Tíminn - 25.11.1988, Page 2
2 Tímrnn
Föstudagur 25. nóvember 1988
Búseti á 5 ára afmæli - Vígsla fjölbýlis-
húss og nýjar leiðir til sparnaðar:
Félögum fjölgaði um
þriðjung á fimm mán.
Á laugardaginn verður húsnæðissamvinnufélagið Búseti,
Reykjavík, fimm ára. Á þessum tímamótum verður vígt nýtt
46 íbúða fjölbýlishús við Frostafold í Grafarvogi. Á þessu ári
og næsta er stefnt að byggingu 202 nýrra íbúða, en á síðustu
fimm mánuðum gengu um eitt þúsund manns í félagið og eru
félagsmenn orðnir tæplega þrjú þúsund.
Á þessum tímamótum kynnir fé-
lagið jafnframt s.k. „Búsetusparn-
að“ sem í raun felur í sér fjórar nýjar
sparnaðarleiðir. Markmiðið er að
opna fólki nýja leið til að fjármagna
búseturéttinn.
Að sögn Reynis Ingibjartssonar,
starfsmanns Búseta, er hið nýja
fjölbýlishús fjármagnað með þeim
hætti að félagið tók lán hjá Bygg-
ingasjóði verkamanna sem samsvar-
ar því að vera 85% af kostnaðarverð-
inu. íbúarnir greiða afganginn með
kaupum á s.k. búseturétti sem er
15% af verði íbúðanna. Lánið sem
félagið tók greiðist upp á 43 árum.
Þetta þýðir það að félagið er form-
legur eigandi, en búseturétturinn er
ótímabundinn. Húsaleiga, eða bú-
setugjald, skiptist þannig að 1/3 fer
í rekstrárkostnað hússins og 2/3 fara
í afborganir af því láni sem félagið
tók. Ef einstaklingur kýs að selja
búseturéttinn þá fær hann upphaf-
lega framlagið greitt auk vísitölu.
Reynir sagði jafnframt að þetta
kerfi grundvallaðist á því að afborg-
unin dreifðist á sem lengstan tíma og
að húsnæðið væri ódýrt í byggingu
og rekstri. Með þessum hætti verður
húsaleigan langt undir því sem gerist
á almennum markaði, og Reynir
sagðist telja að þar munaði frá 50%
allt upp í 70%.
Biðtíminn, frá því að fólk gengur
í Búseta og þar til það fær þak yfir
höfuðið, sagði Reynir að væri lág-
mark tvö ár, en úthlutun miðast við
félagsnúmer, þ.e. hve lengi fólk
hefur verið í félaginu.
Markmið nýju sparnaðarleiðanna
er m.a. að auðvelda fólki að nýta
þennan biðtíma til að safna fé fyrir
búseturéttinum.
Búseti hefur nú hafið samvinnu
við Alþýðubankann og á næsta ári
verður boðið upp á fjórar sparnaðar-
leiðir, sem eru sniðnar að mismun-
andi aðstæðum félagsmanna; aldri,
háu eða lágu félagsnúmeri eða fjár-
hagsaðstæðum. Varðandi nýju
sparnaðarleiðirnar hefur verið gef-
inn út kynningarbæklingur en upp-
lýsingar er einnig að fá í Alþýðu-
bankanum.
Almenningi gefst kostur á að
skoða hið nýja hús Búseta við
Frostafold. Húsið verður opið á
laugardag frá kl. 16:00 til 19:00 og á
sunnudagfrá kl. 13:00 til 19:00. ssh
Ein íbúðanna í hinu nýja fjölbýiishúsi Búseta í Grafarvogi.
Frostafold 20, fjölbýlishús Búseta, sem almenningi gefst kostur á að skoða
á laugardag og sunnudag.
Sigrún Magnúsdóttirborgarfulltrúi leggurfram bókun í borgarráði:
Fyrirhyggjuskortur
á tíma samdráttar?
„Það er ánægjulegt ef ég les rétt
úr svari borgarstjóra að borgaryfir-
völd hyggjast ekki draga úr félags-
legum framkvæmdum þrátt fyrir al-
mennan samdrátt í þjóðfélaginu.
