Tíminn - 09.06.1988, Síða 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 9. júní 1988
ÍÞRÓTTIR
Fimmtudagur 9! júní 1988 ' r'rTíminn li
llllllllllill ÍÞRÓTTIR ^
Markarefurinn Tryggvi Gunnarsson afgreiddi Völsung:
Valur á skrið
Frá Hafliða Jósteinssyni á Húsavík:
í sólskini og blíðskaparveðri á
grasvellinum hér á Húsavík urðu
Völsungar enn að lúta í lægra haldi
í hinni hörðu 1. deildarkeppni. Það
var Valur sem hrísti af sér slenið og
sigraði Völsung með þremur mörk-
um gegn einu.
Leikurinn fór heldur rólega af
stað og þreifuðu bæði liðin fyrir sér
af varfærni. Ekki var mikið um
góðan og árangursríkan samleik og
því var leikurinn ekkert sérlega
mikið fyrir augað. Meginhluta fyrri
Víkingar unnu Leiftur í nýliða-
slagnum á nýja vellinum í Fossvogi.
Niðurstaðan í þessum tilþrifasnauða
knattspyrnuleik í 1. deildinni varð
2-1 eftir að Víkingar höfðu yfir í
leikhléi, 1-0. Vart verður annað sagt
en að jafntefli hefði orðið sanngjarn-
ari úrslit.
Byrjunin á þessum leik var með
eindæmum dauf, Leiftursmenn áttu
tvö ágæt færi áður en Lárus Guð-
mundsson potaði knettinum í mark-
ið á 26. mín. Jóhann Þorvarðarson
hafði sent fyrir og Þorvaldur misst
knöttinn yfir sig. Þetta var mark af
ódýru gerðinni og kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Eftir mark-
ið lifnaði örlítið yfir leikmönnum en
færin létu þó bíða eftir sér.
Seinni hálfleikurinn var lítið fjör-
ugri, Leiftursmenn voru þó heldur
meira með knöttinn sem fyrr og
þyngdist sókn þeirra mjög er á leið.
Þar kom svo að Steinar Ingimundar-
son skoraði af stuttu færi, einn og lítt
valdaður, eftir fyrirgjöf frá Herði
Benónýssyni. Víkingar tóku heldur
við sér eftir þetta og á 81. mín. var
Atli Einarsson á auðum sjó, fékk
sendingu inní teig frá Þórði Marels-
syni og skoraði örugglega, 2-1.
Leikurinn var mjög daufur og lítið
í hann varið. Hvorugt liðið sýndi
skemmtilegt samspil svo neinu næmi
hálfleiks var hálfgert hnoð og há-
loftaspyrnur allt of mikið notaðar.
Það var loksins á 15. mínútu sem
fyrsta marktækifærið féll Valsmönn-
um í skaut en þá átti Jón Grétar
Jónsson gott skot beint á Þorfinn
markvörð. Rétt á eftir dúndraði
Kristján Olgeirsson boltanum rétt
yfir Valsmarkið. Á 30. mín. áttu
Valsmenn skot í stöng og sluppu
Völsungar þar sannarlega með
skrekkinn. Skömmu síðar komst
Valur Valsson einn innfyrir of flata
vörn Völsungs en Þorfinnur sýndi
snilldartakta og bjargaði vel.
en meira byggt á löngum sendingum.
Atli Einarsson var sprækastur í liði
Víkings en Leiftursmenn létu liðs-
heildina um verkið.
Mörk Víkings: Lárus Guðmundsson 26.,
Atli Einarsson 81. Mark Leifturs: Steinar
Ingimundarson 67.
Gult spjald: Friðgeir Sigurðsson Leiftri43.
Lid Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Andri Marteinsson, Jón Oddsson (Sigurður
Guðnason 80.), Atli Helgason, Stefán Hall-
dórsson, Jóhann Þorvarðarson, Trausti óm-
arsson, Atli Einarsson, Lárus Guðmundsson
(Björn Bjartmarz 75.). Lið Leifturs: Þorvaldur
Jónsson, Gústaf ómarsson, Sigurbjörn Jak-
obsson, Arni Stefánsson, Guðmundur Garð-
arsson, Friðgeir Sigurðsson (Helgi Jóhanns-
son 84.), Hafsteinn Jakobsson, Halldór
Guðmundsson (Friðrik Einarsson 80.).
Dómari: Guðmundur Sigurðsson.
f næstu sókn Völsungs rétt þar á
eftir átti Kristján fast skot í hliðarnet
Valsmarksins. Á 44. mín. sofnuðu
varnarmenn Völsungs á verðinum
og Jón Grétar lagði boltann snyrti-
lega fyrir Sigurjón Kristjánsson sem
skoraði með óverjandi skoti og Vals-
menn höfðu þar með náð forystu.
Strax í upphafi seinni hálfleiks
jöfnuðu Völsungar eftir misheppn-
aða sendingu Þorgríms bakvarðar til
Guðmundar markvarðar. Það var
Aðalsteinn Aðalsteinsson sem náði
að pota boltanum í netið og staðan
því jöfn. Lifnaði nú heldur yfir
leiknum og heimamönnum en þetta
var skammgóður vermir því Tryggvi
Gunnarsson þefaði upp marktæki-
færin og nýtti sér síðan tvö þeirra.
