Tíminn - 11.10.1988, Side 20
HRESSA
KÆTA
t.f.f.fJJý.fJ.f M * * f.M .♦ f.fffffff.ff f.ý.fJ f. Átján mán. binding
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Jlafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 § 7,5%
SAMVINNUBANKINN |
Frakkamenn viðstaddirfyrstu jarðgangasprengingarnar í Ólafsfjarðarmúla í dag:
STEI IN( aRÍH AUR J. MEÐ
„VÍG SL USP RENGINGU“
Sprengingar vegna jarðgangagerðar í Ólafsfjarðarmúla
hefjast formlega klukkan 17 í dag þegar Steingrímur J.
Sigfússon, samgönguráðherra og jarðfræðingur, ýtir á
þartilgerðan sprengjuhnapp, að viðstöddum nokkrum
„frakkamönnum“, meðal annarra forsvarsmönnum Vega-
gerðarinnar, Ólafsfjarðarbæjar og verktakafyrirtækisins
Krafttaks.
Þar með hefst hin eiginlega jarð- ing tækja og vegagerð að jarð-
gangagerð í Ólafsfjarðarmúla, en gangamunna Ólafsfjarðarmegin.
að undanförnu hefur verið í gangi Lokið er flutningi allra nauðsyn-
undirbúningsvinna, m.a. uppsetn- legra tækja til jarðgangagerðarinn-
ar að fyrirhuguðum gangamunna,
m.a. er nú unnið að því að setja
upp steypustöð frá Noregi til upp-
steypu forskála að jarðgöngunum
beggja vegna fjalls. Áætlað er að
hefja vinnu við þann hluta fram-
kvæmda næsta sumar.
Að sögn Björns Harðarsonar,
staðareftirlitsmanns Vegagerðar-
innar í Ólafsfjarðarmúla, hafa
framkvæmdir við jarðgangagerð-
ina tafist um hálfan mánuð vegna
skriðufallanna í septembermán-
uði, en þá féll stór skriða á planið
við fyrirhugaðan jarðgangamunna
Ólafsfjarðarmegin. Björn segir að
engar teljanlegar skemmdir hafi
orðið á tækjum í skriðuföllunum.
Áætlað er að um 20 manns vinni
við jarðgangagerðina í vetur en
næsta sumar má búast við að
helmingi fleiri starfsmenn vinni í
Múlanum. Þá bætist við vegagerð
að gangamunnum og uppsteypa
forskála.
Vinnuflokkurinn hefur aðsetur í
vinnubúðum, sem komið hefur
verið upp í útjaðri Ólafsfjarðar-
bæjar. Þessar vinnubúðir eru
keyptar frá Noregi.
Bjöm segir að ef áætlanir stand-
ist megi gera ráð fyrir að sprengdir
verði milli 7 og 8 metrar á dag.
Þetta gerir nálægt 45 metmm á
viku. Unnið verður alla virka daga
og fram að hádegi á laugardögum.
óþh
■■..
WKKKftrrmwmnr
Heimsbikarmótið:
Útvaldir
slappa af
Slökunarherbergi fyrir heiðurs-
gesti Heimsmeistaramóts Stöðvar 2
í Borgarleikhúsinu verður ekki líkt
við neina króarkyrnu. Eins og sjá
má á myndinni sem tekin var í gær,
er gnótt leðursófa og þæginda að
finna í þessu notalega hliðarherbergi
sem útbúið hefur verið til hliðar við
skákskýringarsal almúgans. Þarna
geta skáksnillingar, aðrir skák-
áhugamenn, fréttastjóri og sjón-
varpsstjóri, hvílt sig frá erli mótsins
við vindlingakeim og snaps og farið
í ró yfir leiknar skákir og tilbrigði.
Þar sem ekki gefur að líta málverk
eða veggskreytingar má finna sjón-
varpsskjá til að tengja þessi hýbýli
við það sem er að gerast fyrir utan.
Þetta er sannkallaður rjómi þeirrar
góðu aðstöðu sem Stöð 2 hefur sett
upp í leikhúsinu, en synd að hér er
fáum hleypt inn.
Tímamynd Árni Bjarna/KB
Kosið í dag í nefndir og embætti Alþingis:
Teningi kastað í neðri deild
Á fundi Alþingis í dag verða kjörnir forsetar og varaforsetar
þingsins og í þingnefndir.
Fastlega er búist við að Guðrún Helgadóttir, þingmaður
Alþýðubandalags, verði kjörinn forseti sameinaðs þings en
þeirri stöðu hefur gengt Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. Kjör Guðrún-
ar markar tímamót í sögu Alþingis þar sem kona hefur aldrei
áður verið forseti sameinaðs þings.
Þá er talið líklegt að Jón Helga- Talið er öruggt að Sighvatur
son, fyrrverandi landbúnaðarráð- Björgvinsson, Alþýðuflokki, verði
herra, verði kjörinn forseti efri kjörinn til að gegna áfram for-
deildar og Kjartan Jóhannsson, Al- mennsku í fjárveitinganefnd en ekki
þýðuflokki, forseti neðri deildar. hefur verið tekin ákvörðun um hver
taki að sér formennsku í utanríkis-
málanefnd. Þó er ljóst að hún kemur
í hlut framsóknarmanna. Þingflokk-
ur Framsóknar kemur saman til
fundar fyrir hádegi í dag þar sem
tekin verður ákvörðun um skipan
þingflokksins í einstaka þingnefndir,
þ.á.m. utanríkismálanefnd.
Eftir að stjórnarandstaðan hafn-
aði tilboði stjórnarflokkanna í gær
um hlut hennar í nefndum samein-
aðs þings og neðri deild, er ljóst, að
sögn Páls Péturssonar, formanns
þingflokks Framsóknarflokksins, að
til hlutkestis kann að koma við
kosningu í nefndir neðri deildar í
dag. í tilboðinu fólst að stjórnar-
andstaðan fengi í sinn hlut 1. vara-
forseta í sameinuðu þingi og báðum
deildum auk meirihluta, og þar með
formennsku, í í einni nefnd í samein-
uðu þingi, þremur nefndum í neðri
deild og einni nefnd í efri deild. Páll
segir að vissulega blasi við erfið
staða í þinginu sem menn hafi vissu-
lega gert ráð fyrir að gæti komið
upp. Hann segir það ljóst að semja
verði um einstaka mál við þingmenn
stjórnarandstöðunnar til að tryggja
þeim meirihluta í deildinni. Að-
spurður um hvort þessi fyrstu við-
brögð stjórnarandstöðunnar við
samningaumleitan stjórnarflokk-
anna gæfu ekki slæm fyrirheit um
framhaldið sagðist Páll ekki vilja um
það spá. Hann bætti við að í ljósi
skattastefnu Kvennalistans gerðu
menn sér t.d. vonir um að hann gæti
stutt ýmiss væntanleg tekjuöflunar-
frumvörp ríkisstjórnarinnar. óþh