Tíminn - 12.11.1988, Page 5
Laugardagur 12. nóvember 1988
Tíminn 5
Stórsamningur milli Kirgisíu og Islands um sútun á gærum í augsýn
Sauðárkrókur stuðlar að framkvæmd perestrojku Gorbatsjovs:
TIMAMOTAATBURDURI
SOVÉTVIÐSKIPTUM?
„Hvað okkur íslendinga varðar
þá er um að ræða útflutning á
hugviti og fullvinnsla skinna. Það
merkilega við þessar viðræður eða
samningaumleitanir er, að takist
samníngar við Kirgisíumenn, þá
verður það tímamótaviðburður.
Það verður í fyrsta sinn sem eitt
lýðveldi Sovétríkjanna gerir upp á
eigin spýtur milliríkjasamning
beint við Islendinga og eftir því
sem ég best veit, eitt af fyrstu
skiptunum sem slíkur samningur
er gerður við vestrænt ríki.
öll viðskipti við Sovétmenn hafa
hingað til farið fram við sérstaka
stofnun í Moskvu sem fram undir
þetta hefur annast öll milliríkjavið-
skipti fyrir iýðveldin.
Hér er hins vegar um að ræða að
perestrojka Gorbatsjovs er farin af
stað og ríkin geta nú samið sjálf um
stn viðskipti við þá sem þau sjálf
telja best hcnta.“
Petta voru orð Þorbjamar Áma-
sonar framkvæmdastjóra Loð-
skinns á Sauðárkróki en Tímínn
ræddi við Þorbjöm um samninga-
viðræður sem hafnar eru við Kirgis-
íjumenn um sútun og vinnslu loð-
skinna.
Kirgisfa er eitt Sovétlýðveld-
anna og er í miðjum Asíuhluta
Sovétríkjanna og liggur landið að
Kína. Þar er allmikil sauðfjárrækt
og er slátrað árlega um tíu milljón-
um fjár en aðeins lítið brot þeirra
gæra er til faUa eru nýttar. Mestum
hluta þeirra er hent.
Að frumkvæði Búnaðarbanka
íslands hófust fyrir nokkru viðræð-
ur milli íslendinga og Kirgisíu-
manna um að nýta gærurnar betur
og var haldinn fundur á íslandi
með m.a. fjármálaráðherra lýð-
veldisins, fulltrúa Búnaðarbank-
ans, fulltrúum Loðskinns ásamt
fleiri aðilum.
Á fundinum kom fram eindreg-
inn vilji allra, sem fundinn sátu, að
leita allra leiða sem orðið gætu til
að af samvinnu yrði og sagði Por-
björn að fulltrúarnir frá Kirgisfu
hefðu haldið heim á leið í gær þar
sem þcir munu gera nákvæmar
áætlanir og síðan er ætlunin að
taka eins fljótt o'g verða má upp
viðræður á grundvelli áætlana
þeirra.
Þorbjörn sagði að gera mætti ráð
fyrir að þær viðræður hæfust fljót-
lega og mætti vænta þess að niður-
stöður lægju að mestu fyrir eftir
þrjár til fjórar vikur.
Þorbjörn sagði að ef af samning-
um yrði þá mætti líta á það sem
heimssögulegan viðburð þar sem
það yrði í eitt af fyrstu skiptunum
sem sovétlýðveldi gerir sjálfstæðan
milliríkjasamning um viðskipti við
vestrænt rfki.
Tíminn ræddi við Heimi Hann-
esson hjá Búnaðarbankanum en
viðræðumar mili Islendinga og
Kirgisíumanna hófust að frurn-
kvæði bankans. Heímir sagði að
fundurinn hefði verið mjög vin-
samlegur og fullur vilji til að halda
viðræðum áfram.
Þá hefur Tíminn fregnað að
Norræni fjárfestmgarbankinn hafi
heimilað allt að 250 milljón dollara
lán til þessa verkefnis og sé ætlast
til að fénu verði varið til fjárfest-
inga í tækjum og búnaði frá Finn-
landi en tæknilegri þ.ekkingu frá
íslandi og verði verkefnið undir
tæknilegri stjóm Islendinga.
Verslunarfulltrúi Sovétríkjanna,
Alexei, sagði þessar viðræður
tengjast þeim breytingum sem
urðu í stjóm Sovétríkjanna árið
1986 en fram til þess tíma annaðist
sérstök stofnun í Moskvu öll milli-
ríkjaviðskipti fyrir öll ríki Sovét-
ríkjanna.
Árið 1986 voru sett á stofn
sérstök fyrirtæki í hverju hinna
fimmtán lýðvelda Sovétríkjanna
til að annast utanríkisviðskipti
landanna og eru þau nú óðum að
taka þau í eigin hendur.
