Tíminn - 07.12.1988, Side 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 7. desember 1988
Miðvikudagur 7. desember 1988
Tíminn 11
irnw i b in
'nw i ■ in
Róm. Inter Mílanó er enn í
efsta sæti 1. deildar ítölsku knatt-
spyrnunnar eftir leiki helgarinnar.
Inter vann Pescara 2-0 á útivelli.
Inter hefur nú 15 stig eftir 8 leiki, en
Napólí fylgir fast á eftir með 13 stig.
Napólí vann Fiorentina 2-0 á heima-
velli. Juventus er nú komið í 3. sæti
deiidarinnar með 11 stig eftir stórsig-
ur á Pisa á útivelli, 4-1. Sampdoria
hefur einnig 11 stig en lakara marka-
hlutfall og er því í 4. sæti, Liðið
tapaði um helgina á heimavelli, 0-2,
gegn Róma. Meistararnir AC Míl-
anó unnu Lecce 2-0 heima og eru í
5. sæti deildarinnar með 10 stig.
Atalanta hefur einnig 10 stig eftir
sigur á Lazio, 1-0, á útivelli. Cesena
vann 2-0 sigur á Bologna, Ascoli
vann Como 1-0 og Tórínó og Veróna
gerðu 1-1 jafntefli.
London. Enski landsliðsmaður-
inn Viv Anderson sem leikur með
Manchester United hefur verið sak-
aður um að koma slæmu orði á
knattspyrnuna, eftir að sjálfsævisaga
hans kom út. í bókinni segir að hann
mundi hiklaust brjóta á manni, ef
honum finnist það vera rétt á þeim
tíma. Enska knattspyrnusambandið
er um þessar mundir að reyna að
koma á aga og reglu í ensku deildinni
og því koma þessi ummæli Ander-
sons á slæmum tíma. Anderson á
einnig hlut að öðru máli sem snertir
framherja Wimbledon John Fas-
hanu. Fashanu á að hafa ráðist á
Anderson á leið til búningsherbergja
eftir að leik Manchester United og
Wimbledon lauk um daginn.
Madrid. Það verður ekkert
leikið í spænsku 1. deildinni á mið-
vikudaginn 14. desembereins og ráð
var fyrir gert. Knattspyrnumenn ætla
í verkfall þann dag eins og aðrir
Spánverjar. Allsherjarverkfallið er
til komið vegna óánægju með efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar.
Moskva. Samningar hafa tek-
ist milli enska 2. deildarliðsins Ips-
wich Town og sovéska stórliðsins
Dynamo Kiev um að varnarmaður-
inn Sergei Baltacha haldi til Eng-
lands og leiki með liði Ipswich.
Baltacha mun því verða fyrsti Sovét-
maðurinn sem leikur með liði á
Englandi. Ekki sagði Tass fréttastof-
an, sem birti fréttina í gær, hversu
miklir peningar væri f spilinu, en
David Sheepshanks, ritari Ipswich,
sagði fyrir brottförina til Sovétríkj-
anna til fundar við Baltacha, að
samningurinn væri virði um 100
þúsund punda. Ekki er ljóst hvenær
sá sovéski heldur til Englands, eða
hvort fjölskylda hans fær að fara
með honum. Baltacha, sem er þrí-
tugur, hefur leikið 40 landsleiki fyrir
Sovétríkin.
London. Jim Smith hefur látið
af störfum sem framkvæmdastjóri
enska knattspyrnuliðsins Queens
Park Rangers og tekið við stjórninni
hjá botnliði 1. deildar, Newcastle.
Smith gerði 3 ára samning við liðið
sem aðeins hefur unnið tvo leiki á
keppnistfmabilinu og ekki náð að
skora í 8 af sfðustu 9 leikjum sínum.
Smith leitaði strax aðstoðar aðdá-
enda liðsins við að koma því úr
botnsætinu og sagði að deildin væri
opin og ekki eins sterk og menn
héldu og það gæfi Newcastle mögu-
leika á að þoka sér ofar á töflunni.
