Tíminn - 24.08.1988, Page 14
14 Tíminn
Miðvikudagur24. ágúst 1988
llllllllllllllllllllllllll AÐ UTAN 1111 llllllH li 1 1 III1111 1111 llllllllllllllllll llllllllllllllllllllli
Umferðarsektir í Austur-Þýskalandi:
Borgararnir þekkja
ekki verðskrána
í Austur-Þýskalandi, eins og víðast hvar annars staðar,
er til gjaldskrá þar sem tilgreind er sektarupphæð fyrir
hinar ýmsu yfírsjónir borgaranna í umferðinni. Hins vegar
hafa ökumenn í landinu ekki hina minnstu hugmynd um
tilvist hennar og vita þar af leiðandi ekkert á hverju þeir
eiga von, þegar þeir brjóta umferðarlögin. Þýska vikuritið
Spiegel segir frá þessu ástandi nýiega.
Heimamenn taka um-
ferðarreglunum af meiri
léttúð en útlendingar
Milli Boizenburg og Ludwigs-
lust, á gamla vcginum í Austur-
Þýskalandi til Berlínar, þýtur
skröltandiTrabantmeð llOsekki
framhjá BMW-Cabrio frá Plön í
Vestur-Þýskalandi. Þar sem bíl-
stjóranum á aflmikla bílnum er
vel kunnugt um hinar hrikalegu
sektir sem handhafar erlends
gjaldeyris verða að láta af hendi
ef þeir gerast uppvísir að glappa-
skotum í umferðinni, heldur
hann sig nákvæmlega við fyrir-
skipuð hraðamörk í austur-þýska
alþýðulýðveldinu, 80 km á klst.
Heimamenn taka hins vegar um-
ferðarreglunum af meiri léttúð.
Þeir pína litlu bílana sína með
tvígengisvélunum til hins ýtrasta
til að halda í við fína fólkið, sem
situr í hægindi bak við gluggatjöld
í límúsínunum sínum, sem oftast
eru dökkbláir Volvoar ogörsjald-
an Citroénar, svo að þeir tefji
ekki umferðina. Þetta er einmitt
ástæðan til þess að ökumenn í
Austur-Þýskalandi lenda oft í
kasti viö lögin, vegna þess að þar
er algert bann við áfengisneyslu
þeirra sem sitja undir stýri, jafn-
vel einn bjór getur komiö bíl-
stjórum í klípu, og ef þeir eru
teknir til eftirlits vegna umferðar-
lagabrots getur bjórinn orðið
þeim að endanlegu falli.
Vei þeim sem hefur
eitthvert áfengismagn
í blóðinu
í skýrslum austur-þýsku lög-
reglunnar er skuldinni skellt á of
mikinn hraða ökutækja fyrir
fjórðung allra umferðaróhappa í
landinu, en þau urðu alls 45.000
á árinu 1986. Næstalgengasta or-
sök umferðaróhappa, eða 19%,
er skortur á aðgæslu á umferðinni
á undan. Og yfir 4000 slys á árinu
1987 segir innanríkisráðuneytið,
má skrifa á reikning drukkinna
ökumanna. 22.300 austur-þýskir
borgarar voru sviptir ökuskírteini
eftir að hafa gengist undir blóð-
prufu, en það er yfir helmingur
þeirra sem misstu ökuleyfið.
Samt sem áður bætast við þær
u.þ.b. 3,6 milljónir fólksbíla sem
fyrir eru í landinu á hverju ári að
meðaltali um 130.000 nýir Tra-
bantar, Wartburgar og Lödur.
Yfirvöldin hafa dregið lærdóm
af vestrænum, kapitaliskum sið-
um í götuumferðinni. Þau ætla
nú að láta borgara sína standa
ábyrgð á yfirsjónum sínum í um-
ferðinni samkvæmt sektaverð-
skrá og nú gengur sérhver lög-
reglumaður með verðskrána upp
á vasann og þar eru tilgreindar
sektir við hinum ýmsu umferðar-
brotum.
