Tíminn - 25.08.1988, Síða 19

Tíminn - 25.08.1988, Síða 19
Fimmtudagur 25. ágúst 1988 Tíminn Í9 lllllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllll á hjónunum! 60 ára munur Hin hamingjusömu brúðhjón kyssast eftir hjónavígsluna. Það gerðist nýlega í Allingabro, nálægt Randers, í Danmörku, að þau Aage og Lone Davidsen gengu í hjónaband. „Ég braut allar venjur í sambandi við giftinguna," sagði Lone. „Ég bar upp bónorðið og ég bar brúðguma minn yfir þröskuld- inn eftir hjónavígsiuna, - enda er hann 80 ára en ég 20. Það er sem sagt 60 ára aldursmunur á okkur hjónunum!" Margir voru hneykslaðir Lone sagði, að margir væru hneykslaðir á þessu hjónabandi, en henni þætti samband þeirra eðlilegt. Aage hefði verið sér svo góður þegar hún átti bágt og smám saman hefði myndast milli þeirra ást og traust. Samband þeirra byrjaði þannig, að Lone átti í erfiðleikum heima hjá sér þegar hún var 14 ára. Hún strauk að heiman og vinur fjöl- skyldunnar, Aage, sem var bakari á eftirlaunum og það gamall að hann gat verið langafi Lone, skaut yfir hana skjólshúsi. Hún fékk herbergi hjá honum og vann hús- verk upp í leiguna og var þakklát fyrir gott atlæti. „Aage var alltaf í huga mér þó ég væri úti að skemmta mér“ „Það var ekkert ástasamband á milli okkar,“ segir Lone. „Aage hvatti mig til að fara út með vinum mínum. Ég gat sagt honum allt og við töluðum saman á kvöldin. Hann sagði mér frá því þegar hann var ungur og ég gat sagt honum allt um mín mál. Ég hafði kynnst góðum strák og Aage var mjög hlynntur því að ég væri með honum, en þó ég væri úti að skemmta mér var Aage alltaf í huga mér,“ segir Lone. Síðan segir hún frá því þegar þau tvö, hún og Aage, voru að hjálpast að að flytja til sófa og hendur þeirra snertust og þau horfðust í augu. „Ég vissi ekki fyrr en við féllumst í faðma og kysstumst, og svo gekk þetta sinn gang, og nú erum við gift,“ sagði Lone brosandi. Það skyggði á ánægjuna hjá brúðhjónunum, að hvorki foreldr- ar hennar né uppkomin börn Aage vildu koma til brúðkaupsveislunn ar. 11 _ UM STRÆTI OG TORG ll||||lllll|||llllllllll|||||||l||||||||||||||||||||| Verslunarfólk Eins og misjafn sauður er í ntörgu fé, eru engin undur að í stétt verslunarfólks finnist misjafnt fólk. Sá sem fer víða og verslar á mörgum stöðum kynnist gjarnan alúðlegu og elskulegu verslunar- fólki en stundum og sem betur fer sjaldan hinu gagnstæða. Vegna yfirvofandi niðurfærslu eða gengis- fellingar ætla ég að segja frá þrem- ur dæmum af verslunarfólki. Sælgætisverk- smiðjan OPAL Þar sem ég er tryggur og dyggur viðskiftavinur OPAL í hálstöflum þeim sem þeir selja undir merkinu PALO hálstöflur varð ég nokkuð óánægður þegar ég varð fyrir því hvað eftir annað, um tíma, að pokarnir um brjóstsykur þennan rifnuðu um límingu og innihald lenti óinnpakkað í vasa mínum. Svo afskiftasamur sem ég er (eins og mörgum er kunnugt), hringdi ég í verksmiðjuna og sagði frá þessum galla. Viðbrögðin voru þau, hjá framleiðslustjóranum sem ég talaði við, að hann þakkaði mér kærlega fyrir að hafa samband en gat þess jafnframt að þeir hefðu þegar uppgötvað gallann. Samt bað hann mig að mæta í verksmiðj- una þegar mér hentaði, sem ég og gerði fljótlega. Þangað kominn var ég leiddur um verksmiðjuna, sýnt sitt hvað og meðal annars vélin sem sveik líminguna. Loks var ég leystur út með gjöfum og þakklæti. Þarna var að verki Verslunarfólk með stórum staf, fólk sem kann sitt fag. Söluturninn Kapla- skjólsvegi 1 Þar kom ég á dögunum til að kaupa LUCKY STRIKE sígarett- ur. Einn pakki átti að kosta 129 krónur svo að ég sem reyndur kaupandi téðrar tegundar benti viðkomandi afgreiðslukonu á að rétt verð væri 126 krónur. Nei, það getur ekki verið, ég skal gá í verðskrána, sem hún og gerði. „Almáttugur, þetta er rétt, hvers- vegna hefur enginn sagt neitt, jesús, ég verð að laga þetta, þakka þér kærlega fyrir, hversvegna segir fólkið ekki neitt.