Tíminn - 25.11.1988, Page 3
Föstudagur 25. nóvember 1988
Timinfi - 3
Undanþágur fyrir leiðbeinendur eru síst færri en í fyrra:
Fimmti hver kennari
án kennara-
menntunar
Kennurum með réttindum fer fækkandi í nokkrum um-
dæmum og er nú svo komið að alls er talið að um 700 manns
starfi við kennslu í grunnskólum landsins, án þess að hafa
kennsluréttindi. Þetta jafngildir því að um fimmti hver
kennari er án réttinda og kallast því leiðbeinandi. Ástandið
hefur ekki batnað frá síðasta ári, þrátt fyrir að 70-80% allra
þeirra sem útskrifast með kennarasmenntun fari rakleiðis í
kennarastörf við grunnskólana og nokkur hluti þeirra skili sér
auk þess innan fárra ára. Kennaraskortur er verstur í
Norðurlandskjördæmi vestra, en staðan hefur verið viðun-
andi í grunnskólum Reykjavíkur og á Reykjanesi.
Þrír skólastjórar
í hópi leiðbeinenda
í nýjasta fréttabréfi Bandalags
kennarafélaga er grein um þetta
stóra vandamál eftir Sylvíu Guð-
mundsdóttur. Þar rekur hún nokkur
sláandi dæmi um fjölda og mikilvægi
leiðbeinendanna og kemur m.a.
fram að við a.m.k. þrjá grunnskóla
er kennarafæðin alger og eru skóla-
stjóramir þar jafn réttindalausir og
aðrir kennarar.
Undanþágunefnd kennarafélaga
hefur haft nóg að gera þetta árið
ekki síður en árið í fyrra. Um
miðjan nóvember hafði nefndin af-
greitt tæplega 700 undanþáguum-
sóknir fyrir yfirstandandi skólaár.
Það er síst betra ástand en í fyrra,
eins og að framan greinir.
Stjórn KÍ hefur vitanlega fjallað
um málið og á nýlegum stjómarfundi
var fjallað um þann möguleika að
koma á laggirnar kennaramenntun
sem fram fari á heimaslóðum þeirra
sem læra vilja kennslu. Bendir Sylvía
á það í grein sinni að dreifing
kennaramenntunar með aðstoð
bréfaskóla, æfingakennslu, heima-
námi og námskeiðum, hafi reynst
vel t.d. í Norður-Noregi þar sem
áður fyrr var viðvarandi skortur á
kennurum með réttindi.
Á áðurnefndum stjórnarfundi KÍ
urðu menn sammála um að sennilega
væri vænlegasta leiðin sú sem reynd
hefur verið í Noregi, þannig að fólk
þurfi ekki að flytjast búferlum úr
byggðarlögum sínum til að öðlast
kennaramenntun. Auk þess fullyrðir
Sylvía að með slíku framtaki yrði
komið í veg fyrir að þeir sem flytjast
þurfa til Reykjavíkur til að sækja
menntun sína, hyrfu áfram sporlaust
úr byggðarlögum sínum.
Þeir sem hvað mest hafa kannað
þessa svokölluðu dreifðu menntun í
Noregi eru þau Þuríður Kristjáns-
dóttir, prófessor, og Sturla Krist-
jánsson, fyrrverandi fræðslustjóri.
KB
r:Imk&.wlm ■ .
Þar sem dökka línan er á milli akreina er fyrirhugað að setja grindverk. Tímamynd:Pjetur.
Borgarráð sammála um tillögu Alfreðs Þorsteinssonar:
Vegrið í Ártúnsbrekku
Hafist verður handa fljótlega við
að gera grindverk á miðja Ártúns-
brekkuna á kaflann milli Rafstöðv-
arvegar og Breiðhöfða en þar fara
milli þrjátíu og fjörutíu þúsund
bílar daglega.
Upphaf þessa er að Alfreð Þor-
steinsson flutti tillögu um málið í
borgarráði og var hún samþykkt
þann 25. okt. sl. Umferðardeild
borgarverkfræðings var falið að
kanna á hvern hátt þetta yrði
framkvæmt og segir í skýrslu hans
m.a.:
„Athugun á tölvugagnagrunni
um umferðaróhöpp í Reykjavík
(„slysabanka") leiddi í ljós að
hættulegasti kaflinn í sambandi við
framanákeyrslur var 200 m langur
kafli milli tenginga við annars veg-
ar Rafstöðvarveg og hins vegar
Veiðimannaveg“.
Þetta var eini kaflinn á Vestur-
landsvegi sem náði að komast inn
á „svartbletta“ listann, varð nr.
154 í röðinni af hættulegustu götu-
bútum í Reykjavík sakir óhappa-
tíðni.
Þarna urðu samtals 23 lögreglu-
skráð óhöpp á tímabilinu 1983-
1987 þar af eitt með meiriháttar
meiðslum. Þetta er töluvert mikið
fyrir aðeins 200 metra langan kafla.
( áfangaskýrslu sem vinnuhópur
um vegakerfi á höfuðborgarsvæð-
inu skilaði af sér fyrir ári síðan er
gert ráð fyrir að Vesturlandsvegur
verði breikkaður í fjórar akreinar
frá Höfðabakka að væntanlegum
Suðurlandsvegi í Smálöndum.
Þórarinn Hjaltason verkfræðing-
ur hjá umferðardeild borgarverk-
fræðings sagði þetta verða gert
þannig að riý akbraut verði lögð
norðan þeirrar sem nú er (nær
sjónum) og verða þá þriggja ak-
reina brautir í hvora átt og þær
aðskildar með umferðareyju.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist 1992 en borgarráðsmenn
voru sammála á fundi sínum á
þriðjudaginn var að slysahætta í
sjálfri brekkunni á kaflanum milli
Rafstöðvarvegar og Breiðhöfða
væri svo mikil að hún réttlætti
fullkomlega að aðskilja gagnstæða
umferð á þessum kafla þrátt fyrir
að um bráðabirgðaráðstöfun yrði
að ræða.
Borgarráð ákvað á fundi sínum
að fela umferðardeild borgarverk-
fræðings að kanna kostnað við að
setja upp tvöfalt vegrið sem þykir
vera heppilegasti kosturinn og voru
fulltrúar sammála um að fram-
kvæmdir hæfust hið fyrsta. - sá
T
J a, h ver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur á laugardag!
Láttu ekki
þrefalt happ úr hendi
sleppa!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111