Tíminn - 15.10.1988, Qupperneq 3
Laugardagur 15. október 1988
HELGIN
einum þeirra, sem eftir þeim dorg-
uöu, Alfreö Lock, að fá þingeysku
brennisteinsnámurnar á leigu hjá
dönsku stjórninni í fimmtíu ár. Hér
var kominn Brennisteins-Lokk sá
eða Hreindýra-Lokk, sem alkunnur
var hér á landi. Gerðist hann um
skeið all umsvifamikill við brenni- ,
steinstekju í þingeysku námunum,
en mun þó ekki hafa spunnið þar
gull, svo að orð sé á gerandi.
Nú var brennisteinsnámunum ráð-
stafað, bæði syðra og nyrðra. En
jafnskjótt vöktust upp nýir mögu-
leikar, margir samtímis. Postulíns-
jörð var talin hafa fundist við
Gunnuhver á Reykjanesi, og þegar
gaf sig fram Englendingur, er vildi fá
sýnishorn af þessum leir. Burís var
sagður í hveravatni í Krýsuvík, og
þess var skammt að bíða, að stofnað
væri enskt félag til þess að nýta þetta
efni. Líklega hefur þó hluthöfunum
brugið nokkuð í brún, því að burís-
inn skarst algerlega úr leik og fyrir
fannst ekki, þegar vinnslan skyldi
hefjast. Loks komst surtarbrandur-
inn á dagskrá um þessar mundir.
Athygli Þorláks Johnsen hafði
beinst mjög að surtarbrandinum,
ekki síður en brennisteininum.
Tókst honum að vekja áhuga ensks
manns, sem hét Pile, á surtarbrand-
inum, og varð það ofan á, að hann
kostaði rannsókn á hitagildi hans.
Árið 1871 sendu þeir félagar Sigurðil
trésmið Andréssyni, prestssyni úr
Flatey, talsverðar peningafúlgur í
því skyni, að hann aflaði sýnishorna
á Vestfjörðum. Sendi hann þeim
fyrst surtarbrand frá Botni í Súg-
andafirði og síðar úr Aðalvík, Stiga-
hlíð og Bolungarvík. Séra Ólafi
Johnsen, föður Þorláks, var aftur á
móti falið að ná surtarbrandi frá
Brjánslæk á Barðaströnd. Og það
var engin furða, þótt þeir félagar
legði kapp á að rannska surtarbrand-
inn, því að það voru ekki litlar vonir,
sem við hann voru bundnar. Þorlák-
ur sagði að hann kynni að mega nota
í stað kola, „og sparaði það mikinn
kostnað við gufuskip, sem færu í
kringum landið."
Pálar og skóflur
til Flateyrar
Nú reyndist surtarbrandurinn ekki
hitamikill. En ráð voru við því: Það
mátti svíða úr honum kok og gera
hann þannig að hitameira eldsneyti.
Þetta tókst svo vel, að Pile sendi
Þorlák til íslands með morð fjár og
fylgdarmann, sem átti að kenna
íslendingum vinnubrögðin. Upp úr
miðju sumri kom ógrynni af skóflum
og pálum og öðrum verkfærum til
Flateyjar, en nokkru síðar kom
Þorlákur sjálfur með förunaut sinn
til Reykjavíkur. Hófu þeir nú mikla
yfirreið vestur um land. En nú var
nýtt upp á teningnum: Það var
hugsanlegt, að surtarbrandinum
kynni að vera betur varið til annars
en knýja gufuvélar strandferða-
skipa. Förunautur Þorláks virðist
ekki einungis hafa kunnað að svíða
koks, heldur einnig verið járngerð-
armaður, og það heiti er honum
gefið í íslenskum blöðum á þessum
tíma. Þeim hafði sem sé komið til
hugar, að nota surtarbrandinn til
jámbræðslu, ef jámsteinn væri nær-
tækur á surtarbrandssvæðunum.
Surtarbrandslög hafa sálfsagt ver-
ið könnuð allvíða, og reynist Brjáns-
lækjarsurtarbrandurinn best. Grjót,
sem þeir hugðu jámauðugt, urðu
þeir sér líka úti um, svo sem að
líkum lætur, og voru sýnishornin
tekin í Botni í Súgandafirði, á
Brjánslæk, Vatnsenda í Skorradal
og í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Sýnishorna, sem þeir bjuggust við
kopar í, öfluðu þeir sér í Saurbæ og
Hvallátrum á Breiðafirði. Og enn
hafði fleira verið starfað: Þorlákur
hafði komið á samningum við prest-
inn á Brjánslæk, séra Þórð Thor-
grímsen, um surtarbrandstöku þar í
hans embættistíð. En þegar á reyndi
brást það er mest valt á: Járnið í
sýnishornunum reyndist einskis virði
til vinnslu. Ekkert varð heldur af
surtarbrandsvinnslu þeirra til ann-
arra nota en járnbræðslu.
