Tíminn - 20.10.1988, Side 7
Fimmtudágúr' 20. oktöbér T988
Tíminn 7
Margir toppmenn sem missa stöður sínar eiga erfitt með að fá ný sambærileg störf:
Fyrrverandi forstjórar
með hendurnar í vösum
Margt stjórnenda í fyrirtækjum hafa misst störf sín
undanfarið af ýmsum orsökum. Mörg fyrirtæki hafa verið
endurskipulögð, önnur hafa hreinlega farið á hausinn.
Hvað verður um menn sem unnið hafa í háum stöðum hjá
fyrirtækjum, ýmist sem framkvæmdastjórar eða annars
konar stjórnendur? Gengur þeim verr en öðrum að fá sér nýja
vinnu svipaða þeirri sem þeir höfðu og verða þeir að taka
niður fyrir sig í atvinnulegu tilliti eða svelta ella?
Tíminn spurðist fyrir hjá nokkrum
atvinnumiðlunum um þessa hluti:
„Já, það verður að segjast að
þessum mönnum gengur ekki vel að
útvega sér nýja sambærilega vinnu.
Annað væri skrök," sagði Brynjólfur
Jónsson hjá Frum.
„Það er samdráttur í þjóðfélaginu
núna og afleiðingar hans eru að
atvinnurekendur draga saman
seglin. Þegar fyrirtæki reyna að
lækka reksturskostnað sinn þá byrja
þau gjarnan á að losa sig við sem
flesta af dýrustu mönnunum.
Þessa dagana er lítil nýliðun og
samdráttur í atvinnulífinu. Það hef-
ur leitt til þess að menn, sem verið
hafa framkvæmdastjórar eða stjórn-
endur hjá fyrirtækjum, hafa misst
vinnuna af einhverjum ástæðum sem
alls ekki þurfa að vera af þeirra eigin
völdum.
Nú þegar slíkt hefur gerst þá er
miklu minna í að grípa - miklu
minni vinnu að hafa en vant hefur
verið.
Menn bregðast
misjafnlega við
Maður verður áþreifanlega var
við það þessa dagana að fram-
kvæmdastjórar, deildarstjórar og
slíkir menn lenda í vandræðum og
missa vinnuna," sagði Brynjólfur
Jónsson ennfremur.
Brynjólfur sagði að þessir menn
sæju þó gjarnan fram á slíkar breyt-
ingar á högum fyrirtækjanna sem
þeir vinna hjá og sínum eigin högum
jafnframt, með talsverðum fyrir-
vara.
Þeir tækju gjarnan að sér einhvers
konar verkefni til bráðabirgða en
auðvitað brygðust menn misjafnlega
við og dæmi væru til að menn
söðluðu gersamlega um.
Hann sagðist hafa grun um að
menn leituðu út fyrir landsteinana
eftir vinnu og eins að fólk sem verið
hefur í langskólanámi eigi erfiðara
með að fá störf við hæfi að námi
loknu.
Tíminn spurði Brynjólf hvort fólk
Ieitaði minna eftir því að skipta um
störf eftir að hin svarta skýrsla
Þjóðhagsstofnunar um atvinnumál
og atvinnuhorfur kom út nú fyrir
skömmu.
Brynjólfur sagðist ekki geta merkt
það enda hefði skýrslan í raun ekki
greint frá öðru en því sem menn
almennt þegar vissu.
Liðsauki lítið
með forstjórana
„Ég man ekki eftir því að við
séum með nokkurn slíkan á skrá
sem nýverið hefur lent í því að missa
vinnuna vegna gjaldþrots eða ein-
hvers konar endurskipulagningar,"
sagði Oddrún Kristjánsdóttir hjá
Liðsauka.
Oddrún sagði að hingað til hefði
ekki verið neinum sérstökum vand-
kvæðum bundið að útvega störf
mönnum sem misst hefðu góðar
stöður vegna endurskipulagningar
hjá fyrirtækjum eða vegna þess að
þau hefðu rúllað yfirum.