Þannig missir hver sá bílstjóri
sem mælist hafa 0,5 pro mille
alkóhól í blóðinu ökuskírteinið í
3 mánuði og borgar a.m.k. 100
austurþýsk mörk. Fari pro mille
yfir 2,0 verður refsingin miklu
strangari. Við fyrsta brot er sekt-
in 400-700 mörk og ökuskírtein-
ismissirinn gildir í 30 mánuði.
Við endurtekin brot getur sektin
orðið allt að 1000 mörk og öku-
skírteinismissirinn varir í þrjú ár.
Reglunum ekki
jafnstrangt framfylgt
alls staðar
Það sem umferðarlagaverðir
allt frá Flensburg til Múnchen
horfa í gegnum fingur með, þ.e.
þó að farið sé sem svarar 10 km
yfir hraðamörk, mætir litlum
skilningi á leiðinni milli Rostock
og Karl-Marx-Stadt og sú um-
ferðarsynd getur orðið ökumanni
dýr. Við fyrstu yfirsjón er sektin
að vísu ekki nema 10 mörk, en
tveir stimplar í ökuskírteinið gefa
til kynna að hér sé brotlegur á
ferð. Fái ökumaður 5 slíka
stimpla á skírteinið sitt innan
ákveðins tíma hefur það sjálf-
krafa í för með sér ökuleyfissvipt-
ingu. í Flensburg í Vestur-
Þýskalandi er til samanburðar
stuðst við 18-punkta ökuferils-
skrá, en þar þarf að safna miklu
fleiri syndapunktum til að missa
ökuleyfið.
„Önnur brot“ hafa líka strang-
ar refsingar í för með sér. Ef
austur-þýskur borgari er staðinn
að því að keyra yfir járnbrautar-
teina á rauðu blikkandi ljósi miss-
Austur-þýskir borgarar vita ekki
á hverju þeir eiga von þegar
lögreglan stöðvar þá í umferð-
inni.
ir hann ökuleyfi í þrjá mánuði. í
Vestur-Þýskalandi er látið sitja
við 100 marka sekt og þriggja
punkta innfærslu á umferðar-
sakaskrá í Flensburg.
Mörg umferðaróhöpp sem geta
safnað saman 71 punkti á umferð-
arsakaskrá í Vestur-Þýskalandi,
hafa ekkert tiltekið verðgildi í
leiðbeiningargjaldskrá austur-
þýskra lögreglumanna.
Tekið mið af í hve
mikium mæli „regla
ríkisins og líf í sósíal-
isku þjóðfélagi“ hefur
liðið fyrir brotið
Efbrotiðfelstt.d. íframúrtöku
þar sem bannað er að taka framúr
eða að bíl sé lagt þar sem það er
bannað fellur það undir almenn
ákvæði austur-þýskra umferðar-
laga og lög sem fjalla um reglu á
almannafæri, en þar stendur í
einni greininni: „Við ákvörðun
refsingar við broti á lögum um
hegðun á almannafæri á að taka
mið af í hversu miklum mæli
regla ríkisins og líf í sósíalisku
þjóðfélagi hefur orðið fyrir
hnjaski og í hve stórum stíl
agaleysi hefur verið viðhaft, svo
og einkaaðstæður hins brotlega."
Og yfirleitt, eru hinar nýju
leiðbeiningareglur um sektar-
ákvæði líklega ekkert í tengslum
við nýjan hugsunarhátt, glasnost,
hversu auðskildar þær eru og að
allir austur-þýskir borgarar skuli
sitja við sama borð, án tillits til
stöðu og hvort þeir eru félagar í
flokknum. Heldur snúast þær
frekar um að „framfylgja stefnu-
fast og kröftuglega lagareglum,"
eins og yfirmaður umferðarlög-
reglunnar í Austur-Þýskalandi
vill orða það, en hann vill nefna
radareftirlit lögreglunnar á stöku
hraðbrautum í Austur-Þýska-
landi „verndun borgaranna" sem
alls ekki sé ætlað að vera „gildra
til að veiða þá í“.
