Tíminn - 14.06.1988, Page 3
• rt í
» v t ■*»
Þriöjudagur 14. júní 1988
Tíminn 3
Hallarbylting í stjórn Tívolís í Hverageröi og fyrrverandi meirihluti fullyröir:
Aðalfundurinn ólöglegur
og kærðurtil dómstóla
Kaupland, hlutafélagið sem rekur Tívolíið í Hveragerði, hélt aðalfund
sinn á föstudag. Á þeim fundi sauð upp úr og var gerð hallarbylting í
stjórninni. Tívolíinu hefur verið lokað og er alls óvíst hvenær það verður
opnað á ný.
Forsagan
Forsaga málsins er sú að fyrir
þremur árum opnuðu þeir Sigurður
Kárason og Pálmar Magnússon
Tívolí í Hveragerði. Það ráku þeir
sameiginlega og gekk reksturinn
all þokkalega, en eins og gengur og
gerist reyndist fjárþörf fyrirtækis-
ins mjög mikil og leituðu þeir
félagar þá að mönnum til að leggja
fjármagn í reksturinn.
í janúar á síðasta ári höfðu þeir
síðan samband við Ólaf Ragnars-
son hæstaréttarlögmann og varð
það að samkomulagi að hann legði
fé í reksturinn. Var þá byggt yfir
Tívolíið og átti Ólafur húsnæðið.
Kostnaðurinn við reksturinn fór
hins vegar úr böndunum og upp úr
því fór að bera á miklum samstarfs-
örðugleikum milli Sigurðar og
Pálmars annars vegar og Ólafs hins
vegar. Tívolíið komst síðan í alvar-
legt þrot á síðasta ári og gekk þá
Ólafur úr stjóm félagsins.
Aðalfundurinn kærður
„Frá mínum bæjardyrum séð þá
fór Ólafur úr rekstrinum og ég og
Pálmar rákum garðinn og reyndum
að losa skemmtigarðinn úr þeim
vandræðum sem hann var kominn
í. Síðan var haldinn þessi aðalfund-
ur á föstudaginn, sem var ólöglegur
og ég mun kæra hann til viðskipta-
ráðuneytisins," sagði Sigurður
Kárason í samtali við Tímann í
gær.
Á aðalfundinum gerðist það að
Ólafur og félagar hans sögðust
hafa náð 51% hlutafjárog réðu því
fyrirtækinu með meirihlutanum.
Ólafur gerðist síðan stjórnarfor-
maður og sendi Sigurði skeyti þar
sem honum var tilkynnt að hann
ynni ekki lengur í Tívolíinu.
„Það var ólöglega til fundarins
boðað og auðvitað gengur ekki að
halda fund þar sem enginn fær að
vita hver á hlutaféð. Við gengum
því út af fundinum og málið fer
fyrir dómstóla," sagði Sigurður.
Rafmagnið tekið af
Tívolíinu
Að hans mati er það ekki rétt að
Ólafur og félagar hans eigi 51%
hlutafjár. Viss hluti fjárins átti að
liggja dauður, en sá hluti virðist
hins vegar hafa verið notaður á
fundinum.
En þeir Sigurður og Pálmar
höfðu ekki sagt sitt síðasta í mál-
inu, því þeir og fjölskyldur þeirra
höfðu gengist í persónulegar
ábyrgðir fyrir rafmagni og þegar
ljóst var að þeir höfðu orðið undir
á þessum aðalfundi, drógu þeir
sínar ábyrgðir til baka og rafmagn-
ið var því tekið af Tívolíinu. Raf-
magnið fæst ekki á aftur fyrr en
þær skuldir fást greiddar.
„Við og okkar fjölskyldur höfum
tekið á okkur mikinn fjölda pers-
ónulegra ábyrgða fyrir Tívolíið í
Hveragerði og höfum á stundum
verið að semja við hálfa lögmanna-
stéttina í landinu. En það er á
hreinu að þessi aðalfundur var
meira og minna ólöglegur og þetta
fer ekki af stað aftur fyrr en málið
er leyst,“ sagði Sigurður.
Jám í jám
Hin nýja stjóm Kauplands hefur
á hinn bóginn eitthvað misskilið
rafmagnslokunina og hengdi um
helgina miða á dyrTívolísins, sem
á stóð að starfsemi þess lægi niðri
vegna rafmagnsbilana.
En ef málið fer fyrir dómstóla,
verður langt í að Tívolí í Hvera-
gerði verði opnað á ný. En er
önnur leið til í málinu?
„Einu mennirnir sem geta leyst
málin eru ég og Ólafur, bara okkar
á milli. En við virðumst ekki getað
talað saman nema þá í gegnum
þriðja aðila. Málið er því nú jám í
járn,“ sagði Sigurður. -SÓL
Hallgrímskirkja með húfu. Allur ríkisstyrkurínn fer í viðgerð á frost-
skemmdum. (TímimePjetur)
Lagfæringar á frostskemmdum:
Kosta lOmilljónir
Kostnaður við viðgerð á Hall-
grímskirkjuturni hefur farið fram
úráætlun. Sr. RagnarFjalarLárus-
son sagði í samtali við blaðamann
Tímans að upphaflega hefði verið
áætlað að viðgerðin myndi kosta
7-8 milljónir, en nú væri ljóst að
kostnaður yrði um 10 milljónir.
Sagði hann að þetta væri sama og
sú upphæð sem kirkjan fengi í ár
frá ríkinu. Þrön'gt væri því í búi hjá
kirkjunni og hefði orðið að hætta
við ýmsar innanhússframkvæmdir,
s.s. að setja upp loftræstikerfi,
vegna þessa.
