Tíminn - 06.10.1988, Page 20

Tíminn - 06.10.1988, Page 20
1111*1 1111111111111 1114111111111*111141 ’ ? 1 f f.f.f f f f i RIKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR JHafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 Atjan man. binciing SAMVINNUBANKINN STRUMPARNIR HRESSA KÆTA Mannbjörg varð er Sæljón EA sökk um 25 sjómílur norður af Siglunesi síðdegis í gær: Við slíkar aðstæður er maður skíthræddur Sæljón EA-55 sökk um 25 sjó- mílur norður af Sigluncsi síðdegis í gær. Þrír mcnn voru um borð í bátnum og björguðust þeir allir um borð í Bjarma EA-13. Komið var með skipverjana til Dalvíkur á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þórir Ólafsson skipstjóri á Sæ- Ijóninu sem er 60 tonna eikarbátur, sagði í samtali við Tímann að þeir hefðu uppgötvað leka í vélarrúmi um hálftvö leytið, en þá voru þeir staddir um 35 mílur norður af Siglunesi. Síðan hefði lekinn ágerst og dælurnar hætt að hafa undan. Þegar lekinn kom að bátnum höfðu þcir híft og voru á leið í land. „Ég hringdi í Arngrím Jónsson skip- stjóra á Bjarma uppúr klukkan tvö, en þá voru þeir staddir um sex til átta mílum sunnan við okkur. Ég sagði honum af þessu og bað hann að vera í viðbragðsstöðu. Síðan hringdi cg aftur klukkan fjögur, þá var sýnt að hverju stefndi og bað hann að hífa og koma og aðstoða okkur. Bjarmi var kominn til okkar um fimmleyt- ið og við rcyndum fyrst að koma taug á milli bátanna og síðan stukkum við um borð í Bjarma, en taugin slitnaði um leið og tekið var í. Þá fóru tveir um borð í Sæljónið með sverari vír, en svo mátti bara engu muna, að um leið og þeir komu um borð í Bjarma aftur, þá lagðist Sæljónið á hliðina og okkur rétt tókst að klippa vírinn með látum, áður en báturinn sökk,“ sagði Þórir. Aðspurður hvort þeir hefðu ver- ið smeykir um að björgun mundi ekki berast í tæka tíð, sagði Þórir að ekki væri til nema ein lýsing á þessu. „Undirsvona kringumstæð- um er maður skíthræddur, það verður hver sem er. Það er ekki nema um líftóruna að tefla, ef eitthvað ber útaf.“ Spurður sagði Þórir að það fyrsta sem þeir hefðu gert, hefði verið að hafa samband við fjölskyldur sínar. „Ég hringdi í konuna og hún trúði þessu ekki. En hún var jafnframt að vonum mikið fegin að ekki fór verr,“ sagði Þórir, og sagðist aðspurður að öllum líkindum fara á sjóinn aftur. „Maður er að vissu leyti hvekktur, þetta er óskemmtileg reynsla. Það var eins öruggt með björgun og getur orðið í sex vindstigum. Eng- inn vissi hvort hann færi nú eða eftir 10 mínútur." Á bátnum með Þóri voru þeir Gunnar Þórarinsson og Viðar Þór- isson, en þeir Þórir og Gunnar hafa verið saman á bátnum frá áramót- um, en Viðar bættist nýlega í hópinn. Þórir vildi koma á framfæri sér- stöku þakklæti til Arngríms Jóns- sonar skipstjóra á Bjarma og áhafnar hans, fyrir björgunina. -ABÓ Frá kynningarfundi um reglugerð um merkingu neytendaumbúða og notkun aukefna. Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Ingimar Sigurðsson, lögfr. heilbrigðisráðuneytis og Jón Gíslason hjá Hollustu- vernd. Tímamynd: Gunnar. Hugsanlegar breytingar á grunni lánskjaravísitölu: Tvær reglugerðir líta dagsins Ijós: Merking umbúða og aukefni í matvælum Hugsanlegar breytingar á grund- velli lánskjaravísitölunnar geta orð- ið til þess að gefa verður nýrri lánskjarvísitölu heitið Lánskjara- vísitala II eða annað sambærilegt heiti. Þetta getur gerst ef breytingar á grundvelli verða of miklar að mati aðila í Seðlabanka, viðskiptabönk- um og þeirra sem veita peningalán með verðtryggingu lánskjaravísi- tölunnar. Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, verst allra frétta af útreikning- um bankans á mögulegum breyting- um á grundvelli vísitölunnar og vísar á stjórnmálamenn sem taka verði allar ákvarðanir. Sagði hann þó að ef af breytingunni verður gæti orðið ómögulegt að láta fyrri verðtrygging- ar fjárskuldbindinga taka þeim breytingum. Seðlabankamenn hafa einnig verið að kanna hvernig lag- færa megi launavísitölu, en hún er talin ófullkomin að samsetningu sem stendur. í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar stendur, að grundvelli lánskjaravísitölunnar verði breytt í þá veru að svokölluð launavísitala verði látin vega um 50% á móti framfærsluvísitölu og byggingarvísitölu í jöfnu hlutfalli. Er það takmark þessarar ríkisstjórn- ar að gera hlut launavísitölunnar allt að 70% í lánskjaravísitölu, þar sem þróun launa vegur einnig stórt í