Tíminn - 07.12.1988, Side 7

Tíminn - 07.12.1988, Side 7
- Miðvikudagup7. deserober -tOö8 Tíminn 7 Hjálparstofnun kirkjunnar hefur árlega söfnun sína „Brauð handa hungruðum heimi“: VONAST EFTIR 20 MILUÓNUM Eina árlega fjáröflun Hjálparstofnunar kirkjunnar er hafin. Fer hún nokkuð vel af stað að sögn eins stjórnarmanns- ins, Þorbjarnar Hlyns Árnasonar, þar sem þegar hafa safnast á aðra milljón króna áður en söfnunin er kynnt formlega í fjölmiðlum. Miða bjartsýnustu vonir að því að hægt verði að safna kringum tuttugu milljónum króna fram að að jólum. Að sögn Sigríðar Guðmundsdótt- ur, framkvæmdarstjóra HK, ermikil þörf á neyðaraðstoð víða í Asíu og Afríku, en þau hjá HK hafa ákveðið að beina kröftum sínum að af- mörkuðum verkefnum í Bangladesh vegna flóða þar, matvælaaðstoð í Mósambík, endurreisn barnaskóla á Suður-Indlandi og til byggingar heimilis fyrir vangefin börn í Tamil Nadu í suðurhluta Indlands. Auk þessa mun Hjálparstofnun leggja fram fé til innanlandsaðstoðar eins og áður ef neyðarköll berast. Við upphaf jólasöfnunar HK, sem gengur undir nafninu „Brauð handa hungruðum heimi“, minnti stjóm- arformaður HK, Árni Gunnarsson alþingismaður, á að ríkissjóður legði afar lítið fé fram til þróunaraðstoð- ar. Sagði hann að Þróunarsamvinnu- stofnun íslands fengi ekki nema sem svaraði 0,06% af vergri þjóðarfram- Ieiðslu. Samkvæmt ákvörðun Al- þingis árið 1985 hafi þó verið ákveð- ið að þetta hlutfall yrði ekki undir 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu. Framundan blasa við mörg aðkall- andi verkefni að sögn aðstandenda HK. Þau sem stofnunin hefur tekið að sér beinast aðallega að fjórum stöðum í Asíu og Afríku, sem flest eru í unnin í samvinnu við systur- stofnanir á hinum Norðurlöndunum. Mikil flóð hafa orðið í haust í Bangladesh og hafa þau gert um 25 milljónir manna heimilislausa og ástandið versnaði enn er fellibylur gekk yfir flóðasvæðin fyrir fáeinum dögum. Mikil hætta er talin á út- breiðslu skaðlegra sjúkdóma. HK hefur staðið að matvælaað- stoð í Mósambík og mun reyna að halda því áfram meðan þörfin kallar. Þar hefur þegar verið dreyft matvæl- um og sáðkorni, en mikil hungurs- neyð er í nokkrum héruðum landsins. Á líðandi ári var auk aðstoðarinn- ar í Mósambík, veitt aðstoð við byggingu stíflu í Víetnam sem stuðl- aði að bættri hrísgrjónauppskeru smábænda. Þeir geta nú brauðfætt sig sjálfir. Einnig má geta þess að bygging barnaheimilis fyrir munað- arlaus börn í Eþíópíu er á lokastigi. Þrátt fyrir talsvert mikla bráðaað- stoð hefur HK nú í hyggu að verja fé og starfskröftum í auknum mæli til fræðslustarfsemi. „Stóra verkefn- ið okkar er að efla fræðslustarfið þannig að fólk hér heima vakni til meðvitundar um daglegt líf þess fólks sem byggir þessi lönd í Asíu og Afríku,“ ságði Sigríður. KB fslendingar eru komnir í fremstu röð á sumum sviðum erfðatækni: Kennarar lækna- deildar Háskól- ans undir allt of miklu álagi íslendingar er komnir í fremstu röö á sumum sviöum erfðatækni, þrátt fyrir fjármagnsskort og aðstöðuleysi. Ljóst er að vaxandi rannsóknarstarf í mörgum deildum, eins og í lífeðlis- og lífefnafræði, sýkla- og ónæmisfræði, geðlækning- um, lyfjafræði, hjúkrunar- og lyflæknisfræði og kvensjúk- dóma og fæðingarfræði, er nú að skila sér. Ráðstefna var haldin á vegum læknadeildar Háskólans um miðjan nóvember og voru flutt þar 82 erindi, og ber það vott um aukið rannsókn- arstarf í læknadeild H.f. Þau verkefni sem voru kynnt voru meðal annars; eyðniveiran og sam- band hennar við sambærilegar veirur er valda sauðfjárveikisjúkdómum, blóðfituflokkun eftir erfðum og hegðunarmynstur Psoriasis í húð. Margir þeirra sem gegna stöðum dósenta og lektora í H.