Tíminn - 06.10.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 6. október 1988
FRÉTTAYFIRLIT
TOKYO - Læknar Hirohitos
Japanskeisara drógu úr blóö-
gjöfum þrátt fyrir ao keisarinn
haldi áfram ao selja upp blóði.
Óttast læknarnir að sífelldar
blóðgjafir valdi of miklu álagi á
hjarta keisarans. Keisarinn
sem nú er 87 ára að aldri hefur
þjáðst af innvortis blæðingum
undanfarna daga.
MOSKVA - Pravda sakaði
Bandaríkjamenn um að hafa
varið tveimur milljörðum
Bandaríkjadala til að styrkja
skæruliða múslíma i „óyfir-
lýstu stríði" gegn Afganistan.
Asakanir þessar koma i kjölfar
eldflaugaárása skæruliða á
borair í Afganistan. Pravda
sagði að Bandaríkin hafi haldið
áfram að styðja við bak skæru-
liða með birgðasendingum
sem síðan gera skæruliðunum
kleift að berjast við stjórnarher-
inn í Afganistan sem nýtur
stuðnings Sovétmanna. Með
öðrum orðum sakar Pravda
Bandaríkjamenn um að brjóta
samkomulag um brottflutning
sovésks herliös frá Afganistan.
OM AH A - Dan Quayle vara-
forsetaefni Repúblikana og
Lloyd Bentsen varaforsetaefni
Demókrata áttust við i sjón-
varpseinvígi í nótt. Sjónvarps-
einvígið var mjög mikilvægt
fyrir Quayle sem gagnrýndur
hefur verið fyrir dugleysi.
Kappræðurnar gætu haft gífur-
leg áhrif á kosningabaráttuna.
BELGRAD - Stipe Suvar
sem er einn leiðtogi kommún-
istaflokksins í Júgóslavíu
sagði að miðstjórn flokksins
muni hugsanlega greiða at-
kvæði um traustyfirlýsingu á
stjórnarnefnd flokksins þrátt
fyrir aukna kynþáttaólgu og
óróa verkamanna. Suvar sagði
í sjónvarpsviðtali að þriðjungur
miðstjórnar flokksins sem er
skipuð 165 mönnum verði
hugsanlega endurnýjaður í
haust. Hugsanlegt sé að með-
limir stjórnarnefndarinnar verði
látnir taka pokann sinn með
miðstjónarmönnum. [ Vovj-
dona héraði þustu þúsundir
Júgóslava út á götur til mót-
mælafunda og kröfðust þess
að vissir embættismenn og
flokksgæðingar í héraðinu létu
af störfum
llílllllllllllili
illllllllllllllli
ÚTLÖND
Shianouk prins fyrrum leiötogi Kampútseu sendir leiötogum skæruliða í Kampútseu bréf:
Hernám Víetnama skárra
en stjórn Rauðra Khmera
Flestir Kampútseumenn vilja mun
frekar vera undir stjórn hernámsliðs
frá Víetnam en að lenda á ný í
klónum á Rauðu Khmcrunum sem
báru ábyrgð á dauða milljóna
landsmanna á meðan ógnarstjórn
ríkti á síðasta áratug. I’etta sagði
Norodom Shianuk prins fyrrum lciö-
togi Kampútseu á þriðjudag, sama
dag og Víetnamar lýstu því yfir hjá
Sameinuðu þjóðunum að 50 þúsund
manna herliö þcirra verði kallað
lieim frá Kampútseu ekki síðar en
1990 náist viðunandi og sanngjarnt
samkomulag um framtíð Kampúts-
eu.
Víetnamar réðust inn í Kampúts-
eu haustið 1978 og hrakti ógnar-
stjórn Rauðra Khmera frá völdum í
byrjun árs 1979. Víetnamskt herlið
hcfur vcrið í landinu síðan og stutt
viö bakiö á leppstjórn í Kampútseu
sem sett var á fót árið 1979.
Herforingjar og liðsforingjar Víetnama að yfirgefa Phon Phen, en Víetnamar
segjast tilbúnir að kalla alla hermenn sína frá Víetnam fyrir 1990 ef
„viðunandi“ samkomulag næst. Shianouk prins segir hins vegar betra að
Kampútsea sé hernumin Víetnömum en hún sé undir ógnarstjórn Rauðra
Khmera.
„Þegar þið ræðið um að hindra
Víetnama í að fremja þjóðarmorð,
þá minnist mannkynssagan þjóð-
armorða á fólki okkar... framin af
Rauðu Khmerum Pol Pots“ segir í
bréfi Shianouks prins til leiðtoga
skæruliða. „Margir fylgismenn okk-
ar vilja heldur vernd Víetnama gegn
því að ógnarstjórn Rauðra Khmera
taki völdin, minnugir þess að nafn
þeirra, fáni, blóðug slagorð og
ómannúðleg stjórnmálastefna hefur
ekkert breyst“ sagði Shianouk.
