Tíminn - 15.10.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. október 1988
HELGIN
5
„Já, það er ástæða til að ætla að
víkingarnir, sem oft voru taldir hálf-
gerð óargadýr, hafi tileinkað sér
ýmsa kunnáttu sem að gagni mátti
koma á úthafssiglingum, en þær
höfðu fram til þess tíma ekki verið
stundaðar að neinu marki. Mér þykir
sérlega forvitnilegt að hugleiða þá
þekkingu sem gerði ntönnum kleift
að rata - hafa nokkra hugmynd um
hvar þeir voru staddir og hvert þeir
ætluðu. Þetta hlaut að vera erfitt á
opnu hafi og á ferð um ókunn lönd.
Vikur og misseratal
Það er sæmilega ljóst að einhvers
konar tímatal hefur verið komið í
notkun á Norðurlöndum, áður en
ísland byggðist. Þetta tímatal hefur
byggst á tvennu, annars vegar
misseristali - tíminn var ekki talinn
í árum, heldur í ntisserum og voru
tvö misseri í árinu - og hins vegar á
vikunni. Mikil áhersla var lögð á
vikuna og styttri tímabil fyrst og
fremst mæld í vikum, fremur en
dögum og mánuðum. Vikan er talin
hafa verið notuð af öllum germönsk-
um þjóðum á þessari tíð.
Sumir fræðimenn hafa haldið því
fram að vikuna hafi menn ekki tekið
upp fyrr en með kristni. Hitt þykir
mér þó líklegra, sem aðrir hafa bent
á, að Germanir hafi fengið þessa
þekkingu eftir óbeinum leiðum frá
kristnum mönnum, án þess að þeir
væru sjálfir kristnir.
Lengd ársins þarf að vera sem
nákvæmust í tímatali, enda gengur
ella allt úr skorðum, bæði sólargang-
ur og veðurfar er þetta vel þekkt úr
sögu tímatalsins. M.a. voru Egyptar
hinir fornu að glíma við þetta. Hið
júlíanska tímatal var að vísu komið
til sögu á dögum Sesars, árið 45 fyrir
Krist. Samkvæmt því voru 365 dagar
í árinu og hlaupár hið fjórða hvert
ár. En til Germana barst þetta tímtal
ekki fyrr en löngu síðar. Munu
Norðurlandabúar á þessum tíma
hafa haft tímatal þar sem 364 dagar
reiknuðust vera í árinu. En með því
hefur komið fram það mikil skekkja
á stuttum tíma að óhugsandi er
annað en að eitthvað hafi verið gert
í því máli.
Kannske sáu menn um að laga
þetta hver á sínum stað, án þess að
það yrði viðtekin regla. Segir enda í
íslendingabók Ara fróða að íslend-
ingar hafi tekið sérstaklega á þessu.
Má benda á brýna nauðsyn sem
skapast hefur af samkomudegi Al-
þingis, sem var í tiltekinni viku
sumars. Hefði sprottið af því mikið
óhagræði, ef þessi vika hefði flust til,
með tilliti til sumarsólstaða og
veðurfars.
Svipaðar þarfir spretta af ýmsum
árlegum verkum til lands og sjávar.
Þótt menn hefðu nú getað séð það
af gróðurfarinu hvenær rétt væri að
hefja slátt, þá var betra að hafa
tímatal til að fara eftir um ýmis
önnur búverk, eins og það hvenær
hleypa átti til ánna, þau verk voru
viðkvæm og betra að fara eftir
tímatali. Gerðist þetta of snemma
var hætta á að ærnar mundu bera í
vorhretum, en of seint þýddi að
dilkarnir yrðu rýrir á haustum. Fleira
mætti tína til.
„Eyjaleiðin" og stjarnvísin
Það er erfitt fyrir okkur sem nú
lifum að gera okkur grein fyrir
þessu. Nú höfum við nákvæmt daga-
tal við hendina og vitum að á sjó
nota menn áttavita, ratsjá og kort.
En af heimildum má sjá að á sjó hafa
menn einkum notast við tvær aðferð-
ir. Önnur var eyjaleiðin svonefnda:
Menn sigldu þá t. d. frá Suður-Nor-
egi, fyrst til Hjaltlands, þá um Fær-
eyjar og loks til íslands. Þarna var
byggt á því að hafa landsýn megin-
hluta leiðarinnar. Þessa aðferð má
líka kenna við Hrafna Flóka, því
einnig mátti ráða ýmislegt af fari
fugla, og af skýjafari, þegar skýja-
flákar söfnuðust við fjallatinda.
