Tíminn - 24.08.1988, Page 5
Miövikudagur 24. ágúst 1988
Tíminn 5
Þingflokkar ríkisstjórnarinnar ræða í dag um niöurfærsluna:
Launa- og búvöruverðs-
hækkun 1. sept. f restað?
Ríkisstjórnin komst í gær að samkomulagi um að fara að tillögu
ráðgjafanefndarinnar um að reyna til þrautar að stíga niðurfærslu-
sporið í væntanlegum efnahagsaðgerðum. Tillögur nefndarinnar,
sem hún formlega skilaði til forsætisráðherra fyrir ríkisstjórnarfund
í gær, verða lagðar fyrir þingflokka stjórnarflokkanna í dag.
Þingflokkar Alþýðuflokks og Framsóknar munu þinga í Reykjavík
en þingflokkur sjálfstæðismanna kemur saman til fundar á Akureyri.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, segir að ráðgjafanefndin hafi
ekki útfært tillögur sínar um niður-
færslu, enda sé það hlutverk ríkis-
valdsins. Hann segist vona að þing-
flokkarnir geti tekið afstöðu til þess
á fundum í dag hvort þeir telji
niðurfærsluleiðina færa, þannig að
niðurstaða um þau mál geti legið
fyrir á ríkisstjórnarfundi sem boðað-
ur hefur verið á morgun.
Eins og margoft hefur komið fram
hafa menn gjarnan miðað efnahags-
aðgerðir við 1. september vegna
2,5% launahækkana sem bundnar
eru þeim degi í kjarasamningum svo
og vegna búvöruverðshækkana.
Það er nokkurn veginn óhætt að
slá því föstu að úr því sem komið er
verða víðtækar efnahagsaðgerðir,
hvaða nafni sem þær kunna að
nefnast, ekki tilbúnar fyrir þann
tíma. Af viðtölum Tímans í gær við
bæði ráðherra og þingmenn er ljóst
að menn vilja umfram allt að ekki sé
flanað að neinu í undirbúningi efna-
hagsráðstafana. Stjórnarliðar, úröll-
um stjórnarflokkunum, eru sam-
mála um það að 1. september sé ekki
neinn heilagur dagur með tímasetn-
ingu aðgerða.
En hvað þýðir það? Það var
samdómaálit viðmælenda Tímans í
gær að ríkisstjórn verði að taka
afstöðu til þess á fundi hennar á
morgun hvort t.d. samningsbundn-
um launahækkunum verði frestað
um óákveðinn tíma með setningu
bráðabirgðalaga á meðan að stjórn-
arflokkarnir vinna sér tíma.
Eftir ríkisstjórnarfundinn í gær
sagði fjármálaráðherra að hægt væri
að láta þessar hækkanir ganga í gegn
1. september, en það væri á hinn
bóginn mjög skynsamlegt að ná
samstöðu um að fresta þeim. Undir
þessi orð tók forsætisráðherra. Af
þessum ummælum má ráða að
stjómarherrarnir hyggist fresta gild-
istöku launa- og búvöruverðshækk-
ana um óákveðinn tíma, en hinsveg-
ar hafi ekki beint verið tekin afstaða
Komið af ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Tíminn Pjetur.
til þess hvernig að því verði staðið.
Margar tillögur ráðgjafanefndar-
innar svokölluðu má í raun segja að
séu pólitískt sprengiefni. Að
minnsta kosti er ljóst að ef stjórnar-
flokkarnir gera þær að sínum sam-
eiginlegu tillögum, verða einstaka
stjórnarflokkar að leggja ýmislegt af
sínum áhersluatriðum í geymslu-
hólfið, um tíma að minnsta kosti.
Fyrsti póstur í niðurfærslutillögum
ráðgjafanefndarinnar er 9% lækkun
launa frá og með 1. sept og að laun
verði fryst til júlí á næsta ári. Síðan
er gert ráð fyrir verðlagslækkunum
nálægt 5 prósentustigum og að verð-
bólga snarlækki innan þriggja mán-
aða niður í rúm 10%.
Ráðgjafanefndin leggur mikla
áherslu á að dregið verði stórlega úr
framkvæmdum og fjárfestingum
hins opinbera og sömuleiðis sveitar-
félaga. Á þetta atriði lagði Jón
Baldvin einnig ríka áherslu, eftir
ríkisstjórnarfundinn í gær, að það
væri höfuðforsenda raunhæfra efna-
hagsráðstafana, hvort sem niður-
færsla eða einhver önnur leið yrði
fyrir valinu. Og í samræmi við þessi
ummæli sagði fjármálaráðherra að
ekki væri gert ráð fyrir neinum
nýframkvæmdum á vegum ríkisins í
fyrstu drögum framkvæmdaáætlana
rfkisins fyrir næsta ár, heldur væri
einungis við það miðað að halda
áfram þeim frámkvæmdum sem þeg-
ar væru komnar vel á veg.
