Tíminn - 07.12.1988, Síða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 7. desember 1988
UTLOND
lliilllii!
Nýjar tillögur Gorbatsjovs:
JOLAGJOFIN I AR?
Leit að Ieiðum til þess að stuðla að áframhaldandi þíðu í
samskiptum stórveldanna mun verða höfuðviðfangsefni við-
ræðna þeirra Reagans og Gorbatsjovs er þeir hittast á
hádegisverðarfundi í New York í dag.
Um leið verður fundur leiðtog-
anna eins konar kveðjufundur Rea-
gans og Gorbatsjovs, en Reagan
lætur af embætti eftir 45 daga, sem
elsti forseti í sögu Bandaríkjanna,
en hann er nú 77 ára að aldri. Hafa
menn haft við orð að fáir hefðu búist
við fundi í svo vinsamlegum anda
milli leiðtoganna, þegar Reagan tók
við embætti fyrir átta árum. Þessi
forseti, sem hóf feril sinn með stefnu
er byggði á hatrömum and-kommún-
isma, nefndi Sovétríkin „heimsveldi
hins illa“ og hét að einangra þau um
aldur og ævi, mun afhenda eftir-
manni sínum völd, þegar nýtt og
óvenju vinsamlegt andrúmsloft ríkir
í samskiptum austurs og vesturs.
„Þetta verður síðasti fundur okkar
og ég bjóst ekki við því er ég tók við
embætti að ég ætti eftir að sakna
þessa að hitta Sovétleiðtogann ekki
aftur,“ sagði Reagan í útvarpsræðu
á laugardag.
„En nú hittumst við Gorbatsjov í
fimmta sinni og vonumst til að geta
eflt friðinn.“
Valdataka Bush
táknar áframhald
Reagan kvaðst mundu segja Gor-
batsjov að þótt víst mundu breyting-
ar fylgja embættistöku Bush, vara-
forseta, sem kjörinn var Bandaríkja-
forseti þann 8. nóvember, þá þýddi
valdataka hans um leið áframhald.
„Enginn er betur að sér í málum
er snerta samskipti Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna, né hefur traustari
stöðu, til þess að fást við utanríkis-
mál,“ sagði forsetinn.
Bush mun ekki hafa sig mikið í
frammi á fundinum, til þess að
forðast að þurfa að tjá sig um ýmis
sérmál, áður en hann sest í forseta-
stólinn. Þetta er í þriðja skipti sem
hann hittir Gorbatsjov. Hann varð
fyrstur háttsettra valdamanna í
Bandaríkjunum til þess að hitta
Sovétleiðtogann, en það var er hann
fór til Moskvu að vera viðstaddur
útför Konstantin Chernenko árið
1985. Hann hitti Gorbatsjov á ný á
leiðtogafundinum í Washington í
desember sl. og í kosningabaráttu
sinni sagði hann að hann vildi efna
til leiðtogafundar sem forseti við
allra fyrsta tækifæri er byðist til að
efla friðinn. Þó gat hann þess nýlega
að áður en af slíkum fundi yrði
mundi utanríkisráðherra hans ráðg-
ast við evrópska bandamenn og
Eduard Shevardnadze, hinn sovéska
utanríkisráðherra.
Raunsæi leiðar-
stjarna Bush
Bush hét því að raunsæi mundi
verða leiðarstjarna sín í stefnumót-
un gagnvart Sovétríkjunum og að
hann mundi halda áfram að tækni-
væða Bandaríkjaher, þótt hann um
leið mundi leita leiða til að fækka
langdrægum kjamaeldflaugum um
50 prósent. „Ég mun hvorki láta
leiðast af óhóflegri bjartsýni né óhóf-
hafa nýjar og athyglisverðar tillögur
í farteskinu, en vildi ekki tjá sig um
þær nánar. „Líta verður svo á að
heimsókn Gorbatsjovs verði jólagjöf
til bandarísku þjóðarinnar og alls
mannkyns,“ bætti hann við. Þótt
hvorugur aðili muni leggja nýjar
tillögur fram strax á miðvikudags-
fundinum, þá segja talsmenn Rea-
gans að nóg annað sé um að ræða;
sennilegt er að þar á meðal verði
brottflutningur sovésks liðs frá Af-
ghanistan, sem hefur verið stöðvað-
ur í bili, en á að vera lokið um
miðjan febrúar. Þá munu leiðtogam-
ir fara yfir stöðu afvopnunarvið-
ræðna, sem hefjast eiga á ný í Genf
þann 15. febrúar. Loks er ætlunin að
ræða mannréttindamál.
