Tíminn - 24.08.1988, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 24. ágúst 1988
Tíminn 19
Sammy-Jo visnar
svelti
sínum tíma. 16 ára varð Suan
stjarna á einni nóttu, en það voru
erfiðir tímar.
- Nú þurfti ég að búa ein, taka
hús og bíl á leigu og borga einhverj-
um fyrir að vera með mér við
upptökur, þvi' ég var undir lögaldri,
segir hún. - Alltaf óttaðist ég að
gera skyssur og þrælaði mér út eins
og ég megnaði, án þess að hugsa
um heilsuna. Það sást ekki í sjón-
varpinu, en ég var ein taugahrúga.
- Það er hörmung að sjá þig,
sagði meðleikari minn einn daginn.
Mér sárnaði, því ég hélt að ég væri
fallegust af öllum. Ég skildi það
ekki fyrr en seinna, en ég leit út
eins og vannært barn.
- Ég svelti mig viljandi, því þó
mér væri skipað fram og aftur í
öllu, gat enginn ráðið hvað ég lét
ofan í mig eða ekki. Það veitti mér
öryggi að ráða því sjálf. Eflaust
hefði farið illa ef ég hefði ekki
orðið ástfangin. Sambandið varði
ekki lengi, en nógu lengi til að hún
losnaði úr vítahringnum.
Árið 1976 gifti hún sig og eignað-
ist Söru dóttur sína tveimur árum
síðar. Það samband slitnaði líka og
Susan fór aftur að leika fyrir sex
árum. Nú er hún hamingjusöm og
trúlofuð 46 ára gömlunt sjónvarps-
framleiðanda.
- Þetta er í fyrsta sinn, sem ég er
raunverulega ástfangin, segir hún.
- Loksins skil ég hvað ást er.
Hún hlær, þegar minnst er á að
hún sé að leita að föðurímynd,
vegna þess að hún kjósi roskna
menn fremur en unga.
- Það er della, segir hún. - Ég
kann bara ekki að meta karlmenn
milli 25 og 35 ára. Þeir vita ekki
hvað þeir vilja, telja sig helst
örugga í lífinu með því að fara bara
í skóla aftur.
Loksins veit ég hvað ástin er, segir Susan Dey, sem er 35 ára og á
ýmsa erfiðleika að baki.
Svona leit Heather út fyrir
skömmu, eins og sjúklingur.
Susan
- Hollywood var næstum búin
að drepa mig. Ég gerði þá skyssu
að halda að kvikmyndaborgin væri
annað heimili mitt og komst of
seint að því að enginn kærði sig um
mig, segir Susan Dey, sem leikur í
„Lagakrókum“.
Hún er 35 ára, fædd 10. desem-
ber 1952. Faðir hennar er ritstjóri
dagblaðs, en móður sína missti
hún 8 ára. Faðir hennar kvæntist
aftur og þegar Susan var 15 ára,
leiddist henni svo að hún bað
stjúpu sína að útvega sér eitthvað
að gera.
- Ég varð Ijósmyndafyrirsæta og
myndir af mér voru á forsíðum
þekktra blaða. Ég var ánægð, því
þetta gaf vel í aðra hönd.
Það var vinnuveitandi Susan,
sem tilnefndi hana í hlutverk í
„Partridgefjölskyldunni" ef ein-
hver man eftir þeim þáttum, sem
söngvarinn David Cassidy lék í á
Svona leit hún út, eins og vannært barn, 18 ára gömul.
í hennar valdi stendur til að bjarga
því. Framleiðendur Ættarveldisins
(Dynasty) hafa nú hótað henni að
hún verði skrifuð út, ef hún bæti
ekki á sig þeim kílóum, sem horfin
eru. Þeir óttast að hún fari að líta
út eins og sjúklingur á skjánum og
slíkt er ekki góð auglýsing fyrir
nokkurn hlut á alnæmistímum, síst
sápuóperu sem á í harðri sam-
keppni við aðrar slíkar.
Þegar Heather og Tommy Lee
giftu sig, lýstu bæði yfir að þau
vildu lifa í sem eðlilegustu hjóna-
bandi og reyna að vera sem allra
mest saman. Vinur þeirra segir nú
að Heather hafi gert meira til að
bjarga hjónabandinu en í mann-
legu valdi standi, en hún ráði ekki
við þann hraða sem eiginmaðurinn
vilji halda. Hann bjóði heim aðdá-
endum í tugatali, mestmegnis ung-
um stúlkum, veislurnarstandifram
á morgna og séu meiriháttar til-
þrifamiklar. Heather hefur þegar
misst eitt fóstur, en þráir að eignast
þó ekki væri nema eitt barn. Upp-
haflega tilkynntu þau Tommy fjöl-
miðlum að börnin ættu að verða
fjögur. Heather ætlaði að hægja á
Tommy og hafa hann mest fyrir
sjálfa sig, en hann hefur greinilega
ekki kunnað við þá skipan mála.
Nú kvað Heather komin á þá
skoðun að hollast sé að hún bjargi
því sem bjargað verður, sem sagt
sjálfri sér og starfi sínu og þess
vegna situr hún og hakkar í sig
pastarétti, sem henni finnast raun-
ar ljúffengir og franskar kartöflur,
sem hún hefur viðbjóð á, en fita
fljótar flestu.
Henry Tennant ásamt konu sinni Tessu, sem hann yfirgaf fyrir svartan
karlmann. Tessa óttast að hún og sonurinn hafi fengið alnæmisveiruna
af honum.
Prinsessuvinir í vanda
Margrét Bretaprinsessa fékk
bústað sinn á eynni Mustique í
brúðargjöf frá Colin Tennant og
frú sem alla tíð hafa verið bestu
vinir hennar. Tennant erfði aðals-
tign og er nú Clenconner lávarður.
Prinsessan hefur fylgst með börn-
um þeirra í uppvextinum og harm-
ar nú meinleg örlög þeirra. Elsti
sonurinn, Charlie er fíkniefnaneyt-
andi og hefur verið gerður arflaus.
Henry, sá næstelsti gifti sig og
eignaðist son en einn góðan veður-
dag gerði hann sér lítið fyrir og
stakk af með svörtum samkyns
elskhuga, Kelvin O’Mard og þeir
eru sestir að á Mustique og eru
báðir með alnæmisveiruna. Yngsti
sonurinn, Christopher, slapp
naumlega lífs úr bílslysi, en er
lamaður og mállaus. Aðeins tví-
burasysturnar hafa lifað eðlilegu
lífi fram til þessa. Lafði Ann Clenc-
onner er hirðdama Margrétar
prinsessu.
Ættarveldis-stjarnan Heather
Locklear, sem leikur Sammy-Jo,
er að verða að engu, eftir fregnum
að vestan að dæma. Hjónaband
hennar og Tommys Lee. trommu-
leikara í Mötley Crue er í hers
höndum og Heather gerir það sem
Nýgift og ánægð: Heather
Locklear og Tommy Lee,
trommulcikari í Mötley Crue.