Tíminn - 14.09.1988, Blaðsíða 16
1& Tífninn
Miövikudagur 14. september 1988
llllllllllllllililllllll DAGBÓK
lllllllllllllllllllllllllllllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP
Ema Guðmundsdóttir sópransöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari.
(Ljósm.: Þór Ægisson)
Tónleikar í Norræna húsinu
Erna Guðmundsdóttir sópransöng-
kona og Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari halda tónleika í Norræna húsinu
fimmtudaginn 15. sept. kl. 20:30.
Á efnisskránni eru sönglög og aríur
eftir Georg Friedrich Hándel, Richard
Strauss, Edvard Grieg, Claude Debussy,
Gaetano Donizetti og fimm íslensk
tónskáld.
Erna Guðmundsdóttir lauk masters-
prófi frá hinum þekkta tónlistarháskóla í
Bloomington í Indianafylki í Bandaríkj-
unum í vor. Þetta eru hennar fyrstu
sjálfstæðu tónleikar.
Eitt verka Guðmundar Karls.
Guðmundur Karl Ásbjömsson
sýnir í Gallerí Holiday Inn
Guðmundur Karl Ásbjörnsson heldur
sýningu á teikningum, vatnslita- og past-
el- og olíumyndum í Gallerí Holiday Inn,
Sigtúni 38 í Reykjavík.
Á sýningunni eru 44 verk sem hann
hefur unnið á síðustu árum. Guðmundur
Karl hefur haldið margar einkasýningar
hér á landi og erlendis og tekið þátt í
samsýningum.
Sýningin stendur yfir frá 10. til 25.
september. Hún er opin daglega kl.
14:00-22:00 og er aðgangur ókeypis.
Guðmundur Karl Asbjömsson er fædd-
ur á Bíldudal 1938. Hann stundaði nám
við Myndlistarskólann í Reykjavík og
kvöldnámskeið hjá Myndlistar- og hand-
íðaskólanum, ásamt einkatímum í teikn-
ingu og listmálun. Haustið 1960 hélt
Guðmundur Karl til ltalíu og hóf nám í
ACCADEMIA DI BELLI ARTI E LI-
CEO ARTISTICO í Flórens. Haustið
1961 var honum úthlutaður námsstyrkur
frá ítalska menntamálaráðuneytinu.
Guðmundur Karl útskrifaðist úr fyrr-
nefndum skóla að 4 ára námi loknu.
Haustið 1965 hélt hann til Spánar og hóf
nám í málverkaviðgerðum hjá prófessor
Emmanuel Grau Más í Barcelona, sem er
einn þekktasti í heimi í þeirri grein.
Guðmundur Karl lauk þar námi með
góðum vitnisburði.
Fyrsta einkasýning Guðmundar Karls
var í Bogasal Þjóðminjasafnsins vorið
1966 og síðan hefur hann haldið margar
sýningar, bæði hérlendis og erlendis.
Síðustu sýningar Guðmundar Karls voru
1983 að Kjarvalsstöðum, sýning á 95
málverkum og 1985 einkasýning í Gallerí
Hamraborg í Hafnarfirði.
Námskeið Heilunarskólans
Frá íslenska Heilunarfélaginu hefur
borist eftirfarandi fréttatilkynning:
„Námskeið vetrarins eru að byrja og er
skráning hafin í símum 33466 og 46026.
Kynning á starfsemi skólans verður
fimmtudaginn 15. sept. kl. 20:00 að
Austurbrún 2, Reykjavík. Dagsnámskeið
verður laugardaginn 17. sept. en helgina
24.-25. sept. hefst vetrarnámskeiðið.
1 skólanum er veitt fræðsla í andlegum
málum og komið inn á flest svið þar að
lútandi, m.a. andlega uppbyggingu
mannsins og þróun hans, karma og endur-
holdgun, hina sjö geisla, meistarana, tíva
og geimverur.
Ráðleggingar varðandi heilbrigt líferni.
