Tíminn - 24.08.1988, Qupperneq 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 24. ágúst 1988
FRÉTTAYFIRLIT
Rangoon - Vfir hálf milljón
manna mótmæltu friösamlega,
á götum Rangoon höfuðborgar
Burma í gær oa kröföust þess
aö lýöræði yrði komið á í
landinu.
Jóhannesarborg -
Tuttugu og fimm manns særð-
ust alvarlega í öflugri spreng-
ingu sem varö á skyndibitastað
í Suður-Afríku í gær.
Ibiza — Sautján ára gamall
drengur sem starfar sem
slökkviliðsmaður hefur játað að
hafa verið valdur að hinum
miklu skógareldum sem geisað
hafa undanfarna sólarhringa og
eyðilagt mörg hundruð hektara
lands.
Höfðaborg - Hundruð stúd-
enta í Suður-Afríku mótmæltu í
gær banni stjórnvalda við
andófssamtökum hvítra manna
sem mótmælt hafa herskyldu í
landinu.
Genf — Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin (WHO) hefur birt
skýrslu þar sem fram kemur að
fjöldi eyðnisjúklinga í heiminum
sé 200.000 til 250.000.
Bagdad - Talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna segir allt með
kyrrum kjörum á víglínum ír-
ana og íraka þrátt fyrir ákærur
beggja aðila um að hersveitir
hinna ógni vopnahléinu.
Khartoum - stjórnvöid í
Súdan ritskoða nú öll skrif
erlendra blaðamanna á svæð-
inu eftir að stjórnvöld í Súdan
hafa verið sökuð um að dreifa
ekki nauðsynjum jafnt til allra
hópa í landinu. Abdullah Mo-
hammer Ahmed upplýsinga-
ráðherra landsins gaf yfirlýs-
ingu um að öll skrif, myndir og
filmur verði að senda til rit-
skoðunar til upplýsingaráðu-
neytisins til samþykkis áður en
hlutirnir séu sendir úr landi. !
Beirút — Leiðtogar Múslíma
í Líbanon sem studdir eru af
Sýrlendingum hóta því að
koma í veg fyrir að kosningar
á nýjum forseta geti farið fram
nema að hópar kristinna
manna í landinu samþykki pólit-1
ískar umbætur.
Rom — Stjórnvöld í Eþíópíu
munu fljótlega fá afhent matvæli
að verðmæti 5.7 milljónir dollara
til að fæða þá 200.000 flótta-
menn frá Sómalíu sem þar eru
staddir, að sögn talsmanns
FAO, Matvæla- og landbúnað-
arstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna.
Höfðaborg - Nelson Mand-
ela blökkumannaleiðtoginn sem;
legið hefur á sjúkrahúsi frá því
12. ágúst síðastliðinn vegna
berkla nær sér á mun skemmri
tíma en reiknað hafði verið
með, að sögn lækna sem hafa
annast hann. Mandela neitar
því að Botha forseti Suður-Afr-
íku hafi boðiö honum lausn úr
fangelsi. Fjöldi lögreglumanna
stendur nú vörð fyrir utan Tyger-
berg sjúkrahúsið þar sem i
Mandela liggur.
ÚTLÖND
Sinnepsgas veldur bruna á hörundi og oft dauða.
Eiturgasárás íraka á íranskt sveitaþorp:
Hátt á þriðja
þúsund brenndir
Rannsóknir hafa leitt í Ijós að
írakar notuðu eiturgas við loftárás
sem þeir gerðu á þorp í íran fyrr í
þessum mánuði, að sögn sérfræðinga
Sameinuðu þjóðanna sem sendir
voru á staðinn til að rannsaka málið.
„Við höfum komist að þessari
niðurstöðu eftir vandlegar athugan-
ir. Þrátt fyrir síendurteknar óskir
Sameinuðu þjóðanna unr að eiturgas
væri ekki notað er nú komið í ljós að
írakar gerðu eiturgasárás á íbúa í
sveitaþorpi sem algerlega voru óvið-
búnir slíku og gátu enga björg sér
veitt,“ er haft eftir sérfræðingunum
sem rannsökuðu árásina.
Nánari upplýsingar varðandi at-
vikið koma fram í skýrslu sem lögð
var fram eftir þriggia daga heimsókn
sérfræðinganna til íran en stjórnvöld
í írak voru ásökuð í byrjun mánaðar-
ins fyrir að hafa varpað sprengjum
sem innihéldu eiturgas á bæinn Os-
hnaviyeh, sem er um 65 kílómetra
suður af Oroumiyeh í vesturhluta
Azerbaijan.
Haft er eftir stjórnvöldum í íran
að 2.680 einstaklingar liggi nú á
sjúkrahúsi vegna árásarinnar.
Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna
sem er sú fjórða á þessu ári og sú
áttunda frá því árið 1984 sem send
er til að rannsaka hvort eiturgas hafi
verið notað í Persaflóastríðinu
komst að þeirri niðurstöðu að full-
víst væri að um sinnepsgas hefði
verið að ræða að þessu sinni þar sem
sjúklingarnir sem skoðaðir hefðu
verið bæru greinileg merki þess.
