Tíminn - 06.10.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.10.1988, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 6. október 1988 Tíminn 7 Sjávarafurðadeild Sambandsins: Samið um sölu á 26001 af frystri síld til Japans Sjávarafurðadeild Sambandsins hefur aukið verulega sölu sína á fiskafurðum til Japans. Horfur eru á að í ár verði magniö allt að tvöfalt það sem var á síðasta ári, þrátt fyrir að loðnuvertíð hafi brugðist nú í ár. Sæmundur Guðmundsson sölustjóri er nýkominn úr ferð til Japans þar sem hann gekk meðal annars frá sölu á 2600 tonnum af síld. Þetta er mikil aukning, því að á síðasta ári seldi Sjávarafurðadeild þangað 900 tonn og innan við 200 tonn árið 1986. Samið var uni að afgreiða síldina að liluta tækjafrysta og að hluta blástursfrysta. Tækjafryst er síldin fryst undir þrýstingi í blokkir og fer öll í vinnslu í Japan, þar sem hún er skorin upp og þurrkuð. Blásturs- frysta síldin er aftur á móti fryst í öskjum og án þrýstings í blásturs- frystum, og fer hún beint inn í veitingahús og verslanir þegar á markaðinn kemur. Að sögn Sæmundar virðist íslensk síld vera í töluverðum metum í Japan. Þetta er talið stafa meðal annars af því að hún er tiltölulega feit og þar af leiðandi bragðgóð. Auk þess er vonast til að hægt verði í vetur að veiða nokkuð stóra síld, eða yfir 300 gramma mörkunum, sem er kjörstærð Japana. Þessi samningur er um sölu á síld af vertíðinni sem byrjar nú um næstu helgi og stendur í október og nóv- ember. Gert er ráð fyrir að afgreiða allt magnið til Japana fyrir áramótin. Allt þetta ár hefur einnig verið mjög góður markaður fyrir liaus- skorinn karfa í Japan. Það eru þó fleiri þjóðir en íslendingar sem hafa lagt áherslu á að frantlciða hann fyrir Japansmarkað. því að saman- lagt karfamagnið, sem flutt var þar inn á síðasta ári var um 34 þúsund tonn, en stefnir í 50 þúsund tonn í ár. Þetta þýðir að verð á karfanum er lækkandi vegna aukinnar sam- keppni. Meðal annars eru ýmsar Austur- Evrópuþjóðir mjög ötular við að flytja þarna inn karfa sent þær veiða í miklu magni út af 200 mílna mörkunum suðvestur af íslandi. Áætlað er að þær selji þangað um 17 þúsund tonn í ár, á sama tíma og sala Sæmundur Guðmundsson. ('límamynd: Árni Kjarna.) íslendinga verði um 8 þúsund tonn, sem aftur er upp undir tvöföldun frá síðasta ári. Þá hafa Portúgalir einnig selt Japönum um 10-12 þúsund tonn á ári. Aö sögn Sæmundar hefur sala á grálúðu aftur á móti gengið vel. í Japan máttu kaupendur teljast nokkuð ánægðir með þær sendingar sem til þeirra hafa komið nú í ár. Þess vegna er ekki annars að vænta cn ;ið þegar kemur að nýrri grálúðu- vcrtíð í apríl næsta vor verði þessi markaður í góðu lagi. - esig Starfsfólki sælgætisgerðannnar Nóa og Síríus gefst nú kostur á þátttöku í starfsnámi er fer af stað tíunda þessa mánaðar. Á þriðja þúsund manns í matvælaiðnaði á nú kost á starfsnámi: Akureyri: Kvikmyndahátíð Dagana 22.-29. október veröur haldin kvikmyndahátíö í Borgar- bíói á Akurcyri. Hátíðin hefur hlotið nafnið „Myndvika á Akur- cyri ’88", og er haldin í tilefni af 80 ára afmæli Eðvarðs Sigurgeirsson- ar Ijósmyndara. Á hátíðinni verða sýndar kvik- myndir eftir Eövarö Sigurgcirsson, og úrval leikinna íslenskra mynda sem sýna þróun íslenskrar kvik- myndagerðar. Myndvikunni lýkur svo að öllum líkindum með frum- sýningu á nýrri íslenskri kvikmynd sem bcr heitið, í skugga hrafnsins. Að sögn Ingólfs Ármannssonar, menningarfulltrúa Akureyrarbæj- ar, er til mikið af stuttum heimild- armyndum eftir Eðvarð Sigurgeirs- son frá árunum 1940-60, er sýna viðburöi og mannlíf á Akureyri. Einnig eru til myndir eins og: Geysisslysið, Á hreindýraslóðum og upptökur frá leiksýningum. Einnig verður sýndur sjónvarps- þáttur sem byggður er á myndefni Eðvarðs. Þá er fyrirhugað að Eð- varð og Jón Hjaltason, söguritari Akureyrarbæjar, fari með stutta dagskrá í tengslum við myndvik- una í skóla og dvalarheimili á Akureyri. I tengslum við hátíðina fór fram kvikmyndasamkeppni, og sagði Ingólfur aö 8 myndir hefðu borist í keppnina. Um er að ræða stuttar myndir, 5-10 mínútur að lcngd. fyrstu verðlaun í kvikmyndasam- kcppninni eru 50 þúsund krónur og hugsanlega fá fleiri myndir viðurkenningu. Þær myndir sem fá verölaun eða viðurkcnningar verða sýndar á myndvikunni, og e.t.v. hinar líka en þaö er háð samþykki höfunda. En aödragandinn aö þessari kvikmyndahátíð cr sá að á fundi bæjarstjórnar fyrir u.