Alexei sagði að viðræður Kirgis-
, íumanna heföu verið könnunarvið-
ræður og vænta mætti framhald-
sviðræðna innan skamms. - sa
Þrjú innbrot
Þrjú innbrot voru framin í
Reykjavík aðfaranótt föstudags
og er ekki ólíklegt að í tveim
tilfellum að minnsta kosti hafi
sömu menn verið að verki.
Brotist var inn í bílaleiguna
Geysi og þaðan stolið peninga-
skáp með ýmsum verðmætum í,
s.s. skjölum, tékkheftum, víxlum
og skuldabréfum. Skápurinn er
a.m.k. 100 kíló að þyngd og því
vel tveggja manna tak. Þá var
einnig stolið bifreið frá bílaleig-
unni, hvítri Toyota Corolla bif-
reið, með skráningarnúmerið
R-3512.
Veitingahúsið Naustið á Vest-
urgötu varð einnig fyrir barðinu
á innbrotsþjófum aðfaranótt
föstudags, en þaðan var stolið
áfengi og einhverju af peningum.
Þá var einnig brotist inn í hár-
greiðslustofu, sem er til húsa við
hliðina á Naustinu, og þaðan
stolið einhverri skiptimynt.
Bílvelta
Bíll valt á Hellisheiði skammt
frá skýli Slysavarnafélagsins á
öðrum tímanum í gærdag. Kona,
sem var ökumaður skarst á and-
liti, ogvarfluttásjúkrahús,en 11
ára gömul stelpa, sem sat í aftur-
sæti, slapp ómeidd. - ABÓ
Sjávarútvegsráðherra segir að þvingunaraðgerðir hljóti að hafa neikvæð áhrif á samskipti aðila:
LÍTT HRIFINN AF
BEITINGU HÓTANA
„Þessi ákvörðun er nú frekar
óljós, en það virðist vera að þeir hafi
hugsað sér að hætta tímabundið að
kaupa af íslenskum fyrirtækjum,“
sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, aðspurður um fregnir
þess efnis að þýska fyrirtækið Nord-
see hafi ákveðið að hætta að kaupa
frystan fisk frá íslandi, vegna and-
stöðu viðskiptavina fyrirtækisins við
hvalveiðar fslendinga.
Halldór sagði að Þjóðverjarnir
ætluðu hins vegar að standa við þá
samninga sem þeir hafi gert og
kaupa jafnframt ferskan fisk frá
íslandi vegna mikilvægis þess mark-
aðar fyrir Þjóðverja. „Það sem við
munum gera er að athuga þetta mál
allra næstu daga og fá nánari upplýs-
ingar um hvað hér er á ferðinni,"
sagði sjávarútvegsráðherra.
Kemur til greina að neita þeim um
ferskan fisk?
„Ég er andvígur því að beita
hótunum í samskiptum landa. Hitt
er svo annað mál að þegar fyrirtæki
sem þetta, sem við höfum átt mjög
vinsamleg samskipti við, beitir okk-
ur þvingunaraðgerðum, þá hlýtur
það að hafa neikvæð áhrif á sam-
skipti aðila. Því er nauðsynlegt að fá
sem gleggstar upplýsingar um það
hvað hér er á ferðinni, áður en
frekar er aðhafst í þessu máli,“ sagði
Halldór. Hann sagði það liggja ljóst
fyrir að vegna vaxandi frystingar úti
á sjó og mikillar afkastagetu í landi,
þá hefðum við meiri möguleika en
áður til að beina viðskiptum okkar
annað. „Ég er hins vegar þeirrar
Halldór Ásgrímsson.
skoðunar að við eigum að halda
vinsamlegum samskiptum við þýsk
fyrirtæki og Þjóðverja. Til þess að
það sé mögulegt verður það að vera
gagnkvæmt. Við munum fara vel
ofaní þetta einstaka mál,“ sagði
Halldór.
Eins og Tíminn skýrði frá á
fimmtudag myndu fiskmarkaðir í
Bremerhaven og Cuxhaven skaðast
verulega ef íslendingar hættu að
flytja út ferskan fisk á þá markaði.
Um 50% af þeim fiski sem fer í gegn
um uppboðsmarkaðinn í Bremer-
haven kemur frá íslandi og um 15%
í gegn um markaðinn í Cuxhaven.
Þannig að ljóst má vera að þarna er
um rnikla og gagnkvæma hagsmuni
að ræða. - ABÓ
Ódýrar bókahillur
fyrir skrifstofur og heimili
í eik, teak, furu, beyki,
hvítar með beykiköntum og
askur svart og hvít-bæsað
HÚSGÖGN OG
INMRÉTTINGAR
. SUÐURLANDSBRAUT32
*
68 69 00