Hún sagði þó að lítið hefði verið
um að stjórnendur slíkra fyrirtækja
hefðu komið í atvinnuleit til Liðs-
auka.
Oddrún sagði að yfirleitt hefðu
september og október verið anna-
sömustu mánuðir ársins fyrir Liðs-
auka þau sex ár sem skrifstofan
hefur starfað en nú brygði svo við að
sáralítil hreyfing væri á manna-
ráðningum og greinilegt að fyrirtæki
héldu að sér höndum í þeim efnum.
Hún sagði að greinilegt væri að nú
væri fólk ekki að leita sér að vinnu
bara til að breyta til. Þeir sem væru
tiltölulega ánægðir í sinni vinnu sætu
sem fastast og hugsuðu sér ekki til
hreyfings.
Hins vegar væru gjaldþrot fyrir-
tækja tíð um þessar mundir og
samdráttur hjá öðrum. Fjöldi þeirra
sem leita sér að vinnu færi því
vaxandi og greinilegt að atvinnurek-
endur héldu að sér höndum.
Menn yfir miðjum aldri
eiga erfitt með að fá starf
Nanna Kristiansen hjá Ábendi
sagði að atvinnulífið hefði breyst
töiuvert undanfarið ár. Talsvert væri
um að menn sem verið hafa í
yfirmannastöðum hjá fyrirtækjum
og menn sem rekið hafa eigin fyrir-
tæki hafi leitað til Ábendis um
aðstoð við leit að nýju starfi.
Þeir hafi komið vegna þess að þeir
hafi átt erfitt með að finna sér starf
og sagði hún að þessir menn leituðu
eftir störfum sambærilegum þeim
sem þeir gegndu áður, a.m.k. í
fyrstunni, en nú væri miklu erfiðara
að fá gott starf heldur en var á sama
tíma í fyrra.
Það væri oft og tíðum dapurlegt
að þessir menn væru títt komnir yfir
miðjan aldur og þá væri miklu erfið-
ara að fá vinnu, en helst væri leitað
eftir fólki um þrítugt í stjórnunar-
stöður. Sá aldurshópur væri búinn
að afla sér reynslu en ekki talinn
orðinn forpokaður.
Fáar góðar stöður lausar
„Þá var barist um gott starfsfólk
og góð laun boðin slíku fólki. Þá
langaði mig oft til að taka gott fólk
og geyma það hjá mér inni í skáp,
svo eftirsótt var það.
í dag finnst mér ég allt of oft þurfa
að segja við mjög gott fólk: „Því
miður, ekkert að hafa“. Slíkt fólk
segir mér oft að það sé búið að fara
á allar ráðningarstofur og fylgjast
með atvinnuauglýsingum en ekkert
sé að hafa og það á bágt með að trúa
þessu.
í dag var ég að tala við stúlku sem
var skrifstofustjóri í stóru fyrirtæki
sem farið eryfirum. Hún er mjögfær
en þrátt fyrir það er hún búin að vera
lengi á skrá hjá öllum ráðningarstof-
um. Hún var að ráða sig hjá ríkinu
fyrir skömmu og taldi sig heppna,
þrátt fyrir að launin séu rýrari en
hún áður hafði“.
- En gekk henni illa að fínna sér
annað starf vegna þess að hún vann
áður hjá fyrirtæki sem fór á hausinn?
„Nei, það tel ég ekki. Ég hefði
verið látin vita hefði svo verið“,
sagði Nanna Kristiansen.
Hún sagði ennfremur að hún hefði
nokkuð orðið vör við að fólk sem
lokið hefði námi erlendis hefði kom-
ið og athugað atvinnumöguleika hér
á landi en farið síðan utan aftur
vegna þess að ekkert starf við þess
hæfi var fáanlegt hérlendis. -sá