Tíminn - 15.10.1988, Page 15
* »
Laugardagur 15. október 1988
HELGIN m 15
Illll :BÍLAR
Framtíðarsköpun
Hafi eitt númer borið sérstaklega af öðrum á nýlegri alþjoðlegri
bflasýningu í París, þá var það Renault Mégane. Eins og sjá má af myndum
er þessi bifreið í efsta flokki bifreiða og reyndar svo háum þægindafiokki að
hann verður trúlega ekki framleiddur í öðrum eintökum en sýningareintak-
inu. Svona bifreið er eiginlega aðeins smíðuð fyrir bílasmiði næstu ára og til
þess gerð að varpa Ijósi á þá megin stefnu sem lögð verður í bílaframleiðslu
í Frakklandi á næstunni. Þetta er semsagt framtíðarbíll.
Ef einhver hefur áhuga þá læt ég
hér fijóta með nokkrar haldbærar
upplýsingar um útfærslu og vinnslu.
Vélin er sex strokka (V), um 3ja
lítra, með beinni innspýtingu, forþ-
jöppu og millikæli og gefur 250 DIN
hestöfi. Hún kenrur honum hljóð-
lega af stað og upp í hundrað km
hraða á klst. á 8,3 sek. og hámarks
hraðinn er gefinn upp 161 míla á
klst. Það sem setur honum þessar
„skorður“ (nálægt 270-280 km/klst.)
er loftmótstaðan sem þó er komin
niður í 0,21-0,22 Cd. og þætti gott í
hvaða bíl sem er. Mégane er að
sjálfsögðu með drif á öllum hjólum
og einnig stýri á öllum hjólum.
Þá eru það þægindin og innrétting-
arnar. Þrátt fyrir glæsilegt útlit á vegi
er Mégane fyrst verulega glæsilegur
þegar litið er innfyrir. Þegar dyrnar
hafa opnast eins og sést á myndinni
getur bílstjórinn látið sæti sitt snúast
um 60 gráður til að auðvelda út-
göngu. Farþeginn við hlið hans getur
þó snúið aðeins betur upp á sig eða
um 180 gráður „omvent" og snúið
sér alfarið að farþegum í aftursæt-
um. Þannig settur getur hann þó
ekki horft á innbyggt sjónvarpið
frammí, en það hefur aðeins tvo
aukaskerma í loftinu fyrir hvorn
aftursætisfarþega. Þetta verður von-
andi lagað í næstu árgerð!
Ökumaðurinn þarf ekki að leita
um langan veg að útispeglum. Þeir
eru í mælaborðinu og er þar að sjá
tvo litasjónvarpsskjái sem segja allt
um umhverfið aftan Mégane. Þá
þarf ekki að vera gamaldags gírstöng
í gólfi. Þar eru nú bara nettir fjórir
takkar fyrir fasta gíra sjálfskiptingar-
innar. Þá ætti síminn ekki að valda
vandræðum því hann er felldur inn í
stokkinn milli framsæta og aftursæta
(sitt hvort símtólið) og svo er að
lokum rétt að geta þess að ökumaður
þarf ekki að eyða tíma í að stilla sæti
sitt og stýri þótt einhver annar hafi
verið að aka og ruglað öllu. Sérstök
fullkomin sætistölva sér um það.
Það ætti því ekki að fara mjög illa
um þær fjórar persónur sem ferðast
geta um í þessari bifreiðarbreiðþotu
framtíðarinnar, þar sem allt er bók-
staflega búið til úr leðri og lúxus.
Skátar kaupa Ford
Það á sér mikil endurnýjun stað í
bílamálum hjálparsveita skáta og
stendur hún ekki síst yfir vegna
skipta úr bensíntrukkum í díesel-
bíla. í Hjálparsveitartíðindum var
lítil og látlaus frétt um að nú bæri svo
við að flestir velja sömu gerð fjalla-
bifreiðar. Nú hafa ekki færri en
ellefu aðildasveitir Landssambands
hjálparsveita skáta keypt, eða eiga í
pöntun, Ford Econoline 250 fjalla-
bíla.
Kostir þeirra eru fyrst og fremst
þeir að lítið sem ekkert þarf að eiga
við farartækin til að gera þau sam-
boðin alvöru fjallaferðum, en ekki
síður mjög stór átta strokka dfesel-
vél sem er hvorki meira né minna en
7,3 lítrar að rúmtaki. Segja strákarn-
ir í bílaflokkunum að hann reykspóli
á öllum fjórum þegar þurfa þykir.
Þetta mikla afl er nauðsynlegt ef
bera á tólf fullklyfjaða skáta, farang-
ur þeirra allan og ýmsan tækjabúnað
og oftar en ekki að draga með sér
tvo vélsleða á kerru með þeim
farangri sem því fylgir. Það geta
verið erfiðir dagar fyrir hvern bíl að
gegna því hlutverki að vera hjálpar-
sveitarbíll. Svo er ekki síður þörf á
afli þegar búið er að tylla þessu
faratæki á allt að 44 tommu dekk
fyrir veturinn og koma fyrir „no
spinn“ í drifin (það eru læsingar).
