Tíminn - 19.10.1988, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Miðvikudagur 19. október 1988
Miðvikudagur 19. október 1988
Tíminn 11
Körfuknattleikur:
New York. Frank Bruno,
mótherji Mike Tysons í einvígi um
heimsmeistaratitiiinn í þungavigt í
hnefaleikum, kom í gær til New
York í þeim erindagjörðum að hitta
Tyson og umboðsmann hans. Bruno
hefur tvívegis orðið að sætta sig við
að einvíginu hefur verið frestað,
vegna einkamálaerfiðleika Tysons.
Bruno vill fá Tyson til þess að skrifa
undir pappíra þess efnis að einvígið
verði þann 17. desember í London
og ekkert múður. Bruno og umboðs-
maður hans fundu Bill Clayton, en
Tyson var hvergi sjáanlegur.
Caracas. Ekki nema von, Tyson
er staddur í Venezuela, þar sem
hann fundaði með formanni WBA
hnefaleikasambandsins. Tyson sagði
í gær að hann þyrfti aðeins tvær
vikur til þess að undirbúa sig undir
að rota Frank Bruno. Aðspurður
um hvort skilnaðarmál hans og Rob-
in Givens hefðu áhrif á getu hans í
hnefaleikahringnum sagði Tyson.
„Mér líður frábærlega. Ég á ekici við
nein vandamál að stríða, ég finn
bara aðeins til í hendinni, sagði
Tyson, en eins og kunnugt er þá
handarbraut kappinn sig í ágúst,
þegar hann lenti í götuslagsmálum í
Harlem. í síðustu viku tóku meiðslin
sig upp og Tyson er nú með höndina
í gipsi.
St. Louis. Bandarísk sundkona
hefur verið dæmd í 16 mánaða
keppnisbann vegna þess að hún féll
á lyfjaprófi á úrtökumóti fyrir Ól-
ympíuleikana Seoul. Á mótinu, sem
haldið var í ágúst, sigraði Angel
Mayers í 50 og 100 m skriðsundi og
setti bandarískt met. Hún verður nú
að skila verðlaunapeningum sínum
og metin hafa verið ógilduð. Mayers
mun hafa neytt hormónalyfja, en
hún sagði að í prófinu hefði verið
ruglast á getnaðarvarnarpillum og
hormónalyfi, en áfrýjun hennar var
synjað í september. Sundkonan
verður að mæta í lyfjapróf þrisvar
sinnum á ári fram til 1993.
New York. Á mánudag var
einn leikur í bandarísku NFL-deild-
inni í fótbolta. Buffalo Bills unnu
New York Jets 37-14.
London. í kvöld leika Englend-
ingar og Svíar í undankeppni HM í
knattspyrnu. Englendingar eiga við
mikil meiðsl að stríða og margir
fastamenn í liðinu geta ekki leikið
með í kvöld. Liðið verður væntan-
lega þannig skipað: Peter Shilton,
Gary Stevens, Tony Adams, Terry
Butcher, Stuart Pearce, David Roc-
astle, Niel Webb, Bryan Robson,
John Barnes, Peter Beardsley og
Gary Lineker.
í kvöld verða fjölmargir aðrir
leikir í undankeppni HM svo sem:
Skotland-Jýigóslavía, Wales-
Finnland, V-Þýskaland-Holland,
Belgía-Sviss, Búlgaría-Rúmenía og
Danmörk-Grikkland.
Badminton. Vetrardagsmót
unglinga í badminton verður haldið
í húsum TBR unt næstu helgi.
Keppni hefst kl. 15.30. á laugardag
og kl. 10.00. á sunnudag. Keppt
verður í greinum og flokkum ung-
linga ef næg þátttaka fæst. Þátttöku-
tilkynningar skulu berast til TBR
fyrirkl. 12.00. á morgun, fimmtudag.
