Tíminn - 04.08.1988, Síða 2
2 Tímihn
Fimmtudagur 4. ágúst 1988
Nýskráningar fyrstu sjö mánuði ársins:
27%færri skráðir
en á síðasta ári
Bifreiðaeftiriit ríkisins nýskráði 1.176 bifreiðir í síðasta
mánuði og voru 1.012 þeirra nýjar en 164 voru notaðar. Þá
voru 791 bifreið afskráð og 61 bifreið var endurskráð.
Annars voru 1.415 bifreiðir ný-
skráðar í janúar, en voru 1.317 í
sama mánuði í fyrra, eða 96 fleiri í
ár. { febrúar voru 1.727 nýjar
bifreiðir skráðar, á móti 1.440 árið
1987,m eða 287 fleiri nú. í mars
voru skráðar 2.097 nýjar bifreiðir,
en 2.031 í sama mánuði í fyrra, eða
66 bifreiðum fleiri í ár. í apríl voru
skráðar 886 bifreiðir á móti 1.914
á síðasta ári. Þarna er því um að
ræða fækkun um 1.028 bifreiðir.
Þegar komið er fram í maí, þá
voru skráðar 1.964 bifreiðir, en
2.447 bifreiðir í fyrra. Munurinn er
483 bifreiðir. í júní voru 1.409
nýskráningar á móti 2.692 í sama
mánuði á síðasta ári. Munurinn er
1.283 bifreiðir.
Loks er það síðasti mánuður, en
þá voru skráðar 1.176 bifreiðir á
móti 2.728 í sama mánuði 1987.
Munurinn er 1.552 bifreiöir.
Nýskráningar í júlí voru 43% af
nýskráningum í júlí 1987. Nýskrán-
ingar fyrstu sjö mánuði ársins eru
73% af nýskráningum fyrstu sjö
mánaða ársins 1987. -SÓL
Víða má sjá bunka af bílum,sem
seljast illa. rimamjnd: Gunnar.
Ferskfisksölur erlendis:
Samtals seldu skipin fjögur rétt
tæp 500 tonn fyrir 37,76 milljónir
króna, eða hvert kíló á 75,57 krónur.
Af heildaraflanum voru tæp 366,5
tonn af þorski og var meðalverðið á
kílóinu 73,30 krónur. Rúm 95 tonn
voru af ýsu sem fór á 91,28 krónur
kílóið, 17,2 tonn voru af ufsa, sem
fór á 27,92 krónur og minna var af
öðrum tegundum. Meðalverð karfa
var 35,23 krónur, kola 83,55 krónur,
grálúðu 81,07 og blandaður afli fór
á 96,39 krónur.
Liðlega 1.011 tonn voru seld í
gámum til Bretlands í vikunni sem
leið, og fengust 73,06 milljónir fyrir
það magn. Meðalkílóverðið var
73,02 krónur. 504,5 tonn voru af
þorski, sem fór á 71,03 krónur hvert
kíló, 136,78 tonn voru af ýsu, sem
seldist á 90,42 krónur, 24,5 tonn
voru af ufsa sem fór á 28,26 krónur,
15 tonn voru af karfa, sem fór á
35,10 krónur, 230,3 tonn voru af
kola sem seldist á75,25 krónur, 13,2
tonn voru af grálúðu sem fór á 70,71
krónur og loks voru 87,15 tonn af
blönduðum afla, sem fór á 78,81
krónur hvert kíló.
Loks seldi Ásbjörn RE 158,3 tonn
í Boulogne í Frakklandi í síðustu
viku og fékk fyrir 7,44 milljónir, eða
47,03 krónur fyrir hvert kíló.
Aflinn samanstóð af þorski, ufsa,
karfa og blönduðum afla. 57,3 tonn
voru af þorski og seldist kílóið af
Ekkert eftirlit haft með
söluskattsskilum ormasala
Fjórir togarar seldu afla
sinn í Bretlandi í síðustu
viku. Huginn YE seldi 137,26
tonn í Hull fyrir 10,67 mill-
jónir, eða 77,78 krónur á
hvert kíló. Katrín VE seldi
97,64 tonn, einnig í Hull, á
5,87 milljónir króna, eða
hvert kíló á 60,17 krónur.
Særún ÁR seldi í Grimsby
rúm 109 tonn á 7,78 milljón-
ir, eða hvert kíló á 71,37
krónur og Otto Wathne NS
seldi einnig í Grimsby, 168,6
tonn fyrir 13,43 milljónir,
eða 86,23 krónur fyrir hvert
kíló.
honum á 57,03 krónur. 33,5 tonn
voru af ufsa, sem fór á 30,82 krónur,
62,9 tonn voru af karfa, sem seldist
á 44,52 krónur og 4,5 tonn voru af
blönduðum afla sem seldist á 75,32
krónur hvert kíló. -SÓL
Ánamaðkar urðu sölu-
skattsskyldir með lögunum
um söluskatt sem tóku gildi
7. janúar sl., sem beita til
annarra veiða en í atvinnu-
skyni. Laxveiðin í ám lands-
ins telst víst ekki til veiða í
atvinnuskyni, menn borga
fyrir að veiða laxinn (þó
sumir veiði eins og þeir fái
borgað fyrir það). Tíminn
greindi frá þessari nýju til-
högun í grein 3. febrúar sl.
og þeim áhrifum sem sölu-
skatturinn hefði á verð ána-
maðka, og var þá jafnframt
sagt frá því að engar ráðstaf-
anir hafl verið gerðar á
vegum skattstjórans í
Reykjavík til að hafa upp á
þeim aðilum sem stunda
slíka verslun, enda var lítið
um sölu á ánamöðkum í
febrúar.
Það er annað uppi á teningnum
núna, veiðin gengur glatt og ána-
maðkar eru tíndir í gríð og erg.
Skyldi Skattstofan í Reykjavík
vera með sérstakar ráðstafanir í
gangi nú?
Haraldur Árnason hjá sölu-
skattsdeild sagði að söluskatts-
Ormasalar hækkuðu maðkinn, en óvíst er með skil á söluskatti.
skylda starfsemi bæri að tilkynna
skattstofunni en að ekkert væri
gert til að hafa sérstaklega upp á
henni. Mönnum ber að tilkynna sig
ótilkvaddir og geri þeir það ekki
sagði Haraldur það koma fram við
samanburð skattframtala og sölu-
skattsskýrslna. Eina hugsanlega
leiðin til að fylgjast með ána-
maðkasölunni væri í gegnum smá-
auglýsingar en slíkt er ekki gert.
Á þessu stigi er ómögulegt að
gera sér grein fyrir því hvernig
heimtur á söluskatti af ánamöðk-
um eru, þær koma ekki í ljós fyrr
en skattframtölin liggja fyrir. JIH
1.669tonn seld
í síðustu viku