Tíminn - 27.10.1988, Síða 7
Fimmtudagur 27. október 1988
Tíminn 7
Loðnuveiðar glæðast:
Vantar fleiri
báta á miðin
Góð loðnuveiði hefur verið frá
því um helgi og vantar nú aðeins að
fleiri bátar fari á veiðar, að sögn
Ástráðar Ingvarssonar hjá loðnu-
nefnd. Á mánudag voru tíu bátar
með um 8500 tonn og er það mesta
veiði á einum sólarhring á vertíðinni
til þessa. Ástráður var vongóður um
framhaldið.
Skipin voru að veiðum út undir
miðlínu, norður af Húnaflóa. Tveir
bátar vor á miðunum í gær, Björg
Jónsdóttir PH og Helga II RE, en
hin skipin voru ýmist að landa eða á
leið á miðin, en alls hafa 25 bátar
hafið veiðar. Von er á fleiri bátum á
miðin á næstu dögum.
Á þriðjudag voru sjö bátar með
um 5730 tonn og í gær voru sjö bátar
með um 3040 tonn á hádegi. Búið
var að veiða 41.950 tonn samtals það
sem af er vertíðinni, á hádegi í gær.
- ABÓ
Börkur NK122 landaði 1143 tonnum
af loðnu á Neskaupstað á þriðjudag.
Tímamynd Vilhj. Guðm.
Bækur um siðvenjur, landmótun og litaval:
Jólabækur Hörpuútgáfu
Hörpuútgáfan á Akranesi gefur út
níu bækur nú í haust. Stóru stundirn-
ar er handbók um siði og venjur á
merkum tímamótum sem Hermann
Ragnar Stefánsson hefur samið og
fjallar um ýmislegt sem máli skiptir
hjá fólki varðandi atburði eins og
fæðingu, skírn, fermingu, trúlofun,
giftingu, áfangapróf, gestaboð, af-
mæli og útfarir. Fjöldi mynda er í
bókinni eftir Jóhannes Long ljós-
myndara.
Landmótun og byggð í fimmtíu ár
flytur 50 valdar loftmyndir sem sýna
fjölbreytta náttúru og staðhætti víðs
vegar á landinu og ýmsar breytingar
sem orðið hafa þar á síðustu 50 árin.
Texti bókarinnar, sem gefin er út í
samstarfi við Landmælingar íslands,
er bæði á íslensku og ensku, en
höfundar eru landfræðingarnir í>or-
valdur Bragason og Magnús Guð-
mundsson.
Pá kemur út annað bindi af sjó-
mannabókinni Aflakóngar og at-
hafnamenn, en það er viðtalsbók
Hjartar Gíslasonar blaðamanns við
sex landsþekkta aflamenn. Einnig
kemur út annað bindi af Lífsreynslu,
safnriti sem Bragi Þórðarson tekur
saman og flytur frásagnir af eftir-
minnilegri og sérstæðri reynslu fólks
víðs vegar af landinu.
Einnig kemur út bókin Litirnir
þínir, leiðbeiningar um litgreiningu.
Þetta er íslensk þýðing bókarinnar
„Color me beautiful" sem hefurselst
í milljónum eintaka víða um heim
og hefur m.a. verið notuð á nám-
skeiðum hér á landi. Það er Unnur
Arngrímsdóttir sem hefur haft um-
sjón með íslensku útgáfunni, en
bókin gefur hagnýt ráð um litaval á
fötum og farða, og er hægt að spara
sér umtalsverðar fjárhæðir í fata-
kaupum með því að tileinka sér þær
leiðir sem bent er á í bókinni.
Þar að auki eru væntanlegar frá
Hörpuútgáfunni í haust fjórar þýdd-
ar bækur. Þær eru eftir Jack Higgins,
Duncan Kyle, Bodil Forsberg og
Erling Poulsen.
Fyrr á þessu ári gaf Hörpuútgáfan
svo út að nýju tvær bækur. Önnur er
Lilja Eysteins Ásgrímssonar í útgáfu
Gunnars Finnbogasonar cand. mag.
Lilja var fyrst prentuð á Hólum árið
1612 í Vísnabók Guðbrandar
biskups. Hin er Ljóðaþýðingar
Yngva Jóhannessonar. í þeirri bók
eru Ijóð margra þekktra skálda og
andans manna, og fylgja frumkvæð-
in með þýðingum þeirra í þessari
útgáfu. -esig
Blikkandi umferðarmerki
Þessi óbeina hraðahindrun var sett upp nýlega við Rauðavatn.
