Tíminn - 24.08.1988, Side 20
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ökeypis þjónusta
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
______S 28822____
Tímirui
Dóms- og kirkjumálaráöuneytið:
Sækir um lóð undir
dómshús í Reykjavík
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sótt um lóð fyrir dómshús í
Reykjavík, á horni Listabrautar og Kringlumýrarbrautar, í námunda við
Kringluna. Bréf ráöuneytisins þar að lútandi var lagt fram á borgarráðs-
fundi 16. þessa mánaöar og var því vísað til skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings.
Samkvæmt frumvarpi um að-
skilnað dóms- og framkvæmda-
valds, sem lagt verður fram á
Alþingi f haust, er gert ráð fyrir því
að dómaraembættin í Reykjavík
sameinist í eitt, og að sögn Þor-
steins Geirssonar, ráðuneytis-
stjóra, var talið hagkvæmt að
sameina starfsemina undir einu
þaki. Er þar um að ræða Borgar-
dómaraembættið í Reykjavík,
Borgarfógetaembættið, Sakadóm
Reykjavíkur og Ávana- og fíkni-
efnadómstólinn.
„Þetta er mjög stutt á veg komið.
Það er í gangi athugun á þeirri
rýmisþörf sem dómstólarnir í
Reykjavík þyrftu á að halda en það
er ekki búið að teikna húsið ennþá.
Þegar þessi lóð losnaði var talið
kjörið að sækja um hana þar sem
þetta er síðasta lóðin í nýja mið-
bænum og á hentugum stað fyrir
dómshús,“ sagði Þorsteinn í sam-
tali við Tímann. „Það hefur reynd-
ar lengi staðið til að byggja dóms-
hús í Reykjavík en aldrei hefur
orðið að því.“
Mun þetta vera lóð sem Jón
Ragnarsson hafði fengið úthlutað
undir hótelrekstur en hann mun
hafa skilað henni til baka og sótti
ráðuneytið um hana í framhaldi af
því. Verði ráðuneytinu úthlutað
lóðinni verður ráðist í gerð áætlana
um byggingu hússins, og ráðist í að
teikna það. Eins og fyrr segir er
málið á frumstigi, ekki er ljóst
hversu umfangsmikið húsið kæmi
til með að verða, né hvernig bygg-
ingu yrði háttað, né hver bygging-
artíminn kæmi til með að verða.
Verið er að gera verkfræðilegar
athuganir á hugsanlegri stærð
hússins, með hliðsjón af rýmisþörf
dómaraembættanna, og byggingar-
tími myndi að sjálfsögðu ráðast af
fjárveitingum ríkisins í verkefnið.
Þorsteinn sagði að þessir þættir
myndu skýrast í framhaldi af af-
greiðslu umsóknar ráðuneytisins
frá borgarverkfræðingsembættinu.
Fyrsta skrefið yrði að fá lóðinni
úthlutað. JIH
Ásrún Hauksdóttir alsæl með 100 þúsund króna gjöf Jacques Suchets:
Eg ætlaði ekki
að trúa þessu!
„Ég ætlaði ekki að trúa þessu
þegar hringt var til mín og mér tjáð
að ég væri 100 þúsund krónum
ríkari," sagði Ásrún Hauksdóttir, 44
ára sjónskert kona í Reykjavík, sem
fékk upphringingu í gær frá Jacques
Suchet, friðelska Frakkanum, sem
Tíminn greindi frá fyrir rúmri viku,
en þá hét hann einum fötluðum
íslendingi 100 þúsund króna pen-
ingagjöf sem notuð skyldi til ferða-
laga. „Ég hélt fyrst að þarna væri um
gabb að ræða og satt að segja var ég
búin að steingleyma því að dóttir
mín sendi bréf til Frakkans í síðustu
viku. Ég gerði mér engar vonir um
að hljóta þessa peninga," bætti Ás-
rún við.
Jacques Suchet er ákafur friðar-
sinni og berst fyrir friði í heiminum
í sem víðtækustu merkingu þess
orðs. Hann segist telja peningagjafir
til fatlaðra einstaklinga heppilega
leið til að kynna málstaðinn. „Ég er
ákaflega ánægð með framlag piltsins
og vil meina að sú leið sem hann
velur til að kynna sinn boðskap sé
vel við hæfi,“ segir Ásrún. Aðspurð
segist hún ekki hafa ákveðið enn
sem komið er hvernig hún muni
verja peningunum, en telur þó að
hún muni ferðast innanlands með
dóttur sinni.
