Tíminn - 25.11.1988, Side 20
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Trvggvagötu,
S 28822
ÞRÖSTUR
685060
VANIR MENN
Tímiini
Áfengiskaup MagnúsarThoroddsen áárinu:
IVIisno Ikun á heimildinni
segir forsætisráðherra
Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar, hefur keypt
1.440 flöskur af sterku áfengi á kostnaðarverði hjá
Á.T.V.R. það sem af er þessu ári.
Magnús hefur sem einn af handhöfum forsetavalds nýtt
sér heimild til slíkra áfengiskaupa þegar forseti íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, liefur farið utan. Það hefur
gerst átta sinnum á þessu ári sem Ieiðir til þess að að
meðaltali hefur Magnús keypt 180 flöskur í hvert skipti.
Af þessum 1440 flöskum eru rúmlega 1000 þeirra af
vodka-tegund en afgangurinn viskí. Alls munu þessar
1440 flöskur innihalda tæpa 1100 lítra áfengis. Magnús
Thoroddsen vildi í gærkvöldi ekki láta hafa annað eftir
sér en það að þetta væri sitt einkamál.
Handhafar forsetavalds eru vildi ekki tjá sig utti málið að
þrír, þau Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, Guðrún
Helgadóttir, forseti Sameinaðs
þings og Magnús Thoroddsen,
forseti Hæstaréttar. t>au hafa öll
heimild til að kaupa áfengi á
kostnaðarverði þegar þau sinna
starfi sínu sem slík. Eftir því sem
næst verður komist hafa hvorki
Steingrímur né Guðrún nýtt sér
þessa heimild á þessu ári.
Lít málið mjög
alvarlegum augum
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, sagði í samtali
við Tímann í gærkvöldi að hann
öðru leyti en því að hann hefði
farið fram á það við forstjóra
Á.T.V.R. aðhannfærði séryfirlit
yfir þessi áfengiskaup síðastliðin
ár. Hann vildi ekki staðfesta þær
tölur sem nefndar eru hér að ofan
en ef þær stæðust væri málið
vissulega mjög alvarlegt. Ólafur
vildi ekki tjásig um hver viðbrögð
yfirvalda yrðu ef í ljós kæmi að
svo væri í pottinn búið. Aðspurð-
ur sagði hann að þessir þrír aðilar
hefðu heimild til áfengiskaupa á
kostnaðarverði, í fjarveru forseta
fslands, og þá eingöngu sem opin-
berir gestgjafar. Því færi hinsveg-
ar fjarri að þeim væri heimilt að
kaupa það til einkanota.
Löglegt en siðlaust?
Lögfræðingur með þekkingu á
stjórnskipunarrétti, sem Tíminn
ræddi við í gær, sagðist ekki telja
að hér væri um lagalegt brot að
ræða. Handhafar forsetavaldsins
auk utanríkisráðuneytis, forsæt-
isráðuneytis, forsetaembættis,
sendiráða og jafnvel fleiri aðila,
hefðu gert með sér samning um
áfengiskaup þeirra. Þær reglur
væru hvergi birtar og fáir séð þær
nema þeir sem í gegnum embætti
sín tengdust þessum samningi.
Því væri ómögulegt að segja hvort
þar væri kveðið á um eitthvert
hámark í kaupum.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
Á.T.V.R., vildi í gær ekkert tjá
sig um þetta mál og vísaði því
alfarið til fjármálaráðuneytisins.
Ráðuneytið hefði mótað þessar
reglur og þar væri helst að finna
svör við þeirri spurningu hvort
farið hefði verið í kringum þær.
Fjármálaráðherra segir að
handhafar forsetavalds komi
ávallt fram sem hópur þegar til
dæmis lög þarfnast undirskriftar.
Því væri ekki annað að sjá en
áfengiskaup af því tagi sem hér er
um rætt þyrftu að vera í tilefni af
sameiginlegum veislum þessara
aðila. Það að heimild þeirra til
Magnús Thoroddscn, forseti
Hæstaréttar.
áfengiskaupa gilti aðeins þegar
forseti væri fjarverandi undir-
strikaði þetta enn frekar.
„Einn þeirra getur ekki haldið
veislur eða boð og keypt áfengi
til þeirra á þennan hátt, þeir
verða að gera það allir í einu.
Mér er ekki kunnugt um að á
þessu ári hafi nein slík boð verið
haldin, þó það kunni að vera,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson í
gær.
Aldrei nýtt mér
þessa heimild
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, sagði í gær-
kvöldi að hann hefði aldrei nýtt
sér heimild sína sem handhafi
forsetavalds til áfengiskaupa.