þ.b. ári var samþykkt tilllaga menningarmála- nefndar að haldin skyldi hátíð til heiðurs Eðvarð Sigurgeirssyni átt- ræðum. í framhaldi af því var síðan boðað til fundar með fulltrú- um frá myndklúbbum framhalds- skólanna tveggja, Eyfirska sjón- varpsfélaginu og Borgarbíói. Á fundinum var skipaður vinnuhópur sem vinna skyldi að undirbúningi hátíðarinnar, og árangurinn fá Norðlendingar að berja augum í lok þessa mánaðar. -HÍA Starfsnám í matvælaíðnaði Starfsnám í matvælaiðnaði hefst samtímis, þann 10. október í Hafn- arfirði og Reykjavík, en síðar í mánuðinum á Akureyri. Með nám- skeiði þessu er kominn fyrsti vísir að fagmenntun almennra starfsmanna í matvælaiðnaði. Með þátttöku í slíku námskeiði er stefnt að betri starfs- möguleikum, aukinni verkkunnáttu og þekkingu tengdri starfi og starfs- umhverfi auk þess sem lagður er grunnur fyrir frekara nám, fyrir þá sem áhuga kunna að hafa á því. Samið hefur verið um námskeiðsálag eða launahækkun til handa þeim sem þátt taka í starfsnáminu. I kjarasamningum í mars síðast- Iiðnum náðist samkomulag um fræðslu og starfsþjálfun og er starfs- námið Iiður í þeirri framkvæntd. Námskeiðið er haldið á vegum Fé- lags íslenskra iðnrekenda og Iðju, félags verksmiðjufólks. Umsjón með framkvæmd og uppbyggingu starfsnámsins hefur Iðntæknistofnun íslands. Fagleg og félagsleg fræðsla Starfsnámið nær til fjölntargra þátta sem ætlað er að kynna og vekja áhuga starfsmanna í þessari atvinnu- grein á ýmsu því sem varðar störf þeirra, starfsumhverfi og réttar- stöðu. Þátttakendur fá almenna fag- lega og félagslega fræðslu um mat- væli og matvælaiðnað sem nýtast mun jafnt öllum sérsviðum matvæla- iðnaðarins. Megintilgangurinn er að auka og bæta verkkunnáttu og þekk- ingu starfsmanna á þeim störfum sem unnin eru í matvælaiðnaði með það að markmiði, að ná fram bættu vinnuskipulagi, auknum gæðum og meiri verðmætasköpun. Jafnframt á það að stuðla að frekari áhuga og öryggi starfsmanna, bættum kjörum og vellíðan í starfi. Tíu vikna törn Námskeiðið fer fram víða um land og fer innritun, sem þegar er hafin, fram í fyrirtækjum tengdum mat- vælaiðnaði, hjá Iðntæknistofnun, FÍI og Iðju. Ákveðið var að auka tilbreytni með því að færa starfsnám- ið út fyrir veggi vinnustaða og verður kennt í skólum víðast hvar um landið. í hverjum hópi verður nem- endafjöldi takmarkaður. Á fyrstu námskeiðunum sem hefjast 10. okt., fer kennslan í Hafnarfirði fram í Flensborgarskóla en í Reykjavík fer fyrri hluti nám- skeiðsins fram í Menntaskólanum við Sund en síðari hlutinn í Kennara- háskóla íslands. Á Akureyri verður kennt í Iðnaðarhúsinu. Hvert nám- skeið er í heild 40 stundir og fer fram í 10 fjögurra stunda einingum. í hverri námseiningu er ýmist ein eða tvær námsgreinar. Kennt verður síð- degisogá laugardögum.ogeráætlað að námskeiðið taki um 10 vikur. Rétt til aö sækja námskeiðið eiga allir félagar í Landssambandi iðn- verkafólks og Verkamannasam- bandi íslands. Forgangsrétt hafa þeir starfsmenn sem unnið hafa í að minnsta kosti eitt ár hjá sama fyrir- tæki. Alls hafa um 3000 manns möguleika til þátttöku ef með eru taldirófaglærðirstarfsmenn í mjólk- uriðnaði. Stjórnendanámskeið í tengslum við starfsnámið verður haldið annars konar námskeið fyrir verkstjóra og stjórnendur í matvæla- iðnaði. Það er gert til að búa stjórn- endur undir að taka á móti starfsfólki með aukna starfsþekkingu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.