Hins vegar er það forkastanlegt
að sýna ekki fyrirhyggju á slíkunt
tímum og hægja á framkvæmdum
við ráðhús og útsýnishús í Öskju-
hlíð. Geta menn haldið sama fram-
kvæmdahraða við þessi hús án þess
að taka til þess lán?“
Þetta er bókun sem Sigrún Magn-
úsdóttir borgarfulltrúi lagði fram í
tilefni af svari borgarstjóra, Davíðs
Oddssonar við fyrirspurn Alfreðs
Þorsteinssonar í borgarráði 15. nóv-
ember s.l.
Alfreð spurði annars vegar um
hvort sérstaklega væru áform uppi
hjá borginni um sparnað í rekstri og
hagræðingu og hins vegar um hvort
borgin hygðist hægja á framkvæmd-
um við ráðhús og Öskjuhiíðarhús í
Ijósi alntenns samdráttar í þjóðfélag-
inu.
I svari borgarstjóra við fyrri lið
fyrirspurnar Alfreðs kom fram að
ekki væri ætlunin að draga úr fram-
kvæmdum hjá borginni enda væri
það óheillaskref í Ijósi samdráttar í
þjóðfélaginu. Hagræðis og sparnað-
ar yrði gætt í rekstri borgarinnar hér
eftir sem hingað til.
Seinni lið fyrirspurnar Alfreðs
svaraði borgarstjóri með einu orði:
Nei. - sá
Lánasjóður ís-
lenskranámsmanna:
Nýjar reglur
væntanlegar
Menntamálaráðherra hefur
skipað vinnuhóp sem á að fjalla
um Lánasjóð íslenskra náms-
manna. Vinnuhópurinn er þannig
skipaður að í honum eiga sæti
allir fulltrúar námsmanna í stjórn
Lánasjóðsins, einn iðnnemi, auk
fjögurra fulltrúa sem skipaðir eru
af menntamálaráðherra. Vinnu-
hópurinn á að skila áliti fyrir lok
jan. 1989.
Verkefni hópsins er að fjalla
um með hvaða hætti lánareglur
verði settar er komi í stað þeirra
sem ákveðnar hafa verið af fyrr-
verandi menntamálaráðherrum.
Eitt af því sem vinnuhópnum er
ætlað að fjalla um er hvort nauð-
synlegt sé að breyta framfærslu-
viðmiðunum í úthlutun lána til
námsmanna með því að beita sér
fyrir framfærslukönnun sem fari
fram á meðal námsmanna hér
heim og erlendis.
Menntamálaráðherra ætlast til
að hópurinn geri grein fyrir tillög-
um um breytingar á lánareglum
þessa skólaárs áður en fjárlög
verða endanlega afgreidd frá Al-
þingi. - ág
Hótelstjórí Pullman hótelsins ásamt ýmsum aðilum sem hann hefur átt
samstarf við hér á landi. Karel Hilkhuyzen hótelstjóri er hér á miðri mynd,
til vinstri við Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða.
Islandshátíð
í febrúar á næsta ári verður opnuð
ný Flugleiðaskrifstofa í Luxemborg
og á sama tíma opnar einnig íslensk
ferðamálaskrifstofa.
Nýlega var staddur hér landi hót-
elstjóri Pullman hótelsins í Luxem-
borg og hefur hann tilkynnt að
dagana 15. til 26. febrúar n.k. verði
Íslandshátíð haldin á Pullman hótel-
inu. Verndari þessarar hátíðar, sem
ber heitið: „A taste of Iceland“,
verður Einar Benediktsson sendi-
í Luxemborg
herra íslands í Belgíu og Luxem-
borg. Meðan á hátíðinni stendur
verður sett upp sýning í anddyri
hótelsins, þar sem kynntar verða
ýmsar útflutningsvörur íslendinga;
einnig verður kynning á ýmsum
vinsælum ferðamannastöðum.