Handknattleikur. Nokkrir
leikir voru í 2. deildinni í handknatt-
leik um síðustu helgi. Haukar unnu
ÍR í toppslag deildarinnar með 29
mörkum gegn 21. Ármann vann
Selfoss 34-32, ÍBK vann ÍH 26-15,
HK vann Þór á Akureyri 27-18.
Haukar hafa nú forystu í 2. deildinni
með 8stig. íR og Ármann hafa 6stig.
Njarðvíkingar unnu
ÍR í fyrri hálfleik
Njarðvíkingar unnu ÍR-inga 89-81
í Flugleiðadeildinni í körfuknattleik
í íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöld
eftir að staðan í hálfleik var 54-36
Njarðvíkingum í vil.
Njarðvíkingar hófu leikinn af
miklum krafti og hreinlega keyrðu
yfir ÍR-inga sem voru sem svefn-
genglar á vellinum. Njarðvík komst
í 15-6 en þá kom Sturla Örlygsson
inn á og við það gjörbreyttist leikur
ÍR-inga sem minnkuðu muninn í
17-21. Aftur jókst munurinn í 19-30
en ÍR-ingar minnkuðu aftur í 24-30.
Njarðvíkingar tóku þá að raða niður
þriggja stiga körfum og hittni þeirra
var með ólíkindum. Þegar að leik-
hlénu kom var staðan orðin 54-36
Njarðvíkingum í vil.
f síðari hálfleik byrjuðu Njarðvík-
ingar af sama krafti og fyrr og juku
muninn jafnt og þétt. Tölur eins og
63-39 og 71-44 sáust á ljósatöflunni
og ÍR-ingar voru farnir að spyrja sig
hvort þeir væru örugglcga jafnmarg-
ir inni á vellinum og Suðurnesja-
drengirnir. Um miðjan hálfleikinn
gjörbreyttist leikur íR-inga sem neit-
uðu að gefast upp þótt leikurinn
virtist tapaður. Á stuttum kafla skor-
uðu leikmenn ÍR 13 stig gegn engu
stigi Njarðvíkinga og staðan breytt-
ist í 75-61. Þá vöknuðu Njarðvíking-
ar við vondan draum, þeir voru að
missa unnin leik út úr höndunum en
með yfirvegun tókst þeim að sigra
með 8 stiga mun, 89-81.
Fyrri hálfleiknum vilja ÍR-ingar áreið-
anlega gleyma sem fyrst en síðustu 10
mín. leiksins voru frábærar hjá liðinu og
baráttan var sem um vígamenn væri að
ræða. Bestu menn liðsins voru þeir Sturla
Örlygsson og Ragnar Torfason og Jó-
hannes Sveinsson sem átti góðan leik í
sókninni í fyrri hálfleik en lék lítið með í
síðari hálfleik.
Bestir Njarðvíkinga voru þeir Teitur
Örlygsson og ísak Tómasson en Kristinn
Einarsson og Hreiðar Hreiðarsson áttu
báðir sómaleik.
Dómarar voru þeir Bergur Steingríms-
son og Jón Otti Ólafsson og dæmdu þeir
í heildina vel en inn á milli dæmdu þeir
algjöra vitleysu fyrir hvor annanJ- BL
Leikun ÍR-UMFN 81-89
Lið: UMFN
NUn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stífl
Helgi 5-4 - 1 5 4 3 - 11
FridrikRún. 2-1 1-0 1 1 1 - - 2
Hreiðar 8-5 1-0 2 2 2 - 3 14
FriðrikRag. - - - 1 1 - - 0
Kristinn 5-4 - - 2 2 1 3 13
Teitur 14-8 9-2 1 5 4 2 7 24
tsak 14-9 5-2 - 4 2 4 7 25
Ellert 2-0 0
Leikun ÍR-UMFN 81-89 Uð: ÍR
Nöfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stif|
Bjöm St. 5-1 - _ 1 3 1 _ 2
Karl 2-1 5-2 - - 5 3 4 8
Sturla 15-10 1-1 3 8 5 - 4 26
Ragnar 15-9 - 4 3 _ 1 1 19
Jóhannes 4-2 - 1 2 2 - - 10
Gunnar 1-1 - - _ _ _ _ 2
BjöraL. 2-1 - 1 2 2 1 - 2
Bragi 1-0 - 1 3 - - - 0
JónÖm 1H_ - - _2_ -L i _a_ 13
Ólympíuleikar fatlaðra:
Silfur og b rons í
100mbaks undinu
íslcnsku kcppendurnir á Ólymp-
íulcikum fatlaðra í Seoul stóðu sig
mjög vel í gær og unnu til tvcggja
verðlauna í viðbót við þau þrjú
verðlaun sem þeir unnu um helgina.
