Tíminn - 11.10.1988, Side 6
. 6 Tíminn_
W.: vA\v. .
Þriðjudagur 11. október 1988
Haustverkin við Tjörnina
Næturfrost hafa verið upp á
síðkastið. Þá leggur Tjörnina í
Reykjavík að stærstum hluta og
harðnar á dalnum hjá Tjarnarbú-
um. Þeir eiga sér þó hauka í horni
er oft leggja leið sína niður að
Tjörn og gefa „bra-bra“ brauð.
Þessi unga stúlka var nýverið með
föður sínum að ala endur og svani.
Gæsin, lengst til hægri á myndinni,
laumaðist í poka stúlkunnar og
náði sér í væna sneið. Sem sjá má
kjagar hún ánægð í burtu. Svanir
og annar fiðurfénaður fylgist með.
Þegar hörkur aukast á komandi
vetri er sjálfsagt fyrir fólk að hugsa
til andanna og færa þeim brauð og
annað sem ekki nýtist á heimilun-
um. Fyrir mörgum er það að fara
niður á Tjörn hluti af haustverkun-
um. Tímamynd Árni Bjarna
Hannes verður við ósk-
um nemenda um kennslu
Nemendur í félagsvísindadeild, heimspekideild og hagfræði og
viðskiptadeild Háskóla íslands lögðu fram undirskriftarlista með 13
nöfnum á deildarfundi félagsvísindadeildar fyrir helgi. Þar var farið
fram á að kennt yrði námskeiðið Frelsi, ríkisvald og lýðræöi, en
auglýstur kennari í því námskeiði er Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son. Fyrr í haust var ákveðið að námskeiðið yrði ekki kennt vegna
ónógrar þátttöku þegar skráningu í námskeið lauk, en samkvæmt
tilmælum háskólayfirvalda og fjármálaráðuneytisins eru námskeið
sem færri en fimm nemendur skrá sig í ekki kennd.
Nið.urstöður deildarfundar í þessu
máli urðu þær að ákveðið var að vfsa
málinu til deildarforseta og náms-
nefndar, sem munu taka ákvörðun í
málinu í vikunni og kemur þá í Ijós
hvort af kennslu verði í námskeiðinu
Frelsi, ríkisvald og lýðræði á þessu
hausti.
Mikið fjaðrafok varð vegna
ráðningar Hannesar í embætti lekt-
ors við deildina í sumar. Aðspurður
sagði hann að hann kynni vel við sig
í félagsvísindadeild. „Mín menntun
er í stjórnmálafræði og ég hlakka til
þess að kenna þá grein í framtíðinni.
Ég er ákaflega þakklátur samkenn-
urum mínum fyrir að vilja að ég hafi
létta kennslubyrði til að byrja með,
því þá get ég frekar helgað mig
rannsóknum," sagði Hannes.
Hannes sagði að það hefðu verið
felld niður námskeið á hans vegum
áður en hann hafi komið til landsins,
og þau ekki verið auglýst eins og
hann hefði beðið um. „Það hljóta að
hafa verið einhver mistök, þó ég sé
feginn að geta einbeitt mér að rann-
sóknum," sagði Hannes. „Að
undanförnu hafa ýmsir nemendur í
deildinni snúið sér til niín og óskað
eftir því að ég hefði námskeið á
þessu misseri og safnað undirskrift-
um um það. Mér er vissulega ljúft og
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
skylt að verða við þeim óskum og
mun örugglega því kenna námskeið
á þessu misseri, þó svo að greint hafi
verið frá því að svo yrði ekki,“ sagði
Hannes.
Samkvæmt upplýsingum frá full-
trúa félagsvísindadeildar skal það
tekið fram að námskeið eru ekki
auglýst umfram það sem fram kemur
í kennsluskrá. Deildarforseti mun
hafa sett ofaní við Hannes og beðið
að leiðrétta ummæli sín, sem hann
viðhafði um það atriði í blaðaviðtali
fyrir viku.
Hann sagði að félagsvísindadeild
gæti í framtíðinni boðið upp á fjöl-
breyttara nám. „Ég tel mjög mikil-
vægt að ólíkir straumar og stefnur
innan stjórnmálafræðinnar eigi sér
fulltrúa í kennarahópnum og nem-
endur eiga eftir að meta það þegar
fram líða stundir," sagði Hannes.
- ABÓ
Sjöunda umferð heims-
bikarmótsins tefld í dag:
Tal er
efstur
Sjötta umferð heimsbikarmóts
Stöðvar 2 var tefld um helgina og
fóru leikar þannig:
Shokolof vann Margeir Pétursson,
Kasparov vann Jóhann, Tal vann
Portisch, Kortsnoj vann Ribli, jafn-
tefli gerðu Spielmann og Nunn.
Jafntefli varð einnig í skák Spassky
og Andersons. Jusupov sigraði Beli-
avsky, Timman vann Nikolic, Sax
vann Elvest.
t sjöundu umferð, sem tefld verð-
ur í dag, eigast við Elvest og Margeir
Pétursson, Sax og Nikolic, Jusupov
og Timman, Anderson ogBeliavsky,
Spielman og Spassky, Ribli og
Nunn, Portisch og Kortsnoj, Jóhann
og Tal og Shokolof mætir Kasparov.
Michael Tal er nú efstur með fjóra
og hálfan vinning. f öðru til fjórða
sæti eru Karpov, Jusupov og Beli-
avsky með fjóra vinninga. í fimmta
til sjöunda sæti eru Sax, Timman og
Sokolov með þrjá og hálfan vinning.
Þá koma í áttunda til ellefta sæti
þeir Ehlvest, Anderson, Nunn og
Speelman með þrjá vinninga.
í tólfta til fjórtánda sæti með tvo
og hálfan vinning eru Portisch,
Kortsnoj og Nikolic.
í fimmtánda til sautjánda eru
Ribli, Jóhann og Spassky með tvo
vinninga og í átjánda sæti er Margeir
með einn og hálfan. - sá
Loðnuskipstjórar taka
gleði sína á ný:
Þrjú skip
lönduðu
Þrjú loðnuskip komu til hafnar í
gær með um 2100 tonn af loðnu, sem
fékkst á miðunum djúpt norður af
Horni. Loðnuveiðin hefur verið treg
að undanförnu, en að sögn Ástráðar
Ingvarssonar hjá loðnunefnd var
gott hljóðið í skipstjórunum í gær-
morgun.
Örn KE kom til löndunar í
Krossanesi með 750 tonn, Guðrún
Þorkelsdóttir SU kom með 720 tonn
til Eskifjarðar og Sunnuberg GK
kom með 620 tonn til Grindavíkur.
Tólf loðnuskip hafa hafið veiðar,
þ.e. Keflvíkingur KE, Björg Jóns-
dóttir ÞH, Kap II VE, Gullberg VE,
Hólmaborg SU, Jón Kjartansson
SU, Háberg GK, Skarðsvík SH,
Börkur NK, Örn KE, Guðrún Þor-
kelsdóttir SU og Sunnuberg GK.
- ABÓ
Varamenn
nýrrar
stjórnar
Granda
Grandi hf. hefur sent frá sér
fréttatilkynningu vegna misritunar á
nöfnum varamanna er tilkynnt var
um stjórnarskipti í fyrirtækinu. Sagt
var að varamenn í nýrri stjórn væru
þau Hjörleifur Kvaran, Ólafur
Bjarki Ragnarsson og Ragna
Bergmann, sem er ekki með öllu
rétt. Varamenn í stjórninni eru,
Ólafur Bjarki Ragnarsson, Bragi
Hannesson og Grétar Kristjánsson.