Tíminn - 30.09.1988, Side 3
Föstudagur 30. september 1988
Tíminn 3
i' i < i
Hlynur Sigtryggsson, veðurstofustjóri, á erfitt með að keppa um menn við stöður erlendis:'
EKKIAÐLAÐANDIAD
-------7------7-
KOMA FRA VEDURNAMI
Skortur á veðurfræðingum er yfirvofandi á íslandi og segir
Hlynur Sigtryggsson, veðurstofustjóri, að eins og efnahags-
ástandið og óvissan sé hér á landi sé það ekki aðlaðandi að
koma hingað frá sumum löndum til starfa. „Það geta verið
ýmis vandkvæði á því að fá hingað menn og keppa við stöður
erlendis, vegna þess að þau kynslóðaskipti sem við stöndum
frammi fyrir eru líka að ganga yfír, t.d. á hinum Norður-
löndunum,“ segir Hlynur.
Á einfalda vakt á spádeild Veður-
stofunnar er talið vel mannað að
hafa fimm veðurfræðinga og tvo að
auki, en nú eru 3-4 veðurfræðingar
að komast á eftirlaun og ekki er útlit
fyrir að menn fáist í staðinn. Ýmis-
legt kemur til og segir veðurfræðing-
ur einn í spádeildinni, sem kominn
er á síðustu starfsár sín, að yngri
menn vilji bara ekki vinna vakta-
vinnu. Því liggi ekki annað fyrir en
að stærðfræðingar þeir sem náð hafa
fyrstu einkunn og lokið veðurfræði-
prófi erlendis, séu ekki ginkeyptir
fyrir boðum um atvinnu hér. Þannig
stefni allt í þá stöðu að ekki verði
eftir nema tveir til þrír veður-
fræðingar á spávakt á næsta ári,
nema staðan breytist verulega.
Ekki vildi Hlynur staðfesta það
sem Tíminn hefur heyrt að búið sé
að auglýsa án árangurs í þrjú ár eftir
veðurfræðingum í tvær stöður. Sagði
veðurstofustjóri að þarna væri verið
að segja of mikið. „En fólk er
tregara við það en áður að taka
vaktavinnu, en hugsanlega verður
hægt að breyta vaktafyrirkomulag-
inu með tíð og tíma,“ sagði Hlynur.
Talsverð umræða hefur verið á
lofti um að dregið verði úr nætur-
vöktum, en það sem frestað hefur
öllum ákvörðunum er einfaldlega
miklar þarfir flugsamgangna. Þörf
er á nákvæmum veðurspám og nýj-
um spám allan sólarhringinn fyrir
flugið og er það helsta ástæða þess
að ekki hefur verið fyrirsjáanlegt að
leggja niður næturvaktir á spádeild.
En mikil kynslóðaskipti ganga nú
yfir í stétt veðurfræðinga víða um
heim. Samkvæmt því sem Hlynur
sagði í viðtali við Tímann er ljóst að
mikil þörf fyrir veðurfræðinga
skapaðist strax að lokinni síðari
heimsstyrjöld. Þá mun hafa orðið
mikil uppbygging á veðurstofum
víða á Norðulöndum þar sem lítið
Fæst fólk til að lesa á þessa mæla?
hafði verði lagt í þessi störf af
opinberri hálfu. Nú eru flestir frum-
kvöðlanna sem enn eru starfandi í
þessari stétt að komast á eftirlaun
hér á landi og einnig víðast á Norður-
löndum. Það er einmitt til þessara
landa sem íslendingar fara utan til
náms í veðurfræði og þaðan virðist
nú vera örðið erfitt að lokka þá til
starfa hingað. Tilboð og skilyrði
virðast einfaldlega vera mun betri
erlendis þar sem nokkrir íslendingar
eru ýmist við nám eða við störf í
stéttinni.