Þriðji íslendingurinn, sem dvald-
ist um skeið í Englandi annað veifið
og átti þar hlut að ýmsu, er varðar
þessa sögu, var Oddur V. Gíslason,
er síðar varð prestur á Lundi og í
Grindavík og gerðist brautryðjandi
slysavarna á sjó. Hann hafði tekið
upp nýja aðferð við lýsisbræðslu og
fékk móð henni miklu betra lýsi en
þá var títt. Fór hann með lýsi sitt til
Lundúna sumarið 1866 og þaðan á
fiskisýningu, er haldin var í Bou-
logne á Frakklandi. Leitaði Oddur
þessu næst uppi ríkisbubba, er vildi
leggja nokkuð að mörkum til þess að
koma lýsinu á framfæri. Ráðagerð
þeirra var að ná einokun á öllu lýsi
frá fslandi, og auglýsingar um þessa
gæðavöru átti að vera í blöðunum
„um allan heim eins og beinakerling-
ar á heiðum". Auglýsingarnar munu
þó ekki hafa orðið út af eins margar
og þessi orð benda til, og lýsiseinok-
unin komst aldrei á, enda var Oddur
meiri hugkvæmdamaður en kaup-
maður.
Postulín við Gunnuhver
En þegar postulínsleirinn fannst
við Gunnuhver, lét Oddur það til sín
taka. Hann var gagnkunnugur þar
syðra o'g hafði enda rænt brúÓi í
Höfnunum þessi sömu misseri.
Tókst honum fljótlega að selja
manni þeim í Aberdeen, er Walker
hét, leirnámið við Gunnuhver. Post-
ulínsjörð hafði verið safnað að ráð-
stöfun Odds, og innan tíðar bárust
þau boð, að von væri á skipi frá
Walker í Kirkjuhöfn í Höfnum. Átti
það að flytja hingað verkfæri og fara
með leir til baka. Það fór þó sem
fleira, er í ráðum var, að leirnum við
Gunnuhver var aldrei breytt í verð-
mætt postulín, höfðingjum veraldar-
innar til augnayndis.
Oddur hafði líka augastað á surt-
arbrandinum. Hann hafði brugðið
sér upp að Hreðavatni, þegar kallað
var, að þar væri koianáma fundin,
grafið þar eftir surtarbrandi og mælt
þykkt lagsins. Og hann dreymdi
einnig um járnbræðslu. Það var
leiðin, sem hann eygði til þess að
gera landið að „hinni sönnu Amer-
íku, sem allir gapa nú að“.
Það var margt, sem hvarflaði í
huga hans, þegar hann hélt niður
með Vikrafelli með surtarbrand
þann, er hann hafði náð: „Frá
Hreðavatni þarf járnbraut, hér um
bil eina og hálfa mílu, og má þá
flytja á bátum eftir Norðurá og
Hvítá ofan á Brákarpoll." Fleira
varð þó að koma til: „Sökum lands-
lags þyrfti að brúka loftbraut". Oddi
var kunnugt um, að hver míla slíkra
loftbrauta kostaði um þrjú hundruð
sterlingspund. Hér var því þörf á
miklu fé, og það reiddi Óddur ekki
undir sér í hnakknum, því að hann
var fátækur maður. Hugurinn var
aftur á móti svo mikill, að engin
fátækt gat kúgað hann. Stórræðin
uxu honum ekki í augum:
„Ég má til að grafa í þessu í
sumar, þar eð ég hef tekið að mér
námuna fyrir lönd landeiganda, og
mun ekki leggja árar í bát“. En það
var ekki nóg að finna einhvern
kaupanda. Hann varð að nytja nám-
una. Oddur kvaðst einmitt hafa
hugsað sér „að reyna nú eigi geta
bundið þetta fyrir okkur um aldur og
ævi“.
Góður vilji nægir ekki ávallt.
Sturtarbrandurinn lá óhreyfður í
áratug. Það var ekki fyrr en á
árunum upp úr 1880, að nokkuð var
tekið af honum og féll þó fljótt niður
aftur. Það var einungis brennisteins-
tekjan í Þingeyjarsýslu, sem stunduð
var af talsverÓu kappi um skeið.
Þeystareykjanámur komust í gagnið
og árið 1876 unnu þar tólf til sextán
menn við stjórn Páls jökuls. Hafði
þá verið reistur þar skáli, enda vildi
Lock láta stunda vinnsluna bæði
sumar og vetur. Kunnugir menn
munu þó hafa séð tormerki á þeirri
ráðagerð og skírskotað til þess, að
vetrarríki er mikið uppi við Þeysta-
reykjanámur. Árið 1883 seldi svo
Lock réttindi sín, en félag það, sem
við tók, varð gjaldþrota tveimur
árum síðar.