Skiltið sendir frá sér radargeisla og nemur með þeim hraða bíla sem aka í mót því. Aki bílarnir hraðar en sextíu
þá blikkar Ijós á merkinu og gefur mönnum til kynna að þeir skuli slá af ferðinni og halda sig á réttum hraða.
Tímamynd Gunnar.
Athugasemd frá íþróttafulltrúa
Vegna furðurlegrar og villandi
blaðagreinar í Tímanum í dag (25.
okt.) finn ég mig neyddan til þess að
skrifa ykkur bréf og rifja upp aðdrag-
andann að byggingu íþróttavallar í
Engihlíðarhreppi.
Þegar ég kom norður til ykkar og
hitti Valdimar Guðmannsson bónda
í Bakkakoti að máli varðandi hugs-
anlega vallargerð, þá sýndi hann
mér það svæði sem líklegast væri til
þessara framkvæmda. 1 minnis-
punktum mínum frá þessum tíma
voru ráðleggingar mínar í stórum
dráttum þessar:
1. Vallarsvæðið er greinilega
mjög gott til grasvallargerðar.
2. íbúar hreppsins eru tæplega
100 og verður því að gæta þess i
hvívetna að dugmiklir hugsjóna-
menn reisi sér ekki hurðarás um
öxl.
3. Umræður um hlaupabraut hef
ég skráð þannig:
a. Hlaupabraut hér verður kostn-
aðarsöm vegna flutninga efnis og
hugsanlegrar blöndunar yfirlags.
b. Mjög stutt er á Blönduós (3-4
km) þar sem hlaupabraut er við
íþróttavölllnn.
c. Æfa má hlaup á grasvellinum
og jafnvel keppa.
d. Hlaupabraut vlð aðra langhlið-
ina 110-120 m myndi leysa úr
óskum margra.
e. Ef ekki nást sættir um fyrr-
greind atriði heima fyrir mætti
hugsanlega huga að 370 metra
hlaupabraut þó slíkar brautir séu
ekki lengur vinsælar. Slík braut
yrði mun ódýrari en 400 m braut
og hún er þó lögleg til keppni,
samkvæmt staðfestingu for-
manns laganefndar FRÍ.
Þar sem landleysi er eða mikið
fámenni, er ekki óeðlilegt að
slíkra kosta sé leitað.
f. Til þess að spara mikinn hönn-
unarkostnað mætti hugsanlega
leita til fagmanna heima fyrir og
skoða leiðbeiningarrit íþrótta-
nefndar um gerð íþróttavalla.
í þessum bæklingi eru tværteikn-
ingar, önnur fyrir íþróttavöll með
370 metra hlaupabraut og hin
með 400 metra braut.
í þeim gögnum sem ég sendi
norður skrifaði ég á teikninguna
(sem greinilega var merkt „íþrótta-
leikvangur, knattspyrnuvöllur
62x100 - hlaupabraut 370 m 4 braut-
hyT~„Þessa^teikningu gætuð þið
notað.“
Á seinpi stigum kom í ljós að
Valdimar "hafði vænst þess að geta
komið fyrir 400 metra hlaupabraut á
Ungmennafélagiö Vorboöinn hefur í tvíganc
ayggt eftir röngum teikningum frá íþróttafulltrú;
GERA ÞRIÐJl
TILRAUN VIG
ÍÞRÓTTAVÖLL
Vorboðúui, Utiö uafmeonafcUg
A-llaoatitnuydu hcfur orðtð
niMaka iproltaruUtnra nktuas.
'éUfið hcfur á uotUfónwm fjór-
im ámra tUÖiA i MórframkTKmd-
ua vli fcrð (þróttavaliar Of i
vifa«{ á þrna tuna fengið rupr
eikningar frá embarlti iþróttafull-
rúa. Tabmenn Vorboðau hafa
m farlð fram á að aflnr ankakoctn-
iður vrgna þestnra mbtaka verði
ireiddnr nr íþróttaijóði.
Vcllinum var valinn slaður (
andi Bakkakots f Engihlfðar-
ircppi og jafnaður þar út hallandi
nclur og þakinn. Er farið var að
tuela út fyrir hlaupabrautum kom
Ijós að hlaupahringurinn scm
era átti 400 metrar var einungis
70 metrar. Við nánari athugun
arð Ijóat að um ranga teikningu
ar aö rrða og fengu þá Vorboða-
tenn nýja teikningu sem gcrði ráð
yrir tuttugu metra lengingu á vell-
tum. Nú var ráðist I lcngingu
allarins samkvrmt nýju teikning-
nni. Er þvf verki var lokið vont
tenn ckki enn ánxgðir þvl beygjur
iaupabraularinnar rcyndust anú
rappar og þegar betur var að gáð
pplýstist að seinni teikningin frá
elt og átti að vcra kominn ú
umferð fyrir tveimur árum.