Jónas Óskarsson úr Völsungi vann
silfurverðlaun í 100 m baksundi og
setti íslandsmet, synti á 1:13,14 mín.
Tíminn er reyndar einnig undir
heimsmeti, en sigurvegarinn í sund-
inu stórbætti heimsmetið, synti á
1:11,96 mín. en gamla heimsmetið
var 1:13,66 mín.
Lilja María Snorradóttir frá Sauð-
árkróki, vann bronsverðlaun í 100 m
baksundi, synti á 1:28,18 mín. sem
er nýtt íslandsmet.
Ólafur Eiríksson ÍFR varð 4. í 100
m baksundi á 1:18,06 mín. sem
einniger nýtt íslandsmet. Ólafurvar
aðeins 1/100 úr sekúndu á eftir
keppandanum sem varð í 3. sæti í
sundinu.
Sóley Axelsdóttir ÍFR varð í 4.
sæti í 100 m baksundi á nýju íslands-
meti, 2:39,75 mín.
Halldór Guðbergsson ÍFR komst
í úrslit í 200 m bringusundi og lenti
í 7. sæti á 3:07,34 mín. og Rut
Sverrisdóttir ÍFA setti nýtt íslands-
met í úrslitasundinu í 200 m bringu-
sundi, synti á 3:42,00 mín. og hafn-
aði í 8. sæti.
Þá keppti Ólympíumeistarinn f
100 m hlaupi, Haukur Gunnarsson,
í undarásum og milliriðli f 200 m
hlaupi í gær. Haukur fékk tímann
26,44 sek. sem er nýtt íslandsmet.
Gamla metið átti Haukur sjálfur, en
það var 27 sek. sléttar. Haukar vann
bæði hlaupin og er kominn í úrslit
með þriðja besta tíma undanrás-
anna. Úrslitin verða í dag. BL
Körfuknattleikur:
Knattspyrna:
Lilja María Snorradóttir vann bronsverðlaun í 100 m baksundi í Seoul í gær.
Tímamynd öm.
Leikið gegn
A-Þjóðverjum
í Berlín í dag
f kvöld leika íslendingar þriðja leik sinn
í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Mótherjarnir eru A-Þjóð-
verjar og leikurinn fer fram í A-Berlín.
Leikmenn íslenska liðsins hafa dvalið
við æfingar í V-Þýskalandi að undanförnu
og æft af kappi fyrir leikinn. Nokkrir
leikmenn íslenska liðsins eiga við meiðsl
að stríða og þeir Halldór Askelsson og
Ólafur Þórðarson meiddust báðir á æfingu
í fyrradag, þó standa vonir til þess að þeir
verði búnir að ná sér fyrir leikinn í kvöld.
Bjarni Sigurðsson og Friðrik Friðriksson
eru báðir meiddir, en flest bendir til þess
að það verði Bjarni sem standi í markinu í
kvöld. Þcir Gunnar Gíslason og Atli
Eðvaldsson ættu báðir að geta leikið með,
þrátt fyrir meiðsl.
