Tíminn - 15.10.1988, Qupperneq 13
Laugardagur 15. október 1988
Þau Ted Danson og Kirstie Alley bera nú hitann og þungann í
Staupasteinsþáttunum og segjast ekki sakna Shelley.
Sviptingar í
Staupasteini
íslenskir sjónvarps-
áhorfendur fá nú að
fylgjast með lífinu á
barnum Staupasteini á
mánudagskvöldum. Þar
er málum nú þannig
komið að gengilbeinan
Diane er komin með nýj-
an.kærasta en enn logar
þó í gömlum glæðum
milli hennar og Sams.
Þróunin er þó komin á annað
stig í framleiðslu þáttanna. Þar
hefur Shelley Long, sem leikur
Diane, sagt skilið við þættina og
í staðinn er ný leikkona, Kirstie
Alley, komin til liðs við Staupa-
steinsfólkið. Sumum hefur þótt
sú breyting til bóta, ekki síst Ted
Danson, sem segist hafa verið
búinn að fá nóg af samstarfinu
við Shelley Long. Reyndar er
Shelley ekkert heldur að skafa
utan af því þegar hún lýsir sam-
starfinu og segist hafa verið þeirri
stund fegnust þegar hún losnaði
úr hlutverki Diane.
En þeir eru líka til sem finnst
breytingin á Staupasteini ekki
hafa verið til batnaðar. í þeim
hópi eru framleiðendur þáttanna,
sem vilja ólmir fá Shelley aftur til
starfa. Þeir hafa jafnvel gengið
svo langt að bjóða henni 100.000
dollara fyrir hvern þátt, sem eru
einhver hæstu laun sem heyrst
hefur um f sjónvarpsheiminum
og talsvert hærri en núverandi
leikarar í Staupasteini fá.
Þetta tilboð framleiðendanna
hefur ekki orðið til að bæta
samkomulagið milli Shelley og
hinna leikaranna. Þau Ted og
Kirstie segjast ekki kæra sig um
að fá hana aftur og benda iíka á
að Staupasteinn hafi stöðugt ver-
ið í hópi 10 vinsælustu sjónvarps-
Shelley Long hefur kvatt
Staupasteinsþættina og segist
ekki sakna þeirra.
þáttanna eftir að Shelley fór og
það sýni að engin þörf sé fyrir
hana þar.
Og hvað segir svo Shelley sjálf?
Hún lætur sér fátt um tilboðið
finnast, enda er hún komin vel á
veg með að verða heilmikil kvik-
myndastjarna. Hún segist ekki
þurfa á peningunum að halda og
sé hæstánægð með núverandi
starf. Þar að auki segist hún hafa
átt í útistöðum við Ted Danson
og hina leikarana á meðan hún
vann með þeim og hvers vegna
ætti það svo sem að hafa breyst?
Það benda sem sagt allar líkur
til þess að dagar Diane barstúlku
í Staupasteini séu taldir.
VETRARSKOÐUN
NISSAN 5UBARU
/ /
ÞAÐ MARGBORGAR SIG AÐ FARA í VETRARSKOÐUN
ÞVÍALLTÞETTA ERINNIFALIÐ:
1 SKIPT UM KERTI OG PLATÍNUR
2 SKIPT UM BENSÍNSÍU
3 VÉLARSTILLING
4 ÁSTAND L0FTSÍU ATHUGAÐ
5 VIFTUREIM STREKKT
6 KÚPLING STILLT
7 OLÍA MÆLD Á VÉL 0G GÍRKASSA
8 RAFGEYMIR MÆLDUR
0G RAFPÓLAR HREINSAÐIR
9 FR0STÞ0L KÆLIVÖKVA VÉLAR MÆLT,
FROSTLEGI BÆTT Á EF MEÐ ÞARF
10 ÁSTAND PÚSTKERFIS ATHUGAÐ
11 BREMSUR REYNDAR
12 ÍSVARA BÆTT Á RÚÐUSPRAUTUR
13 HURÐALÆSINGAR OG LAMIR
SMURÐAR
14 SILIKONBORNIR ÞÉTTIKANTAR
ÁHURÐUM
15 LOFTÞRÝSTINGUR HJÓLBARÐA
MÆLDUR
16 STÝRIBÚNAÐUR KANNAÐUR
17 HJÓLALEGUR ATHUGAÐAR
18 ÁSTAND RÚÐUÞURRKNA
SK0ÐAD
19 UÓSASTILLING
20 REYNSLUAKSTUR
Verð aðeins kr. 5.200.-
Betur verður vart boðið. Sama verð um land allt.
Hafið samband við þjónustuaðila Ingvars Helgasonar hf.
og ykkur verður vel tekið.
Ingvar
Helgason hf.
Perkins
dieselvélar
Átt þú bíl, bát, gröfu,
lyftara eða önnur tœki
með gamalli og slitinni
díeselvél?
Þá væri ráð fyrir þig að
hafa samband við okkur,
og vita hvernig við getum
leyst málið.
Við getum boðið ótrúlega
fjölbreytni af PERKINS
vélum í hin ýmsu tæki og
báta.
Þessar traustbyggðu
PERKINS vélar í
vinnuvélum, traktorum,
bátum og bílum skipta nú
þúsundum hérlendis.
Orugg varahlutaþjónusta
Perkins - Öryggi - Hagkvæmni - Ending.