Tíminn - 14.09.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 14. september 1988
Tíminn 7
150 ára hátíðarafmæii Knappskirkju í Fljótum:
Hátíðarmessa í elstu
timburkirkju landsins
Frá Ernl Þórarlnssyni i Fljótum:
Hátíðarguðsþjónusta var haldin
í Knappstaðakirkju í Fljótum, í
Skagafjarðarsýslu, fyrir skömmu.
Tilefnið var að nú er lokið gagnger-
um endurbótum á kirkjunni og
umhverfi hennar. Umbæturnar
hófust fyrir fjórum árum en þá var
stofnað áhugamannafélag til að
vinna að varðveislu Knappstaða-
kirkju.
Knappstaðakirkja sem er 150
ára gömul er talin elsta timbur-
kirkja á landinu og því beitti
Þjóðminjasafn íslands sér fyrir því
að kirkjan var friðlýst fyrir nokkr-
um árum.
Knappstaðir í Fljótum, nánar
tiltekið í Stíflu, voru allt til ársins
1974 kirkjusókn þeirra sem bjuggu
í fremrihluta Holtshrepps. Um síð-
ustu aldamót og fram undir 1940
var blómleg byggð í Stíflunni, en
þar var búið á 10-20 jörðum og
íbúar lengi vel um 200 talsins. Árið
1974 var svo komið vegna fólksfæð-
ar að Knappstaðasókn var lögð
niður og sameinuð Barðssókn. Þá
voru einungis þrjár jarðir í byggð í
Stíflu og íbúatalan komin niður
fyrir 20 manns.
Ástæður svo mikils fólksflótta
voru, auk breyttra þjóðfélagshátta,
að með tilkomu Skeiðsfossvirkjun-
ar, sem byggð var á árunum 1942-
45 urðu margar jarðir í .Stíflu
óbyggilegar vegna þess að uppi-
stöðulón stíflunnar fór yfir nær allt
undirlendi þeirra.
Eins og áður sagði hefur undan-
farin ár verið unnið að lagfæringum
á kirkjunni og hefur Þorsteinn
Gunnarsson, arkitekt, haft faglega
umsjón með verkinu. Allar fram-
kvæmdir hafa verið í höndum
stjórnar áhugamannafélagsins sem
í eru Hjördís Indriðadóttir, Guð-
rún Halldórsdóttir og Sigurlína
Kristinsdóttir. Hafa þær þarna
unnið ágætt starf sem hið aidna
guðshús ber best vitni um. Það er
nú sérlega snyrtilegt jafnt að utan
sem innan dyra.
Fjárframlag fékkst úr húsfriðun-
arsjóði vegna verksins en einnig
hefur heimafólk og burtfluttir
sveitungar styrkt þessa framkvæmd
með ýmsum hætti. Auk þessa hefur
mikið starf verið unnið í sjáifboða-
vinnu.
Við hátíðarguðsþjónustuna
prédikaði séra Hjálmar Jónsson,
prófastur Skagfirðinga, séra Gísii
Gunnarsson, sóknarprestur Fljóta-
manna og séra Sigurður Guð-
mundsson, vígslubiskup, þjónuðu
fyrir altari, og kirkjukór Barðs-
kirkju söng við undirleik Rögn-
valdar Valbergssonar. Allmargt
fólk var viðstatt athöfnina, en að
henni lokinni þáðu kirkjugestir
veitingar í félagsheimilinu að Ketil-
ási.
Séra Gísli Gunnarsson fyrir altari í yfirfuUri Knappstaðakirkju í Fljótum, sem er eLsta timburkirkja á íslandi - 150 ára. Til hægri á myndinni má sjá
prófastinn. sr. Hjálmar Jónsson, og vígslubiskupinn, sr. Sigurð Guðmundsson á Hólum. Siguriina Kristinsdóttir, húsfreyja á Deplura í Fljótum stendur
lengst til hægri. Tlmamynd: öm.
Lands-
liðið í
„Gerum okkar besta“, lag Is-
lenska handknattleikslandsliðs-
ins, sem nú er í þann mund að
lenda í Seoul í S-Kóreu, er í öðru
sæti á nýgerðum vinsældarlista
íslenska listans, fyrir vikuna 10.9
til 16.9 1988. Hvort það verði
einnig sæti þeirra á Ólympíu-
leikunum skal ósagt látið.
Það tók lagið aðeins þrjár vikur
að komast í annað sætið, en í
síðustu viku var lagið í því þriðja.
Að sögn fróðra manna í popp-
heiminum má búast við enn frek-
ari velgengni lagsins á íslenska
listanum og telja menn ekki ólík-
legt að Wild World sem setið
hefur í fyrsta sæti í sjö vikur,
verði nú að vfkja fyrir íslenska
landsliðinu, þar sem þeir eru
ólmir í að hreppa fyrsta sætið.
Landsliðið hefur líka lofað að
gera aðeins betur, ef það er það
sem þarf. - ABÓ
Hnífstungur
á báða bóga
Það sló í brýnu milli sambýlisfólks
í Síðumúlanum um kvöldmatarleyt-
ið í fyrradag. Mun Bakkus eða
lyfjaneysla hafa átt þátt í slagsmálum
þar sem maður sló sambýliskonu
sína í andlitið. Tók hún þá hníf og
stakk manninn í handlegginn. Mað-
urinn brá þá fyrir sig skærum og
stakk konuna með þeim. Var farið
með þau bæði á slysavarðstofuna en
meiðsli þeirra voru ekki alvarleg.
Fólkið er á þrítugsaldri. JIH
Stórtjón í
verslunum
Hitavatnsleiðsla í Skipholti 50b,
gaf sig á sunnudagsmorgun með
þeim afleiðingum að heitt vatn
flæddi inn í fjórar verslanir sem þar
eru tii húsa á jarðhæð. Hitinn og
gufan sem af vatninu lagði olli stór-
tjóni á innréttingum og munum
verslananna.
Slökkviliðið var kvatt á staðinn til
að loka leiðslunni og dæla vatninu
út. Það tókst að stöðva vatnsflaum-
inn og dæla út vatninu eftir tvo tíma.
- ABÓ
Björgunarskóli LHS hélt nýlega námskeið fyrir þá meðlimi hjálparsveitanna sem stunda köfun, til að efla þeim
kunnáttu og sjálfstraust. Námskeiðið tpk viku og að því loknu útskrifuðust 5 björgunarkafarar.
Biörgunar-
kafarar
útskrifaðir
„Meiningin er að halda áfram og
halda fleiri námskeið af þessu tagi.
Ég vii taka fram að Björgunarskóli
Landssambands hjálparsveita skáta
útskrifar björgunarkafara, ekki at-
vinnukafara,“ sagði Jón Halldór
Jónasson hjá LHS í samtali við
Tímann.
Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt
námskeið er haldið hérlendis og
kennt var samkvæmt námsskrá
IADRS, sem er alþjóðasamband
björgunarkafara.
Kennarar á námskeiðinu voru
Stefán Axelsson úr Hafnarfirði og
Kjartan Hauksson frá ísafirði sem
báðir hafa aflað sér kennsluréttinda
hjá alþjóðasambandi björgunarkaf-
ara.
Jón Halldór sagði að markmiðið
væri að útskrifa sem flesta björgun-
arkafara sem síðan yrðu tiltækir
innan björgunarsveitanna sem víð-
ast um landið. - sá