Frammistaða fslendinga í undankeppn-
inni til þessa hefur verið góð, jafntefli gegn
Sovétmönnum heima og Tyrkjum á útivelli
lofar góðu fyrir framhaldið. Leikurinn í
kvöld er mjög mikilvægur, stutt er síðan
við töpuðum 0-6 fyrir A-Þjóðverjunum á
Laugardalsvellinum, en oftar en ekki hefur
íslenska landsliðið í knattspyrnu staðið sig
vel í leikjum gegn A-Þýskalandi.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsend-
ingu í ríkissjónvarpinu ki.17.00 í dag. BL
Gunnar Gíslason á við meiðsl að stríða
en mun samt að öllum líkindum leika
með gegn A-Þjóðverjum í dag.
NaumursigurVals
á Saudkrækingum
Það var sama uppi á teningnum í
leik Tindastóls í gærkvöld og síðasta
sunnudag þegar þeir mættu Hauk-
um. Aftur voru skoruð á þriðja
hundruð stiga er þeir mættu Vals-
Staðaní
Flugleiða
deildinni
Evrópuriðill
IBK........
KR.........
Haukar . . .
ÍR ........
Tindastóll .
440 346-292
4 3 1 291-290
422 375-362
5 1 4 356-381
5 0 5 448-496
Teitur Örlygsson hitti glæsivel á móti ÍR-ingum í gærkvöld. Hér er það Gunnar Öm Þorsteinsson
sem reynir að hindra Teit. Tímamynd Pjetur.
Ameríkuriðill
UMFN ........ 5 5 0 447-356 10
Valur ........ 5 4 1 493-394 8
UMFG ........ 4 2 2 356-301 4
Þór........... 4 1 3 319-388 2
ÍS............ 4 0 4 247-407 0
ÍBR:
Ari kjörinn
formaður
Ari Guðmundsson var um helgina
kjörinn formaður íþróttabandalags
Reykjavíkur.
Fráfarandi formaður, Júlíus Haf-
stein, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs og tveir menn buðu sig fram til
formanns, þeir Ari og Pétur Svein-
bjarnarson fyrrverandi formaður
Vals.
Ari Guðmundsson hlaut örugga
kosningu, hlaut 71 atkvæði, gegn 56
atkvæðum Péturs. Ari Guðmunds-
son er fyrrum formaður Sundfélags-
ins Ægis og Golfklúbbs Reykjavíkur
og hefur setið í stjórn í BR síðastliðin
10 ár. BI.
mönnum ■ æsispennnandi og hröð-
um leik.
Fyrri hálfleikur leiksins bauð upp
á mikinn hraða og hittni þar sem
liðin skiptust á um forustuna og varð
forustan sjaldan meiri en tvö til
fjögur stig. Valsmenn sigu þó aðeins
fram úr á síðustu mínútum fyrri
hálfleiks og höfðu forustu í leikhléi
60-53. f byrjun seinni hálfleiks héldu
Valsmenn uppteknum hætti og juku
við forskot sitt þrátt fyrir að þrír af
lykilmönnum þeirra, þeir Þorvaldur
Geirsson, Matthías Matthíass og
Hreinn Þorkelsson, væru allir komn-
ir með fjórar villur skömmu eftir
leikhlé. Virtist engu skipta þó að
Valsmenn notuðu yngri og óreyndari
leikmenn í þeirra stað og fóru þar
fremstir miðherjinn ungi, Hannes
Haraldsson, og bakvörðurinn Ragn-
ar Þór Jónsson. í síðari hluta seinni
hálfleiks voru Valsmenn komnir
með 17 stiga forskot en þá blésu
Skagfirðingar í herlúðra, pressuðu
stíft og minnkuðu muninn niður í 4
Enska knattspyrnan:
Tvö stig dæmd
af Tottenham
Á mánudaginn versnaði staða
Tottenham Hotspurs til muna í 1.
deild ensku knattspyrnunnar, þrátt
fyrir að liðiö hafi hvorki spilað leik
um helgina né á mánudaginn.
