Tíminn - 25.11.1988, Side 4
4 Tíminn
Föstudagur 25. nóvember'1988
Styrkir til háskólanáms
í Svíþjóð og til námsdvalar við
norska lýðháskóla eða menntaskóla
1. Sænsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa islendingi til háskóla-
náms í Svíþjóö námsáriö 1988-89. Styrkfjárhæðin er 4.160 s.kr.
á mánuði í 8 mánuði. - Jafnframt bjóða sænsk stjórnvöld fram þrjá
styrki handa íslendingum til vísindalegs sérnáms í Svíþjóð á sama
háskólaári. Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar, en skipting í styrki
til skemmri tíma kemur einnig til greina. - Ennfremur gefst
íslenskum námsmönnum kostur á að sækja um styrki þá, er
sænsk stjórnvöld bjóða fram í löndum þeim sem aðild eiga að
Evrópuráðinu en þeir styrkir eru eingöngu ætlaðir til framhalds-
náms við háskóla.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa erlendum ungmennum
til námsdvalar við norska lýðháskóla eða menntaskóla skólaárið
1989-90. Ekki er vitað fyrirfram hvort nokkur styrkjanna kemur í
hlut íslendinga. Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir fæði, húsnæði,
bókakaupum og einhverjum vasapeningum. - Umsækjendur
skulu eigi vera yngri en 18 ára og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir
sem geta lagt fram gögn um starfsreynslu á sviði félags- og
menningarmála.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar n.k. á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi staðfest afrit
prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið
23. nóvember 1988
Námsstyrkur við
Háskólann í Minnesota
Samkvæmt samningi milli Háskóla íslands og Háskól-
ans í Minnesota (University of Minnesota) er árlega
veittur einn styrkur til íslensks námsmanns við Háskól-
ann í Minnesota. Styrkurinn nemur skólagjöldum og
dvalarkostnaði. Umsækjendur skulu hafa stundað nám
við Háskóla íslands og ganga þeir fyrir sem lokið hafa
prófi frá H.í.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu háskólans og skal
umsóknum skilað þangað í síðasta lagi 16. janúar n.k.
Háskóli íslands
Laus staða
í íslenskri málstöð er laus til umsóknar staða fulltrúa, sem hafi m.a.
umsjón með skrifstofu, reikningshaldi og skjalavörslu.
Umsækjandi um stöðuna þarf að hafa góða almenna menntun
(háskólapróf æskilegt), gott vald á íslensku máli og fær um að
leiðbeina öðrum um einföld málfarsatriði. Umsækjandi þarf auk þess
að vera fær í Norðurlandamálum og ensku.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15
desember n.k.
Menntamálaráðuneytið
23. nóvember 1988
Byggingarfélag verkamanna í Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn á Hótel Lind, Rauðarár-
stíg 18, þriðjudaginn 29. nóvember 1988, kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagsstjórnin
TÖLVUNOTENDUR
Víð í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegy3, 200 Kópavogur. Sími 45000
||Jj
STRAX fetar nýja slóð
V ísundarokksveitin STRAX er að
leggja upp í all nýstárlega tónleika-
ferð um landið með nýja meðlimi
innanborðs. Auk þeirra Ragnhildar
og Jakobs eru nú í sveitinni gítar-
leikarinn Sigurður Gröndal úr Rik-
shaw auk eyfirsku tónlistarmann-
anna Sigfúsar Óttarssonar trommu-
leikara og Baldvins Sigurðssonar en
þeir gerðu báðir garðinn frægan með
Bara-flokknum auk þess að hafa
leikið með Grafík og Rikshaw.
Úrbætur í
málefnum
skóla í
dreifbýli
Menntamálaráðherra hefur skip-
að nefnd sem á að fjalla um málefni
skóla í dreifbýli í þeim tilgangi að
bæta stöðu þeirra, því Ijóst er að
margir skólar í dreifbýli standa höll-
um fæti t.d. vegna skorts á kennur-
um.
Verkefni nefndarinnar verða m.a.
að spá um heildarþróun skóla í
dreifbýli til aldamóta, gera yfirlit um
stöðu og spá um þróun hvers skóla
og skila tillögum um hvað hægt sé að
gera til úrbóta strax.
