Tíminn - 24.08.1988, Page 3
'Miðvikudagu'r 24. ágúst 1988
Um 2/3 allra sparisjóða landsins í tveim kjördæmum:
Banki á hverjar
100 fjölsky Idur
Skortur á innlánsstofnunum ætti tæpast að koma í veg fyrir
að Vestfirðingar geti ávaxtað þá aura sem þeir kunna að eiga
afgangs, því samtals eru 28 bankaútibú, sparisjóðir og
innlánsdeildir á Vestfjörðum. Það svarar til þess að ein
innlánsstofnun sé þar vestra fyrir hverja 365 íbúa - eða fyrir
hverjar 100 fjölskyldur á Vestfjörðum, sem er hæsta banka-
hlutfall á landinu miðað við fólksfjölda.
Þetta „bankaríkidæmi" Vestfirð-
inga skýrist ekki hvað síst af þvf að
þeir eiga nær þriðjunginn af öllum
sparisjóðum og innlánsdeildum
landsins og svo þess utan 8 bankaúti-
bú og umboðsskrifstofur.
Alls voru 204 innlánsstofnanir í
landinu um síðustu áramót, sam-
kvæmt skýrslu Seðlabankans um
banka og sparisjóði. Þar af voru 133
bankar, og bankaútibú og umboðs-
skrifstofur, hvar af hátt í helmingur-
inn er á höfuðborgarsvæðinu. Þá er
athyglivert að af alls 46 sparisjóðum
og útibúum þeirra í landinu eru 13 á
Vestfjörðum og aðrir 13 á Norður-
landi-eystra, en t.d. aðeins 1 á
Austurlandi og á Suðurlandi. Inn-
lánsdeildir eru 25 í landinu. Fjöldi á
hverju landssvæði og íbúafjöldi á
hverja innlánsstofnun var sem hér
segir:
„Bankar“ íbúará „banka'
Höfuðborgarsv. 63 2.238
Suðurnes 11 1.599
Vesturland 13 1.149
Vestfirðir 28 365
Nl-vestra 14 760
Nl-eystra 30 864
Austurland 20 655
Suðurland 24 833
í þessum innlánsstofnunum sínum
geymdu landsmenn tæplega 7U mill-
jarða króna um síðustu áramót.
Innlán eftir landssvæðum og innlán
á hvern íbúa þeirra voru sem hér
segir:
Millj. Þús. kr. á íbúa
Höfuðborgarsv. 44.264 324
Suðunes 3.304 207
Vesturland 3.167 212
Vestfirðir 2.645 259
Nl-vestra 2.869 270
Nl-eystra 5.668 219
Austurland 2.726 208
Suðurland 5.035 252
Samkvæmt þessu er töluvert til í
þeim fullyrðingum að mest af pen-
ingunum safnist saman á höfuðborg-
arsvæðið. Athygli vekur að allt að
þriðjungs munur skuli vera á innlán-
um á mann á milli kjördæma utan
höfuðborgarsvæðisins, eins og t.d.
Norðurlands-vestra annars vegar og
Austurlands hins vegar.
Þá virðist mjög misjafnt hve fólk
er vakandi yfir því að geyma sparifé
sitt á öðrum reikningum heldur en
almennum sparisjóðsbókum. Vextir
á þeim eru, og hafa nær alltaf verið,
langt undir verðbólgu, þannig að
inneignir á þeim rýrna oft verulega.
En þegar litið er á skiptingu spari-
innlána einstakra banka og spari-
sjóða kemur í ljós að í sumum er allt
niður í 12% spariinnlánanna á al-
mennum sparisjóðsbókum - en í
öðrum (sérstaklega sparisjóðum)
geymir fólk jafnvel yfir 60% spari-
fjár síns á slíkum réikningum.
Af 22,8 milljóna innlánum í Spari-
sjóði Mýrarhrepps eru t.d. aðeins
um 30% á tékkareikningum og al-
mennum sparisjóðsbókum, en hins
vegar nær 43% á verðtryggðum
reikningum og það sem á vantar á
öðrum bundnum og óbundnum
reikningum. Vextir af þessum inn-
lánum voru samtals 3.526 þús.
krónur.
Af 12,8 milljóna innlánum í Spari-
sjóði Árneshrepps voru hins vegar
64% innlánanna á almennum spari-
sjóðsbókum, en aðeins 17% á verð-
tryggðum reikningum. Vextir af
þessum innlánum voru 1.566 þús.
krónur á árinu. Ætla má að sparifjár-
eigendur í Árneshreppi hefðu fengið
rúmlega 400 þús. krónum hærri
upphæð í vexti (26%) hefði þeir
hagað vali sínu á innlánsreikningum
svipað og Mýrhreppingar. Þessi
vaxtamunur svarar til um 3.000 kr. á
hvern einasta íbúa Árneshrepps.
Sparisjóðurinn græðir hins vegar á
þessu. Hagnaður Sparisjóðs Árnes-
hrepps var 763 þús. kr. á árinu en
hins vegar aðeins 210 þús. kr. hjá
Sparisjóði Mýrhreppinga.
Tekið skal fram, að þessir tveir
sparisjóðir eru hér aðeins teknir sem
dæmi um þennan mun á milli spari-
sjóða og banka, en þeir eru langt frá
að vera nein einsdæmi í þessum
efnum. En þessi dæmi sýna einnig að
ekki er síður vandi að gæta fengins
fjár heldur en eð afla þess. - HEI
Disneyklúbburinn:
Útgáfufyrirtækið Vaka-Helgafell
er þessa dagana að hleypa af stokk-
unum nýstárlegum bókaklúbbi. Þar
er um að ræða fyrsta bókaklúbbinn
hér á landi sem eingöngu er ætlaður
börnum. Hann hefur hlotið nafnið
Bókaklúbbur barnanna, Disney-
klúbburinn og verður bókavalið
miðað við börn allt að 10 ára aldri.
Markmiðið með stofnun klúbbsins
er að auka úrval vandaðra bóka
handa íslenskum börnum frá því
sem nú er og stuðla að nánari
kynnum yngstu kynslóðarinnar af
bókum og bóklestri. Með klúbb-
formi verður hægt að halda verði
bókanna undir búðarverði hlið-
stæðra bóka.
Við gerð bókanna er tekið mið af
því að þær þroski skyn og skilning
barnanna en veiti þeim auk þess
ánægju. Þær eru ríkulega mynd-
skreyttar, vandað hefur verið til
málfars og þess gætt að hæfilegt
lesmál sé á hverri síðu. Með bókun-
um fylgir endurgjaldslaust blað
barnabókaklúbbsins, Gáski, sem í
er ýmis fróðleikur, tómstundavið-
fangsefni, gamanmál og getraunir.
Meðal verðlauna eru fjölskylduferð-
ir til Disneyworld í Flórída í Banda-
ríkjunum.
Kannanir í nálægum löndum hafa
sýnt að áhugi fyrir barnabókum og
lestri þeirra hefur aukist að mun
með tilkomu sérstakra bókaklúbba
fyrir börn og eru bundnar vonir við
að svipað verði uppi á teningnum
hér á landi með tilkomu Bókaklúbbs
barnanna. SH
Lestur góðra bóka er þroskandi
fyrir unga sem aldna.
Tírninn 3
Við fækkum um eina sætaröð
í öllum innanlandsvélunum og aukum bilið
til þess að betur fari um þig.*
Fljúgðu innanlands
og finndu muninn
*Breytingunum verður lokið á öllum
Fokkerflugvélunum 1. september.
FLUGLEIÐIR
AUK/SlA k110d20-172