Að lokum má geta þess að Ferða-
málaskrifstofa Luxemborgar hefur
látið gefa út upplýsingabækling á
íslensku. ssh
Fjárglæfrar gríska auðjöfursins teygja anga
sína inn í flokk Papandreous forsætisráðherra:
Á H. Loftleiðum
undir dulnefni
Gríski aitðjöfurinn, George dóttir. móttökustjóri á Hótel Loft-
Koskotas, sem alþjóðalögreglan ieiðum, sagði í samtali viðTímann
Interpol hefur verið að grennslast að enginn hefði veitt þeint sérstaka
fyrir um undanfama daga, kom eftirtekt, enda ekki ástæða til, þar
hingað til lands þann tiunda nóv- sem mikið er um aö millilent sé á
ember sl. og dvaldi hér í rúman Rcykjavíkurflugvelli og gist á
sólarhring á lcið sinni vestur um hótelinu.
haf. Hann er grunaður um stórfelld Georg Koskotas hefur, sam-
fjársvik, skjalafals og blekkingar, kvæmt Newsweek, á fáum árum
auk þess sem hann cr talinn hafa unnið sig úr gjaldkerastarfi upp í
mútað IJölda grískra áhrifamanna. stöðu helsta fjárntálamanns ígrísk-
Talið er líklegt að Koskotas sé nú um viðskiptaheimi. Fyrir fjóruni
staddur i Brasilíu. árum var vitað að hann hafði keypt
Interpol fór frarn á við dóms- m.a. Bank of Crete, einn stærsta
málaráðuneytið sl. sunnudag að fá banka Grikklands, þrjú dagblöð,
upplýsingar um dvöl mannsins hér útvarpsstöö og knattspyrnulið.
á landi og á þriðjudaginn sl. bað Velgengni hans í fjármálaheimin-
Interpol um nákvæntari upplýsing- um |auk snögglega ísíðasta mánuði
ar unt dvöl hans og fylgdarliðs og þegar hann var formlega ákærður
hafa þær verið veittar. fyrjr fjárdrátt og skjatafölsun.
Koskotas hefur að undanförnu Rannsóknaraðilar segja að hann
verið mikið í fréttum og greinir hafi fjármagnað útgáfufyrirtæki
vikuritið Newsweek m.a. frá því sitt, það stærsta í Grikklandi, og
að endurskoðandi nokkur upp- eigin eyðslu með því að draga sér
götvaði að 31 milljón dollara var fé úr bankanum og hylma yfir með
horfin úr einum stærsta banka hálfgerðum hókus pókus milli-
Grikklands, Bank of Crete. Grun- færslum á gjaldeyrisreikningum.
urinn féll fljótlega á hinn 35 ára f>a hefur málið teygt sig inn í
gamla Koskotas, sem er stjórnarf- raðir stjórnmálanna og eru sam-
ormaður og jafnframt eigandi starfsmenn Papandreou forsætis-
bankans og teygðust angarnir fljótt ráðherra taldir tengjast því. Þá á
inn íæðstustöðurflokks Papandre- Koskotas að hafa reynt að fæla
ou forsætisráðherra. I síðustu viku rannsóknaraðila frá frekari rann-
neyddist forsætisráðherrann til að sóknum með því að sýna þeim
gera mannabreytingar í ríkisstjórn óyggjandi sönnunargögn þess efnis
sinni jafnframt því sem hann sam- að háttsettir menn innan stjórnar-
þykkti að sérstök þingrannsókn mnar hafi þegið samtais um 5,3
skyldi fara fram á þvi sem hann milljónir dollara í mútur og hafi
sjálfur kallaði „martröð." emn þejrra verið sonur Papan-
Koskotas kont hingað til lands dreou, George. Koskotas hefur
snemma morguns 10. nóvember, neitað öllum ásökunum.
ásamt fjölskyldu sinni og skráði sig Eftir aö Kostotas hafði verið
inn á Hótei Loftleiðir undir fölsku tilkynnt formlega ákæran, var hann
nafni. Eftir því sem Tíminn kemst frjáls fcrða sinna, en gert að yfir-
næst voru þau sex saman á ferð. gefa ekki landiö. Einhvern veginn
Koskotas dvaldi hér f rúman sól- tókst honum það þó og er talið að
arhring, en þá hélt hann vestur um hann hafi komist fram hjá þeim
haf. Flugvélin sem hann var I tók sem eftir|jt höfðu með honum með
hann á leigu og hófst flugferðin þv( að fela sig í dagblaðaflutninga-
þann 9. nóventber, aðöllum ltkind- bíl I eigu útgáfufyrirtækis hans.
um í einhverju nágrannalanda Eftir flóttann faldi hann sig og
Grikklands. Áður en til íslands komst síðar, að því er talið er, til
kom er vitað til þess að millilent Brasilíu m.a. með viðkomu á Is-
var á Englandi. Geirlaug Magnús- landi. - ABÓ