Hugleiðslur og æfingar sem stuðla að
andlegu jafnvægi og þjálfa heilunarhæfi-
leikann, þ.e. að vera farvegur fyrir al-
heimsorkuna til hjálpar sjálfum sér og
öðrum. íslenska Heilunarfclagið
Vetrarstarf Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur að hefjast
Nú er að hefjast vetrarstarf Þjóðdansa-
félags Rcykjavíkur. Á liðnu sumri fór
hópur frá félaginu á Norðurlandamót í
Bergen og var vel tekið.
Á komandi starfsári mun verða kennsla
í barnadönsum nýjum og gömlum og
gömludansanámskeið.
Þeir sem áhuga hafa á dansi frá ýmsum
löndum og kunna undirstöðuatriði í
gömlu dönsunum eru velkomnir á þjóð-
dansaæfingarnar, sem verða á fimmtu-
dagskvöldum í vetur.
Næsta sumar mun félagið halda hér
Norðurlandamót með um 400 þátttakend-
um frá öllum Norðurlöndunum. Öll starf-
semi félagsins fer fram að Sundlaugavegi
34.
Hringur Jóhannesson.
Hringur sýnir
i Gallerí Borg
Hringur Jóhannesson sýnir olíumál-
verk og litkrítarmyndir 15.-27. septem-
ber. Verkin eru frá síðustu tveimur árum.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Sýningunni lýkur þriðjudaginn 27. sept-
ember.
Uppboð
á vegum Gallerís Borgar verða haldin 2.
október og 4. desember n.k.
Heimspekinámskeið fyrir bórn
10-15 ára
t samvinnu við Heimspekistofnun Há-
skóla íslands býður Heimspekiskólinn
10-15 ára börnum að sækja 12 vikna
heimspekinámskeið nú í vetur. Þetta er
annað starfsár skólans sem starfar í yngri
og eldri deild. Unnið er út frá skáldsögum
sem bandarískur heimspekingur að nafni
Matthew Lipman hefur samið fyrir þenn-
an aldurshóp. í sögum Lipmans segir af
krökkum sem fara að velta notkun máls
og eðli hugsunar fyrir sér. Námsefni
Lipmans á 20 ára sögu að baki sér.
Námskeið Heimspekiskólans verða
haldin í gamla Verslunarskólanum við
Grundarstíg. í hverjum hópi verða 10-14
nemendur, sem hittast einu sinni í viku,
einn og hálfan klukkutíma í senn. Rök-
leikni nemenda verður metin við upphaf
og lok námskeiðanna. Aðalleiðbeinandi
verður dr. Hreinn Pálsson, sem hefur
sérhæft sig í heimspekikennslu barna og
unglinga.
Innritun stendur til 18. september og
kennsla hefst daginn eftir. Framhalds-
námskeið verða í boði á vormisseri 1989.
Innritun og upplýsingar í símum 688083
(Hreinn) og 11815 (Sigurður).
ÆTTARMÓT í Mýrdal
Ættarmót afkomenda séra Þórðar
Brynjólfssonar, prófasts Vestur-Skaft-
fellinga, f. 1763, d. 1840, hefst með
hátíðarguðsþjónustu að Skeiðflöt í Mýr-
dal kl. 14:00 sunnudaginn 18. sept.
Séra Þórður átti 12 börn, og eru
afkomendur hans dreifðir hérlendis og
erlendis, flestir í Bandaríkjunum og Kan-
ada.
1. kona hans var Jórunn, dóttir séra
Jóns eldklerks Steingrímssonar. Þau voru
barnlaus.
2. kona var Margrét Sigurðardóttir,
prestsdóttir frá Stafholti í Borgarfirði
Jónssonar.
3. konan var Sólveig Sveinsdóttir,
dannebrogsmanns og óðalsbónda á Ytri-
Sólheimum í Mýrdal, Alexanderssonar
frá Skál á Síðu.
Fólk er vinsamlegast beðið að tilkynna
þátttöku fyrir 15. sept. í síma 28750 í
Reykjavík kl. 17:0(4-20:00 og í síma
83822 og 98-71130.