Í., eru í 37% starfi ofan á 100% starf hjá spítölun- um. Rannsóknarskyldan er ekki nema 1% og því eru rannsóknimar flestar unnar í frístundum. Af því leiðir að óheyrilegar tafir verða á því, að læknargeti lokið rannsóknar- verkefnum vegna þess að menn eru allt of uppteknir af daglegu amstri og skortir næði. Læknir, sem einungis vill starfa við Háskólann þarf að sjá af tölu- verðum tekjum, því að t.d. dósentar sem starfa við Háskólann em oftast með 25% lægri laun en sérfræðingar sem starfa á spítölum og hafa svip- aða lengd menntunar. Þetta gerir Háskólanum erfiðara um vik að keppa um hæft vinnuafl. Varðandi kennslu kom fram, að tímaskortur og lág laun em kennurum lítt hvetj- andi í þá vem að þeir leggi mikið í undirbúning námskeiðahalds. Karl Tryggvason, prófessor, flutti erindi á ráðstefnunni sem vakti mikla athygli. Hann hefur starfað og unnið í Finnlandi við háskóla sem er svipaður að stærð og H.f. og býr við svipaðar landfræðilegar aðstæður. Sá skóli hefur skipað sér í fremstu röð á sviði rannsókna og skiptir þar eflaust mestu að 6-8 sinnum meira fé er varið í vísindasjóði þar en hér. Sjálfsaflafé hefur að mestu staðið undir vísindasjóði og happdrættisfé undir tækjakaupum. Verði happ- drættisfé skattlagt er ekki von á aukningu. Þáhafa margir notið lítilla styrkja til rannsóknarstarfa hérlend- is. í Finnlandi em þeir rannsóknar- hópar sem mestum árangri ná, styrktir hlutfallslega mest. Vel- gengni þeirra smitar út frá sér og hvetur aðra til að standa sig betur. Hæfir nemendur fá tækifæri og geta með því lagt gmnn að doktorsnámi. meðan á almennu námi stendur. Reynsluleysi á rannsóknarsviði háir mörgum sem útskrifast úr læknadeild. Háskólinn stæði mur betur að vígi, væri svipað kerfi tekié upp hér og gæfi jafnframt nemend um og kennurum aukin tækifæri Þetta erm.a. aðfinnaínýútkomnun Stúdentafréttum frá Háskólanum. Drangavík ST-71 við bryggju á Hólmavík (til hægrí). Hólmadrangur ST-70 í baksýn. Drangavík ST-71 úr fyrstu veiðiferðinni Holmavík: Drangavík ST-71 iagðist í fyrsta sinn að bryggju á Hólmavík 30. nóv. sl., en skipið var að koma úr sinni fyrstu veiðiferð eftir að það var keypt til Steingrímsfjarðar. Það var hlutafélagið Drangavík hf. sem keypti rækjuskipið Drangavík fyrr í haust. Skipið hét áður Akumesingur AK-71, og var gert út frá Akranesi. Hlutafélagið sem keypti skipið er að mestu leyti í eigu fyrírtækja á Drangsnesi og Hólmavík. Stærstu hluthafarnir era Hóima- drangur hf., Kaupfélag Steingrímsfjarðar og Hraðfrystihús Drangsness hf., og er skipið skráð á Drangsnesi. Markmiðið með skipakaupunum var einkum að jafna árstíðabundnar sveiflur í hráefnisöflun rækjuvinnslunnar við Steingrímsfjörð. Drangavík er 292 brúttórúmlest- ir að stærð, smíðuð í Noregi fyrir 10 árum. Skipið er útbúið til rækju- veiða, og er gert ráð fyrir að úthafsrækja verði meginuppistað- an í afla skipsins. Mestur hluti aflans verður væntanlega frystur um borð, og síðan þíddur að nýju og unninn í vinnslustöðvum á Hólmavík og Drangsnesi. Þó verð- ur hluti aflans fullunninn í skipinu og sendur beint á markað erlendis. Aflinn í fyrstu veiðiferð Dranga- víkur var mjög tregur, enda hafa veiðar á úthafsrækju gengið fremur illa undanfarnar vikur. Reiknað er með að skipið haldi til veiða á ný um næstu helgi í von um að rækjuveiði glæðist. Hólmadrangur ST-70 liggur í höfn á Hólmavík þegar þetta er skrifað. Viðlegupláss í höfninni er af skornum skammti, og kemur það glöggt í ljós þegar þessi tvö stærstu skip Strandamanna liggja þar við festar. Stækkun viðlegu- rýmis á Hólmavík er í undirbún- ingi, en sem stendur er málið í höndum fjárveitingavaldsins. Skipstjóri á Drangavík er Óskar Kristinsson frá Seljanesi í Árnes- hreppi, en framkvæmdastjóri út- gerðarinnar er Högni B. Halldórs- son.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.