Tíminn - 24.08.1988, Blaðsíða 15
Tíminn 15
Miövikudagur 24. ágúst 1988
LEIKLIST
||||||||||||||||!|!|||||||||||||||||||!|||||
Að leika að
maður leiki ekki
Erla B. Skúladóttir og Viðar Eggertsson leika að þau leiki ekki í Elskhuganum. Tlmamynd Gunnar
Alþýðuleikhúsið: ELSKHUGINN eftir
Harold Pinter. Þýðing: Ingunn Ásdis-
ardóttir og Martin Regal. Tónlist: Lár-
us Halldór Grímsson. Lýsing: Egill
Örn Árnason. Leikmynd og buningar:
Gerla. Leikstjórn: Ingunn Ásdísardótt-
ir.
Þriðja Pintersýningin á einu ári í
Reykjavík er nú á „sviðinu,, í Ás-
mundarsal, frumsýning fór fram á
fimmtudagskvöld. Ágætt að fylgja
eftir tveimur velheppnuðum sýning-
um í fyrra sem vafalaust urðu til að
opna augu margra reykvískra leik-
húsgesta fyrir þessum afburðahöf-
undi. Alþýðuleikhúsið, á sínum
venjulegu hrakhólum með húsnæði,
hefur búið til nokkuð haganlegt
leiksvið úr ótækum sal. Gerla á
heiðurinn af því, en auðvitað er ekki
unnt að gera gott svið úr þessu.
Rýmið er of vítt, einn geimur, og
hreinn neyðarkostur að láta áhorf-
endur sitja allt um kring. Það gerir
það að verkum að stöður og hreyf-
ingar verða mikið vandamál, - sam-
leikurinn sem í þessu tilviki er svo
óvenjulega náinn og mikilsverður
skilar sér stundum ekki nema til
hálfs. En hér verður leikstjórinn
varla sakaður, Ingunn hefur nýtt
möguleika salarins eftir föngum.
Elskhuginn er „leikur“ í orðsins
fyllstu merkingu. Sléttur og felldur
skrifstofumaður kveður dúkkulega
eiginkonu sína að morgni: Áður en
hann heldur af stað með stress-
töskuna spyr hann eins og fyrir
forvitnissakir .Kemur elskhugi þinn
í dag?“ Og ki ,tn jánkar því. Þarna
er sem sé fr, vndið slíkt að fram-
hjáhaldið ei eð fullu samþykki
hins kokkál: En eins og vænta
má hjá Pinti hér ekki allt sem
sýnist. Hjónakornin lifa sem sé í
tveimur heimum. Til að bæta sér
upp gráan hversdagsleikann skipta
þau um hlutverk að deginum: Karl-
inn verður harðsvíraður melludólg-
ur, konan hóra. Með því móti létta
þau á þeirri bælingu sem smáborg-
araleg tilvera hefur hneppt þau í.
Pinter kann meistaralega að fara
með þetta tvísæi eins og þeir þekkja
sem séð hafa önnur leikrit eftir
hann. Þó held ég að Elskhuginn
hljóti að teljast með hinum minni
háttar leikjum Pinters. Þetta er stutt
og einfalt verk og auðráðið í það.
Sjálfsblekking hjónanna er sem sé
nokkuð gegnsæ, persónuklofningin
í sjálfu sér kunnuglegt bragð allt frá
dr. Jekyll og mr. Hyde og auðvitað
miklu fyrr - áhorfandinn áttar sig
von bráðar á trixinu. Það breytir því
ekki að Elskhuginn er saminn af list
og vel og gefur snjöllu leikhúsfólki
gott tækifæri.
Mér þótti sýning Alpyóuleikhúss-
ins mætavel heppnuð allt á litið.