Námskeið hjá
Slysavarnaskóla sjómanna
Almenn námskeið hjá Slysavarnaskóla
sjómanna, sem enn eru laus til umsóknar,
verða haldin sem hér segir:
Október: 11.-14. og 18.-21.
Nóvember: 1.-4., 15.-18. og 22.-25.
Desember: 6.-9. og 13.-16.
Námskeiðin verða haldin um borð í
skólaskipinu SÆBJÖRGU, sem liggur
við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn.
Nánari upplýsingar verða veittar á
daginn í síma 985-20028, en á kvöldin og
um helgar í síma 91-19591.
Aðalviðtal ritsins að þessu sinni er
við Leif Múller um þann hörmungartíma
er hann var í fangabúðum nasista á
stríðsárunum. Margt fleira er rætt við
Leif og bæði gamlar og nýjar myndir
fylgja viðtalinu. Viðtalið er tekið aðeins
tveim vikum fyrir andlát Leifs Múllers og
birt með samþykki aðstandenda, segir í
athugasemd við fyrirsögn greinarinnar.
Rætt er við þrjár áhrifakonur í íslensku
leikhúslífi um lífið og listina. Hrafnhildur
Schram listfræðingur skrifar um fimm-
menningana, listamennina ungu, sem eru
nú með verk sín til sýnis hjá Listasafni
íslands. Karl Birgisson skrifar um
stjórnmál og stjórnarsamstarfið.
Þá eru í blaðinu mikil skrif um félags-
mál og barnaverndarmál og störf félags-
málaskrifstofunnar. Jóhanna Sveinsdóttir
segir frá mat og drykk í Suðurlöndum
o.fl. því viðkomandi. í viðskiptaþætti er
rætt um „harðnandi heim“ og uppsagnir
manna úr starfi. Viðtal er við dr. Helgu
Ögmundsdóttur, forstöðukonu rann-
sóknarstofu Krabbameinsfélagsins í sam-
einda- og frumulíffræði.
Margt fleira efni er í heftinu, svo sem
tískuþáttur, Hugarflug eftir Magdalenu
Schram og bókaþáttur.
Svanhildur Konráðsdóttir er ritstjóri.
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
FM 91,1
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fróttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit.-GesturE. Jónasson. ÍFrá Akureyri)
10.05 Mlðmorgunssyrpa. - Eva Ásrún Alberts-
dóttir og Óskar Páll Sveinsson.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
18.03 Sumarsveifla. - Kristín Björg Þorsteinsdótt-
ir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin.
22.07 Eftir mínu höfði. - Skúli Helgason.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður vinsældalisti Rásar 2 endurtekinn frá
sunnudegi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar
fréttir af veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
SJÓNVARPIÐ
Miðvikudagur
14. september
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Solveig LáraGuðm-
undsdóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið meö Má Magnússyni. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn“. „Alís í Undralandi" eftir
Lewis Carroll í þýðingu Ingunnar E. Thoraren-
sen. Þorsteinn Thorarensen les (3). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir. (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Einu sinni var... „Um þjóðtrú í íslenskum
bókmenntum. Fimmti þáttur af sjö. Umsjón:
Símon Jón Jóhannsson. Lesari með honum:
Ragnheiður Steindórsdóttir.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Edward J. Frederiks-
en.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Að byrja í skóla. Álfhildur
Hallgrímsdóttir
13.35 „Stefnumót klukkan níu“ - smásaga eftir
Ramón Ferreira. Aðalbjörg Óskarsdóttir þýddi,
Valdís Óskarsdóttir les.
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson.
(Endurtekinn þáttur frá laugardagskvöldi).
14.35 íslenskir einsöngvarar og kórar. Jóhann
Konráðsson, Þuríður Baldursdóttir og Selkórinn
syngja.
15.00 Fréttir.
15.03 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni.
(Endurtekinn þáttur frá lauqardeqi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Leggjum við of mikla ábyrgð
á börnin okkar? Umsjón: Kristín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. a. Forleikur að óperunni
„Rakarinn frá Sevilla" eftir Giocchino Rossini.