í nefndinni eiga sæti Guðmundur
Ingi Leifsson, fræðslustjóri Norður-
landsumdæmis vestra sem er for-
maður nefndarinnar, Alda Gísla-
dóttir, kennari, Varmalandi, Eiríkur
Jónsson, skólastjóri Blönduósi, Pét-
ur Bjarnason, fræðslustjóri Vest-
fjarðaumdæmis, Valgarð Hilmars-
son, oddviti og Ölvir Karlsson,
oddviti. Með nefndinni starfa Run-
ólfur Birgir Leifsson, deildarstjóri
og Sigþór Magnússon, námstjóri,
menntamálaráðuneyti. ssh
Nokkur aurbleyta er
nú á vegum landsins:
Aurbleyta
vestanlands
Að sögn vegaeftirlitsmanns hjá
Vegagerð ríkisins er mikil aurbleyta
á Vestfjarðarvegi, á öllu svæðinu frá
Þorskafirði og vestur á Þingeyri. Á
þessum slóðum hefur öxulþungi ver-
ið takmarkaður við tvö tonn sem í
raun þýðir að vegurinn er tæplega
fær þyngri bílum en fólksbílum og
jeppum.
Ekki er talið loku fyrir það skotið
að á næstu dögum gæti komið til
takmarkana víðar þó ekki hafi kom-
ið til þess enn. Þar mun einna helst
vera um að ræða Barðastrandarveg
en hann ku vera orðinn nokkuð
illfær vegna bleytu. -áma
Það sem hefur vakið athygli í
þessu sambandi er að tónleikar,
dansleikir og aðrar uppákomur
hljómsveitarinnar verða nú á ólík-
legustu tímum sólarhrings, nótt sem
nýtan dag, morgna, kvölds og miðj-
an dag. Það mun hafa verið í Kína-
ferð STRAX sem kostir morgun- og
hádegistónleika urðu tónlistarfólk-
inu ljósir. Hins vegar verður áfram
leikið á hinum hefðbundnu miðnæt-
urtónleikum milli klukkan 12 og 3 á
nóttunni, einkum um helgar, en að
sögn keyrt fyrst og fremst á kraft-
miklu og fjörugu rokki.
Sveitin kemur fram á afmælishátíð
Félagsmiðstöðvarinnar að Bústöð-
um föstudagskvöld, laugardags-
kvöld á Hótel Selfossi og síðar
verður haldið á Blönduós, Sauðár-
krók, Akureyri, Húsavík, Egils-
staði, Neskaupstað og víðar.
Verðlaunahafamir ásamt Davíð Oddssyni borgarstjóra.
Kjörorðasamkeppni grunnskólanema vegna
hreinsunarátaks í Reykjavík:
Orðsnilld og
hugarflug
í fyrradag voru afhent verðlaun í kjörorðasamkeppni
grunnskólanema vegna hreinsunarátaks í Reykjavík.
Hver nemandi mátti skila inn tveimur kjörorðum á
sérstökum seðli, sem dreift var til allra grunnskólabarna í
Reykjavík. Markmiðið var að kjörorðin væru skýr og á
góðu máli, ásamt því að hvetja til bættrar umgengni í
höfuðborginni.
Veitt voru ellefu verðlaun, fimm
reiðhjól og 6 útvarpstæki, auk þess
fengu börnin viðurkenningarskjal
og einnig þeir skólar sem þau
stunda nám í.
Davíð Oddsson borgarstjóri
veitti verðlaunin og lýsti kjörorð-
unum þannig að þau lýstu hug-
myndaflugi og orðsnilld.
Hér á eftir eru þau fimm kjörorð
sem dómnefndin taldi best:
- Rusl + fata = Hrein gata
Gunnar Örlygsson, Grandaskóla
- Strætin eru stofugólf borgarinnar
Páll Hilmarsson, Vesturbæjarskóla
- Átt þú í basli með allt í drasli?
Kolbrún Ýr Gísladóttir,
Austurbæj arskóla
- Rusl á lóðum lýsir sóðum
Dögg Guðmundsdóttir, Breið-
holtsskóla
-Hreinsaðu til, það er öllum í vil
ísak Þór Davíðsson McKee, Lang-
holtsskóla
Tjarnarskóli fékk einnig viður-
kenningu fyrir dugnað í hreinsun-
arkeppni eldri nemenda grunn-
skóla. Kennarar og nemendur
gerðu verkáætlun sem unnið verð-
ur eftir í vetur og svæðin í kringum
skólann hreinsuð reglulega. ssh