Ekki er að efa að þeir hafa gert góð
kaup, enda er verðið víst nokkuð
hagstætt núna, þrátt fyrir að sölu-
skatturinn var settur á bílakaup
þeirra aftur. Það getur verið mikill
sparnaður í því að þurfa ekki að
liggja undir nýjum bflum til að
breyta þeim mánuðum saman.
Þá er bara að vona að skátarnir
selji vel af lukkutríói og flugeldum
til að þeir geti áfram staðið undir
þeim miklu kröfum sem gerðar eru
til þeirra á neyðarstundu.
Vikuritið Motor Transport í
Bretlandi hefur valið Volvo FL10
til verðlaunanna „Fleet T ruck“ árs-
ins 1988 (Skyndiflutningabíll).
Þessi verðlaun eru studd þeim
rökum að FL10 sé hagkvæmur í
rekstri, áreiðanlegur og auðveldur
í akstri.
Bretland er stærsti markaður
Volvo í Evrópu á sviði þungaflutn-
inga og þar eiga þeir um 17.7%
markaðshlutdeild. Þessi verð-
launabíll er að sjálfsögðu kominn
til íslands og birtum við hér mynd
af einum fyrsta bílnum sem kominn
er til margvíslegra starfa á ísafirði,
í 79.
Volga, Volga
Volga er enn flutt inn til íslands
þótt við verðum ekki mikið vör við
það. Það eru nokkrir bílar fluttir inn
fyrir sendiráð Sovétmanna til hæfi-
legrar endurnýjunar. Hér fylgir svo
með lítil sæt mynd af herlegheitun-
um eins og þau líta út í árgerð 1988.
Þetta er reyndar nýjasti meðlimur
Volgufjölskyldunnar, eins og segir í
bæklingum Avtoexport, og ber
kenniheitið GAZ-3102.
Tæknilegar upplýsingar eru í stór-
um dráttum þær að vélin er fjögurra
strokka og 72 DIN hestafla. Volgan
er um fimm metra löng, um eitt og
hálft tonn að þyngd og tekur fimm
manns í sæti.
Suzuki Vitara ALX 4+4:
Ný gerö Skoda væntanleg upp úr áramótum:
Skodi orðinn
uppáhald?
Skoda Favourit - uppáhalds-
skódi - heitir nýjasta útgáfan af
Skódanum, en þessi bíll er gjör-
breyttur frá þeirri gerð sem alþekkt
er hér á landi.
Skoda fólksbílar hafa um 23 ára
skeið verið framleiddir með vélinni
að aftanverðu og með drifi á aftur-
hjólunum, en nú hefur hlutunum
verið snúið við.
Hinn nýi bíll, sem leysa á hinn
gamla af hólmi, er með vélina fram
í og drifið er á framhjólunum.
Bíllinn er fimm dyra og er hann-
aður af hinu heimsþckkta ítalska
hönnunarfyrirtæki, Stile Bertone.
Bíllinn uppfyllir alla öryggis og
þægindastaðla sem bílar í þessum
fiokki eru smíðaðir eftir nú til dags.
Hann er sagður mjög þægilegur
í akstri og hefur mjúka cn þó
stöðuga fjöðrun og á ekki að sögn
að taka upp á neinu óvæntu í akstri
hvort sem ekið er rólega eða veru-
lega hratt. Þá er hann sagður
hljóðlátur og búinn öflugri
miðstöð.
Nýi Skódinn var fyrst kynntur á
alþjóðlegu iðnsýningunni í Brno í
septembcr á síðasta ári en hingað
til lands er hann væntanlegur
snemma á næsta ári að sögn um-
boðsins Jöfurs hf. -sá
Vítara í sportið
Hér sjáum við hvernig nýi Suzuki
Vitara jeppinn lítur út með tilheyr-
andi skíðabúnaði og græjum. Hann
verður sjálfsagt heppilegur í þannig
ferðalög og annað svipað sport. Þess
vegna var hann líka hafður svona
sportlegur í útliti. Vitara er í mörgu
frábrugðinn Suzuki Fox jeppanum.
Helsta sjáanlega breytingin sem
reyndar veldur mestu þegar reyna á
fjórhjóladrifið, er að hann er ekki
með stífri hásingu að framan eins og
sá gamli sem byggði á Willysinum,
heldur með einhvers konar útfærslu
á McPerson að framan. Fróðlegt
verður að reynsluaka honum ein-
hvern tíma í góðu tómi og þá geta
lesendur Tímans fengið meira að
vita og meira að sjá.
„Mercedes“
Daihatsu Charade hefur nú verið
á Bandaríkjamarkaði í eitt ár og er
ekki að sjá annað cn Kaninn ætli
að taka þcssum smávaxna bíl vei.
“Mercedes smábílanna“ er ein
einkunnin og hún ekki smá. Hin er
á þá leið að Charade bjóði upp á
þá sérkennilcgu tilfinningu að öku-
maður geti ímyndað sér að hann
aki bcint út í brimið og sigli á haf
út (hvað svo sem Lew Scarr meinar
með því).
Markaðssetningin í Bandaríkj-
unum cr markviss og er Charadinn
aðeins scttur á markað í einu fylki
( einu. Nú þegar er hann til sölu f
flcstum suðurríkjunum og er þar
búið að ná áætlaðri markaðshlut-
deild. í stuttu máli sagt eru Da-
ihatsu-menn ánægðir með árangur
sinn í Ameríku.