Tíminn - 09.06.1988, Side 12
Fimmtudagur 9. júní 1988
12 Tíminnj
FRÉTTAYFIRLIT
SAMEINUÐU ÞJÓÐ-
IRNAR - Sovétmenn hafa
boöið fulltrúum frá Sameinuðu
þjóðunum til að fylgjast með
því er þeir eyðileggja fyrsta
hlutann af kjarnorkuflaugum
sínum í samræmi við samning
við Bandaríkjamenn um eyð-
ingu skamm- og meðaldrægra
kjarnavopna.
JÓHANNESARBORG-
Blökkumenn ( Suður-Afríku
héldu áfram verkföllum í gær
og hafa verkföll því staðið í
þrjá daga. Lögreglan skýrði frá
áframhaldandi pólitísku ofbeldi
tengdu verkföllunum, þó að
rólegt hafi verið í flestum hverf-
um blökkumanna. Tveggja ára
barn lét lífið.
TEL AVIV - Palestínskur
unglingur lést í móttöku á
sjúkrahúsi eftir að ísraelskir
hermenn höfðu barið hann til
óbóta á hernumda svæðinu í
Gaza. israelski herinn sagðist
vera að kanna þetta atvik til að
ganga úr skugga um að mað-
urinn hafi látist af völdum bar-
smíða. í Alsír lýstu leiðtogar
arabaríkja yfir stuðningi við
uppreisn Palestínumanna á
hernumdu svæðunum og leit-
uðu ráða til að ná fram kröfu
sinni um sjálfstætt ríki Pales-
tínumanna.
ANKARA - Réttarhöld hóf-
ust yfir tveimur tyrkneskum
kommúnistaleiðtogum oa
segja mannréttindasinnar ao
réttarhöldin séu prófsteinn á
það hvort Tyrkland stefni í
raun í átt til lýðræðis.
MANAGVÁ” - Kontra-
skæruliðar er njóta stuðnings
Bandaríkjastjórnar og hin
vinstrisinnaða stjórn Sandin-
ista berjast nú fyrir því að ná
einhverjum árangri í friðarvið-
ræðum þeim er nú standa yfir
ocj ætlao er að binda enda á
mu ára átök sem kostað hafa
50 þúsund manns lífið.
MOSKVA - Vestrænn lög-,
maður sem var viðstaddur ráo- j
stefnu um mannréttindamál í
Moskvu sagði að þrátt fyrir
mjúkmælgi sovéskra leiðtoga
og falleg orð þeirra um mann-
réttindi, þá só nú erfiðara fyrir
gyðinga að fá að flytjast úr
landi, en nokkru sinni áður.
MOSKVA - Samtök sem
kalla sig „Dauði yfir gyðinga"
hafa dreift andgyðinglegum
áróðursbæklingum um
Moskvu og hafa valdið mikilli
geðshræringu meðal gyðinga1
þar í borcj. Þessum bæklingum
er dreift í sama mund og haldið
er upp á þúsund ára afmæli
rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar.
llllllll ÚTLÓND
____Michael Dukakis tryggði sér meirihluta__
kjörmanna demókrata í síðustu forkosningum:
„Hertoginn“ á sigurbraut
og stefnir á Hvíta húsið
Kínverska lögreglan hefur átt í önnum að undanförnu og þurft að eiga við
mótmælafundi, annars vegar í Peking og hins vegar í Tíbet.
Annasöm tíð hjá kínversku lögreglunni:
TáragasíTíbet
og óró í Peking
Það er annasöm tíð hjá kínversku
lögreglunni þessa dagana. í Lahsa
höfuðborg Tíbets beitti lögreglan
táragasi til að brjóta á bak aftur
mótmælagöngu búddamunka og í
höfuðborginni Peking voru hundruð .
lögreglumanna kallaðir út til að
hindra fyrirhugaða kröfugöngu kín-
verskra stúdenta.
