Tíminn - 25.08.1988, Síða 12
farsjá — Verkamenn í fjór-
im kofanámum í Póllandi hófu
törf í gær er spennu vegna
erkfalla síöustu daga og yfir-
ofandi átaka tók aö linna.
12 Tíminn
Fimmtudagur 25. ágúst 1988
Ibiza — Slökkviliðsmenn
náöu í gær tökum á skógareld-
um sem geisaö hafa á Ibiza
undanfarna daga. Sautján ára
gamall slökkviliösmaður sem
var í meðferð vegna íkveikju-
æöis hefur játað aö hafa oröið
valdur að eldinum. Hann hefur
verið dæmdur í fjögurra ára
fangelsisvist.
OslÓ — Greenpeace samtök-
in hyggjast opna skrifstofu í
Noregi til að draga athygli
heimsins að sjúkdómi þeim
sem orðið hefur fjölda sela að
fjörtjóni að undanförnu.
FRÉTTAYFIRLIT
rURKEY
ÚTLÖND
SAUDI
ARABIA
•TEHERAN
R A N
UfOMI
Bagdad — Fyrsta íraska
olíurlutningaskipið sem farið
hefur um Persaflóann eftir að
stríð íraka og írana hófst fyrir
átta árum, lagði af stað í gær
með 18.000 tonna farm, að
sögn Issam Abdul-Rahim oliu-
málaráðherra íraks.
Kaupmannahöfn -
Danski krónprinsinn Frederik,
bróðir hans Jóakim og tveir
vinir þeirra bræðra lentu í
árekstri í Frakklandi í gær, er
þeir voru á leið frá foreldrum
sínum sem eru í sumarleyfi í
Frakklandi. Enginn slasaðist
alvarlega í árekstrinum.
Marjayoun - Hörð átök
urðu á milli hersveita ísraels-
manna og múslímskra skæru-
liða sem studdir eru af írönum
í suðurhluta Líbanon í gær.
Tveir Israelsmenn létu lífið í
átökunum.
Vín — Að minnsta kosti 150
ungverskir kolanámumenn
hófu verkfall í gær og er þetta
fyrsta verkfall sem opinberlega
er greint frá í landinu í 30 ár.
Ekki virtist vera neitt samhengi
milli verkfallahrinunnar í Pól-
landi og verkfallanna í Ung-
verjalandi.
Amman — Fyrirhugað er að
Jórdanir og Sovétmenn skrifi
fljótlega undir verslunarsamn-
ing sem hljóðar upp á skipti á
vörum að verðmæti 80 milljónir
dollara á ári, að sögn iðnaðar-
og viðskiptaráðherra Jórdana
Hamdi al-Tabaa.
Vín — Austur-Þjóðverji lét lífið
er bifreið hans lenti á ung-
verskri landamærastöð þegar
hann gerði tilraun til að flýja yfir
landamærin.
Fólkið virðist nú hafa borið sigur úr býtum eftir harðar óeirðir að undanförnu.
Leiðtogar Burma halda neyðarfund:
Lýðræði eftir 12. sept?
Stjórnvöld í Burma munu halda
neyðarfund þann 12.september
næstkomandi þar sem tekin verður
ákvörðun um það hvort lýðræði
verði tekið upp í landinu, að sögn
Maung Maung forseta landsins og
leiðtoga sósíalistaflokksins.
Hörð átök og mótmælaaðgerðir
hafa verið í landinu undanfarna
mánuði þar sem fólk hefur krafist
lýðræðis og þess að endi yrði bund-
inn á 26 ára einræði sósíalistaflokks-
ins í landinu.
Maung Maung sagði er hann kom
fram í útvarpi í gær að allir stjórnar-
menn landsins myndu segja af sér ef
ákvörðun yrði tekin um það á fyrir-
hugaðri ráðstefnu að taka upp lýð-
ræðislegt stjórnarfar í landinu.
Jafnframt sagði hann að þing
myndi koma saman þan 13. sept-
ember til að velja nýja leiðtoga
landsins.
I gærmorgun voru afnumin herlög
í höfuðborginni Rangoon.
Síðar um daginn söfnuðust um
það bil 300.000 manns saman á
götum höfuðborgarinnar til að fagna
sigri yfir stjórn landsins eftir nær
samfelldar mótmælaaðgerðir undan-
farnar vikur.
Fólk söng, dansaði,hrópaði
„Sigur, okkar sigur,“ og kvaddi
hermenn með handabandi er þeir
voru á leið burt af götum borgarinn-
ar eftir skyndilega yfirlýsingu um
afnám herlaga.
Þúsundir mótmælenda hafa látið
lífið í átökunum sem geisað hafa og
sífellt hafa stjórnvöld lofað stjórn-
málalegum og efnahagslegum um-
bótum. Fólkið sem safnaðist saman
á götum Rangoon í gær virtist sann-
fært um að nú yrði það hins vegar
ekki svikið og komið yrði á lýðræðis-
legu stjórnarfari í landinu, að sögn
stjórnarerindreka. IDS
„Skemmdarverk“ myndi kveikja ófriðarbál
Sérfræðingar frá Bandaríkjunum
og Pakistan hafa látið í ljós áhyggjur
yfir því að óeirðir kunni að gjósa
upp í landinu, ef uppvíst verður að
um skemmdarverk hafi verið að
ræða á vél forsetans Zia-ul-Haq sem
lést er flugvél hans hrapaði í síðustu
viku.
Rannsókn á atvikinu stendur nú
yfir og hafa um sjö hundruð manns
verið yfirheyrðir, grunaðir um að
hafa orðið forsetanum að bana. En
fjölmargir eru á lista yfir grunaða
þar á meðal ýmsir hópar innan hers
Pakistana, leyniþjónustumenn frá
Afganistan auk margra trúar- og
stjórnmálahópa sem voru andvígir
Zia, að sögn sérfræðinganna.
