Tíminn - 24.08.1988, Qupperneq 7
Miðvikudagur 24. ágúst 1988
Tíminn 7
Vel heppnuð hátíða-
höld á Siglufirði
Mikil hátíðahöld voru á Siglufirði
í síðustu viku, vikuna 13.-20. þessa
mánaðar. Þá var haldið upp á afmæli
Siglufjarðarbæjar, sem varð 70 ára
20. maí sl. Hátíðin þóttist takast vel
í alla staði, að sögn Harðar Júl-
íussonar, formanns hátíðanefndar
og fjöldi ferðalanga tók einnig þátt í
veisluhöldunum.
Það má segja að vikan hafi byrjað
á hápunktinum með komu Vigdísar
Finnbogadóttur, forseta íslands, til
Siglufjarðar laugardaginn 13. þessa
mánaðar. Skoðaði forsetinn bæinn,
sótti hátíðasamkomu í Siglufjarðar-
kirkju og hátíðarkvöldverð í boði
bæjarstjórnar.
A sunnudeginum var sótt messa í
Hvanneyrarskál, án efa sú fjölmenn-
asta sem sótt hefur verið og komu
þar meðal annars 60 hestamenn. Þá
var siglt til Hríseyjar á mánudegin-
um og glæsilegur grasknattspyrn-
uvöllur var vígður þriðjudagskvöld-
ið. Rættist þar langþráður draumur
margra íþróttaunnenda bæjarins.
Farið var í skoðunarferð um Siglu-
nes á miðvikudeginum og var siglt
þangað á smábátum í skaplegu
veðri. Sama dag hófst tveggja daga
sjóstangaveiðimót sem þótti heppn-
ast einstaklega vel og var afli góður.
Ekki má gleyma síldarballinu
föstudagskvöldið sem Siglufjarðar-
félag Reykjavíkur og nágrennis stóð
fyrir. Hljómsveitin Gautar lék fyrir
Önnum kafnir grillmeistarar matreiða hér pylsur í hundraðatali í Grillveislu aldarínnar.
Talið er að um 300 manns hafi veríð saman komnir í gríllveislunni að Hóli
þegar afmælishátíð Siglfirðinga lauk sl. laugardag.
dansi og var ballið mjög vel sótt og
minnti mannmergðin á staðnum á
síldartorfu.
Hátíðahöldunum lauksvosl. laug-
ardag með útidagskrá við Hól. Var
haldin grillveisla, flugeldasýning og
bálköstur tendraður í ágætis veðri.
Þar með var eftirminnileg vika á
enda og voru menn ánægðir með vel
heppnuð hátíðahöld. JIH
Ýmislegt gerðu menn sér til skemmtunar og fór kvenfóikið t.d. í
naglaboðhlaup. Hér sjást tvær blómarósir negla nagla i planka en áður höfðu
þær skriðið í gegnum tvær tunnur.
Frá afhendingu verðlauna fyrir snyrtilega garða og umhverfi fyrirtækja á
Siglufirði.
Tímamyndir ÖÞ