Tíminn - 24.08.1988, Qupperneq 16
i6 Tíminn
Miövikudagur24. ágúst 1988
DAGBÓK
III
riORRÆM FRÆÐSLURÁÐSTEFrSA
BAnKAMAFinA-REYRJAVÍR
24.-26.8. 1988
Ráðstefna norrænna
bankamanna í Reykjavík:
Góð slarfsmenntun
- besta atvinnuöryggiö
Rösklega eitt hundrað norrænir banka-
menn sitja fræðsluráðstefnu í Reykjavík
dagana 24.-26. ágúst. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er: Góð starfsmenntun - besta
atvinnuöryggið. Fjölmörg erindi verða
flutt um störf bankamanna, menntun
þeirra og starfsþjálfun.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar verður
Anker Jörgensen, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Danmerkur, og flytur hann
erindi um Norðurlöndin og önnur Evr-
ópulönd, Evrópubandalagið, samskipti
Norðurlanda og annarra Evrópulanda á
sviði efnahags- og atvinnumála o.fl.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra flyt-
ur erindi við upphaf ráðstefnunnar og
fjallar m.a. um þjóðfélagsleg viðhorf til
bankaþjónustu og menntunar banka-
manna.
Fulltrúar allra Norðurlandanna leggja
fram efni til umfjöllunar og að auki talar
Thierry Noyelle, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Columbiaháskóla í Bandaríkjun-
um. Hann reifar niðurstöður nýrrar
skýrslu Efnahags- og þróunarstofnunar-
innar um þróun þjónustu banka og ann-
arra fjármála- og viðskiptastofnana.
Norræna bankamannasambandið
skipuleggur ráðstefnuna með aðstoð
Sambands íslenskra bankamanna. Á
dagskránni eru m.a. heimsóknir í Banka-
mannaskólann, Seðlabanka Islands og
fræðslumiðstöð Landsbanka íslands í
Selvík.
Hallgrímskirkja
Starf aldraðra
Nk. fimmtudag, 25. ágúst er fyrirhuguð
ferð í Galtalækjarskóg. Á heimleiðinni
verður komið við á Skarði í Landsveit og
kirkjan skoðuð. Einnig verða skoðaðir
hellar á Hellum.
Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 10
og komið heim um kl. 7.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir í síma 39965.
KIRKJURITID
1.-2. hefti 54. árg. er komið út og er
helgað 70 ára afmæli Prestafélags íslands
að stóru leyti.
Þar blaðar Hjalti Hugason lektor í
fundargerðum Prestafélags íslands og
birt er ræða Sigurðar Sigurðarsonar for-
manns Prestafélags íslands sem hann
flutti á hátíðarsamkomu í tilefni afmælis-
ins.
Rætt er við dr. Jakob Jónsson heiðurs-
félaga PÍ og birt eftir hann ljóð, og
endurbirtir eru sumarþankar úr sveitinni
eftir annan heiðursfélaga, dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup, en þeir birtust áður í
Kirkjuritinu 1940.
í ritinu er líka að finna ýmsa þanka um
launamál presta og tckjur kirkna.
Minningarorð eru um tvo látna menn
úr stéttinni, dr. Sigurð Pálsson vígslu-
biskup og sr. Hannes Guðmundson.
Fleira efni er í ritinu.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhrínginn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
OLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
i I*RENTSMIÐjANi
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Sími 45000.
Hu
um
vegmn!
Brýr og ræsi krefjast sérstakrar varkárni.
Draga verður úr hraða og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhættu! ||umferðar
Námsgagnastofnun:
Kemur mér það við?
Námsgagnastofnun hefur gefið út
námsefni sem nefnist Kemur mér það
við? Efnið er gefið út í einu leshefti og
tveimur veggspjöldum. Það fjallar unt
ástandið í heiminum á þessum tímum,
m.a. um þróunarsamvinnu, umhverf-
isvernd og mannréttindamál. Efnið er
þýtt úr dönsku og heitir á frummálinu
Rager det mig?
Kemur mér það við? hefur áður komið
út í Danmörku, Noregi og Svfþjóð.
Það var Félag Sameinuðu þjóðanna á
Islandi scm átti hugmyndina að útgáfu
efnisins og beitti sér fyrir því að Náms-
gagnastofnun fengi styrk frá Norræna
menningarmálasjóðnum til útgáfunnar.
Kcmur mér það við? er hægt að nota á
ýmsan hátt í tengslum við samfélagsfræði.
friðarfræðslu eða sem sérstakt þemaverk-
efni nteð nemendum á aldrinum 11-15
ára.
Magnúsjón Árnason
FALLORÐ
Verkcfni i islensku
Namsgagnastofnun
1988
Námsgagnastofnun:
FALLORÐ
Hjá Námsgagnastofnun er komin út
bókin Fallorð eftir Magnús Jón Árnason.
Hér er á ferð einnota verkefnabók í
íslensku handa 7.-9. bekk grunnskólans.