Af einstökum liðum í tillögum
ráðgjafanefndarinnar má nefna
skyldusparnað á hátekjur frá og með
1. október 1988 til og með 1. október
1990. Lagt er til að ríkinu verði ekki
heimilt að fjölga starfsmönnum til
ársloka 1989. Þá er tillaga um að
afborgunarsamningar með greiðslu-
kortum verði ekki heimilir. Ráð-
gjafanefndin viil að erlendar lántök-
ur verði stöðvaðar nema fyrir af-
borgunum erlendra lána.
Hér til hliðar eru stutt viðtöl við
forystumenn stjórnarflokkanna að
afloknum ríkisstjórnarfundi í gær.
óþh
Hundrað krónur
fyrir ýsukílóið
Birgir og Gunnar Vagnssynir keppa fyrir Hjólbarðahöliina í erfiöasta ralli ársins, Michelinralli Hjólbarðahallarinnar.
Frá heimsókn Tímans á æfingu þeirra bræðra í gær. Tímamynd Pjetur
Michelin rallkeppni Hjólbarðahallarinnar berst víða um Suðurland næstu daga:
RÆST í ERFIDASTA
RALLIÐ Á MORGUN
Michelin rallkeppni Hjólbarða-
hallarinnar hefst á morgun fimmtu-
dag og er þetta lengsta og eitt
strangasta rail sem haldið verður í
ár. Hefur það til þessa gengið undir
nafninu Ljómarall, en ekki náðust
samningar við það fyrirtæki í ár og
hljóp Hjólbarðahöllin undir bagga
með stuðning við mótið. Alls verður
keppt á 34 rallbílum og koma menn
víðs vegar að tii keppni. Af útlend-
ingum má nefna Bogdanski sem
keppir með einum sterkasta kepp-
anda rallsins, Steingrími Ingasyni á
Datsun 510, Orchard á Peugeot 205,
Walker á Corolla, Colomb á Peug-
eot 205, Gobert á Fiat Uno turbo og
Moore á Lada Niva.
Tíminn ræddi við þá sem keppa
fyrir Hjólbarðahöllina í Michelin-
rallinu, bræðurna Birgi og Gunnar
Vagnssyni, og fór með þeim í
reynsluakstur og talar myndin sínu
máli um aksturslagið á lokuðum
æfingarbrautum þeirra. Segja þeir
svo frá að þetta sé erfiðasta rallmót
ársins eins og það hefur reyndar
verið svo um nokkurra ára skeið
undir öðru nafni. Alls er áætlað að
keppendur leggi undir sig um tólf til
fimmtán hundruð kílómetra, en sér-
leiðirnar einar eru um 425 km. Eru
þeir bræður á traustum bíl, en því
miður ekki með ákjósanlegustu vél-
ina. Hún hrundi í síðasta ralli sem
haldið var við Ólafsvík og hafa þeir
ekki náð að fá aðra vél en staðlaða
1600 vél, sem þeir hafa getað á
skömmum tíma kreist upp í 120
hestöfl með ýmsum ráðum. Þeir eru
hvergi bangnir við hina keppend-
urna en gera sér þó grein fyrir að
erfitt verði að keppa við þá sem nú
eru í fjórum efstu sætum íslands-
meistarakeppninnar. Það eru þeir
Jón Ragnarsson á Escort RS, Stein-
grímur Ingason á Datsun 510, Guð-
mundur á Nissan 240 RS og Jón S.
Halldórsson á Porsche 911. Allir
hafa þessir ökumenn yfir meira en
200 hestöflum að ráða og virðist það
ráða efstu úrslitum þar sem barist er
um fáeinar sekúndur. í sumar hafa
minnst tvær sekúndur skilið á milli
efstu sæta og segir það sína sögu um
baráttuna.
Michelin rallkeppni Hjólbarða-
hallarinnar hefst á fimmtudag, 25.
ágúst, klukkan rúmlega tólf á hádegi
við Reykjavíkurflugvöll. Þaðan
berst keppnin á Þingvöll og á sérleið-
ir þaðan. Alls verða eknir 172 km á
sérleiðum þann daginn.