Talið er að fyrrum framkvæmda-
stjóri Tottenham, Peter Shreeve, sé
lfklegasti eftirmaður Smith hjá
QPR.
Amsterdam. í Hollandi er
PSV Eindhoven enn í efsta sætinu
með 23 stig, Fortuna Sittard kenur
næst með 21 stig. PSV lék ekki um
helgina, en Fortuna Sittard vann 2-0
sigur á Willem II á útivelli. Ajax er
nú í 1. sæti deildarinnar eftir 1-0
sigur á Haarlem á útivelli. B W Den
Bosch og Veendam gerðu 1-1 jafn'-
tefli, Volendam og PEC Zwolle
gerðu einnig 1-1 jafntefli, FC
Utrecht vann 3-2 sigur á Roda,
MVV lá á heimavelli 0-1 gegn FC
Twente.
Mikið
í leikjum ameríska fótboltans um
síðustu helgi var mikið um óvænt
úrslit. Línur eru nú famar að skýrast
nokkuð í flestum riðlum deildarinn-
Sigur Tampa Bay á Buffalo Bills
kemur mjög á óvart, Tampa Bay
hafði aðeins unnið 2 leiki fyrir þenn-
an leik, en Buffalo aðeins tapað 2
leikjum. New York Giants unnu
sigur á Phoenix Cardinals í mjög
mikilvægum leik í austur-riðli Natio-
nal-deildarinnar og í sama riðli unnu
meistararnir Washington Redskins
sigur á Philadelphia Eagles og halda
því enn í vonina um að komast í
úrslit. Baráttan í þessum riðli er
mikil og enn getur allt gerst. Þá
kemur á óvart að Kansas City Chiefs
Thunder Bay, Ontaríó.
Risto Laakonen frá Finnlandi sigraði
í heimsbikarmóti í skíðastökki af
120 m palli sem fram fór í Kanada
um helgina. Finninn stökk 126 og
121,5 m í stökkum sínum og er nú
efstur að stigum í heimsbikarkeppn-
inni í stökki. Annar í Thunder Bay
varð Norðmaðurinn Erik Johnsen
og þriðji varð V-Þjóðverjinn Dieter
Thoma. Thoma er nú annar að
stigum í heimsbikarkeppninni, en
Johnsen þriðji. Finninn fljúgandi,
Mitti Nykanen, féll úr keppni um
helgina, en er í 9. sæti í stigakeppn-
inni, 30 stigum á eftir fyrsta manni.
Brussel. Mechelen er nú í efsta
sæti belgísku 1. deildarinnar með 28
stig, eftir 17 leiki, en liðið gerði 1-1
jafntefli gegn Beveren á útiVelli um
helgina. Anderlecht er í 2. sæti með
27 stig eftir 3-1 sigur á Cercle Brugge
á útivelli. FC Liege kemur næst með
25 stig, en liðið tapaaði um helgina
0-1 fyrir Beerschot á útivelli. Önnur
úrslit urðu þau að Waragem tapaði
0-1 fyrir Lierse, Molenbeek tapaði
heima 1-4 fyrir Club Brugge, Racing
Mechelen vann Lokeren 3-0, Stan-
dard Liege og Antwerpen gerðu 3-3
jafntefli, Genk lá gegn St. Truiden
heima og Charleroi vann Kortrijk
2-1 heima.
Tokyo. Fremsti maraþon-
hlaupari Japana, Oshihiko Seko,
sem vann London maraþonið 1986
og Boston maraþonið í fyrra, mun
leggja hlaupaskóna á hilíuna þann
18. þessa mánaðar. Þann dag mun
hann hlaupa með sveit Japans í
alþjóðlegu hlaupi í borginni Chiba,
sem er skammt frá Tokyo.