Shianouk hefur dvalið í Peking
sem forseti útlagastjórnar Kampút-
seu og hefur á undanförnum árum
reynt að tryggja öryggi og sjálfstæði
Kampútseu. Hann sagði af sér emb-
ætti í útlagastjórn sem samanstóð af
eigin stuðningsmönnum, stuðning-
smönnum fyrrum forsætisráðherra
Son Sann og Rauðra Khmera. Hann
dvelur um þessar í Frakklandi.
Greenpeace snýr
sér að Norsk Hydro
Dagens Næringsliv 16. sepl. 1988
Grecnpcace hefur nú tilnefnt
Norsk Hydro næsta langtíma
skotmark. í þetta skipti cr stærsta
iönfyrirtæki Noregs í skotmáli vegna
stöðu sinnar sem stærsti framleið-
andi tilbúins áburðar í víðri veröld.
Umhverfisverndarsamtökin telja að
tilbúinn áburður orsaki mikið tjón
vcgna umframáburðar, sem rcnnur í
vötn og sjó fram.
Forystumaður Greenpeace í Nor-
egi, Erik Robsahm, staðfesti í viðtali
við norska blaðið Dagens Næringsliv
aðsamtökin hafi valið Norsk Hydro,
en hann vill ekki tjá sig frekar um
aðgcrðir gegn fyrirtækinu.
Eins og venja er mun gripið til
aðgerða ef önnur ráö bresta, segir
Robsahm. Samtökin munu í fyrstu
bcita stjórnvöld þrýstingi og reyna
að hafa áhrif á reksturinn á ýmsan
hátt.
Ein þeirra aðferða, sem Green-
peace hefur áður notað, er að vinna
að því að tiltekinn framleiðsluvarn-
ingur sé sniðgenginn þannig að
áhrifa gæti á rekstur cða þjóðlíf, en
fyrir því hafa ýmsir þættir norsks
atvinnulífs áður fengið að finna.
Óvissa
Norsk Hydro er stærsti framleið-
andi tilbúins áburðar í heimi og
hefur nær 4% af heimsmarkaðnum.
Veltan í ár verður 17-18 milljarðar
norskra króna. Um 80-85% fer til
útflutnings eða til vinnslu erlendis.
Pað er alls óvíst hvort athyglinni
verði beint að aðalskrifstofu Norsk
Hydro eða framleiðslustöðvum í
Noregi, segir Robsahm. Samtökin
kunna að hasla sér völl í öðrum
Iöndum þar sem Norsk Hydro og
Greenpeace starfa.
Þörungauppspretta
Eftir því sem Robsahm segir er
ástæöan fyrir því að Grecnpeace
beinir athygli sinni nú að Norsk
Hydro sú að fyrirtækið er stærsti
framleiðandi tilbúins áburðar í ver-
öldinni. Álitið er aðofnotkun áburð-
ar, þ. á m. tilbúins áburðar, sé eitt
helsta umhverfisvandamálið og bent
er á að hér sé um að ræða eina af
orsökum þörungagróðursins sl.
sumar.
Fara má nærri um að röng notkun
svoncfnds tilbúins áburðar hefur
vandamál í för með sér. Einn mikils-
verðasti þátturinn í starfsemi félags-
ins er að upplýsa fólk um rétta
notkun skammta að sögn Odd S.
Gullberg, sem er upplýsingastjóri
Norsk Hydro. Fyrirtækið hefurm.a.
ráðlagt mönnum að bera ekki á fyrr
en snjóa leysir á vorin, annars verður
frárennsli mikið.
Með réttri notkun fer næringin í
gróðurinn og eykur ekki umhverf-
isvandamál. Hann segir aðef Green-
peace óski nú eftir að stuðla að réttri
notkun geti fyrirtækið tekið höndum
saman við samtökin.
UTLO
Magnússon
BLAÐAMAÐLi
Olíumálaráðherra Indónesíu uggandi
vegna lágs olíuverðs:
„Neyðarfundur
OPEC nauðsyn“
Olíumálaráðherra Indónesíu hef-
ur farið fram á að OPEC hefji
neyðarviðræður til að takast á við
fyrirsjáanlega offramleiðslu og
verðfall á olíu. Olíuverð hefur farið
hríðfallandi að undanförnu enda
hefur OPEC ekki komið sér saman
um samdrátt í olíuvinnslu heldur er
ljóst að framleiðslan mun aukast á
næstunni. Er olíuverð nú það lægsta
í tuttugu og sex mánuði.