Kolanáma Þórðar
Þeir Eiríkur, Þorlákur og Oddur
þráðu mjög að hrinda af stokkunum
gagnlegum fyrirtækjumn. En þeir
höfðu enga getu til þess að koma
upp innlendu fyrirtæki, er gæfi sig
við jafnnýstárlegu og áhættusömu
verkefni og námavinnslu. Þeir áttu
þess vegna á milli þess að velja að
hafast ekki að eða leitast við að
vekja áhuga útlendinga á þessum
efnum. Ummæli Odds um Hreða-
vatnsnámuna benda þó til þess að
þeir hafa líka séð á því vankanta.
Þó voru til fslendingar, er nokkuð
vildu leggja í hættu. Einn af þeim
sem riðu á vaðið, var roskinn bóndi
í Borgarfjarðarsýslu. Þessi sami
bóndi hafói meðal annars stofnað
barnaskóla á bæ sínum, og hann
réðst líka í að kaupa gufubát.
5. júní 1872 var manntalsþing
haldið á Grund í Skorradal. Meðal
skjala þeirra sem þar voru lesin og
skráð í embættisbækur sýslunnar,
var eignarheimild Þórðar Þorsteins-
sonar á Leirá á kolanámu í Merkigili
í landi Litlu-Drageyrar, og var
kaupsamningurinn dagsettur 25.
apríl 1872. Hafði hann goldið þrjátíu
dali fyrir réttindin, jafnvirði skip-
punds af hertum fiski. Hann hefur
sýnilega hafist handa um þessi kaup
nokkru eftir að Oddur gerði för sína
að Hreðavatni, en áður en Þorlákur
Johnsen kom til landsins með hinn
enska förunaut sinn. Hér rekumst
við því á bónda, sem fylgdist með
tímanum og var á varðbergi og hafði
enda mikið umleikis, og við getum
ímyndað okkur, að honum hafi hleg-
ið hugur í brjósti, þegar þeir Þorlák-
ur tóku sýnishorn af járngrýti á
Vatnsenda, hinum megin Skorra-
dalsvatns. Hitt hefði ekki sakað,
þótt Þórður hefði verið ofur lítið
varkárari. Hann hefur að minnsta
kosti ekki borið eld að „kolunum“ í
Merkigili, því að þá hefði hann
komist að raun um, að þau brunnu
ekki. Þetta var sem sé biksteinsgang-
ur.
Annar maður, sem nú hófst
handa, var Egill Egilsen kaupmaður,
sonur Sveinbjarnar rektors Egilsson-
ar. Hann var heppnari í vali sínu því
að það var kalknáman í Esjunni,
sem freistaði hans. Kalk var þá
notað sem steinlím er byggingar
voru reistar úr höggnum steini, og
um þessar mundir var mjög um það
rætt að reisa þinghús af slíkri gerð til
minningar um það, að landið hafði
verið byggt í þúsund ár. Auk þess
var í aðsigi nýbreytni, sem Egil
Egilsen gat þó ekki órað fyrir: Örfá-
um árum síÓar, réðist sveitaprestur,
séra Jón Benediktsson í Görðum á
Akranesi, í þá nýlundu að gera
steina úr kalksteypu og byggja af
þeim heilt hús. Það var undanfari
steinsteypualdar.
Sumarið 1872 voru hér danskir
verkamenn, sem vanir voru bygging-
SLATlJltTII)
....og góðir búmenn
byrgja sig upp fyrir veturinn
#Frigor dönsku frystikisturnar hafa
verið á markaðnum í áratugi og stað-
ið sig með mikilli prýði. í þeim eru
innbyggð hraðfrystihólf sem reynst
hafa sérlega vel til að hraðfrysta ný-
meti. Einnig má breyta kistunni í
hraðfrystitæki með því að þrýsta á
hnapp.
FIMM STÆRÐIR • HAGSTÆTT VERÐ
(gauknerht frystiskápar. Há-
þróuð þýsk gæðavara sem íslending-
um er að góðu kunn eftir áratuga
reynslu. Einföld og falleg hönnun.
Mikið úrval, við allra hæfi.
LITLIR SKÁPAR, STÓRIR SKÁPAR
OG ALLTÞARÁMILLI.
KitchenAid hrærivélar.
Þessar frábæru bandarísku vélar
þekkja allir enda hafa þær verið
ómissandi á íslenskum heimilum í
tæpa hálfa öld. Fylgihlutir:
HAKKAVÉL • PYLSUSTÚTUR
HVEITIBRAUT • GRÆNMETIS-
KVÖRN • ÁVAXTASAFAPRESSA
HLÍFÐARKÁPA • DÓSAOPNARI
PASTAGERÐARVÉL • SÍTRÓNU-
PRESSA • SMÁKÖKUMÓT
MMfS
S SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 6879/0 - 68 12 66
OG
KAUPFÉLÖGIN
UMLANDALLT