Annan daginn veður farið inn að
Heklubraut og Dómadalsleið. Hætt
var við að fara Fjallabaksleið vegna
Skaftárhlaups og verða því sér-
leiðirnar allar vestan Landmanna-
lauga. Alls verða eknir um 173 km á
sérleiðum þennan annan dag keppn-
innar.
Þriðja og síðasta daginn berst
keppnin vestur Lyngdalsheiði og
allar götur suður á ísólfsskálaleið á
Reykjanesi. Rúmlega 80 km verða
lagðir að velli á laugardaginn og
lýkur keppninni við Reykjavíkur-
flugvöll, þar sem hún hófst. KB
Fyrir ýsu fengust kr. 100,52 á
kílóið í skipasölu í Bretlandi 15.-19.
þessa mánaðar, sem er miklu hærra
verð en fékkst fyrir hana dagana
8.-12. þessa mánaðar, kr. 77,03.
Rúm 36,6 tonn af ýsu voru seld fyrir
samtals tæpar 3,7 milljónir króna.
f skipasölu voru 367 tonn af þorski
seld á meðalverð kr. 75,31, samtals
fyrir um 23,6 milljónir króna.
Meðalverð fyrir ufsa var kr. 23,05
á kílóið, kr. 74,81 fyrir blandað og
kr. 43,58 fyrir karfa. Mjög lítið var
selt af kola og grálúðu.
Rúm 340 tonn af þorski seldust í
gámasölu í Bretlandi dagana 15.-19.
þessa mánaðar, fyrir samtals um
25,2 milljónir króna. Meðalverð fyr-
ir kílóið var kr. 74,23, mun hærra en
verðið sem fékkst dagana 8.-12.
þessa mánaðar sem var kr. 68,78.
Fyrir ýsu í gámasölu fengust kr.
85,89 fyrir kílóið, um 5 krónum
króna.
Rúm 117 tonn af kola voru seld í
gámasölu á meðalverð kr. 69,12
(samanborið við kr. 77,75 8.-12.
ágúst). Söluverð nam rúmum 8,1
milljón króna.
Þá fékkst gott verð fyrir blandað-
an fisk, kr. 96,88 á kílóið fyrir 27,7
tonn. Söluverð nam því tæpum 2,7
milljónum króna. Fyrir ufsa fékkst
meðalverð kr. 25,88 á kílóið í gáma-
sölu, fyrir karfa kr. 41,76 og grálúðu
kr. 98,88.
Af einstökum skipum má nefna
að GULLVER NS 12 seldi samtals
tæp 128 tonn í Grimsby 16. ágúst,
fyrir meðalverð kr. 76,62 kílóið og
samtals 9,8 milljónir króna. ENG-
EY RE 1 seldi rúm 237,6 tonn í Hull
18. ágúst, á meðalverð kr. 71,04,
samtals fyrir tæpar 16,9 milljónir
króna. NÁTTFARI RE 75 seldi
rúm 70 tonn í Hull sama dag, fyrir
lægra en fékkst 8.-12. Seldust 116,6 meðalverð kr. 84,89 kílóið, samtals
tonn á sámtals um 10 milljónir fyrir tæpar 6 milljónir króna. JIH
Aðildarríki EBE og EFTA:
Samningur á lokastig
Drög að Samhliðasamningi hafa ræma löggjöf sína með þjóðarrétt-
nú verið gefin út hjá dóms- og arsamningum um ýmis tiltekin
kirkjumálaráðuneytinu og birtist efni.
þar íslensk þýðing á þeim samningi Samstarf aðildarríkja EBE og
sem ríki utan Efnahagsbandalags Fríverslunarbandalags Evrópu,
Evrópu, EBE, eru að undirbúa til EFTA, um þennan fjölþjóðasamn-
samræmis við Brusselsamninginn. ingsem nefndurerSamhliðasamn-
Fela báðir samningarnir í sér sam- ingurinn og hefði að geyma sam-
komulag um dómsvald og um fulln- svarandi reglúr og Brusselsamning-
ustu dóma í einkamálum. Áætlað urinn, hófst árið 1985 og í fyrra
er að endanlega verði gengið frá bættist ísland inn í undirbúnings-
Samhliðasamningnum í september hópinn. Aðilar innan þessara
1988. bandalaga geta orðið aðilar að
Samhliðasamningnum en gert er
Brusselsamningurinn varð til ráð fyrir að önnur ríki geti einnig
vegna 220. greinar Rómarsamn- orðið aðilar ef þeim er samhljóða
ingsins en með því ákvæði er boðin þátttaka af samningsríkjun-
aðildarríkjum EBE gert að sam- um. KB