„Mér finnst persónulega að neyð-
arráðstefna sé þörf til að lagfæra
núverandi ástand. OPEC verður að
grípa í taumana" sagði Ginanjar
Kartasasmita olíumálaráðherra
Indónesíu í gær eftir að hafa undir-
ritað samninga við þrjú erlend olíu-
fyrirtæki.
Vopnahlé í Persaflóastríðinu bæt-
ir ekki vandræðaástandið hjá
olíuframleiðendum, en nú þrýsta
írakar á OPEC um að fá aukinn
olíukvóta til að vinna upp efnahags-
vanda er sjö ára styrjöld við írana
hefur skapað.
írakar eru annar stærsti olfufram-
leiðandi innan OPEC og hefur tekið
sæti írana á þeim vettvangi. Er talið
að deilur íraka og írana um olíu-
kvóta muni setja mark á undirbún-
ingsfund sem átta af þrettán olíuríkj-
um innan OPEC ætla að halda fyrir
reglulegan fund OPEC í nóvem-
bermánuði. Undirbúningsfundurinn
verður haldinn seinna í þessum mán-
uði. írakar vilja hafa sama kvóta og
íranar en á það geta íranar ekki
fallist.
Mannfall vegna árása skæruliöa:
Banvænum skeytum rignir
yfir borgir Afganistan
Enn rignir eldflaugum skæruliða
yfir Kabúl höfuðborg Afganistan
auk þess sem skæruliðar gera harðar
árásir á aðrar borgir víðs vegar um
Afganistan.
Ellefu manns létust og tuttugu og
sex særðust í eldflaugaárás á Kabúl
Dagblaö tengt stjórninni í Suður-Afríku fullyrðir:
Mandela bráðlega sleppt úr haldi
Dagblað í Suður-Afríku sem tengt
er ríkisstjórninni fullyrðir að
blökkumannaleiðtoganum Nelson
Mandela sem setið hefur í fangelsi
síðan 1962, verði sleppt lausum á
næstunni og gæti það gerst hvenær
sem er eftir miðjan nóvembermán-
uð.
Mandela sem nú er sjötugur að
aldri hefur að undanförnu dvalið
utan fangelsisveggjanna í strangri
gæslu í fullkomnu heilsuhæli í
Höfðaborg. Frá því Mandela var
fluttur á heilsuhælið í ágústmánuði
hafa vangaveltur verið uppi um að
honum verði sleppt á næstunni.
Dagblaðið „The Citizen“ sem full-
yrðir að Mandela verði sleppt hefur
löngum haft góð sambönd inn í
ríkisstjórn Suður-Afríku. Nú vitnar
blaðið í ónefnda heimildarmenn inn-
an ríkisstjórnarinnar sem segja að
undirbúningur sé hafinn fyrir að
leysa Mandela úr haldi.
Þessar fréttir eru alls ekki ólíkleg-
ar, því P.W. Botha sem heimsótt
hefur þrjú blökkumannaríki síðasta
mánuðinn sagði Mobutu Sese Seko
forseta Zaire að hann væri „sveigjan-
legur“ í máli Mandela. Þá sagði
Botha á flokksþingi í síðasta mánuði
að hann vonaðist til að Mandela
gerði stjórnvöldum kleift að leysa
hann úr haldi eftir að Mandela hafi
að fullu náð sér af sjúkleika sem
hrjáð hefur hann.
„The Citizen" sagðist telja að ef
Mandela verði sleppt muni hann
reka baráttu sína í Suður-Afríku, en
ekki halda til annarra leiðtoga Afr-
íska þjóðarráðsins sem hefur aðal-
stöðvar sínar í Zambíu.
í gær, en þá skutu skæruliðarnir
tuttugu og þremur eldflaugum á
borgina. Á sunnudag létust fjórtán
manns og þrjátíu særðust. Þá létu
tuttugu og tveir lífið í tveimur eld-
flaugaárásum á Jalalabad í austur-
hluta landsins um helgina og þrjátíu
í borgunum Kandahar í suðri og
Farah í vestri.
Á sama tíma gagnrýnir Pravda
málgagn sovéska kommúnista-
flokksins Pakistana harðlega og sak-
ar þá um að halda uppi birgðaflutn-
ingum til skæruliða og brjóta þannig
samkomulagið um brottflutningsov-
éskra hermanna frá Afganistan.
Gefur blaðið jafnvel í skyn að Sovét-
menn séu að missa þolinmæðina og
kunni að hætta við að draga herlið
sitt út úr landinu.
„Velvilji (Sovétmannaog Afgana)
hefur verið tekinn sem veikleiki af
Pakistönum" sagði Pravda. „Það
eru mistök. Það eru takmörk fyrir
allri þolinmæði og þrautseigju. Brot
á samningi er hættulegt og vafasamt
atferli".