“ Og manneskjan var greinilega alveg í öngum sínum vegna þess að hafa selt þessa sígarettutegund á röngu verði um nokkurt skeið. Þarna var Verslun- armanneskja með stórum staf, manneskja sem ekki vill vamm sitt vita. Á svona stað er gott að koma. Seljakaup Þar hefi ég verslað daglega, bæði í sjoppu og matvöruverslun. Svo bar við eitt sinn á dögunum að er ég kom þar í sjoppuna og bað um PALO hálstöflur að afgreiðslukon- an vildi fá 40 krónur fyrir pokann. (Þetta var áður en síðasta hækkun kom til). Ég brást hálf fúll við og tjáði konunni að PALO hálstöflur fengjust á 30, 32, 35 og allt upp í 38 krónur í öðrum verslunum, en hvergi meira og þessvegna þætti mér40krónurnokkuðmikið. Svar- ið var klárt og skýrt: „Ef þú ert eitthvað óánægður, skalt þú bara versla annarstaðar." (Og hananú). Þarna var vissulega aðdáunarverð- ur verslunarvíkingur að starfi. Ef þú ert óánægður, farðu bara annað, mér dettur ekki í hug að reyna að gera þér til geðs. Það er ekki hægt annað en dást að svona fólki, fólki sem heldur sínu striki hvað sem tautar og raular. Fólki sem er svo vel statt að geta vísað tryggum viðskiftavini á braut. Ég hefi virkilega gaman af því að kynnast svona ákveðnum og ein- beittum verslunarmönnum en verð að viðurkenna að ekki er víst að verslun þeirra eflist og dafni. Vegna svona viðmóts er líklegt að vörurnar fái að safna á sig rvki í hillunum, en það er áreiðanlega ekki það sem Verslunarfólk með stóru Vaffi vill. Bílastæði leigubíla Enn skal á það minnast hversu stæði leigubíla um alla borg eru til stórskammar umhverfi sínu. í grónum hverfum, þar sem allur gróður og allar gangstéttar og allt annað sem til fegrunar heyrir er vel og fallega frágengið, þar eru stæði leigubíla eins og graftarbóla í fal- legu andliti. Ekki veit ég hvers- vegna borgaryfirvöldum þykir við hæfi að hafa drullu og skít sem einkennistákn fyrir þau stæði sem eru ætluð leigubílum borgarinnar. Svo mikið er víst að þeir menn, sem stunda þá atvinnu að aka leigubílum í borginni, eru ekki sóðar. Leigubílafloti borgarinnar eru vel snyrtir og þrifalegir og vel bónaðir bílar, með örfáum undan- tekningum. Við sem leggjum okk- ur fram um að koma hreinir og snyrtilegir til viðskiftavinanna (og það gerum við nær allir), okkur er mikil raun að því að stæði okkar skuli vera einhver olnbogabörn gatnamálastjóra. Mér þykir við hæfi að tala út úr pokanum. Hver sem því ræður, hversu ljót og óyndisleg stæði leigubíla eru í borginni, ætti að skoða hug sinn. Viðkomandi stæði gefa oft og ein- att gott tilefni til þess að verða, eða geta orðið, enn einn gimsteinn í viðkomandi hverfi. Athugið það. Leigubílahallæri Oft er á það minnst að mikið leigubílahallæri sé um þær mundir sem danshúsagestir snúa heim. Vissulega er það rétt. Við leigubíl- stjórar ökum fólki að dansstöðum allt fram til klukkan tvö þrjátíu, bara að ná 'inn áður en barinn lokar. Við ökum fólki á staðina allt frá kl. 7 tilJd. 2.30 og svo er ætlast til þess að við getum komið liðinu heim á hálftíma. Þetta er vitanlega rugl. Með því að gefa lokunartím- ann frjálsan, þá yrði ekki lengur til það sem kallað er nú leigubílahall- æri. Förum að óskum O.L., gefum lokunartíma dans- og vertshúsa frjálsan. Svo einfalt er það mál, þá verður ekkert hallæri með leigu- bíla. Reynslan frá dögunum með ólöglegu klúbbunum segir okkur þetta. Athugið það, þið sem öllu ráðið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.