Sektaverðskránni
haldið leyndri
fyrir borgurunum!
Leiðbeiningaverðskráin er
nefnilega einungis ætluð til að
upplýsa ríkisyfirvöld og lögreglu
um í hve miklum mæli hinurn
seka hefur orðið á, en hefur það
ekki að markmiði að kenna aust-
ur-þýskum bílstjórum betri siði.
Eins og aðrar reglur í skrifræði
austur-þýska alþýðulýðveldisins
er nefnilega sektaverðskránni
. haldið leyndri fyrir borgurunum.
GRÆNLAND - FÆREYJAR
Grænlensk póstþjónusta verður
50 ára þann 17. september næstkom-
andi. Mikið stendur til af þessu
tilefni og verður gefið út frímerki
daginn áður. Myndefni frímerkisins
er t'lugvél í lágflugi sem flýgur yfir
hundasleða með póst. Þá er það
allra nýjasta einnig í myndefni frí-
merkisins, eða Póstfax/Telefax vél
sem í sífellt ríkari mæli er að leysa
bréfin af hólmi í grænlenskum póst-
samgöngum.
Auk frímerkisins, sem er að verð-
gildi kr. 3,50 er 50 aura viðbótar-
gjald, sem renna á í sérstakan sjóð
til að kaupa til Grænlands ýmiskonar
frímerkja- og póstsöguefni, sem á
frekar heima þar en í söfnum utan
landsins. Þó verður aðeins vöxtun-
um af þessum sjóði á hverjum tíma
varið til innkaupa, stofnfjárhæðin
stendur óhreyfð.
Þá gefur grænlenska póststjórnin
einnig út afmælisbók af þessu tilefni,
„Grönland set gennem 50 árs fri-
mærker". Verður bók þessi scld á
DKR 148,00 auk burðargjalds sem
er DKR 14,00.
Allar pantanir varðandi bæði
grænlensk frímerki og nefnda bók
má senda til: Grönlands Postvæsen,
Wilders Plads, bygning 8, Postboks
100, DK-1004 Köbenhavn K.
Bók þessi verður vafalaust sér-
staklega fróðleg fyrir alla þá sem
hafa áhuga á söfnun grænlenskra
frímerkja.
Þá minnast frændur okkar í Fær-
eyjum 100 ára afmælis jólafundarins
1888 með frtmerkjaútgáfu. Tilefni
hans var auglýsing í eina blaðinu
sem þá kom út í Færeyjum, Dimmal-
ætting, svohljóðandi: „Ein og hvör
bjóðast at koma í tinghúsið annan
jóladag kl. 3 e.m., har, sum vit atla,
at samráðast um at vörja Förja mál
og Förja siðir.“ Undir þetta skrifa
níu Færeyingar.
Mynd þriggja þeirra er fyrstir
undirrita auglýsinguna er á frímerkj-
unum.
Frímerkin eru að verðgildi kr.
3,00, 3,20 og 12,00.
Með fundi þessum, sem varð eins-
konar þjóðfundur Færeyinga, hófst
sjálfstæðisbarátta þeirra. Þótt marg-
ir mættu á jólafundinum varð hann
ekki eins vel sóttur og vonast var
eftir þar sem fólk úr byggðunum
komst ekki vegna veðurs. Var því
boðað til nýs fundar þann 6. janúar,
þar sem Færeyingafélagið var
stofnað. Hámark þessarar baráttu Merkin koma út þann 5. septem-
var stofnun heimastjórnarinnar ber næstkomandi.
1948. Það er Frímerkjadeildin í Póst-
Bárður Jakopsson hefir teiknað verk Föroya, FR 159 Tórshavn, sem
merkin, en þau eru prentuð hjá tekur á móti pöntunum.
Courvoisier í Sviss. Sigurður H. Þorsteinsson