Bókin er ætluð til glöggvunar og greining-
ar íslenskra fallorða og hentar að auki
sem þjálfunar- og ítarefni við Málvísi 1-3
sem Námsgagnastofnun gefur út. Nokkuð
er af myndagátum (málsháttum og orð-
tökum) í bókinni og hefur Kolbeinn
Árnason teiknað myndir í bókina. Fallorð
eru 63 blaðsíður í brotinu A4, prentuð í
prentsmiðjunni Rún sf.
NORDISK
TIDSKRIFT
FÖR VETHNSKAP. KONST OCH INDUSTRI
UTGIVFN AV LKTTERSTEDTSKA EORENINGEN
Nv NVtu- I '.iiii.iiIk u
• l.ittcnilurcn i Norilcn 19S7
ORDISK TIDSKRIFT
för vetenskap, konst och industri
Letterstedtska föreningen hefur gefið
út í samvinnu við Norrænu félögin 3. hefti ,.
64. árgangs af tímaritinu Nordisk
tidskríft, um bókmenntir á Norðurlönd- ,
um 1987. 1
Þar eru greinar um bókmenntir sem
komið hafa út á norðurlöndunum 1987 og
skrifar Árni Sigurjónsson yfirlit um ís-
lenskar bækur á því herrans ári. Poul
Borum skrifar um danskar bókmenntir
1987, Elisabeth Nordgren finnskar, Hans
Skei norskar og Ingrid Schöier sænskar.,
Þá eru í ritinu bókadómar um ýms rit.
Fleira efni er í ritinu og ritar t.d. Helge
Seip þar annál um norræna samvinnu.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00,12.00,12.20, 14.00, 15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
Miðvikudagur
24. ágúst
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Árni Bergur Sigur-
björnsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Má Magnússyni.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu
fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. Meðal efnis er sagan
„Lína langsokkur í suðurhöfum“ eftir Astrid
Lindgren. Jakob Ó. Pétursson þýddi. Guðríður
Lillý Guðbjörnsdóttir les (8). Umsjón: Gunnvör
Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Haraldur Bjarnason í Neskaupstað. (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 „Einu sinni var...“ Um þjóðtrú í íslenskum
bókmenntum. Annar þáttur af sjö. Umsjón:
Símon Jón Jóhannsson. Lesari með honum:
Ragnheiður Steindórsdóttir.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Edward J. Frederiks-
en.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Álfhildur Hallgríms-
dóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Jónas“ eftir Jens Björn-
eboe. Mörður Árnason les þýðingu sína (15).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Bjarni Marteins-
son. (Endurtekinn þáttur frá laugardagskvöldi).
14.35 íslenskir einsöngvarar og kórar. Elísabet
Erlingsdóttir, Liljukórinn og Kristinn Hallsson
syngja.
15.00 Fréttir.
15.03 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni.
(Endurtekinn þáttur frá laugardegi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Barnaútvarpið í
borg.Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir og Krist-
ín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. a. Brandenborgarkonsert
nr. 2 í F-dúr eftir Johann Sebastian Bach.
Hljómsveitin Fílharmónía í Lundúnum leikur;
Riccardo Muti stjórnar. b. Svíta í d-moll fyrir
þverflautu, fiðlu og fylgiraddir eftir Georg Philipp
Telemann.Barthold og Sigiswald Kuijken leika
á flautu og fiðlu, Wieland Kuijken á selló og
Robert Kohnen á sembal. c. Konsert nr. 1 í
F-dúr fyrir flautu, hljómsveit og sembal eftir
Antonio Vivaldi. Hljóðfæraleikarar undir stjóm
Frans Bruggen leika á 18.-aldar hljóðfæri. d.
Konsert í Es-dúr fyrir trompet og hljómsveit eftir
Joseph Haydn. Maurice André leikur með
Hljómsveitinni Fílharmóníu í Lundúnum; Ricc-
ardo Muti stjómar.
18.00 Fréttir.
18.03 Neytendatorgið. Umsjón: Steinunn Harðar-
dóttir.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 Glugginn. Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
20.00 Litli barnatíminn. Umsjón: Gunnvör Braga.
ÍFndurtekinn frá mornniV
20.15 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
21.00 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Haraldur Bjarnason í Neskaupstað. (Endurtek-
inn þáttur frá morgni).
21.30 Vestan af fjörðum. Þáttur í umsjá Péturs
Bjarftasonar um ferðamál og fleira. (Frá ísafirði)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Heimshorn. Þáttaröð um lönd og lýði í
umsjá Jóns Gunnars Grjetarssonar. Áttundi
þáttur. (Einnig útvarpað daginn eftir kl. 15.03).
23.10 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.(Einnig
útvarpað nk. þriðjudag kl. 14.05).
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
SJÓNVARPIÐ
Miðvikudagur
24. ágúst
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Töfraglugginn - Endursýning.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 íþróttir.
