin
á morðingjanum heim við hann.
Hann var með mikið, Ijóst og úfið
hár og háa, hvella rödd. Nágrann-
inn. sem vísaði honum til vegar
morðkvöldið, bar þegar í stað kennsl
á hann.
Hver var Sid Gordon?
Þegar hér var komið, viðurkenndi
Grant fúslega að hafa heimsótt
Margaret Mills morðkvöldið. - Ég
sagði konunni minni það ekki, hélt
hann áfram. - Ég óttaðist að hún
missti trúna á mig og héldi að ég
hefði myrt veslings konuna. Éggerði
það ekki.
Hann talaði lágt og var einkar
kurteis. Hann lýsti því, hvernig þau
Margaret höfðu hist í iestinni og
orðið vel til vina. - Hún var notaleg
kona og mér geöjaðist vel að henni.
Daginn eftir borðuöum við saman í
Brighton og hún bauö mér heim um
kvöldið. Ég vissi að hún var ein-
mana, svo ég þáði boðið. En ég
komst ekki fyrr en nokkuð seint og
þá var þar annar maður fyrir. - Hún
kynnti hann fyrir mér sem Sid
Gordon, gamlan fjölskylduvin, sent
hafði komið óvænt í heimsókn. Viö
spjölluðum saman góða stund og
þegar frú Mills fór að laga kaffið,
notaði ég tækifærið til að kaupa
sígarettur. Það var sjálfsali úti á
horni og ég var í burtu í stundar-
fjórðung eða svo.
Grant hélt áfram og sagðist hafa
komið aftur, en þá fundið útidyrnar
í hálfa gátt. Enginn svaraði, þegar
hann bankaði, svo hann fór inn og
fann frú Mills alblóðuga á stofugólf-
inu.
Skelfingu lostinn yfir að verða
ákærður fyrir morðið, bar hann líkið
inn í svefnherbergið og breiddi yfir
það í rúminu. Síðan læddist hann út,
fór á puttanum til Brighton og náði
strætisvagni heim til sín.
Spurður því hann hcföi flúið að
heiman, þegar uppvíst varð um
morðið, ef hann væri saklaus, svar-
aði hann að auðvitaö hefði lögrcglan
komið, vegna fyrri brotanna og hins,
að hann hcfði verið hjá frú Mills.
Lögreglumenn trúöu sögunni bara
mátulega, en samt var skylda þcirra
að leita að hinunt manninum. Grant
lýsti honum sem grönnum, dökk-
hærðum og með Cornwall-hrcim.
Honum skildist að hann byggi í
Burgess Hills. En enginn Sid Gor-
don fannst og ættingjar Margarct
sóru, að hann væri ekki til.
Nágrannar höfðu ckki séð neinn
annan mann, hvorki þctta kvöld né
nokkurntíma áður, sem gæti verið
Gordon. Hann var heldur hvergi í
símaskrám. Ljóst mátti nú vera, að
Gordon þessi var hugarfóstur
Grants. Seinast, þegar Grant hafði
verið dæmdur, varð reyndum lög-
reglumanni að orði, að dómurinn
væri of vægur. Líklegt væri, að þessi
maður yrði einhverntíma morðingi.
Talið var að Grant hefði aðeins
haft í huga að spjalla við frú Mills í
lestinni. Hann var kvæntur og hafði
sennilega reynt að kæfa þær hvatir
sínar sem gerðu hann að nauðgara í
fyrri skiptin. En þær hefðu reynst of
sterkar.
Önnur trygg eiginkona
Grant MacMillan var ákærður fyr-
ir morð og úrskurðaður í gæsluvarð-
hald 15. ágúst. Konan hans átti erfitt
með að trúa þessu og fullyrti að hann
væri saklaus. - Ég styð hann alltaf
sagði hún. - Ég elska hann og veit
að hann elskar mig.
Við réttarhöldin hélt hann stöðugt
fram sakleysi sínu og kenndi Sid
Gordon um allt saman. Kviðdómur
var sannfærður um að Gordon þessi
væri aðeins ímynduð persóna og
þann 23. júlí 1987 tók ekki nema
hálftíma, að úrskurða Grant sekan.
Dómarinn kvað upp lífstíðardóm,
annað kæmi ekki til greina. Sunnu-
dagaskólakennarinn brast í grát, en
jafnaði sig fljótlega og þerraði tárin.
- Ég hef beðið hans áður og bíð hans
enn, sagði hún fastmælt. - Hann
þarfnast mín mjög og ég bregst
honum aldrei.
VOR ’88
Hnífaherfi
JOSVE hnífaherfi með þremur hnífarás-
um eru mjög lipur og fjöihæf. Vinnslu-
breidd 3 m. Herfi sem njóta vaxandi
vinsælda.
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær hf„ Andakílshr. S. 93-51252
Ólafur Guðmundsson
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-56622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-41191
Guðbjartur Björgvinsson
Kvennahóll, Fellsstrandarhr. Dal. S. 93-
41475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-4198
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
Bilav. Pardus. Hofsósi S. 95-6380
Bílav. Dalvíkur, Dalvík S. 96-61122
Dragi, Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. S. 97-81540
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson
Stóra-Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts, Iðu S. 99-6840
MUSAFÆLUR
220 volt
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
BLIKKFORM
Smiðjuvegi 52 - Sími 71234
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt land.
(Ekið niðurjTTeðJ-andvéluml^^