Önnur aðferð, sem notuð hefur
verið í bland við þessa var sú að
fylgjast með himintunglunum, að
minnsta kosti að einhverju leyti, og
smám saman hefur hún þróast
áfram. Þekktasta aðferðin suður í
löndum, var sú að fylgjast með hæð
Pólstjörnunnar. Suðurfrá er hún
ekki mjög hátt á himninum og
hæðarbreyting hennar er greinileg,
þegar farið er um nokkurn veg til
norðurs eða suðurs. En hér norður
frá var erfiðara að átta sig á henni,
vegna þess að hún var hærra á lofti
og svo vegna þess að menn sigldu
einkum á sumrin, þegar nótt var
björt og stjörnur sáust ekki.
En það voru að mínu mati til fleiri
aðferðir, sem menn hafa notað. Þar
kemur helst til sólargangurinn:
Menn gátu fylgst með því hve hátt
sólin færi að deginum. Sú aðferð
hefur að vísu þann ágalla að sólin
lækkar á lofti frá sumarsólstöðum.
En hafi menn verið á ferð um
sumarsólstöður er um litla breytingu
að ræða og aðferðin því nothæf. En
þegar leið á sumarið hafa menn
orðið að hafa þekkingu á hve mikið
hin svonefnda stjörnubreidd sólar
breyttist.
Ef við víkjum aftur að tímatalinu,
þá er að finna hjá Ara fróða merki-
lega klausu, sem er að vísu nokkuð
erfið og tvíræð í túlkun. Hún er í
fjórða kafla íslendingabókar, sem
talin er skrifuð á árunum 1122-1133,
og hljóðar þannig:
„Það var og þá er hinir spökustu
menn á landi hér höfðu talið í tveim
misserum fjóra daga hins fjórða
hundraðs (þ.e. 364 daga), - það
verða vikur tvær hins sjötta tugar, en
mánuðir tólf þrítug náttar og dagar
fjórir umfram, - þá merktu þeir af
sólargangi, að sumarið munaði aftur
til vorsins; en það kunni enginn að
segja þeim að degi einum var fleira
en heilum vikum gegndi í tveim
misserum, og það olli. En maður hét
Þorsteinn surtur ... (Hann) leitaði
þess ráðs að lögbergi, að hið sjöunda
hvert sumar skyldi auka viku og
freista hve þá hlýddi. ... var þá það
þegar í lög leitt að'ráði Þorkels mána
og annarra spakra manna.
Að réttu tali eru í hverju ári fimm
dagar hins fjórða hundraðs, ef eigi
er hlaupár, en þá einum fleira; en að
voru tali verða fjórir. En þá er eykst
að voru tali hið sjöunda hvert ár viku
en engu að hinu, þá verða sjö ár
saman jafn löng að hvoru tveggja.
En ef hlaupár verða tvö á milli þeirra
er auka skal, þá þarf að auka hið
sjötta."
Kjarni málsins er sá að menn hafa
í fyrstu haft tímatal með 364 dögum
í árinu. Það hefur svo verið leiðrétt
eftir nokkra áratugi, vegna þess að
menn sáu að þá hafði „sumarið
munað aftur til vorsins," eins og Ari
orðar það. Hefur skekkjan þá verið
orðin 30 - 40 dagar og þinghaldið
komið fram í maí að okkar tímatali.
Þetta hefur og ruglað öðrum störfum
manna, svo þeir hafa svo að segja
fundið skekkjuna á sjálfum sér.
En það er gaman að velta því fyrir
sér hvernig Þorsteinn surtur hefur
fundið út hvernig þessari breytingu
skyldi hagað. Líklegasta túlkunin á
þessum texta er sú að hann hafi
komið á sumarauka sjöunda hvert
ár, en með því hefði meðalárið orðið
365 dagar - þ.e. eins og það var í
Egyptalandi og Rómarríki fyrir daga
Sesars. Surtur bjó á Þórsnesi og
hann hefur getað fylgst með sólar-
gangi við Snæfellsnesfjallgarðinn,
hvernig sól hækkar á lofti frá vetrar-
sólstöðum o. s. frv. Hann hefði því
getað notað það sem ég kalla „fjalla-
hringsaðferð" - t.d. fylgst með því á
HEIMILANIM
Getum nú boöiö þennan fullkomna og
hentuga Bondstec örbylgjuofn á ótrúlega
hagstæðu og milliliöalausu heildsöluveröi
beint til þín. 18 lítra, 500 vatta, affrysting,
snúningsdiskur. Nákvæmur íslenskur
leiöbeiningarbæklingur fylgir.
Sparið tíma, fé og fyrirhöfn, meö Bondstec
og lækkiö um leið rekstur heimilisins.
VERÐ AÐEINS 14.950 STGR.
Opið mánudag—fimmtudag frá kl. 9—22
föstudag frá kl. 9—19
laugardag frá kl. 10—16
OPUS-VERSLUN SEM ER TIL FYRIR ÞIG.
(Uk
| SNORRABRAUT29
SIMl 62-25-55
ftOWER
rmm