Eins og fyrr sagði stóðu ytri aðstæður
leikstjóranum að nokkru fyrir þrif-
um þótt þau mál séu leyst eftir
mætti. Hins vegar verður ekki sagt
að leikstjóra hafi með leikendum
tekist að skapa verulega rafmagnaða
erótíska spennu. Það kemur til af
því, held ég, að hér er meira lagt upp
úr sjónrænum þáttum, eiginlegri
sviðsetningu, heldur en því að kafa
djúpt ofan í textann. Þetta er raunar
einkenni margra leiksýninga nú á
síðustu tímum. Leikhúslistin verður
þá þegar best lætur veisla fyrir augað
en síður keppt eftir því að láta
hnífinn ganga í þau viðkvæmu, djúp-
lægu, sálrænu viðfangsefni sem
skáldið fæst við. Þótt Pinter hafi
ekki í Elskhuganum beitt sínum
hvössustu vopnum, er augljóslega
fólginn í verkinu efniviður sem gæti
nýst leikhúsinu til að fletta ofan af
blekkingarleik manneskjunnar sem
hún hefur uppi til að hylja sitt eigið
sálartóm. Sýningin gerir ekki meira
en að hreyfa við þeim hjúpi eins og
vindgustur.
Viðar Eggertsson er snjall leikari
og hefur yfir að ráða tækni raddbeit-
ingar og látbragðs sem nýtist honum
vel í hlutverki Richards. Hann er
góður sem skrifstofuþræll og skortir
kannski aðeins einhvern djöfullegan
svip til að sýna melludólginn Max. í
heild á litið kemst Viðar vel frá
þessu hlutverki og virðist líða vel í
því. Erla B. Skúladóttir hefur lagt
sérstaka stund á látbragðsleik og
kann einkar vel að nýta sér líkamleg-
an þokka sinn sem hlutverkið á
mikið undir. Myndbreytingin frá
dúkku yfir í dræsu var kannski
örðugri en svo að Erla réði fyllilega
við hana, en leikur hennar var
hreinlegur í hvívetna. Kjartan
Bjargmundsson er í örlitlu hlutverki.
Mér skilst að einhverjir hafi setið
með fýlusvip undir sýningunni og
kvarti undan ónógum „pinterskum"
blæ á henni. Vera má að það fólk
hafi með eindæmum skýra mynd af
því og þekkingu á hvernig sá blær og
stíll skuli vera. Þó þætti mér líklegt
að Harold Pinter myndi seint lifa og
una sér læstur inni í einhlítum „pint-
erskum" leikstíl. Einkenni hans er
einmitt hve opinn hann er og hægt
að leika hann með ýmsu móti,
misdjúpt, en þó alltaf skemmtilega
ef vel er unnið. Það hefur verið gert
í Ásmundarsal að þessu sinni.
Gunnar Stefánsson.
BOÐA
RAFGIRÐINGAR
Til afgreiðslu strax
Hvergi betra verð
Flatahrauni 29,
220 Hafnarfjörður
sími 91-651800
1
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir júlímánuö 1988, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. september.
Fjármálaráðuneytið.
Ungir framsóknarmenn!
1 Þing Sambands ungra framsóknarmanna, og
fimmtiu ára afmælisþing sambandsins verður haldið á Laugarvatni
helgina 2.-4. september 1988.
Ungir framsóknarmenn eru hvattir til að fjölmenna. Upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins af Agli og Þórunni í síma
91-24480. Nánar auglýst siðar. S.U.F.
Skagfirðingar
- Nærsveitamenn
Héraðsmót Framsóknarfélaganna í Skagafirði verður haldið í Mið-
aarði laugardaginn 27. ágúst og hefst kl. 21.00.
Avarp flytur Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins.
Óperusöngvararnir Sigurður Björnsson og Sieglinde Kahmann syngja
einsöngva og dúetta.
Jóhannes Kristjánsson skemmtir.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi.
Allir velkomnir.
Nefndin.
Aðalfundur
Aðalfundur FUF Skagafirði verður haldinn í Framsóknarhúsinu,
Suðurgötu 3, Sauðárkróki laugardaginn 27. ágúst og hefst kl. 16
stundvíslega.
Dagskrá.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ferð á afmælisþing SUF á Laugarvatni
Fulltrúi SUF flytur ávarp.
Ungt framsóknarfólk í Skagafirði er hvatt til að.mæta.
Stjórnin.