Tíminn - 20.10.1988, Side 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 20.-október 1988 ■
Verökönnun Verölagsstofnunar:
Verðmunur á bílaþvotti
Ef marka má verðkönnun Verðlagsstofnunar er rétt fyrir
bílaeigendur að gera verðsamanburð á bflaþvotti á höfu-
ðborgarsvæðinu. Tekið er fram að Verðlagsstofnun leggi ekki
mat á gæði þjónustunnar.
Verðlagsstofnun kannaði verð á þessari þjónustu hjá 12
aðilum á höfuðborgarsvæðinu. í Ijós kemur að handþvottur
og -bónunvað utan og þrif að innan á litlum fólksbflum kostar
frá 1700-2000 kr. Þetta er 17,6% verðmunur.
Lægsta verðið á þessari þjónustu
reyndist vera hjá Bónstöð Shell í
Skógarhlíð og Bónstöðinni Umferð-
armiðstöðinni. Hæsta verðið er hins-
vegar hjá Bónstöðinni Langholts-
vegi 109. Sama þjónusta fyrir meðal-
stóra fólksbíla kostar á bilinu 1800-
2200 krónur, sem er 22,2% munur.
Lægsta verðið er hjá Bónstöð Magn-
úsar, Helluhrauni í Hafnarfirði,
Bónstöð Shell, Skógarhlíð, Bón-
stöðinni Umferðarmiðstöðinni og
Höfðabóni, Höfðatúni 4. Hæsta
HB
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Varberg:
Annan hvern miðvikudag
Moss:
Annan hvern laugardag
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell......... 8/11
Gloucester:
Jökulfell.......... 5/11
Skip................26/11
New York:
Jökulfell.......... 7/11
Skip................28/11
Portsmouth:
Jökulfell.......... 7/11
Skip................28/11
. . ... _-------
i ri/mjnni ö'; /
'LINDAP'GÖTU &A r ÍÖ1
i’ SlMt 698100 * .•• V
y-k LA A L A A A
TAK\ 1 R.AiJjl RA FliJ f NIFJG.A
verðið er hinsvegar hjá Bónstöðinni
Langholtsvegi.
í flokknum stórir fólksbílar, t.d.
Benz 190, Volvo 240 og BMW 520,
eru tvö fyrirtæki með lægsta verðið,
1900 krónur, Bón og bílþvottastöðin
Bíldshöfða 8 og Bónstöð Shell
Skógarhlíð. Hæsta verð, 2500
krónur, þarf að greiða fyrir þjónustu
Bónstöðvarinnar, Langholtsvegi 109
og Ryðvarnarskálans, Sigtúni 5.
í könnun Verðlagsstofnunar kem-
ur ennfremur fram að fyrir djúp-
hreinsun á sætum bíls sömu gerðar
þarf að greiða allt frá 400 krónur
(Ryðvarnarskálinn) og upp t 1600
krónur (Bónstöð Magnúsar).
Að lokum var kannað verð á
vélþvotti. Lægsta verðið á þessari
þjónustu reyndist vera hjá Klöpp við
Skúlagötu, 490 krónur, en hæsta
verðið hjá Bón- og þvottastöðinni
Sigtúni, 675-790 krónur. óþh
Þvotturog - bónun að utan, þrif að innan. Djúp- hreinsun á sætum. Þvottur og bónun aö utan, þrif að innan. Djúp- hreinsun á sætum.
Litlir fólksbilar (t.d. Daihatsu Charade og Fiat Uno) Litlir jeppar (t.d. Lada Sport)
Bón 09 bílaþvottast., Bíldshöfða 8, R." 190031 900 Bónog bilaþvottast., Bildshöföa 8, R.11 190031 900
Bón og þvottur, Tryggvagötu 32, R.2‘ 1800 1500 Bón og þvottur, Tryggvagötu 32, R.21 2600 1500
Bónstöð Magnúsar, Helluhrauni 20, Hf. 1800 1600 Bónstöð Magnúsar, Helluhrauni 20, Hf. 2000 1600
Bónstöðin, Langholtsvegi 109, R. 2000 1100 Bónstöðin, Langholtsvegi 109, R. 2500 1100
Bónstöð Shell, Skógarhlið, R. 1700 750 Bónstöð Shell, Skógarhlið, R. 2000 750
Bónstöðin, Umferðarmiðstöðinni, R. 1700 900 Bónstöðin, Umferðarmiðstöðinni. R. 2200 900
Höföabón, Höföatúni 4, R. 1800 1000 Höfðabón, Höfðatúni4, R. 2600 1000
Ryövarnarskálinn, Sigtúni 5, R. 1900 400 Ryðvarnarskálinn, Sigtúni 5, R. 2250 500
Meðalstórir fólksbilar (t.d. Mazda 323 og Toyota Corolla) Bón og bílaþvottast., Bíldshöfða 8, R.1’ 190031 900 Stórir jeppar (t.d. Toyota Landcruiser og Mitsubishi Pajero lengri gerð)
Bón og þvottur, Tryggvagötu 32, R.21 1900 1500 Bón og bilaþvottast., Bíldshöfða 8, R.1’ 250041 900
Bónstöð Magnúsar, Helluhrauni 20, Hf. 1800 1600 Bón og þvottur, Tryggvagötu 32, R.21 3300 1500
Bónstöðin, Langholtsvegi 109, R. 2200 1100 Bónstöð Magnúsar, Helluhrauni 20, Hf. 3000 1600
Bónstöð Shell, Skógarhlið, R. 1800 750 Bónstöðin, Langholtsvegi 109, R. 3000 1100
Bónstöðin, Umferðarmiðstöðinni, R. 1800 900 Bónstöð Shell, Skógarhlíð, R. 3000 850
Höfðabón, Höfðatúni 4, R. 1800 1000 Bónstöðin, Umferðarmiðstöðinni, R. 3400 900
Ryðvarnarskálinn, Sigtúni 5, R. 1900 400 Höfðabón, Höfðatúni 4, R. 3400 1000
Stórir fólksbilar (t.d. Mercedes Benz 190, Volvo 240 og BMW 520) Ryðvarnarskálinn, Sigtúni 5, R. 2700 600
Athugasemdir: " Fastir viðskiptavinir. félagsmenn í ýmsum starfsmannafélogum.