Fílharmóníusveitin í Berlín leikur; Herbert von
Karajan stjórnar. b. „Akademíski hátíðarfor-
leikurinn“ eftir Johannes Brahms. Fílharmóníu-
sveit Vínarborgar leikur; Leonard Bernstein
stjórnar. c. Konsert fyrir fiðlu, selló og hljómsveit
eftir Johannes Brahms. Anne Sophie Mutter
leikur á fiölu og Antonio Meneses á selló með
Fílharmóníusveitinni í Berlín; Herbert von Kar-
ajan stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Neytendatorgið. Umsjón: Steinunn Harðar-
dóttir.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Glugginn. Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
20.00 Lltli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Tónlist eftir Lutoslawski og Lindberg. a.
„Kraft“ eftir Magnus Lindberg. Toimii-flokkurinn
og Sinfóníuhljómsveit sænska útvarpsins leika;
Esa-Pekka Salonen stjórnar. b. „Les espaces
du sommeil" eftir Witold Lutoslawski. Dietrich
Fischer-Diskau syngur með Fílharmóníusveit-
inni í Berlín; höfundurinn stjórnar.
21.00 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
21.30 Vestan af fjörðum. Þáttur í umsjá Péturs
Bjarnasonar um ferðamál og fleira. (Frá ísafirði)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Heimshorn. Þáttaröð um lönd og lýði í
umsjá Jóns Gunnars Grjetarssonar. Ellefti og
lokaþáttur: Suður-Kórea. (Einnig útvarpað dag-
inn eftir kl. 15.03).
23.10 Djassþáttur. - Jón Múli Árnason. (Einnig
útvarpað nk. þriðjudag kl. 14.05).
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
Miðvikudagur
14. september
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Töfraglugginn - Endursýning.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Nýjasta tækni og vísindi. Umsjón Sigurður
Richter.
21.05 Sjúkrahúsið í Svartaskógi. (Die
Schwarzwaldklinik) Áttundi þáttur. Þýskur
myndaflokkur í ellefu þáttum. Höfundur Herbert
Lichtenfeld. Leikstjóri Alfred Vohrer. Aöalhlut-
verk Klaus Jurgen Wussow, Gaby Dohm,
Sascha Hehn og Karin Hardt. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
21.50 Skilaboð til Söndru. íslensk bíómynd frá
árinu 1983. Framleiðandi kvikmyndafélagið
Umbi hf. Handrit gerði Guðný Halldórsdóttir eftir
sögu Jökuls Jakobssonar. Tónlist er eftir Gunn-
ar Reyni Pálsson. Leikstjóri Kristin Pálsdóttir,
Aðalhlutverk Bessi Bjarnason, Ásdís Thor-
oddsen, Bryndis Schram, Benedikt Árnason,
Jón Laxdal og Bubbi Morthens. Miðaldra rithöf-
undur fær tækifæri til að sanna hvað í honum
býr, er hann er beðinn um að skrifa kvikmynda-
handrit. Áður á dagskrá 19. maí 1986.
23.15 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
16.15 Sjúkrassaga. Medical Story. Ungur læknirá
stóru sjúkrahúsi er mótfallinn þeirri ómannúð-
legu meðferð sem honum finnst sjúklingarnir
hljóta. Þrátt fyrir aðvaranir starfsfélaga sinna
lætur hann skoðanir sínar í Ijós. Myndin varð
upphaf að mikilli sjúkrahúsaþátta-framleiðslu.
Aðalhlutverk: Beau Bridges, Jose Ferrer, Carl
Reiner og Shirley Knight. Leikstjóri: Gary
Nelson. Þýðandi: Páll Heiðar Jónsson. Colum-
bia 1974. Sýningartími 90 mín.
17.50 Litli folinn og félagar. My Little Pony an
Friends. Teiknimynd með íslensku tali. Leik-
raddir: Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson
og Saga Jónsdóttir. Þýðandi: Magnea Matthías-
dóttir. Sunbow Productions.