í kjölfar dauða kínversks stúdents
í óeirðum í sfðustu viku hafa stúd-
entar í Peking hengt upp veggspjöld
með slagorðum gegn hægagangi
stjórnvalda og krafist aukins lýðræð-
is og málfrelsis. í gær hugðust þeir
fara í ólöglega kröfugöngu um mið-
borg Peking og halda mótmælafund
á Tiananmentorgi þrátt fyrir aðvar-
anir stjórnvalda. Lítið varð úr mót-
mælum því hundruð lögreglumanna
tóku sér stöðu í kringum Tianan-
mentorgið þegar stúdentarnir hugð-
ust safnast þar saman. „Þeir voru of
sterkir fyrir okkur,“ sagði einn af
fjölmörgum stúdentum sem röltu
um í nágrenni torgsins, sem aldrei
þessu vant var nær mannlaust.
Þó lögreglan hafi þurft að grípa til
ofbeldis í Peking gegndi öðru máli
um kínversku lögregluna í Lahsa,
höfuðborg Tíbets fyrr í þessum mán-
uði. Þar beittu lögreglumenn tára-
gasi gegn mótmælagöngu búdda-
munka er kröfðust sjálfstæðis
Tíbets. Tveir vestrænir ferðamenn
er komu frá Lahsa til Hong Kong
fyrir stuttu sögðust hafa séð fjölda
manns flýja í ofvæni undan kín-
versku öryggislögreglunni þegar hún
handtók munkana og dreifði mann-
fjöldanum með táragasi.
Michael Dukakis, „The Duke“, hefur tryggt sér meirihluta kjörfulltrúa á
þingi Demókrataflokksins og þar með útncfningu sem forsetaefni flokksins.
Skoðanakannanir sýna að hann myndi sigra George Bush verðandi
forsetaefni repúblikana örugglega ef kosið væri nú. Ef svo fer verða Mikjálar
við æðstu völd ■ Bandaríkjunum og Sovét.
Ebbe Carlson segist búa yfir mikilvægum
upplýsingum um morðið á Olof Palme:
Vissi sænska
lögreglan um
morðtilræðið?
Frá Ingemar Carlson fréttaritara Tímans í Upp-
sölum.
Ebbe Carlson, sænski bókaútgef-
andinn sem hóf sjálfstæða rannsókn
á morðinu á Olof Palme að undirlagi
Önnu-Gretu Leijon, fyrrverandi
dómsmálaráðherra Svíþjóðar, segist
hafa undir höndum mikilvægar upp-
lýsingar sem varpað geta ljósi á
aðdraganda morðsins. Þetta kom
fram í útvarpsviðtali við Carlson í
gær. Carlson vildi ekki gefa upp
hverjar þessar upplýsingar eru.
Fjölmiðlar telja hins vegar að
Carlson hafi fengið staðfestan þann
orðróm að breska leyniþjónustan
hafi varað sænsku öryggislögregluna
við því að kúrdisk hryðjuverkasam-
tök hygðust myrða Palme, viku áður
en morðið var framið. Carlson hafði
fengið meðmæli frá Önnu-Gretu
Leijon dómsmálaráðherra svo hann
gæti fengið nauðsynlegar upplýsing-
ar um Palmemálið hjá bresku leyni-
þjónustunni. Telja fjölmiðlar að
annað hvort hafi sænska öryggislög-
reglan ekki trúað þessu, eða ekki
viljað aðhafast neitt í málinu. Tals-
maður sænsku öryggislögreglunnar
hefur vísað þessum ásökunum á bug
og kallað þær hreina lygi.
Ebbe Carlson hafði tekið íbúð á
ónefndum stað í Stokkhólmi á leigu
til að nota sem hlerunarmiðstöð, en
lífvörður hans var handtekinn á
föstudaginn er hann reyndi að koma
ólöglegum hlerunartækjum inn í
Svíþjóð. Sagði Carlson að sænska
öryggislögreglan hafi haft áhuga á
að fá þessa sömu íbúð til afnota, en
ekki viljað deila henni með Carlson
eins og hann hafi boðið, en að sögn
Carlsons vissi sænska öryggislögregl-
an um rannsókn sína frá byrjun.