byggingarvísitölunni. Helst þessi ákvörðun í hendur við verðstöðvun og frystingu launa. Meðan þær að- stæður eru til staðar má gera ráð fyrir að breytt lánskjaravísitala hækki minna en nú er útlit fyrir að núverandi vísitala hækki. Á það hefur þó verið bent að um leið og launafrysting og verðstöðvun gangi úr gildi muni vísitala sem þessi hækka með hækkuðum töxtum kjar- asamninga. Fyrir liggur einnig að til lengri tíma litið vex launavísitala hraðar en núverandi grunnur láns- kjaravísitölunnar býður upp á. Þegar Steingrímur Hermannsson var að því spurður hvernig ríkis- stjórnin ætlaði að bregðast við þess- um vanda, sagði hann að um leið og verðbólga væri komin niður fyrir 10 af hundraði í þrjá mánuði samfellt, yrði lánskjaravísitala afnumin. Það væri óeðlilegt að hvers kyns víxl- verkan í lánskjörum og verðlagi fengi að kynda undir verðbólgu. Slíkar víxlverkanir hafi víðast hvar í nágrannalöndum okkar verið af- numdar til þess að ná betri tökum á verðbólgu. Þannig sé stefnt að þess- um breytingum á grundvellinum og notast verði við þá lánskjaravísitölu þar til verðbólgumarki verður náð, en stefnt er að því að það takist í byrjun næsta árs. KB Tvær nýjar reglugerðir, annars vegar um merkingu neytendaum- búða fyrir matvæli og aðrar neyslu- vörur og hins vegar um aukefni í matvælum og öðrum neysluvörum hafa tekið gildi. Drög að þessum reglugerðum voru unnin í samráði við fjölda aðila bæði opinbera og þá sem standa í framleiðslu og dreifingu neysluvara. Guðmundur Bjarnason heilbrigð- is- og tryggingaráðherra sagði að þessar reglugerðir væru í raun grunnurinn að því að hægt væri að taka upp innflutningseftirlit með matvælum, sem verið hefur mjög til umræðu að undanförnu. Framleiðendur, innflytjendur og aðrir dreifingaraðilar hafa aðlögun- artíma fram til næstu áramóta, varð- andi þær breytingar sem gera verður. Heimilt er hins vegar að veita tíma- bundnar undanþágur til að koma á nauðsynlegum breytingum varðandi notkun aukefna og umbúðamerk- inga, þar sem skammur tími er til stefnu fram að áramótum. Hvað merkingu neytendaumbúða varðar skulu þær merktar á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku og skulu eftirfarandi upplýs- ingar koma fram: heiti vörunnar, nafn og heimilisfang framleiðenda, pökkunaraðila, dreifingaraðila, inn- Heimsmeistarinn Kasparov gerði jafntefli við Englendinginn Jonathan Spielman í þriðju umferð Heimsbik- armóts Stöðvar 2 í skák, sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Fjöldi manns safnaðist saman í Borgarleikhúsinu til að fylgjast með skákmönnunum. Þrjú jafntefli önnur voru orðin að veruleika fyrir klukkan átta í gær- kvöldi, en það var í viðureignum þeirra Tal og Anderson, Alexander Belyavsky og Sax og Nikolic og flytjanda eða umboðsaðila, nettó- þyngd, geymsluskilyrði, geymsluþol og innihaldslýsing. Notkun aukefna í matvælum hefur aukist mjög á síðustu árum. Aukefni eru efni sem notuð eru við fram- leiðslu matvæla eða annarra neyslu- vara, sem tæknileg hjálparefni eða til að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika vöru- nnar. Efnunum er skipt í flokka eftir því hvaða áhrif þau hafa við vinnslu eða í fullunnum vörum. Dæmi urn flokka eru froðueyðandi efni, bindi- efni, rotvarnarefni, litarefni, þráa- varnarefni og sætuefni. Reglugerðinni um notkun auk- efna fylgir aukefnalisti, þar sem fram kemur hvaða aukefni má nota í matvælum og öðrum neysluvörum. Hann verður endurskoðaður á tveggja ára fresti, en hann ereinkum ætlaður framleiðendum, innflytj- endum eða dreifingaraðilum. Þá verður dreift í apótek og heilsu- gæslustöðvar lista yfir númer auk- efna sem leyfð eru í neysluvörum. Þar koma fram upplýsingar um til- gang með notkun aukefna og merk- ingu þeirra á umbúðum neysluvara. Listinn er ætlaður sem fræðsluefni fyrir almenning og ætti að koma að góðum notum fyrir fólk með ofnæmi eða óþol fyrir aukefnum. -ABÓ Nunn. Önnur úrslit urðu þau að Yusupov og Kortsnoj, Ribli og Sokolov gerðu jafntefli. Eistlending- urinn Ehlvest vann Spassky, Timm- an vann Margeir Pétursson. Jóhann Hjartarson þótti hafa unna stöðu framanaf gegn Portisch, en hann tefldi full djarft og vopnin snerust í höndunum á honum. Jó- hann lenti í miklu tímahraki og gaf skákina, þegar hann átti um það bil mínútu eftir, samkvæmt klukkunni. -ABÓ Jóhann tapaði fyrir Portisch á Heimsbikarmótinu: Kasparov með jafntefli

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.