Tíminn - 07.12.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 07.12.1988, Blaðsíða 20
 | Átján mán. bindinq ^4 O 1 ‘ f Ö _ RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, © 28822 § 7,5% ÞRttSTUR 685060 SAMVINNUBANKINNI |f«M|D lUICiyKl w#%fnilBTL IwlCiBwíw Tíniinn Frá og með 1. mars n.k. verður áfengt öl selt í öllum verslunum ÁTVR og verður þar falt í 33 cl neyslueiningum; þó þannig að a.m.k. sex einingar verða seldar saman. Leyfð verður sala á öli sem inniheldur vínanda á bilinu 2,26%-5,6%. Áætlað er að verð á kassa af íslensku öli, sem er 5% að áfengisstyrkleika, verði 2500-2700 krónur, eða um 115 krónur hver dós. Þessar upplýsingar komu fram í gær á fundi sem fjármálaráðherra hélt til kynningar á þeim reglum sem settar hafa verið varðandi bjórsöluna. Enn sem komið er gefur þó orðaiag þessara reglna til kynna að til staðar sé viss sveigjan- leiki vegna reynsluleysis íslendinga af löglegri bjórsölu. En þess má geta að í fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar er gert ráð fyrir að sala á bjór verði sjö milljónir lítra á ári sem gefi af sér um einn milljarð króna í ríkiskassann. 5tegundir- þar af 2 íslenskar ÁTVR mun hafa a.m.k. fimm tegundir öls á boðstólum í öllum vínbúðum, þar af verða a.m.k. tvær tegundir sem bruggaðar verða hér á landi. Sérstök bjórverslun verður rekin í birgðastöð ÁTVR við Stuðlaháls í Reykjavík og þar verður fjölbreyttara úrval en í öðrum verslunum. Ef sérstakar óskir koma fram um öl, sem ekki verður fáanlegt hjá ÁTVR, mun það verða sérpantað með svipuð- um hætti og nú tíðkast um annað áfengi. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, sagði á fyrrnefndum fundi að nauðsynlegt væri að takmarka fjölda tegunda vegna þess að ÁTVR er ekki undir það búin að selja bjór, en tilkoma bjórsins þrefaldar það magn sem fyrirtækið hefur í dreifingu árlega, auk þess er bjór plássfrek vara. Nokkur verðmunur verður á ís- lensku öli, þ.e. því sem bruggað verður alfarið hér og því sem flutt verður til landsins til átöppunar eða í neysluumbúðum. Eru þessar ráðstafanir til að vernda íslenskan iðnað. Á kostnaðarverð öls sem flutt verður inn í gámum og átapp- að hér á landi verður lagt sérstakt álag er leiða mun til þess að verð á slíku öli til neytenda verður um 12,5% hærra en á íslenska ölinu. Með sama hætti verður gjald lagt á innflutt öl í neytendaumbúðum eða bartunnum og verður það öl um 25% hærra í verði en íslenska öliö. Tilboða leitað Á næstu mánuðum verður leitað eftir tilboðum í ölsölu tii ÁTVR en þeim framleiðendum verðurgefinn kostur á að setja fram tilboð er hafa bjór sem ætla má að sé sæmilega þekktur á íslandi. Við val á þeim fimm tegundum, sem til sölu verða í vínbúðum um alit land, verður þess gætt að tvær þeirra a.m.k. séu bruggaðar á fs- landi og að ekki verði nema ein tegund frá sama útlandinu. Hjá Höskuldi Jónssyni kom fram að við val á tegundum verði reynt að bjóða sem ólíkastar tegundir, einnig skipti verðið máli. Hann sagði jafnframt að líklegt væri að góðir samningar næðust vegna þess hve fáar tegundir verða til sölu. Til að tryggja samkeppnisað- stöðu öls sem bruggað verður hér á landi mun ÁTVR tryggja kaup á a.m.k. tveimur milljónum lítra af slíku öli á árinu 1989 og 1990. Skilagjald Til að takmarka umhverfismeng- un af völdum umbúða verður reynd sú leið, að borga fyrir skil á öldós- . um eða flöskum. Vegna þessa má búast við því að sérstakt skilagjald, 5-10 krónur verði lagt á hverja dós til viðbótar fyrrnefndu útsöluverði. f sama tilgangi mun stefnt að því að koma á endurvinnslu áldósa, en ÁTVR mun eingöngu hafa á boð- stólum öl á áldósum og þá með föstum flipa. Ölgerðimar Fulltrúar ölgerðanna tveggja, Sanitas og Egils Skallagrímssonar, áttu auðvitað mikið undir því hvernig reglur yrðu settar um ; bjórsöluna. Sem dæmi má nefna að Sanitas hefur lagt í fjárfestingar vegna stækkunar verksmiðjunnar á Akureyri upp á tæpar 200 millj- ónir króna