í gær tók Tharge Peterson við
embætti Önnu-Gretu Leijon sem
dómsmálaráðherra Svíþjóðar, en
Anna-Greta neyddist til að segja af
sér vegna einkarannsóknar Carlsons
þegar ljóst var að vantrauststillaga
borgaraflokkana á hana yrði
samþykkt. Sakaði Anna-Greta
borgaraflokkana um að gera þetta
mál að kosningamáli, en þingkosn-
ingar verða í Svíþjóð í haust.
Ingvar Carlsson lýsti því yfir í gær
að þegar Jafnaðarmannaflokkurinn
hefði sigrað þingkosningarnar í sept-
ember myndi Anna-Greta Leijon
koma aftur til starfa sem ráðherra,
en þó ekki dómsmálaráðherra, enda
bæri hann fullt traust til hennar.
Michael Dukakis mun verða val-
inn forsetaefni Demókrataflokksins
í fyrstu umferð á flokksþingi Demó-
krataflokksins sem haldið verður í
Atlanta í næsta mánuði. í gær sigraði
hann glæsilega í síðustu forkosning-
unum sem haldnar voru í Bandaríkj-
unum og hlaut alls 2124 kjörfulltrúa
á flokksþingið, 43 fleiri fulltrúa en
hann þurfti til að hljóta útnefningu í
fyrstu umferðinni. Jesse Jackson
helsti keppinautur Dukakis í síðari
hluta forkosninganna hélt kosninga-
baráttu sinni áfram allt til loka og
hlaut 1009 kjörfulltrúa.
í byrjun var hinn grískættaði
Michael Dukakis, ríkisstjóri í
Massachussetts, ekki talinn sigur-
stranglegur í baráttunni fyrir útnefn-
ingu sem forsetaefni demókrata.
Hins vegar fór vegur hans vaxandi er
á leið og að lokum fór svo að allir
aðrir frambjóðendur, utan blökku-
maðurinn Jesse Jackson, heltust úr
lestinni. Nú er svo komið að
Dukakis þykir mun líklegri til að
sigra í forsetakosningunum í Banda-
ríkjunum, sem fram fara í nóvem-
ber, heldur en George Bush varafor-
seti, sem tryggði útnefningu sína
sem forsetaefni repúblikana
snemma í forkosningabaráttunni þar
á bæ. Sýna nýjustu skoðanakannanir
að Dukakis hafi nú 15% forskot á
Bush, svo allar líkur eru á að
sigurgöngu Dukakis ljúki ekki fyrr
en í Hvíta húsinu.
Miklar vangaveltur eru nú uppi
um hvern Dukakis muni velja sér við
hlið sem varaforsetaefni. Markmið
Jesse Jacksons, eftir að ljóst var að
hann ætti ekki möguleika á útnefn-
ingu, var að ná það mörgum kjörfull-
trúum að hann gæti haft veruleg
áhrif á áherslur og stefnu Dukakis í
komandi kosningabaráttu, jafnvel
að verða sjálfur varaforsetaefni. Eft-
ir sigurinn í gær sagði Dukakis ekki
útiloka neinn, en á orðum hans
mátti skilja að Jesse Jackson sé ekki
efstur á óskalistanum.
Ef Michael Dukakis verður kjör-
inn forseti Bandaríkjanna í haust
eins og margt bendir til, þá kæmi
upp sú skemmtilega staða að tveir
voldugustu menn í heiminum verða
nafnar. Michael Dukakis forseti
Bandaríkjanna og Mikhail Gorbat-
sjov aðalritari sovéska kommúnista-
flokksins. Hvort það skipti einhverju
máli fyrir heimsmálin er önnur saga.