Tvö stig voru dæmd af liðinu, sem
var með 7 stig úr 6 leikjum og í 17.
sæti deildarinnar, og nú hefur Tott-
enham 5 stig og er í 18. sætinu, því
þriðja neðsta, sem er fallsæti.
Ástæðan fyrir því að stigin tvö
voru dæmd af liðinu, er sú að
knattspyrnusamband Englands mat
það þannig, að fyrsta leik liðsins á
keppnistímabilinu hafi verið frestað
að nauðsynjalausu. Á sínum tíma
var leiknum frestað aðeins 6 tímum
áður en hann átti að hefjast, vegna
þess að lögregla áleit drasl, sem var
við völlinn, hættulegt. Draslið var
tilkomið vegna framkvæmda sem
stóðu yfir á heimavelli Tottenham,
White Hart Line.
Formaður stjórnar Tottenham,
Irving Scholar, sagði að félagið
mundi áfrýja þessum úrskurði. „Mér
finnst þessi ákvörðun mjög undar-
leg,“ sagði Scholar. Hann bætti við
að Tottenham hefði viljað leika
‘umræddan leik og hefði meira að
segja lagt til að hluta af leikvanginum
yrði lokað af Öryggisástæðum, en
lögreglan hefði heimtað að leiknum
yrði frestað. BL
Jan Mölby í fangelsi
Danska landsliðsmanninum Jan
Mölby, sem leikur með Liverpool,
var á mánudaginn stungið í fangelsi
fyrir vítaverðan akstur.
Mölby þarf að afplána þriggja
mánaða dóm, en gæti losnað eftir 6
vikur, ef hann hegðar sér vel í
steininum.
Liverpoolliðið á nú í miklum erfið-
leikum, því margir leikmenn eiga
við meiðsl að stríða og ekki bætir úr
skák þegar leikmenn liðsins eru
komnir í fangelsi. Liðið hefur tapað
tveimur síðustu leikjum sínum í
deildinni.
Jan Mölby hefur leikið í vörninni
það sem af er, en Alan Hansen
fyrirliði liðsins, Gary Gillespie, Alex
Watson, Jim Beglin, Steve McMa-
hon og Nigel Spackman eru allir á
sjúrkralista.
Nær öruggt er talið að Kenny
Dalglish framkvæmdastjóri liðsins
þurfi að taka upp pyngjuna og kaupa
nýja varnarmenn til liðsins. Helstu
nöfn sem nefnd eru í því sambandi
eru Gary Pallister Middlesborough,
Colin Hendry Blackburn og Dean
Yates Notts County.
Þegar Mölby losnar úr fangelsinu
er ekki þar með sagt að hann sé laus
allra mála, stjórn Liverpool gæti
hugsanlega sett hann í keppnisbann
um tíma, þar sem fangelsisvist er
alvarlegt agabrot á þeim bæ eins og
víðar. BL
stig þegar 3 mín. voru eftir, drifnir
áfram af stórleik Vals Ingimundar-
sonar og Eyjólfs Sverrissonar.
Reynsla Valsara reyndist síðan dýr-
keypt á lokamínútunum og náðu
þeir að knýja fram sigur 109-105.
Lið Valsmanna var mjög jafnt að
getu í þessum leik en þó var Framar-
inn forni, Þorvaldur Geirsson,
fremstur meðal jafningja og einnig
vöktu yngri leikmenn liðsins athygli
fyrir góðan leik eins og áður sagði.
Tvíhleypan í Tindastólsliðinu, þ.e.
Valur Ingimundarson og Eyjólfur
Sverrisson, voru í sérflokki en einnig
átti Haraldur Leifsson góða spretti.
Stig Vals: Þorvaldur Geirsson 20,
Hreinn Þorkelsson 15, Hannes Har-
aldsson 14, Ragnar Þór Jónsson 13,
Matthías Matthíasson 12, Tómas
Holton 12, Einar Ólafss. 11, Arnar
Guðm.son 4 og Björn Zoega 2.