„í Pakistan búa fjölmargar þjóðir.
Ef uppvíst verður að forsetinn hafi
verið myrtur getur það orsakað gíf-
urlegan óstöðugleika og óeirðir í
landinu, sérstaklega ef ákveðinn
trúar- eða þjóðernishópur yrði ásak-
aður um að hafa orðið honum að
bana, „er haft eftir manni úr hópi
þeirra sem að undanförnu hafa rann-
sakað atvikið.
Níu manns létust og tíu að auki
særðust alvarlega í óeirðum sem
spruttu upp á milli sunni-múslíma og
shita í norðvesturhluta Pakistan í
kjölfar skyndilegs dauða forsetans.
Að sögn stjórnarerindreka spruttu
átökin upp vegna gleði shita yfir
dauða forsetans, en Zia-ul-Haq var
sjálfur sunni-múslími.
Bandarísku sérfræðingarnir sem
aðstoðað hafa Pakistana við rann-
sókn slyssins, segja að margt bendi
til þess að um vélarbilun hafi verið
að ræða er flugvélin hrapaði.
Embættismenn í Pakistan telja
hins vegar að dauði forsetans hafi
ekki verið tilviljun og vitna í því
sambandi til sjónarvotta sem segjast
hafa séð sprengingu í vélinni
skömmu áður en hún hrapaði. IDS
Sprengja
vekur
ugg Sovét'
manna
Sovéskur maður, sem komið
hafði fyrir sprengju í farangri
konu sinnar áður en hún hélt af
stað til Kuibyshev með flugvél, er
horfinn á bak og burt eftir að hafa
beðið fregna og fengið þá vitn-
eskju að flugvélin hefði ekki
sprungið og konan væri enn í
fullu fjöri, að sögn Pravda, mál-
gagns sovéska kommúnista-
flokksins í gær.
Eiginmaðurinn, sem er fyrrum
ofursti í sovéska hernum, kom
fyrir öflugri tímasprengju í mat-
arboxi sem konan hugðist taka
með sér í ferðalagið en hún var
ásamt 154 öðrum farþegum vélar-
innar á leið frá Kiev til Kuibyshev
sem er borg við ána Volgu.
Sprengjan hafði verið stillt þann-
ig að hún spryngi 35 mínútum
áður en vélin átti að lenda.
Eitthvað fór hins vegar úr-
skeiðis og sprengjan sprakk ekki.
Þegar eiginkonan ætlaði að gæða
sér á mat þeim sem hún hafði haft
meðferðis fann hún málmstykki í
boxinu, sem hún fór með til
lögreglunnar.
Húsleit vargerð hjá þeim hjón-
um á heimili þeirra í Kiev og
fundust þá sams konar málm-
stykki en eiginmaðurinn var hins
vegar á bak og burt. Vinur eigin-
mannsins sagði hann hafa hringt
í sig og spurst fyrir um örlög
þessarar tilteknu vélar. Vinurinn
vissi hins vegar ekki hvar eigin-
maðurinn var staddur og sér-
fræðingar reyna nú að finna út
hvað olli því að sprengjan sprakk
ekki.
Pravda skýrir frá því að atvikið
hafi vakið óhug meðal almenn-
ings og sýni glöggt að þörf sé á
nánara eftirliti á flugvöllum í
Sovétríkjunum þar sem handfar-
angur er gegnumlýstur en hins
vegar ekki farangur sem geymdur
er í farangursrými véla. IDS
Friðarviðræður írana og Iraka hefjast í dag:
„Árangurinn byggist
á pólitískum vilja“
Javier Perez de Cuellar aðalritari
Sameinuðu þjóðanna segir að friðar-
viðræðurnar milli írana og íraka um
lok Persaflóastríðsins eigi hugsan-
lega eftir að standa yfir í mörg ár.
„Þetta byggist allt á pólitískum
vilja hinna stríðandi aðila," segir
aðalritarinn í viðtali í franska dag-
blaðinu Le Monde í gær.
„Séu þeir mjög áfjáðir í að leysa
deiluna tekst það á nokkrum mánuð-
um. Ef þeir eru það hins vegar ekki
getur þetta tekið mörg ár og þá verð
ég að tilnefna sérstakan fulltrúa
minn til að halda viðræðunum
áfram,“ bætir hann við.
Utanríkisráðherrar íran og írak
ásamt Perez de Cuellar munu taka
þátt í friðarviðræðunum sem hefjast
í Genf í dag eftir að formlegu
vopnahléi var lýst yfir á Persaflóa
síðastliðinn laugardag.
Meðal þeirra viðfangsefna sem
Perez de Cuellar segir að tekin verði
fyrir í Genf éru afmörkun landa-
mæra ríkjanna við siglingaleiðina
um Shatt al-Arab. Auk þess verður
að komast að samkomulagi um
brottflutning herliða og myndun
nefndar sem mun ákvarða hvort
landið hóf styrjöldina fyrir átta
árum, en aðilarnir ásaka hvor annan
um að hafa hafið stríðið.
Fulltrúar frana í friðarviðræðun-
um komu til Genf um hádegið í gær
og írakar voru væntanlegir síðdegis.
Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrúar
ríkjanna ræðast við frá því að Persa-
flóastríðið hófst árið 1980 og dauði
nær milljón einstaklinga hefur æst
upp gífurlegt hatur og vantraust
þeirra á milli. IDS
Dauði allt að milljón einstaklinga í
Persaflóastríðinu hefur valdið gífur-
legu hatri milli aðilanna sem nú
reyna að semja um frið.