Borgar íþróttasj&áur?
Vorboðamenn hafa þcgar lenj
völlinn og er nú unnið að breikku
hans Ifka. Þ*r breytingar eru þ
töluvcrt mil og er áctlaður kostr
aður þcirra á bilinu 300-40
þúsund, en flytja þarf til jarðve
svo og brjóta upp og fjarbegj
sökkul fyrir geymsluskúr. Þá e
einnig Ifklegt að brjóta þurfi up.
kaslhring scm stcyptur hafði veii
utan við völlinn en lendir sennileg
inn (hlaupabrautinni við breikkun
ina.
„Við crum virkilega svekktír yfi
þcssu” scgir Valdimar Gunnarssoi
formaður Umf. Vorboðans, „*tl
unin var að taka vðllinn I notkun
haust en nú er Ijóst að af þvl getu
ckki orðið. En við hðldum áfran
hvað sem á gengur og stefnum al
því aö klára n*sta vor“. Kostnaðu
við vðllinn stendur nú f um tveimu
miljónum og þar af er lcp milljór
bein fjánítlát, en afgangurinn unn
ið f íjálfboðaliðavinnu. „Ég trú
ekki öðru en að (þróttasjóður kom
á móts við okkur og greiði auka
kosuð vegna þessara mistaka"
þessu svæði. Fékk hann þá í hendur
teikningu af íþróttaleikvangi með
400 metra hlaupabraut. 1 henni eru
ritvillur varðandi heildarbreidd
svæðisins, en allar tölur og línur er
varða úttekt á hlaupabrautinni sjálfri
eru réttar.
Að dómi höfundar hefði því ekki
átt að þurfa að koma til mistaka
vegna úttektar á hlaupabrautinni.
Með þessum skýringum vil ég á
vinsamlegan hátt skýra frá þcim
staðreyndum að milli mín og Valdi-
mars hefur frá upphafi ríkt nokkur
misskiiningur varðandi gerð
hlaupabrautar við þennan umrædda
völl. Taldi ég að verið væri að vinna
að 370 m hlaupabraut, en Valdimar
hefur greinilega haft 400 m braut í
huga.
Eg réði honum frá því í fyrstu að
ráðast í gerð hlaupabrautar, en hann
hóf þessa framkvæmd síðar án minn-
ar vitundar, eða eins og hann sagði
„það var svo mikill áhugi að við
byrjuðum bara“.
Eg vildi þá reyna að aðstoða hann
og Iþróttanefnd ríkisins samþykkti
að mæla með stuðningi við gerð
íþróttavallarins þrátt fyrir nálægðina
við Blönduós. Var það gert með því
fororði að leitað yrði allra ráð til
þess að gæta aðhalds í kostnaði.
Að mínu mati var í þessu máli
gengið eins langt til móts við óskir
heimamanna og nokkur var kostur.
Að framansögðu finnst mér mál-
flutningur formanns Ungmennafé-
lagsins Vorboðinn koma okkur í
opna skjöldu og að okkur vegið á
ódrengilegan hátt, þar sem við höf-
uni bæði samþykkt að veita þessunt
framkvæmdum stuðning og viljað
aðstoða hann eftir þvf sem kostur
hefur verið.
Þá get ég ekki skilið hvaða tilgangi
það þjónar að birta órökstudd gífur-
yrði í fjölmiðlum sem einungis eru
til þess fallin að skaða málstað
íþrótta- og æskulýðsfélaga og upp-
byggingu íþróttamannavirkja í land-
inu.
Vil ég að lokum vekja athygli á
ráðleggingum Birgis Guðjónssonar,
formanns laganefndar Frjálsíþrótta-
sambands Islands, sem fenginn var
til þess að líta á þessi mál ykkar.
Get ég ekki betur séð en ábend-
ingar hans séu að verulegu leyti í
sama anda og fyrstu viðbrögð mín
voru við spurningunni um hlaupa-
braut við völlinn í Engihlíðarhreppi.
Það er von mín að ykkur takist að
ljúka gerð íþróttavallarins og leysa
ykkar mál á farsælan hátt. Ég vonast
einnig eftir að geta haft gott samstarf
við Ungmennafélagið Vorboðann og
íbúa Engihlíðarhrepps í framtíðinni.
Með íþróttakveðju.
Reynir G. Karlsson.