Stig Tindastóls: Valur Ingim.son 39,
Eyjólfur Sverrison 31, Guðbrandur
Stefánsson 11, Haraldur Leifss. 14,
Björn Sigtryggsson 7 og Sverrir
Sverrisson 3.
Körfuknattleikur. Snæfeii
vann Reyni Sangerði í leik liðanna í
í 1. deildinni í körfuknattleik um
helgina, 72-68. Kristján Agústsson
gerði 44 stig fyrir Snæfell, þar af 20
stig úr vítaskotum úr 23 tilraunum.
Skallagrímsmenn unnu Laugdæli 65-
40. UBK vann Víkverja. í 1. deild
kvenna unnu Haukar Njarðvík 41-
40, KR vann Grindavík 59-51 og ÍS
vann ÍR.
Jan Mölby er nú kominn í fangelsi í Englandi.
New York. Á laugardag voru
nokkrir leikir í NHL-íshokkídeild-
inni. Úrslit urðu sem hér segir:
New York Islanders........... 2
Montreal Canadiens............ 1
Hartfoed Whalers............. 7
Chicago Black Hawks........... 5
Chicago Black Hawks.......... 9
St. I.ouis Blues............. 2
Washington Capitals .......... 8
New Jersey Devils............. 5
Detroit Red Wings ............ 5
Toronto Maple Leafs........... 3
Minnesota North Stars......... 5
Boston Bruins................. 1
Philadelphia Flyers .......... 4
Los Angeles Kings............. 1
Á sunnudaginn voru einnig nokkr-
ir leikir, úrslit þeirra urðu þessi:
Edmonton Oilers............... 3
Winnipeg Jets ............... 3
Eftir framlengdan leik
New York Rangers ............. 3
Vancouver Canucks............. 2
Boston Bruins.................10
Chicago Blackhawks ........... 3
Quebec Nordiques......... 5
BufTalo Sabres ............... 3
Istanbul. Á laugardag léku Gal-
atasaray frá Tyrklandi og Universit-
atea Cluj frá Rúmeníu síðari leik
sinn í Evrópukeppninni í körfu-
knattleik kvenna. Rúmenska liðið
vann 77-64, en það tyrkneska kemst
áfram þar sem heildarstigaskor lið-
anna var 137-135, Galatasaray í vil.
Mílanó. Ruud Gullit, fyrirliði
hollenska landsliðsins í knattspyrnu,
gat ekki leikið með liði sínu AC
Milan gegn Pecera á sunnudaginn,
vegna ökklameiðsla. LæknarMílanó
liðsins segja að kappinn verði orðinn
góður fyrir leikina um næstu helgi,
en sjálfur segir Gullit að hann geti
hvorki leikið með hollenska landslið-
inu gegn V-Þjóðverjum á miðviku-
dag né ítalska liðinu fyrr en hann sé
að fullu orðinn góður af meiðslun-
Madrid. Kunnugleg staða er
komin upp í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu. Barcelona er í efsta
sæti deildarinnar með 12 stig, úr 7
leikjum, en Real Madrid er í öðru
sæti með 11 stig. Þessi tvö stórlið
hafa á undanförnunt árum skipst á
um að vinna meistaratitilinn og
keppnin í vetur mun sem fyrr standa
á milli þessara.liða. Skammt er þó í
næstu lið, Celta og Logrones eru
bæði með 10 stig. Úrslit helgarinnar
urðu þessi:
Cadiz-Malaga..................0-1
Atletico Madrid-Espanol .... 6-1
Sevilla-Elche ................4-1
Atletico Bilbao-Valencia .... 1-2
Logrones-Osasuna..............1-1
Celta-Sporting ...............2-1
Reai Murcia-Real Sociedad . . 0-1
Barcelona-Real Betis..........3-1
Real Valladolid-Real Madrid . 0-1
Real Oviedo-Real Zaragoza . 1-1