Ásrún, sem er hjúkrunarkona,
missti smám saman sjónina fyrir 8
árum af völdum sjúkdóms. Hún
segist ekki vera alveg blind og geti
notið þess að ferðast um landið.
Ásrún kvaðst aðspurð vinna við
nudd hjá Blindrafélaginu.
Jacques Suchet barst 6 bréf frá
fötluðu fólki hér á landi. Öll komu
þau af höfuðborgarsvæðinu, 4 frá
Reykjavík, 1 frá Hafnarfirði og 1 frá
Garðabæ. „Ég opnaði öll bréfin til
þess að sjá'hvort í þeim væri eitthvað
annað en ósk um fjárframlag. Það
reyndist ekki vera. Síðan setti ég
bréfin í einn bunka og dró síðan eitt
úr blindandi. Það gat því hver og
einn af þessum sex fengið pening-
ana. Ásrún varð bara heppnari en
hinir. Kannski má segja að bréfin
hafi verið fimm of mörg. Það hefði
vissulega verið gaman að geta gefið
öllum hinum peninga líka. Kannski
verður það hægt síðar,“ segir
Suchet.
Hann fer í næstu viku með Nor-
rænu til Noregs til að halda áfram
starfi sínu þar. Til þessa hefur hann
gefið 8 norskum einstaklingum pen-
ingagjafir, en hyggst veita fleirum þá
gleði.
Suchet segist ekki vita hvort hann
komi aftur til íslands, en tekur fram
að hann hafi mikinn hug á því að
getað boðið fjölmörgum fötluðum
Islendingum á friðarhátíð í París
sem hann hyggst efna til þann 14.
júlí næsta sumar í tilefni af 200 ára
afmæli frönsku byltingarinnar. óþh
Gefandinn og þiggjandinn, Jacques Suchet og Ásrún Hauksdóttir, við
heimili Ásrúnar í Reykjavík í gær. Hmamynd: Pjetur
Arnarflugsvél tafðist í Hamborg vegna sprengjuleitar:
Farþegi gufaði upp í Hamborg
Arnarflugsvél sem var á leið til
íslands, frá Hamborg, á sunnudag
tafðist í ríflega klukkustund vegna
sprengjuleitar. Yfirflugfreyja um
borð í vélinni tók eftir því að einn
farþega vantaði, til að farþegafjöldi
um borð í vélinni stemmdi við innrit-
aða farþega í flughöfninni. Eftir að
hafa farið vandlega yfir farþega-
fjölda var staðfest að farþegar voru
einum færri um borð, en innritaðir
voru. Flugvallaryfirvöldum var gert
aðvart og samkvæmt alþjóðaflugör-
yggisreglum þurfti að rýma vélina.
Farangur var tekinn frá borði og
farþegar beðnir um að vitja farang-
urs síns. Kom þá í ljós að farangur
týnda farþegans (konu) hafði farið
um borð.
Öryggisverðir á flugvellinum leit-
uðu dauðaleit í flughöfninni, en ár-
angurslaust. Interpol var tilkynnt um
málið og gerðu þeir þegar ráðstafan-
ir til að grennslast fyrir um farþeg-
ann.
Fylgdarmenn konunnar sem ekki
fannst í flughöfninni tóku þessu öllu
af stóískri ró og töldu ekki ástæðu til
að bíða þó hún kæmi ekki fram.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá aðalskrifstofu Arnar-
flugs í gær, á konan bókað far heim
með vélinni frá Hamborg, á morgun
og vonast starfsmenn Arnarflugs til
að hún komist þá lengra en að innrit-
unarborðinu. Viðbúið er að flugvall-
aryfirvöld í Hamborg muni krefja
konuna skýringar á málinu eftir það
uppistand er varð á sunnudag.
Þetta mun vera einsdæmi í sögu
Arnarflugs að farþegi hafi gufað svo
gersamlega upp eftir að hafa innritað
sig og fengið brottfararspjald. Oft
hefur það komið fyrir að fólk tefst og
missir af vél. Þá má yfirleitt rekja
slíka seinkun til seinkunar á tengi-
flugi eða lestum. -ES