Hann kom inná sem varamaður svo
það voru góð leikmannaskipti hjá
Val. Það var Hilmar Sighvatsson
sem fór af velli.
Um þetta leyti leiks var nokkur
harka hlaupin í leikinn og greip
Eysteinn dómari til gulu spjaldanna
og sýndi bæði Sveini Freyssyni og
Kristjáni Olgeirssyni þau. Þegar
stutt var til leiksloka fékk Kristján
rauða spjaldið og riðlaðist þá leikur
Völsunga alveg og fjaraði síðan út.
Það má segja að sigur Vals hafi verið
sanngjarn og greinilegt að þeir verða
ekki auðunnir í sumar.
Bestu menn Vals voru Guðni
Bergs sem er feikiöruggur og traust-
ur og Sigurjón Kristjánsson en hjá
Völsungi var Þorfinnur yfirburða-
maður og bjargaði Völsungum frá
enn stærra tapi. Slakur dómari var
eins og áður var sagt Eysteinn
Guðmundsson. Áhorfendur voru á
milli fimm og sex hundruð.
-HÁ
Staðan í 1. deild
Fram........................ 4 3 1 0 6-1 10
ÍA........................... 4 2 2 0 4-2 8
KR .......................... 3 2 1 0 8-3 7
KA .......................... 2 2 0 0 3-1 6
ÍBK...........................4 1 1 2 6-7 4
Valur ........................4 1 1 2 3-3 4
Víkingur......................4 1 1 2 4-7 4
Leiftur ..................... 4 0 3 1 2-3 3
Þór.......................... 3 0 2 1 2-3 2
Völsungur................... 4 0 0 4 3-11 0
íslandsmótið í knattspyrnu, Víkingur-Leiftur 2-1:
Tilþrifasnautt
heyvinnuvéla- og
dráttarvéladekk.
LÆKKAÐ
VERÐ
Sterkir og
endingargóðir
ÚNAÐARDI
AMBANDS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Atli Einarsson besti maður Víkinga í gærkvöldi sækir að marki Leifturs. Atli skoraði sigurmark Víkinga.
Tímamynd Pjetur
Vormót HSK í frjálsum íþróttum:
Pétur yfir 20 m
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
úr HSK náði í gærkvöldi Ólympíu-
lágmarkinu í sinni grein. Pétur kast-
aði 20,03 m á Vormóti HSK sem
haldið var á Selfossi en Ólympíulág-
markið er 20,00 m.
Pétur átti áður 19,97 m. Hann átti
góða kastseríu í gærkvöldi, kastaði
18,25 m í 1. umferð, þá 19,37 m,
19,32 m, 19,69 m, 20,03 m og loks
19,53 m í síðustu umferðinni.
íslandsmótið í
knattspyrnu, Þór-
ÍA 1-1:
Tvömórk
í lokin
Leikmenn Þórs og ÍA skildu
jafnir í 1. deildarleik liðanna á
knattspyrnuvellinum á Akureyri
í gærkvöldi. Hvort lið skoraði eitt
mark en það var þó ekki fyrr en
á síðustu sjö mínútunum sem þau
litu dagsins Ijós.
Guðbjörn Tryggvason gerði
mark ÍA á 83. mínútu, fékk
knöttinn fyrir utan vítateig og
skoraði með viðstöðulausu
þrumuskoti upp ■ bláhornið.
Fimm mínútum síðar jafnaði Júlí-
us Tryggvason úr vítaspyrnu fyrir
Þór. Hún var dæmd eftir að
Mark Duffield varnarmaður ÍA
fékk knöttinn í hönd innan víta-
teigs.
Leikurinn þótti heldur tilþrífa-
htill.
Árangur Péturs var hápunktur
mótsins en á því náðist einnig ágætur
Heldur tilþrifalitlum leik ÍBK og
Fram í Keflavík lauk með jafntefli
þar sem hvort liðið skoraði eitt
mark. Keflvíkingar mega teljast
heppnir að fá eitt stig í þessum leik
þar sem Framliðið yfirspilaði þá
megnið af leiknum.
Guðmundur Steinsson skoraði
mark Fram á 25. mín. eftir sendingu
fyrir mark Keflvíkinga. Hann skor-
aði með skoti af teig meðan vörn
Keflvíkinga nánast horfði á. Grétar
Einarsson jafnaði fyrir Keflvíkinga
10 mínútum seinna með skoti af
vítateig eftir að hafa tekið góða
rispu í átt að marki Fram.
Framarar virtust ætla að gera út
um leikinn strax í seinni hálfleik. Á
47. mín. var vörn Keflvíkinga illa á
verði og ekki færri en þrír Framarar
voru á auðum sjó á vítateig. Ormarr
renndi boltanum til Kristins R. Jóns-
sonar sem skaut að marki. Þorsteinn
Bjarnason sló boltann frá, aftur til
Kristins sem reyndi að skjóta yfir
Þorstein. Hann varði aftur, Pétur
Arnþórsson kom aðvífandi og skor-
árangur í öðrum greinum og var góð
þátttaka. -HÁ
aði en hafði um leið brotið á Þor-
steini og markið dæmt af.