vegna komu bjórsins og framleiðslugeta fyrirtækisins er um sjö milljónir lítra á ári. Sanitas hefur framleiðsluumboð fyrir Lö- wenbrau, sem samkvæmt reglun- um telst til íslenskra tegunda því hann verður framleiddur hér. „Það er margt gott í þessu en í fyrsta lagi þá finnst mér verðið allt of hátt,“ sagði Ragnar Birgisson forstjóri Sanitas er hann var spurð- ur um álit á bjórsölureglunum. „Verð á íslensku öli hefði mátt vera um 80 krónur. Þetta verð er alltof nálægt smyglverðinu sem er um 145 krónur dósin og ekkert skilagjald. í öðru lagi finnst mér verðverndin of lág, mér hefði fund- ist að hún hefði átt að vera 25% ef ölið er átappað hér og 50% ef það er flutt hingað í neysluumbúðum. í þriðja lagi finnst mér sérstaklega slæmt ef takmarka á íslenskar • bruggverksmiðjur við tvær tegund- • ir. Það er forsenda þess að hægt sé að byggja upp íslenskan iðnað að menn geti stundað einhverja vöru- þróun, fundið út hvaða tegundir' íslendingar vilja, því bjórmenning er ekki til hér á landi. ÁTVR hefur ábyggilega pláss fyrir fleiri en fimm tegundir." Aðspurður um hvort það væri ekki bjartsýni að gera ráð fyrir að framleiða sjö milljónir lítra á ári, en það samsvarar því að vera heildameyslan miðað við áætlanir stjórnvalda. „Ég geri nú ráð fyrir að neyslan verði frekar um 12-15 milljónir." „Þetta plagg sem lagt var fram í gær er ekki reglugerð, þetta er bara fréttatilkynning, þetta eru bara hugmyndir og engan veginn endanlegt. Það verða örugglega lagfæringar á þessu,“ sagði Ragnar Birgisson að lokum. Fulltrúar Egils Skallagrímssonar höfðu ekki kynnt sér reglurnar í gær og vildu því ekki tjá sig um málið. SSH VSÍ segir að milljarð muni skorta í húsnæðiskerfið Hagdeild VSÍ hefur gert athugun á iðgjaldatekjum 12 stærstu lífeyris- sjóða landsins og á grundvelli þess lagt mat á ráðstöfunarfé sjóðanna í ár og á næsta ári. í áætlun fjármálaráðuneytisins um ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna er miðað við það að ráðstöfunarféð verði 12.700 milljónir í ár og um 33% meira á næsta ári. Þessar áætl- anir munu hafa komið lífeyrissjóða- mönnum á óvart, einkum þar sem gert er ráð fyrir nálega 46% aukn- ingu iðgjaldatekna frá fyrra ári og nær 33% á næsta ári. Niðurstöður könnunar VSÍ eru þær að iðgjaldatekjur þessara sjóða hafi á síðasta ári verið 3.624 milljónir og stefni íað verða4.622. Aukningin milli ára er því 27,5% og vantar þá mikið á þá 46% aukningu sem ráðuneytið byggir áætlanir sínar á. Lauslegt mat, byggt á framan- greindri könnun og öðrum tiltækum gögnum, gefur tilefni til að ætla að iðgjaldatekjur lífeyriskerfisins í heild vaxi um liðlega þriðjung. Á móti kemur að iðgjaldatekjur ársins 1987 eru að líkindum vanmetnar. Að teknu tilliti til þess má ætla að ráðstöfunartekjur lífeyrissjóðanna í ár séu ofmetnar um a.m.k. 500 milljónir króna. Spáin fyrir næsta ár þykir enn vafasamari því forsendur fjárlaga- frumvarpsins miða almennt við um 7% aukningu tekna milli ára, en iðgjaldatekjur sjóðanna eiga á sama tíma að aukast um liðlega 32%. Hluta þeirrar tekjuaukningar má skýra með auknum greiðslum af yfirvinnu en þær þykja fráleitt geta skýrt meira en 6-7% aukningu. Sé miðað við forsendur frumvarpsins um launaþróun og hliðsjón höfð af framanrituðu er óraunsætt að miða við meira en 15% aukningu iðgjalds- tekna milli ára. Að öllu þessu virtu má því gera ráð fyrir að iðgjaldatekj- ur sjóðanna séu ofáætlaðar um 2000 milljónir á næsta ári. Ofmat á ráðstöfunarfé lífeyris- sjóðanna leiðir jafnframt til ofmats á útlánsgetu Húsnæðisstofnunar ríkisins. í áætlunum er gert ráð fyrir að hún fái um 55% tekna sjóðanna sem þýðir að ofmatið mun nema um 1.100 milljónum króna, nema til komi sérstök lánsfjáröflun til að náð verði markmiðum fjárlagafrum- varps. Það lánsfé fæst ekki innan- lands miðað við þekktar forsendur dagsins í dag, segir að lokum í samantekt hagdeildar VSÍ. -áma

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.