Bón og bílaþvottast., Bíldshöfða 8. R.n 190031 900
Bón og þvottur, Tryggvagötu 32. R.21 2100 1500 21 Fastir viðskiptavinir fá 10% afslátt.
Bónstöð Magnúsar, Helluhrauni 20, Hf. 2000 1600 þjónusta þá 1200 kr. 41 Einnig er hægt að fá vélþvott með bóni i vatninu og kostar þessi
Bónstöðin, Langholtsvegi 109. R. 2500 1100
Bónstöð Shell, Skógarhlíö, R. 1900 750 þjónusta þá 1500 kr.
Bónstöðin, Umferðarmiðstöðinni. R. 2200 900
Höfðabón. Höfðatúni 4, R. 2000 1000
Ryövarnarskálinn, Sigtúni 5, R. 2500 600
Fisksölur erlendis vikuna 10.-14 október:
Rúm 1642 tonn seld
í síðustu viku voru á Bretlands- og
Þýskalandsmarkaði seld rétt rúm-
lega 1642 tonn af fiski, þar af voru
seld úr gámum tæplega 743 tonn í
Bretlandi.
Fjórir bátar lönduðu í Hull. Það
voru Náttfari HF 185 (63 tonn),
Erlingur SF 65 (41 tonn), Sandgerð-
ingur GK 268 (28 tonn) og Júlíus
Geirmundsson IS 270 (211 tonn), en
Sigurey B A 25 landaði í Grimsby (86
tonn).
Meðalverð á afla þessara fimm
báta var 83 krónur. Hæsta meðal-
verð fékk Sigurey BA, 98,17 kr. á
kílóið, en lakasta meðalverð á kíló
fékk Sandgerðingur GK, 50,34 kr.
Fyrir 220,3 tonn af þorski fékkst
99,24 kr. meðalverð á kíló, fyrir
139,5 tonn af ýsu fengust 85,99 kr. á
kíló, fyrir 9,9 tonn af ufsa fengust að
Norrænu tækniverölaunin:
Finni fær
verðlaunin
Norrænu tækniverðlaunin komu í
hlut Finnans Pertti Törmálá, próf-
essors við tækniháskólann í Tamm-
erfors, en hann hefur þróað efni sem
notað er við að skeyta og negla
saman brotin bein í fólki.
Efni þessi eru líffræðilega leysan-
leg polymerefni og hefur hann fund-
ið upp og þróað aðferðir til að
framieiða þau og búa þau þeim
eiginleikum að þau mýkjast smám
saman upp í vefjunum og leysast
síðan alveg upp og hverfa að lokum.
Þessi efni Finnans eru jafn hörð
og sterk og stálnaglarnir í fyrstunni
en mýkjast síðan upp eftir því sem
brotið grær saman og þeirra gerist
minni þörf.
Notkun þeirra hefur breiðst út um
alla Evrópu síðustu tvö árin og þau
hafa valdið byltingu í beinaaðgerð-
um.
Tvö íslensk rannsóknaverkefni
voru tilnefnd til Norrænu tækniverð-
launanna; „Hitasaga og eiginleikar
kísiljárns" og „Sjálfvirkni og vinnu-
hagræðing í frystihúsum". -sá
meðaltali 47,31 kr. á kíló, fyrir 11,7
tonn af karfa voru greiddar 43,60
krónur, fyrir 13,4 tonn af kola 71,16,
fyrir 7,6 tonn af grálúðu 100,19
krónur og fyrir 28,3 tonn af blönduð-
um afla fengust 65,68 kr. á kílóið.