Einn angi þess að erfiðara er að fá
fólk til starfa á vaktir er auk þess, að
Tfmamynd:Ami Bjama
sögn Hlyns, að nú fæst hlutfallslega
minna fyrir næturvaktir miðað við
dagvinnulaun. Þá er einnig á það að
líta að konum hefur farið fjölgandi f
þessari stétt og það virðist vera eins
og þær eigi ekki eins vel heiman-
gengt á næturvaktir eins og karl-
menn í stéttinni. KB
Gilbert dauður í suðurríkjum BNA:
Helena smýgur upp
undir Suðurlandið
Fellibylurinn Helena er væntan-
iegur upp undir Suðurland um
helgina og verður líklega farinn að
gcra verulega vart við sig á laugar-
dag. Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu er búist við að þessi
973 millibara lægð kynni sig sem
sterkan storm á Suðurlandi, en nái
ekki að teljast rok eða hvassviðri.
Telur veðurstofan ástæðu til þess
að menn fylgist með veðurfréttum
fram að helgi og reyni jafnframt að
láta storminn ekki koma sér á
óvart.
Gunnar Hvanndal, veður-
fræðingur, sagði að bylurinn yrði
búinn að þróast í djúpa lægð frá
því að vera fcllibylur þegar hann
næði hingað til lands. Helena á
eftir að fara austur með landinu og
austur fyrir land, en nákvæm spá
liggur ekki fyrir enn.
Ferill Helenu hefur verið sá að
feliibylurinn magnaðist upp á leið
sinni vestur yfir Atlantshafið og
olli usla í svciflu sinni inn í Mexíkó-
flóa. Þaðan liggur leið þessara
bylja oft inn á land í suðurrtkjum
Bandaríkjanna eins og varð raunin
á með fellibylinn Gilbert á dögun-
um, en yfir tandi dregur mjög úr
kraftinum. Helena er hins vegar
dæmi um fellibyl sem ekki lcitar
upp á land, en heldur á haf út að
nýju. Slíkir byljir eiga það sumir til
að ná sér aftur á strik og dofna
sjaldan á leið sinni norður og
austur yfir N-Atlantshafið.
Ekki er búist við öðru en að hér
verði stormur um helgina líkt og
oft verður á haustin. Því er rétt að
vara fólk við þvf að gæta að lausum
hlutum á lóðum úti og festa niður
það sem fokið getur. Helena er þó
ekki talin líkleg tii að valda miklum
skaða nema þar sem fólk verður
algerlega óviðbúið stormi. KB
Stjórn SH um efnahagsaðgerðir nýrrar ríkisstjórnar:
Vanda frestað
Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna telur að fyrstu efnahagsað-
gerðir stjórnar Steingrfms Her-
mannssonar séu skammgóður
vermir. Auknar lánveitingar til sjáv-
arútvegsins í gegnum Atvinnutrygg-
ingasjóð og útgreiðslur úr Verð-
jöfnunarsjóði fiskiðnaðarins séu ein-
ungis til þess fallnar að sökkva
fiskvinnslunni „dýpra í skuldafenið
og hvetja til áframhaldandi rekstrar
á röngum rekstrarforsendum." Það
er álit stjórnar SH að aðgerðirnar
fresti einungis vandanum en leysi
hann ekki. Orðrétt segir í ályktun
stjórnar SH: „Frystiiðnaðurinn er
ekki einungis langmikilvægasti
gjaldeyrisöflunaraðili þjóðarinnar,
heldur ræðst atvinna þúsunda manna
um land allt af velgengni hans. Þess
hlýtur því að verða krafist, að frysti-
iðnaðinum verði tryggð viðunandi
rekstrarstaða, svo unnt verði að
halda áfram uppi góðum lífskjörum
í þessu landi.“ óþh
Innbrotiö á Seltjarnarnesi:
Fjorði i
varðhald
Einn maður til viðbótar var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
5. október í sakadómi Reykjavík-
ur í gær, vegna innbrotsins á
Seltjarnarnesi um síðustu helgi.
Þá sitja fjórir menn inni vegna
verknaðarins en hinir þrír voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
12. október. Þórir Oddssons
vararannsóknarlögreglustjóri
segir að ekki sé víst að öll kurl séu
komin til grafar. - ABÓ
Þú boigar alltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum!
Hrevfill býður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
HREVRLÍ.
68 55 22