Framarar tóku öll völd í leiknum
og léku mjög skemmtilega saman úti
á vellinum en vantaði hersluinuninn
til að reka endahnútinn á sóknarað-
gerðir. Guðmundur Steinsson skor-
aði reyndar rangstöðumark á 55.
mín.
Keflvíkingar voru mjög máttlausir
og horfðu nánast á Framara. Besta
færið í hálfleiknum kom þegardæmd
var aukaspyrna á Keflvíkinga. Viðar
Þorkelsson spyrnti vel framhjá varn-
arvegg Keflvíkinga og boltinn
stefndi í markhornið en Þorsteinn
Bjarnason varði glæsilega.
Það sem eftir lifði leiksins sóttu
Framarar án afláts en gekk ekki að
nýta sér það og leiknum lauk með
jafntefli.
Þorsteinn Bjarnason var yfir-
burðamaður í liði ÍBK og Gestur
Gylfason átti ágætan leik en Framar-
ar voru jafnir og góðir.
Þorsteinn Eðvarðsson dæmdi og
hefði mátt taka harðar á brotum.
Áhorfendur voru 1300.
íslandsmótið í knattspyrnu, ÍBK-Fram 1-1:
Stálheppnir
Keflvíkingar
Frá Frímanni Olafssyni á Sudurncsjum:
NBA-körfuboltinn, LA Lakers-Detroit Pistons 93-105:
Varamennirnir
gerðu útslagið
- Pistons unnu fyrsta leikinn með 12 stiga mun
eftir að hafa 17 stiga forskot í leikhléi
Detroit Pistons unnu yfirburðasigur á Los
Angeles Lakers í fyrsta leiknum um sigurinn í
atvinnumannadeild bandaríska körfuknatt-
leiksins í fyrrinótt. Leikið var í Forum í
Inglewood, heimavelli Lakers, og fóru leikar
svo að gestirnir sigruðu með 105 stigum gegn
93 eftir að hafa 17 stiga forskot í leikhléi, 57-40.
Það var ekki hvað síst breiddin sem tryggði
Detroitliðinu sigur í þessum leik. Varamenn
liðsins með Vinnie Johnson í fararbroddi
gerðu 32 stig gegn aðeins 4 stigum varamanna
Lakers. Johnson gerði 16 af þessum 32 stigum.
Vörn Detroitliðsins var einnig mjög góð eins
og verið hefur í úrslitakeppninni fram að þessu
og þeim tókst að halda hinum skæðu hraða-
upphlaupum Lakersliðsins alveg niðri.
Svartasta hálfleiksstaða á árinu
Detroit Pistons eru að leika til úrslita í fyrsta
sinn síðan árið 1956 en þá voru bækistöðvar
þeirra í Fort Wayne í Indianafylki. Þeir
byrjuðu sinn fyrsta úrslitaleik eftir langt hlé af
geysilegum krafti og komust í 8-0. Lakers náðu
að minnka muninn í 1 stig, 22-21 fyrir lok
fyrsta fjórðungs en Detroitmenn bættu enn um
betur í öðrum með 35-19. Staðan í leikhléi var
sem fyrr sagði 57-40 og er það Ijótasta staða
sem Lakers hafa þurft að ræða um í leikhléi á
þessu keppnistímabili.
Dantley hitti fjórtán sinnum
Adrian Dantley, hinn leikreyndi framvörður
Detroitliðsins var í miklu stuði og skoraði
nánast þegar honum sýndist. Hann misnotaði
aðeins tvö af sextán skotum og gerði.alls 34
stig, þar af 22 í seinni hálfleik. „Viðttökum
hvern leik sem þann síðasta," sagði Dantley
eftir sigurinn.
Þetta er aðeins annar leikurinn sem Lakers
tapa á heimavelli í úrslitakeppninni á þessu ári
og áhorfendur sem ekki eiga því að venjast að
þeirra menn tapi, hvað þá svona illa, sátu
þögulir og alveg gáttaðir lengst af.
Að duga eða drepast fyrir Lakers
Lakers, sem freista þess að verða fyrsta liðið
frá ’69 til að verja meistaratitilinn, verða að
vinna næsta leik sem verður í Forum í kvöld.
Að öðrum kosti fara þeir með 0-2 stöðu til
Detroit þar sem næstu þrír leikir verða og sú
staða er ekki fýsileg. Detroit dugir þá sigur í
tveimur af þremur heimaleikjum til að vinna.
„Þeir eru búnir að stilla okkur upp við vegg
fyrir annan leikinn, sá leikur verður m-i-k-i-I-v-
æ-g-u-r,“ sagði Magic Johnson stjarna Laker-
liðsins og stafaði síðasta orðið. Magic var
stigahæstur sinna manna með 28 stig.
- HÁ/Reuter