Heildarsöluverð aflans voru rúmar
38 milljónir króna.
f síðastliðinni viku voru seld 742,6
tonn af gámafiski á Bretlandsmark-
aði, að heildarverðmæti um 67 millj-
ónir króna. Þorskurinn vó þar þyngst
sem fyrr eða 255,2 kg og fékkst
101,83 kr. fyrir kílóið, um 5 krónum
meira en í vikunni á undan. 299,9
kíló voru af ýsu og fengust 84,11 kr.
fyrir kílóið. 12,3 tonn voru seld af
ufsa og fengust 63,47 kr. pr.kg. 7,9
tonn voru seld úr gámum af karfa og
fengust 59,59 kr. pr.kg. Af kola voru
seld 105 tonn úr gámum og fengust
81,39 krónur fyrir kílóið. Seld voru
335 kíló af grálúðu fyrir 76,48 kr.
meðalverð og 61,1 tonn af blönduð-
um afla var selt úr gámum og var
meðalverðið 100,71 kr. pr.kg.
Fjórir bátar lönduðu í Þýskalands-
höfnum, (Cuxhaven og Bremer-
haven) 469 tonnum í síðustu viku.
Söluverð aflans var 33,5 milljónir
króna. Haukur GK seldi 150 tonn og
fékk 82,04 kr. meðalverð, Skafti SK
3 seldi 129,4 tonn, meðalverð 82,33
kr. Hamrasvanur SH 201 seldi 87
tonn, meðalverð 34,83 krónur og
ÓlafurBekkurOF2seldi 291,1 tonn
og fékk 73,36 kr. meðalverð fyrir
aflann.
Karfi var aðaluppistaða 313,1
tonns afla sem seldist á Þýskalands-
markaði á meðalverði 81,37 kr. Af
þorski seldust 15,9 tonn, meðalverð
81,82 kr., af ýsu 3,2 tonn, meðalverð
85,68 kr., af ufsa 92,2 tonn, meðal-
verð 53,48 kr., af grálúðu 5,4 tonn,
meðalverð 86,92 kr. og af blönduð-
um afla 38,9 tonn, meðalverð 26,93
kr. -ABÓ
Félag sauðfjárbænda í Árnessýslu:
Innleggið komi
fyrir 20. nóv.
Stjórn Félags sauðfjárbænda í
Árnessýslu vill vekja athygli sauð-
fjárbænda og annarra sem sauð-
fjárhaldið snertir á einhvern hátt á
nokkrum atriðum:
„1. í haust eru ckki líkur á að
neitt verði greitt fyrir innlegg kind-
akjöts umfram fullvirðisrétt. Nú
mun ríkissjóður greiða fyrir ónot-
aðan rétt og kemur hann því ekki
öðrum að notum eins og var á
síðasta hausti.
Ekki er þó fyrir að synja að
einhverjir sem eiga rétt umfram
eigin framleiðslu vilji kaupa slátur-
fé af þeim sem eiga meiri fram-
leiðslu en fullvirðisrétt.
2. Nú er í reglugerð um kjötmat
ákvæði þess efnis að allir hrútar -
einnig lambhrútar - skuli felldir í
flokki eftir októberlok. Það er því
ástæða til að hvetja bændur og
aðra sem umráð hafa yfir landi, til
aða sameinast við að smala vel
fyrir lok sláturtíðar.
Einnig er líklegt að vandkvæð-
um verði bundið að fá innlegg eftir
20. nóvember inn á fullvirðisrétt
þessa árs.
Því er afleitt ef fé er ekki komið
til skila fyrr en um og eftir miðjan
nóvember.
3. Sem fyrr hvetjum við alla sem
meðhöndla sláturfé og sláturafurð-
ir að gæta þess að spilla aldrei
afurðum með ógætilegri meðferð.
Nú er nýmæli í reglugerð um mat
á sláturafurðum o.fl. að þeir sem
flytja sláturfé eiga að neita að taka
óhreint fé.“
Earl N. Powell, gestur ráðstefnunn-
ar.
Félag áhugamanna
um hönnun:
Ráðstefna
um hönnun
Á laugardaginn gengst Félag
áhugamanna um hönnun fyrir vinnu-
ráðstefnu um stöðu og horfur í
hönnunarmálum. Markmið ráð-
stefnunnar er að fá fram sem skýr-
asta mynd af stöðu hönnunarmála
hérlendis og hver þróun þessara
mála verður. Einnig verður leitast
við að fá fram tillögur um aðgerðir,
frá hönnuðum, fyrirtækjum, sam-
tökum og opinberum aðilum.
f fréttatilkynningu frá félaginu
segir meðal annars, að mikilvægi
hönnunar hafi aukist verulega á
undanförnum árum og áratug. Þetta
komi skýrast fram í því að fjöldi
starfandi hönnuða er mun meiri nú.
Fjöldi arkitekta, grafískra hönnuða,
innréttinga- og húsgagnaarkitekta
og fatahönnuða hefur margfaldast.
Vegna samdráttar sé mikilvægt að
meta stöðu hönnunar og hvernig
hún verði þáttur í þeirri nauðsynlegu
nýsköpun sem verður að eiga sér
stað á næstu árum.
Gestur ráðstefnunnar verður Earl
N. Powell forstjóri Design Manage-
ment Institute. Auk Powells munu
innlendir fyrirlesarar fjalla um hönn-
un hérlendis.
Ráðstefnan verður haldin í Borg-
artúni 6 og hefst kl. 13.00. ssh