Þegar skemmdirnar komu fram
var haldið útboð á verkinu og þeir
sem tóku að sér verkið nota til
viðgerðarinnar nýtt efni, sem þeir
auglýsa utan á turninum. Má því
ætla að verkið færi þeim gróða á
fleiri en einu sviði.
Áætlað er að verkinu Ijúki í
september n.k. -sh
Verðsamanburður í norðlenskum matvöruverslunum:
KEA er bæði með þeim
ódýrustu og dýrustu
Eftir nýlega verðkönnun á 100
matvörutegundum í 40 verslunum á
17 stöðum á Norðurlandi hefur
Verðlagsstofnun gefið út hlutfalls-
legan verðsamanburð milli verslan-
anna, þ.e. hve margar vörutegundir
í hverri verslun voru neðan við
meðalverð þeirra allra og hve marg;
ar ofan við meðalverðið. Hagkaup
og Kjörmarkaður KEA á Akureyri
voru með flestar vörur (94% og
86%) undir meðalverði, en í 2. og 3.
sæti á hinum endanum, þ.e. oftast
fyrir ofan meðalverð, voru einnig
KE A búðir, á Akureyri og Grenivík.
Þá sýnist athyglivert að báðar
matvöruverslanirnar á Ólafsfirði
röðuðu sér í 3. og 4. lægsta sæti. En
á hinn bóginn á fólk á tólf af þeim
sautján stöðum sem könnunin náði
til kost á hagkvæmari verslunum
heldur en jafnvel í ódýrustu verslun-
inni á Sauðárkróki. 1 því sambandi
er og athyglivert að vöruverð virðist
lægra í þrem útibúum Kaupfélags
Skagfirðinga heldur en í Kjörbúð
KS á Sauðárkróki, sem þó er hag-
kvæmasta verslunin á Króknum.
Svipað má raunar segja um útibú
Kaupfélags Þingeyinga á Fosshóli og
Mývatnssveit samanborið við höfuð-
stöðvarnar á Húsavík.
Þetta kann m.a. að skýrast af
mismunandi veltuhraða. Verðlags-
stofnun tekur fram að tollalækkanir
um áramót hafi ekki að fullu verið
komnar fram í öllum verslunum og
þá því að síður öll áhrif gengisbreyt-
ingarinnar nú í maí mánuði s.l.
Verðlagsstofnun bendir einnig á að
opnunartími smærri verslana á Ak-
ureyri og verslana á vinsælum ferða-
mannastöðum á svæðinu sé langur,
en leggur hins vegar ekki mat á áhrif
þess.
Af þeim 40 verslunum sem
könnunin náði til eru 14 á Akureyri,
4 á Sauðárkróki, 3 á Siglufirði og
Húsavík, 2 á Ólafsfirði, Hofsósi og
í Mývatnssveit, en tíu af sautján
stöðum hafa aðeins eina verslun,
oftast nær kaupfélagsútibú. Ekki
eru kaupfélögin þó einráð á mark-
aðnum. Á vegum þriggja kaupfélaga
eru samtals 23 af 40 verslunum á
svæðinu, þar af 15 frá Kf. Eyfirð-
inga, 4 frá Kf. Skagfirðinga og 4 frá
Kf. Þingeyinga. - HEI
Aðalfundur Kísiliðjunnar hf. í gær:
Framleiðsla á vín- og
vatnssíum skilaði ágóða
í gær var haldinn aðalfundur Kís-
iliðjunnar hf. í Mývatnssveit. I
tengslum vád fundinnvar þess minnst
að 20 ár eru liðin frá upphafi kísil-
gúrframleiðslu verksmiðjunnar. Að
því tilefni sótti Friðrik Sophusson,
iðnaðarráðherra, verksmiðjuna
heim svo og yfirmenn bandaríska
fyrirtækisins Manville Corporation í
Evrópu, en Kísiliðjan hf. er í eigu
þess fyrirtækis, íslenska ríkisins og
nokkurra bæjar- og sveitarfélaga á
Norðausturlandi.
Afkoma Kísiliðjunnar hf. var góð
á síðasta ári, þrátt fyrir aukna sam-
keppni á kísilgúrmörkuðum varð
12,2 milljóna hagnaður. Þá var efna-
hagsstaða Kísiliðjunnar um síðustu
áramót góð. Hjá fyrirtækinu störf-
uðu að meðaltali 63 starfsmenn á
síðastliðnu ári. Framkvæmdastjóri
er Róbert B. Agnarsson.
Framleiðsla verksmiðjunnar, kís-
ilgúrinn, er notaður til síunar á
ýmsum vökvum. Dæmi um slíkt er
vatn, bjór, olía og vín. Einnig hefur
kísilgúrinn verið notaður sem fylli-
efni t.d. í tannkrem og málningu.
Kísilgúrinn er unninn úr skelja-
leifum kísilþörungsins, sem lifir í
Mývatni. Jarðgufa, ættuð úr Bjam-
arflagi, er síðan notuð til að þurrka
kísilgúrinn.
Um sölu kísilgúrsins sér Sölufélag-
ið Manville hf. á Húsavík. Bróður-
partur hans fer á Evrópumarkað.
óþh
Greinargerðir um álverssamning:
VSÍ ekki tilbúið
Fulltrúar verkalýðsfélaganna tíu
í álverinu skiluðu í gær greinargerð
um nýgerðan kjarasamning sem
ríkislögmaður álítur brjóta í bága .
við bráðabirgðalögin. Ekki vildu
þeir tjá sig um innihald hennar fyrr
en ríkisstjórnin hefur fjallað um
hana. Vinnuveitendur hafa enn
ekki skilað sinni greinargerð og var
verið að vinna við að koma henni
saman í gær. Ólíklegt er því talið
að ríkisstjórnin muni fjalla um
greinargerðirnar í dag.
JIH