Canberra. Tveir ástralskir
lyftingamenn sem komu í gær fyrir
rannsóknarnefnd, segja að þjálfari
þeirra hjá áströlsku íþróttastofnun-
inni, hafí hvatt þá til þess að neyta
ólöglegra lyfja, ella misstu þeir fram-
færslustyrk sinn. Kappamir sögðu
að beinlínis hefði verið ætlast til þess
að þeir neyttu lyfja, en án þeirra
hefðu þeir aldrei náð þeim lágmörk-
um sem sett voru hvað varðar árang-
ur þeirra. Þeir sögðust einnig hafa
smyglað lyfjunum til landsins fyrir
þjálfara sinn, sem hefði síðan gefið
þeim lyfin, bæði f töflum og spraut-
um. Þetta átti sér stað á árunum
1981-1984, en lyftingamennimir,
sem nú em hættir keppni, segjast
báðir enn finna fyrir aukaverkunum
af völdum lyfjanna, sem meðal ann-
ars voru „anaboliskir sterar". Þá
kom fram við yfirheyrslur hjá rann-
sóknarnefndinni að frjálsíþrótta-
konan Gael Martin sagði, að á árinu
1985 hefðu um 30% frjálsíþrótta-
fólks hjá íþróttastofnununni neytt
hormónalyfja.
Ameríski fótboltinn:
um óvænt
vann New York Jets í jöfnum leik. I Staðan í NFL-deildinni:
vestur-riðli American-deildarinnar Amencan deUdin:
er mikil keppni um toppsætið. L.A. Auetur-iMUi:
Raiders unnu mjog nauman sigur á Indianapoli„ Colu. ,4 s o 6 321 267 ie
Denver Broncos um helgina og nu New Engiand Patdoti.. 14 8 0 6 230 256 16
eru 3 lið efst og jöfn í riðlinum. Þá NewYorkJets. 14 6 1 7 311 317 13
kemur einnig á óvart að Pittsburgh Miami Doiphins.. 14 5 0 9 257 302 10
vann Houston, en gengi þessara liða
hefur verið nokkuð ólíkt í vetur.
úrslit
Mið-riðill:
Cincinnati Bengals .... 14 11
Cleveland Browns....... 14 9
Houston Oilers.......... 14 9
Pittsburgh Steelers .... 14 4
0 3 422 271 22
0 5 245 227 18
0 5 360 331 18
0 10 282 377 8
Úrslit helgarinnar:
Tampa Bay Buccaneers-Buffalo Bills ..
Cleveland Browns-Dallas Cowboys ....
Detroit Lions-Green Bay Packers........
Indianapolis Colts-Miami Dolphins......
New York Giants-Phoenix Cardinals ...
Cincinnati Bengals-San Diego Chargers
San Francisco 49ers-Atlanta Falcons ..
New England Patriots-Seattle Seahawks
Washington Redskins-Philadelphia Eagles
Kansas City Chiefs-New York Jets ....
Los Angeles Raiders-Denver Broncos ..
Minnesota Vikings-New Orleans Saints .
Pittsburgh Steelers-Houston Oilers ....
Los Angeles Rams-Chicago Bears.........
10- 5
24-21
30- 14
31- 28
44- 7
27-10
13- 3
13- 7
20- 19
38-34
21- 20
45- 3
37-34
23- 3
Vestur-riðill:
Los Angeles Raiders
Denver Broncos ....
Seattle Seahawks ...
San Diego Chargers.
Kansas City Chieís .
National-deildin:
Austur-riðill:
New York Giants ....
Philadelphia Eagles ..
Phoenix Cardinals ...
Washington Redskins
Dallas Cowboys.........
. 14
. 14
. 14
..13
..13
7 267 289 14
7 292 300 14
7 254 278 14
9 187 305 8
9 229 268 7
5 310 265 18
6 333 295 16
7 310 349 14
7 311 343 14
Mið-riðill:
Chicago Bears.......... 14 11
Minnesota Vikings .... 14 10
DetroitLions ........... 14 4
Tampa Bay Buccaneers . 13 3
Green Bay Packers .... 14 2
0 12 234 341 4
0 3 265 172 22
0 4 372 188 20
0 10 198 272 8
0 10 233 330 6
0 12 196 292 4
Vestur-riðill:
New Orleans Saints .... 14
San Francisco 49ers ... 13
Los Angeles Rams........ 14
Atlanta Falcons......... 14
5 285 244 18
5 323 232 16
6 347 270 16
9 228 283 10
Ameríski fótboltinn:
Úr leik í bandarísku NFL-deildinni. Þessi íþrótt er nú í mikilli sókn á íslandi.