18.15 Köngullóarmaðurinn. Spiderman. Teikni-
mynd. Þýðandi: Ólafur Jónsson. Arp Films.
18.40 Bílaþáttur Stöðvar 2. Mánaðarlegur þáttur
þar sem kynntar eru nýjungar á bílamarkaðin-
um. í þættinum eru skoðaðir nokkrir bílar,
a.m.k. einum þeirra reynsluekið og gefin er
umsögn. Umsjón og kynning: Birgir Þór Braga-
son og Sighvatur Blöndahl. Stöð 2 1988.
19.1919:19. Fréttir og fréttaumfjöllun, íþróttir og
veður ásamt fréttatengdum innslögum.
20.30 Pulaski. Glænýir breskir þættir um leikarann
' og óhófssegginn Pulaskí. I þessum fyrsta þætti
er Pulaskí beðinn að hafa afskipti af fjölskyldu-
harmleik. Sonurinn er horfinn og er hvarfið álitið
tengjast því að átrúnaðargoö stráksa er Pulaskí.
Aðalhlutverk: David Andrews og Caroline Lang-
rishe. Leikstjórn: Christopher King. BBC 1988.
21.50 Með lögum skal land byggja. Umræðuþátt-
ur undir stjóm Hannesar Hólmsteins Gissurar-
sonar. I þættinum verður fjallað um tilgang
stjórnarskrárinnar og hugsanlegar breytingar á
henni. Rætt verður við Sigurð Líndal prófessor,
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
mann, Garðar Gíslason borgardómara, Hrein
Loftsson lögfræðing, Óiaf Ragnar Grímsson
prófessor og Þorstein Pálsson forsætisráð-
herra. Umsjón og handrit: Hannes Hólmsteinn
Gissurarson. Stöð 2 1988.
22.20 Veröld - Sagan í sjónvarpi. The World - A
Television History. Geysivinsælir þættir þar
sem mannkynssagan er rakin í myndum og
máli. í fyrsta þætti fylgjumst við með þróun
apanna þegar þeir smám saman yfirgefa trén
og fara að ganga uppréttir. Maöurinn þjálfar hug
og hönd og býr til tæki og tól. Hann aðlagar sig
aðstæðunum og lærir hvernig tendra eigi bál og
hvemig nota megi dýrahúðir sem klæði. Þegar
maðurinn er kominn á legg er ekki langt að bíða
landvinninganna í Evrópu, Asíu, Ameríku og
Ástralíu. Þulur: Júlíus Brjánsson. Þýðandi: Guð-
mundur A. Þorsteinsson. Framleiðandi. Taylor
Downing. Goldcrest.
22.45 Herskyldan. Nam, Tour of Duty. Ný þáttaröð
sem fjallar um herdeild í Víetnam. Myndin er
gerð í beinu framhaldi af hinni frægu mynd
Platoon og lýsir vináttu, fómfýsi og samstöðu
hermannanna. Þessir þættir varpa nýju Ijósi á
Víetnamstríðið og er ögn mannúðlegri en
flestar stríðsmyndir hingað til. Aðalhlutverk:
Terence Knox, Stephen Caffrey, Joshua Maurer
og Ramon Franco. Leikstjóri: Ðill L. Norton.
Framleiðandi: Ronald L. Schwary. Þýðandi:
Snjólaug Bragadóttir. Zev Braun 1987.
23.35 Falinn eldur. Slow Bum. Spennandi saka-
málamynd. Þegar sonur frægs listamanns
hverfur er einkaspæjari fenginn til að rekja slóð
hans. Aðalhlutverk: Dennis Lipscomb, Ray-
mond J. Barry og Anne Schedeen. Leikstjóri:
Matthew Chapman. Framleiðandi: Mark Levin-
son. Þýðandi: Guðmundur Þorsteinsson. Warn-
er 1986. Sýningartími 90 mín. Ekki við hæfi
barna.
01.10 Dagskrárlok.