21.30 Sjúkrahúsið í Svartaskógi. (Die
Schwarzwaldklinik) Fimmti þáttur. Þýskur
myndaflokkur í ellefu þáttum. Höfundur Herbert
Lichtenfeld. Leikstjóri Alfred Vohrer. Aðalhlut-
verk Klaus Júrgen Wussow, Gaby Dohm,
Sascha Hehn og Karin Hardt. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
22.15 Taggart. (The Killing Philosophy). Annar
þáttur. Aðalhlutverk Mark McManus. Þýðandi
Gauti Kristmannsson.
23.10 Kvöldstund með listamanni. Halldór B.
Runólfsson ræðir við Þórð Ben. Sveinsson
myndlistamann. Stjórn upptöku Viðar Víkings-
son. Áður á dagskrá 17. ágúst 1986.
23.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Miðvikudagur
24. ágúst
16.35 Viðburðurinn. The Main Event. Rómantísk
gamanmynd um konu sem er svikin í viðskiptum
og tapar öllu nema einum verðlausum samningi
við uppgjafahnefaleikara. Hún ákveður að reyna
að koma samningnum í verð með því að drífa
hnefaleikarann aftur í hringinn þráttfyrir mótbár-
ur hans. Aðalhlutverk: Barbra Streisand og
Ryan O’Neal. Leikstjóri: Howard Zieff. Fram-
leiðendur: Jon Peters og Barbra Streisand.
Þýðandi: Davíð Þór Jónsson. Warner 1979.
Sýningartími 105 mín.
18.20 Köngulóarmaðurinn. Spiderman. Teikni-
mynd. Þýðandi: Ólafur Jónsson. Arp Films.
18.45 Kata og Allí. Kate & Allie. Gamanmynda-
flokkur um tvær fráskildar konur og einstæðar
mæður í New York sem sameina heimili sín og
deila með sér sorgum og gleði. Þýðandi:
Guðmundur Þorsteinsson. REG.
19.1919:19. Fréttir, veður, íþróttir, menning og
listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum
pakka.
20.30 Dýrlingurinn á Manhattan. The Saint in
Manhattan. Ný, stutt sjónvarpsmynd um Dýrl-
inginn með Andrew Clarke (Heiðursskjöldur) í
aðalhlutverki. Dýrlingurinn snýr aftur og að
þessu sinni beitir hann sér fyrir lausn sakamáls
á Manhattan. Aðalhlutverk: Andrew Clarke.
D.L. Taftner 1987._________________________
21.20 Mannslíkamlnn. Living Body. Miklar breyt-
ingar eiga sér stað j líkama móður og barns
áður en fæðing á sér stað. I þessum þætti er
fylgst með þeim breytingum og komu nýs lífs í
heiminn. Þýðandi: Páll Heiðar Jónsson. Þulur:
GuðmundurÓlafsson. Golcrest/Antenne Deux.
21.45 Mountbatten. Stórbrotin framhaldsþáttaröð
í 6 hlutum. 5. hluti. Aðalhlutverk; Nicol Willam-
son, Janet Suzman, lan Richardson, Sam
Dastek, Vladek Sheybal og Nigel Davenport.
Leikstjóri: Tom Glegg. Framleiðandi Judith De
Paul. George Walker TPL. Alls ekki við hæfi
barna.
22.35 Leyndardómar og ráðgátur. Secrets and
Mysteries. að þessu sinni verður fjallað um
hugarorku og hvernig virkja má hinn mikla mátt
hugans. Framleiðandi: Craig Haffner. Þýðandi:
Ágústa Axelsdóttir. ABC.
23.00 Tíska. Að þessu sinni fáum við að sjá það
nýjasta frá fremstu tískuhúsum og færustu
hönnuðum Parísarborgar: Chanel, Sonia Ryk-
iel, Dior, Givenchy, Kenxo, Issey Miyake, De
Ribes, Ungaro og Vlentino. Þýðandi og þulur:
Anna Kristín Bjömsdóttir. Videofashion 1988.
23.30 Krakkar í kaupsýslu. Kidco. Sannsöguleg
mynd um börn sem ná fótfestu í viðskiptaheim-
inum. Aðalhlutverk: Scott Schwartz og Cinnam-
on Idles. Leikstjóri: Ronald F. Maxwell. Fram-
leiðendur: Frank Yablans og David Niven jr.
Þýðandi: Salóme Kristinsdóttir. 20th Century
Fox 1984. Sýningartími 100 mín.
01.40 Dagskrárlok.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl.
8.00.Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblað-
anna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa - Eva Ásrún Albertsdótt-
ir.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála - Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
16.03 Dagskrá
Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvarssyni.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Eftir mínu höfði - Skúli Helgason.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fróttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá sunnudegi. Vinsældalisti
Rásar 2 í umsjá Skúla Helgasonar. Fréttir kl.
2.00 og 4.00 og sagðar fróttir af veðri og
flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir
frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30.
SLEPPIR ÞÚ
BENSÍNGJÖFINNI