Dregið i riðla i EM og HM
Dregið hefur verið í riðla í Evrópu-
keppni landsliða í körfuknattleik. ís-
land lenti í ríðli með Portúgölum,
Ungverjum, ísraelsmönnum og
Belgum.
Leikið verður í Portúgal í mai n.k. og
tvö efstu iiðin komast í úrslit keppninn-
ar. íslenska liðið ætti að geta unnið
Portúgali og Belga, en Ungverjar gætu
reynst erfiðir. Þess ber þó að geta að
Laszlo Nemeth landsliðsþjálfari íslands
er Ungverji og því öilum hnútum kunn-
ugur í þeirra herbúðum. ísraelska iiðið
er væntanlega það langsterkasta í þess-
um riðli.
í heimsmeistarakeppninni ienti ís- *
land í riðli með Englandi, Svíþjóð,
Portúgai og Púllandi. Leikið verður i
Skíði - Heimsbikarkeppnin:
Girardelli vann nú
loks sigur í svigi
Marc Girardelli frá Luxemborg vann
sinn fyrsta sigur í svigi í Heimsbikar-
keppninni, frá því hann vann í Heaven-
ly Valley i Kaliforníu 1985, er hann
stóð uppi sem sigurvegarí í Sestriere á
Ítalíu á gær.
ZÚriCh. Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið hefur sektað N-Ira um
3.500 dali vegna þess að flöskum var
kastað inná völlinn í Belfast í sept-
ember s.l. þegar N-írar léku gegn
grönnum sínum írum í 6. riðli
undankeppni HM. Ekki þótti ástæða
til frekari aðgerða gegn N-írum þar
sem leikurinn fór að öðru leyti fram
í ró og spekt.
Accra. Á laugardaginn kemur
mun Ghana-búinn Axumah Nelson
verja WBC heimsmeistaratitil sinn í
yfírfjaðurvigt í hnefaleikum er hann
mætir Brasilíumanninum Sidnei dal
Rovero. Nelson sem aðeins hefur
tapað einu sinni í 29 viðureignum,
segist frekar vilja láta lífið í
hringnum, en að lítilsvirða fána
þjóðar sinnar með því að tapa. „Ef
ég tapa, megi ég þá hvíla í friði,“
segir Nelson. Brasilíumaðurinn er
einnig sigurviss og segist hafa lofað
þjóð sinni heimsmeistaratitlinum
sem jólgjöf.
Girardelli hefur átt við meiðsl að
strfða síðan hann féll illa í Sestriere
1986. Þá fór hann úr axlarlið á ísilagðri
brautinni, en færið í gær var ekki
ósvipað. í janúar s.l. féll hann illa og
meiddist á hné og olnboga og síðan
hefur hann átt í erfiðleikum með
æfingar.
„Mig hefur lengi dreymt um þessa
stund,“ sagði Girardelli eftir svigið í
gær. „En stundum hef ég verið í vafa
að það tækist. Ég hef ekki verið uppá
mitt besta í langan tíma og það er erfitt
að æfa þegar maður er einn síns liðs.
Ég hef engan til að bera mig við og það
tekur langan tíma að laga tæknilega
galla,“ sagði Girardelli.
Girardelli, sem fæddur er í Austur-
ríki, en keppir fyrir Luxemborg, var
79/100 úr sekúndu á undan Jonasi
Nilsson frá Svfþjóð, sem varð í 2. sæti,
en hann varð einnig í því sæti í
Sestriere 1985, 1986 og 1987. í þriðja
sæti varð Paul Ascola frá Sviss.
Ólympíumeistarinn Alberto Tomba
frá Ítalíu féll úr keppni í annað sinn á
keppnistímabilinu sem er nýhafið, er
hann keyrði niður hlið í síðari ferðinni,
en hann hafði þá bestan tíma kepp-
enda.