Steingrímur sagðist líta þetta
mál mjög alvarlegum augum þó
að í einhverjum tilfellum gæti
verið um að ræða risnu sem þessi
aðili gæti þurft á að halda sem
handhafi forsetavalds, en eftir
því sem honum væri tjáð væri
þarna um miklu meira magn að
ræða en svo. Aðspurður vildi
Steingrímur ekki, að svo komnu
máli, tjá sig um það hvort Magnús
þyrfti að víkja úr starfi sínu ef
þessar tölur reynast réttar. „Mér
hafa verið sýndar þessar úttektir
en ég vil ekki úttala mig um þetta
mál. Ég vil hinsvegar segja að
þetta er því miður misnotkun á
þessari heimild, á því leikur ekki
nokkur vafi. Svona heimildir eru
vandmeðfarnar og verða vitan-
' lega að notast af mikilli gát, það
er aðalatriðið. Ég hef ekki haft
tíma til að ræða þetta mál við
Magnús, en þarna hefur sem sé
veruleg misnotkun átt sér stað.“
- áma
Svínakjötsframleiðendur sjá fram á hörgul á hamborgarhryggjum:
Margir verða hryggir að
ekki eru fleiri hryggir
Þeir sem ætla aö leggja sér hamborgarhrygg til munns um
jól eða áramót að þessu sinni ættu að hafa hraðann á því allt
stefnir í að færri fái notið þessháttar krása en vilja.
Fari svo sem horfir er hætt við að margir verði hryggir yfir
því að fá ekki hrygg.
Tíminn ræddi í gær við nokkra
framleiðendur svínakjöts og bar
þeim öllum saman um að saga
undanfarinna ára myndi að öllum
líkindum endurtaka sig í ár, þ.e.
ekki tækist að anna eftirspurn eftir
hamborgarhryggjum. Þessvegna
þyrftu eflaust einhverjir að sætta sig
við annarskonar svínakjöt verði það
fyrir valinu.
Þorvaldur Guðmundsson í Síld og
fisk sagði að hann geymdi ekki
hryggi til jólanna, því kjöt batnaði
aldrei við frystingu. Af því leiðir að
aukin neysla svínakjöts á öðrum
árstímum en áður tíðkaðist bitnar
ekki svo mjög á framboðinu um
jólin. Þorvaldur tók undir það með
kollegum sínum að sennilega myndi
það verða eins um þessi jól, og svo
oft áður, að eftirspurnin verði meiri
en framboðið.
Þorvaldur sagði að fyrirtæki sitt
hefði aldrei getað annað eftirspurn
enda vildu allir Ali! Aðspurður sagð-
ist Þorvaldur telja að smygl á svína-
kjöti hefði minnkað frá því sem var
enda væri það ekki til neins. Það
væri hreinlega verra en íslenska
kjötið.
Þegar haft var samband við nokkr-
ar kjötverslanir kom í ljós að fólk
virðist í einhverjum mæli sýna fyrir-
hyggju í jóla-matarinnkaupunum
þvf töluvert mun vera um að fólk sé
búið að kaupa kjötmetið, t.d. marg-
umrædda hamborgarhryggi.
En er möguleiki á að hagræða
framleiðslunni þannig að þessi skort-
ur á jólamat fjölmargra fjölskyldna
í landinu hætti að vera jafn árlegur
viðburður og jólin sjálf?
Kristinn Gylfi Jónsson, formaður
Svínaræktarfélags fslands, sagði að
það væri nokkrum erfiðleikum
bundið. Vissulega væri þægilegt ef
hvert svín hefði tvo hryggi en því
væri bara ekki þannig farið. Að öllu
gamni slepptu sagði Kristinn að
svínakjötsframleiðendur reyndu eft-
ir fremsta megni að framleiða ekki
meira en markaðurinn óskaði eftir
hverju sinni þannig að ekki yrðu til
umframbirgðir.
Staðreynd málsins er sú að af t.d.
60 kílóa skrokk er þungi hryggsins
aðeins um 8 kg. Því er það illmögu-
legt að auka framboð á hamborgar-
hryggjum því hætt væri við að þá
sætu framleiðendur uppi með ýmsar
aðrar afurðir af svínunum sem ekki
tækist að selja. Kristinn sagði og að
framleiðendum væri meinilla við að
frysta framleiðslu sína ekki síst með
tilliti til þess að neytendur hafna
slíku kjöti. Hann sagði einnig að
þeir hryggir sem seldir væru um jólin
væru af dýrum sem hefði verið
slátrað í mesta lagi fyrir um fjórum
mánuðum. Salan á svínakjöti hefur
að sögn Kristins dreifst mun jafnar
yfir árið í seinni tíð en áður var og
gerir það að verkum að birgðir
safnast ekki upp. Hann sagði að þeir
sem ekki fengju hamborgarhryggi í
jólamatinn breyttu margir hverjir til
og á jólaborðinu yrði því til dæmis
svínalæri, hnakki eða kótilettur svo
eitthvað væri nefnt. - áma
Eitraðar
fíkjur?
Hollustuvernd ríkisins hafa
borist upplýsingar þcss efnis að
lítill hluti af gráfíkjum sem rækt-
aðar voru í Tyrklandi á þessu ári.
sé mengaður af eiturefni sem er
þekktur krabbameinsvaldur og
getur myndast af myglugróðri við
sérstök vaxtarskilyrði.
Tyrkneskar gráfíkjur á mark-
aði hér hafa þegar verið teknar í
forrannsókn hjá hollustuvernd-
inni, en fullnaðarrannsókn getur
ekki farið fram hérlcndis. Þar tii
niðurstöður endanlegra rann-'
sókna liggja fyrir hefur Hollustu-
vernd ríkisins ákveðið að stöðva
nú þegar dreifingu og sölu á
umræddum fíkjum. -ág