Jafnframt hefði rannsókn á sjálfu
svæðinu þar sem árásin var gerð leitt
í Ijós að sinnepsgas hefði verið þar
að finna auk þess sem þar fundust
sprengjubrot sömu tegundar og ír-
akar hafa áður notað en seinni
fjögur ár Persaflóastríðsins hafa þeir
æ ofan í æ gert eiturgasárásir í írana
þrátt fyrir að alþjóðlegt bann við
notkun eiturgasvopna hafi verið í
gildi í 63 ár. IDS
Brottflutningur
kúbanskra herja
Gerð áætlunar varðandi brott-
flutning kúbanskra hersveita frá
Angóla mun verða meginviðfangs-
efni samninganefnda frá Suður-Afr-
íku, Angóla og Kúbu sem hittast til
friðarviðræðna í Brazzaville höfu-
ðborg Kongólýðveldisins í dag.
Friðarviðræðurnar sem hefjast
munu í dag marka nýtt stig í samn-
ingaumleitununum sem miða að því
að binda endi á stríðið í Angóla og
tryggja sjálfstæði Namibíu. Þetta er
fyrsti dagurinn sem ekki er barist á
vígvöllunum í suðurhluta Angóla
meðan samninganefndirnar ræðast
við, þar sem vopnahlé gekk í gildi í
kjölfar friðarviðræðna sem fóru fram
í Genf í byrjun mánaðarins.
í Genf var samþykkt að suður-afr-
ískar hersveitir yrðu fluttar á brott
frá Angóla fyrir 1. september og 1.
nóvember yrði hafist handa við gerð
áætlunar til að tryggja sjálfstæði
Namibíu.
Stjórnarerindrekar segja að fund-
armenn sem komi saman í dag niuni
einbeita sér að gerð áætlunar um
brottflutning hinna 50.000 kúbönsku
hermanna sem nú eru í Angóla.
Stjórnarerindrekar segjast hins veg-
ar telja að áætlunargerðin verði ekki
með öllu átakalaus og erfitt verði að
ná samkomulagi.
í byrjun mánaðarins bar Pik
Botha utanríkisráðherra Suður-Afr-
íku fram tillögu um að kúbanskar
hersveitir yrðu fluttar brott frá Ang-
óla fyrir júní á næsta ári. Stjórnvöld
í Angóla og Kúbu höfnuðu þessu og
sögðust telja það í sínum verkahring
að ákveða sameiginlega hvenær og á
hvern hátt brottflutningur færi fram,
það væri ekki hlutverk stjórnvalda í
Suður-Afríku. IDS
Áætlun varðandi brottflutning kúbanskra hersveita verður meginviðfangs
efnið á fundinum í dag.
Færri látnir í Indlandi
en upphaflega var talið:
Ástandið mun
verra í Nepal
Nú er ljóst að ekki létust eins
margir í norðurhluta Indlands í jarð-
skjálftanum á sunnudag og óttast
var í upphafi. Myndin er hins vegar
dekkri við rætur Himalayafjallsins í
suðausturhluta Nepal þar sem tala
látinna hækkar stöðugt.
„Óttast er að yfir þúsund manns
hafi látist í Nepal," sagði breskur
embættismaður í Hong Kong.
Bærinn Dharan í Nepal, þar sem
Bretar skrá Ghurka hermenn til
herþjónustu, varð verst úti í skjálft-
anum en þar lét að minnsta kosti 131
maður lífið. Flestir hinna 8000
Ghurkahermanna sem eru í breska
hernum eru staðsettir í Hong Kong.
Stjórnvöld í Khatmandu segja að
þar hafi tæplega 500 manns látið lífið
í skjálftanum.
Upphaflega var talið að allt að 650
manns hefðu látist á Biharsléttun-
um, en stjórnarerindrekar í Indlandi
segja að ástandið sé ekki svo slæmt
og nú sé vonast til að þar fari tala
látinna ekki upp fyrir 200.
Suresh Pandey talsmaður stjórn-
valda í Bihar sagði hins vegar að
ekki hefði enn verið hægt að komast
til nijög afskekktra staða vegna
slæms ástands vega og því ekki hægt
að gefa nákvæmar tölur.
Herþyrlur hafa verið teknar í
notkun til að flytja nauðsynjar til
sjúkrahúsa í Bihar þar sem fjölmargt
slasað fólk liggur. IDS
Göturnar í Khartoum höfuðborg Súd-
an líta svona út þessa dagana.
Flóðin í Súdan:
Áhrifanna mun
gæta næstu ár
Ekki er Ijóst hversu miklum skaða
flóðin í Súdan ollu en áhrifanna mun
að líkindum gæta um fjölda ára, að
sögn stjómarerindreka og embættis-
manna Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt opinberum tölum létust
73 í flóðunum, yfir 200 manns
særðust, 120.000 heimili í Khartoum
höfuðborginni einni eyðilögðust og
um 2 milljónir manna eru heimilis-
lausar.
Óttast er að ástandið í landinu sé
enn verra en opinberar tölur segja til
um því ekki hefur enn tekist að
komast til margra svæða vegna flóð-
anna.
„Við vitum ekki enn hversu mikil
eyðileggingin er,“ segir Bryan Wann-
op hjá Þróunaráætlun Sameinuðu
þjóðanna (UNDP).
íbúar í Súdan, sem er eitt stærsta
land Afríku og eitt fátækasta Iand
veraldar, börðust þá þegar við hung-
ursneyð og engisprettufaraldur þegar
flóðin hófust, svo þau bættu gráu ofan
á svart.
Stjórnvöld í Súdan hafa ekki getað
greitt erlend lán í átta ár og skulda nú
12 milljarða dollara.
„Efnahagsástandið í landinu var
óviðunandi og þegar slíkri byrði er
bætt á þjóðina er allt á barmi hruns,“
segir Bryan Wannop.
Meirihluti þeirrar hjálpar sem bor-
ist hefur til Súdan hefur komið frá
Saudi Arabíu. IDS