1 stigakeppni Heimsbikarkeppninn-
ar hefur Pirmin Zurbriggen frá Sviss
forystu með 50 stig, en hann varð að
láta sér lynda 31. sætið í gær, eftir að
hafa unnið tvær fyrstu svigkeppnir
vetrarins. Girardelli er í 2. sæti með 35
stig. Hans Enn frá Austurríki er í 3.
sæti með 21 stig. Alberto Tomba er í
10. sæti með 12 stig, en hann á ekki von
á stigum í jafn ríkum mæli og Girardelli
og Zurbriggen, því hann keppir ekki í
bruni vegna þess að móðir hans er
hrædd um að hann slasi sig í þeirri
grein. BL
Englandi í scptembcr, en íslendingar
höfðu sótt um að riðillinn yrði leikinn
hér á landi, en því var hafnað. Ein
þessara þjóða kemst í úrsiit heimsmeist-
arakeppninnar og því verður róðurinn
þungur hjá okkar mönnum. Ekld er þó
úti öli von því á fundi Alþjóöa körfu-
knattleikssambandsins í aprfl n.k. verð-
ur tekin afstaða til þess hvort atvinnu-
mönnum verður leyft að leika með
landsliðum sínum, en fari svo að það
verði samþykkt, sem mjög líklegt er
talið, þá getur Pétur Guðmundsson á
ný leikið með ísienska landsiiöinu, eftir
langt hlé.
Pétur Guðmundsson í landsleik gegn Dönum í
Hagaskóla, íslund vann þann leik með 7 stiga mnn.
PÉTUR
ZOPHONÍASSON
3.
Marc Girardelli fagnaði sigri í sviginu í Sestriere á
Ítalíu á gær.
VKINGS
IÆKJARÆIT
ÍANGINN OG DÓMARINN
Þáttur af Sigurdi skurdi
og Skúla sýslumanni
Ásgeír Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurður, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn máisins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
„n lABi irge rs“
vc irufj (rst ir
Ný íþrótt stígur sín fyrstu skref á íslandi
Eins og skýrt var frá í Tímanum
fyrír skömmu þá var stofnað fót-
boltalið í Kópavogi, sem hefur amer-
ískan fótbolta á stefnuskrá sinni. í
greininni var sagt að félagið, „Fjall-
konan Valrún“ væri hið fyrsta sinnar
tegundar á fsiandi, en fleirí lið væru
á leiðinni fram í dagsljósið.
Ungir Akureyringar höfðu sam-
band við Tímann og vildu koma því
á framfæri að norðan heiða hefði
.verið stofnað fótboltalið þann 5.
október, eða nokkru áður en „Val-
rúnu“ var hleypt af stokkunum.
Þetta félag ku heita „VMA
Burgers", en það eru nemendur
Verkmenntaskólans sem standa að
liðinu. „Við vorum fyrstir að stofna
lið en þeir í Menntaskólanum fylgdu
síðan á eftir. Við lékum æfingaleik
við þá í haust á menntaskólavellin-
um, en ég veit ekki hvort við fáum
að vera í friði þar til lengdar," sagði
nemandi Verkmenntaskólans sem
hafði samband við Tímann.
Lið þeirra menntskælinga heitir
„Folarnir" og mun hafa verið stofn-
að þann. 24. október. Að sögn
VMA nema munu þessu tvö norð-
lensku „fótboltalið“ hafa hug á sam-
vinnu hvað varðar æfingar með vor-
inu. Hvort þeir fengju að athafna sig
á menntaskólavellinum vissi hann
ekki, en bætti við að þá yrðu önnur
eyfirsk tún fyrir valinu, sem æfinga-
svæði fyrir þessa eitilhörðu norð-
lensku áhugamenn um fótbolta að
hætti vesturheimskra.
