Tíminn - 09.06.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 9. júní 1988
BÁSAMOTTUR
FRÁ ALFA-LAVAL
Sterkar og einangra mjög vel.
Stærð: 1400x1100 mm.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur-
borgar óskar eftir tilboðum í verkið Nesjavallavirkjun - Stöðvarhús.
Verkið felur í sér frágang lóðar með snjóbræðslu, malbikun o.fl.
undirstöður tækja.
Jarðvinna og undirstöður dælustöðvar við Grámel. Útboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri að Frfkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 20.000,-
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 28. júní
kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í sorptunnur úr plasti.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað f immtudaginn 7. júl í n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Gagnfræðaskóli
Mosfellsbæjar
Kennara vantar í eftirtaldar greinar: íslenska ein staða,
danska ein og Vz staða, samfélagsfræði V2 staða og
smíðar % staða.
Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson skólastjóri í síma
666153 og Helgi R. Einarsson yfirkennari í síma
667166.
VERTU í TAKT VIÐ
Tíinann
ÁSKRIFTASÍMI 68 63 00
Sómabátar framleiddir í Færeyjum:
Bátasmiðja Guðmundar er nú að
hefja framleiðslu á Sómabátum í
Vestmanna í Færeyjum. Miðað er
að því að fyrsti báturinn verði tilbú-
inn til afhendingar í lok næsta mán-
aðar, en afköst verða um einn bátur
á mánuði.
„Ástæðan fyrir því að við ætlum
að framleiða Sómabáta í Færeyjum,
er sú að þar er 38% verndartollur á
innfluttum fiskibátum. Mikil eftir-
spurn er eftir okkar bátum þar, eftir
að við tókum þátt í kynnis- og
söluferð Útflutningsráðs þangað í
fyrrasumar og seldum báða sýning-
arbátana. Þeir hafa reynst mjög vel
og vakið mikla athygli. í vor voru
komnar 7-8 pantanir í Sómabáta í
Færeyjum og við eigum von á fleiri,“
segir Guðmundur Lárusson í samtali
við blaðið Á döfinni „Það er athygl-
isvert að meðan 38% verndartollur
er á íslenskum bátum í Færeyjum,
er hægt að flytja færeyska báta til
íslands tollfrjálst."
Fyrirtækið fær mikla sölumögu-
leika og tollfríðindi í EB-ríkjum,
eins og t.d. Danmörku, með því að
framleiða bátana í Færeyjum.
Sómabátar hafa gert það mjög
gott á íslandi og notið mikilla vin-
sælda sem hraðskreiðir og spar-
neytnir fiskibátar. Markaðurinn á
íslandi er þó ekki enn orðinn full-
mettur og því er útflutningur nú ekki
brýn nauðsyn fyrir fyrirtækið.
Stefnt er að því að sýna bátana í
Grænlandi og Noregi á komandi
mánuðum. ðs
Sómabátur, sem fór til Færeyja í júlí i í fyrra með fljótandi sjávarútvegssýningu.
Nýtt Lukkutríó á markaðinn:
Mikil samkeppni
sem fer vaxandi
Björgunarsveitirnar gefa nú út
nýtt Lukkutríó. Með þessu Lukku-
tríói er algjörlega skipt um vinninga-
skrá frá fyrri miða. Nýr reitur hefur
verið settur á seðilinn, svokallaður
safnreitur sem byggist upp á því að
kaupandi safnar bókstöfum þar til
hann er kominn með eitt ákveðið
orð og hlýtur hann þá vinning.
Útlit miðans hefur lítið sem ekkert
breyst.
Að sögn Jóns Gunnarssonar for-
manns Flugbjörgunarsveitanna hef-
ur aukin samkeppni á markaðnum
gert mönnum erfitt fyrir. Nú eru 4
tegundir ýmiskonar skafmiða á
markaðnum og fimmti miðinn á
leiðinni. Má því seg segja að næstum
hvert félag og hver samtök sem
vantar aura í sparigrísinn séu búin
Nú er vinningaskrá Lukku-tríósins
allt önnur, og má þá nefna að nú er
hægt að vinna 37 fm fullgerðan
sumarbústað í stað Mercedes Benz
sem var aðalvinningur á gamla skaf-
miðanum. Hér er einn slíkur sumar-
bústaður sem björgunarsveitimar
settu upp hjá Mildagarði, og buðu
svo blaðamönnum í grillveislu.
Tímamynd Pjetur
að koma sér upp einhversonar konar
skafmiða. Og virðast engar hömlur
vera á því hversu margir og hverjir
geti sett skafmiða á markaðinn til
styrktar hinum ýmsu góðu málefn-
um.
Ein milljón Lukkutríóa koma á
markaðinn á komandi vikum, 250
þúsund í einu. Ágóðaskiptingin er
eftirfarandi: SVFÍ 53%, LHS 31.5%
og LFBS 15.5. Innan þessara sam-
banda eru síðan margar björgunar-
sveitir sem skipta ágóðanum bróður-
lega á milli sín, en þegar upp er
staðið er féð fljótt að fara, því það
kostar mikið að reka björgunarsveit
svo að vel megi takast.
Tæplega 9 milljónir hafa fengist úr
Lukkutríóinu síðan það kom á
markaðinn í janúar, og skiptist það
fé eins og áður sagði.
Að sögn Jóns Gunnarssonar fá
björgunarsveitirnar um 90% tekna
sinna frá almenningi í gegnum ým-
iskonar happdrætti og aðra fjáröfl-
un. Jón sagði einnig að Lukkutríóinu
hefði verið vel tekið af almenningi
og góður árangur hafi verið af þessu
sameiginlega átaki björgunarsveit-
anna sem Lukkutríóið er. -gs