Ekki munu þessi lið, hvorki norð-
an né sunnan heiða, láta áhaldaskort
Madrid. Á Spáni deila Barce-
lona og Real Madrid með sér efsta
sætinu, bæði liðin hafa 23 stig úr 14
leikjum. Barcelona hefur betra
markahlutfali og telst því efst. Úrslit
helgarinnar urðu þau að Barcelona
vann 2-1 sigur á Logrones, Real
Madrid vann nágranna sína í Atle-
tico með sömu markatölu. Þá urðu
sömu úrslit í leikjum Sporting og
Espanol, Sporting í vil, og Celta og
Real Murcia þeim fyrrnefndu í vil.
1-1 jafntefli varð í leikjum Osasuna
og Elche og Real Betis og Cadiz.
Real Sociedad og Malaga gerðu 2-2
jafntefli, en hjá Real Zaragoza og
Sevilla var jafnteflið markalaust. Þá
vann Real Valladolid 1-0 sigur á
Athletico Bilbao. Sevilla er nú í 3.
sæti deildarinnar með 18 stig.
vuo..,.
VÍKINGSLÆKJARÆTIIV
Pétur Zophoníasson
Þetta er íjórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á sínum tíma. í þessu
bindi eru i-, k- og 1-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjamasona og Kristínar Bjama-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til vom í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
fylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.
ÞORÐUR KAKALI
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og-mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókfest af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í Isiendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar og
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonar sögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn ljóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
ljóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sam-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
há sér við iðkun íþróttarinnar, en
mjög dýrt mun vera að kaupa slíkan
varning til landsins, enda all mikill
útbúnaður þegar allt er tínt til.
Hlífar, hjálmar og axlapúðar eru
óspart notaðar til verndar ltkaman-
um í ameríska fótboltanum, en einn
viðmælenda Tímans, sem stundar
þessa fþrótt hérlendis, sagði að með
öllum þessum útbúnaði og dóti yrði
þetta einungis hættulegra en ella.
BL
Bonn. Vetrarfrí er nú í v-þýsku
knattspyrnunni eftir leikina um síð-
ustu helgi. Næstu leikir verða ekki
fyrr en 18. febrúar. Bayern Múnchen
hefur 3 stiga forystu í deildinni með
26 stig eftir 17 leiki. Bayem gerði um
helgina markalaust jafntefli gegn
Bochum og Werder Bremen og
Stuttgert, sem berjast einnig á
toppnum, gerðu 3-3 jafntefli. Ásgeir
Sigurvinsson skoraði fyrsta mark
Stuttgart í leiknum eftir 4 mín. leik.
Bremen er nú í 2. sæti deildarinnar
með 23 stig, en Stuttgart hefur 21
stig í 4. sæti. Köln hefur 22 stig f 3.
sæti, eftir 1-0 sigur á Waldhof Mann-
heim. Eintracht Frankfurt vann 1-0
sigur á Hanover, en Stuttgart Kick-
ers og Núrnberg gerðu 3-3 jafntefli.
Markalaust jafntefli varð í leikjum
Karlsruhe og Bomssia Dortmund,
Bayer Uerdingen og St. Pauli og
Kaiserslautern og Bayer Leverku-
sen. Leik Hamburger og Borussia
Mönchengladbach var frestað þar til
eftir vetrarfrí.
I kvöld!
Heil umferð verður leikin í 1.
deiidinni í handknattleik í kvöld. Á
Hlíðarenda leika Valur og FH kl.
18.00. eða 15 mín. fyrr en vanalega.
Fram og Víkingur Ieika í Laugardals-
höll kl. 20.00. f Digranesi verða 2
leikir. UBK og KR leika ki. 20.00 og
strax á eftir eða kl. 21.15 leika
Stjarnan og Grótta. Á Akureyri fá
KA-menn Vestmannaeyinga I heim-
sókn.
í kvöld verður úrvalsleikur í
körfuknattleik í íþróttahúsinu í
Keflavík. Þar mætir landsliðið úr-
valsliði, sem þeir Tórfi Magnússon
og Gunnar Þorvarðarson stjórna.
Leikurinn hefst kl.20.00.
SKVG6SJA - BOKABÚÐ OIIVERS STEINS SE