„Við munum hlýða á allt það sem
Gorbatsjov hefur að segja og auðvit-
að verða þetta alvöru viðræður...
en hvað mig snertir, þá mun ég alls
ekki tjá mig um tillögur um fækkun
einnar eða annarrar tegundar vopna,
né neitt slíkt,“ sagði Bush.
legri svartsýni," sagði hann á fundi
með kjósendum í nóvember.
Gorbatsjov kemur til Bandaríkj-
anna á þriðjudag, en mun ávarpa
þing Sameinuðu þjóðanna á mið-
vikudag, áður en viðræðurnar við
Reagan hefjast.
Nýjar og athyglis-
verðar tillögur
Æðstaráðsmaðurinn Nikolai
Shishlin segir að Gorbatsjov mundi
ARAFAT Á FUND GYÐINGA
FRÁ AMERÍKU í SVÍÞJÓÐ
Frá Þór Jónssyni fréttaritara Tímans í Stokk-
hólml:
Yasser Arafat leiðtogi PLO kom
til Stokkhólms árdegis í gær til að
ræða deilu Palestínuaraba og ísraela
við hóp kunnra bandarískra gyðinga.
Gyðingarnir komu frá Bandaríkjun-
um til Svíþjóðar með mikilli leynd
daginn áður.
Arafat er í Svíþjóð í boði sænsku
ríkisstjórnarinnar og með blessun
allra formanna stjórnarandstöðu-
flokkanna, sem vonast til að fá
tækifærí til að hitta Arafat meðan á
heimsókn hans stendur. Arafat
hverfur aftur frá Svíþjóð seinna í
dag.
Með heimboði Arafats lætur
sænska stjórnin í ljós álit sitt á
ákvörðun. utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Georg Shultz, að heimila
ekki Arafat að koma á samkomu
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Svíþjóð er hlutlaust land með
tilliti til deilunnar. Stjórnin viður-
kennir tilverurétt ísraels og Palest-
ínuríkis, sjálfsákvörðunarrétt
beggja þjóða, fordæmir hryðjuverk
og nú nýverið fordæmdi utanríkis-
ráðherra Svía í ræðu á fundi SÞ,
„kúgun ísraela á Palestínuaröbum".
Undirbúningur með leynd
Fundur Arafats og gyðinganna í
Stokkhólmi er að undirlagi utanrík-
isráðherra Svía, Sten Anderson sem
undanfarna níu mánuði hefur setið
marga leynilega og óopinbera fundi
með gyðingunum og fulltrúum PLO.
í lok nóvember sl. var hér í Svíþjóð
einn helsti ráðgjafi Arafats, Khalde
Hassan, að undirbúa fundinn og bjó
hjá Evgeni Makhlouf, forstöðu-
manni PLO-skrifstofnunnar hér í
Stokkhólmi.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur hitt Makhlouf
þennan að máli, eins og frægt er
orðið.
Sten Anderson vonar að fúndur-
inn geti leitt til að grundvöllur skap-
ist fyrir samræður PLO og ísraels-
stjórnar um friðsamlega lausn á
deilunni. Meðan á heimsókn Arafats
stendur mun hann auk gyðinganna
hitta að máli forsætisráðherra Svía,
utanríkisráðherra og forseta sænska
þingsins. Ef til vill mun Arafat hitta
formenn annarra stjórnmálaflokka
einnig. Ingvar Carlson forsætisráð-
herra var í opinberri heimsókn í
Frakklandi, þegar hann með tveggja
daga fyrirvara frétti um að von væri
á Arafat til Svíþjóðar. Hann stytti
heimsókn sína snarlega og kom
heim til Svíþjóðar í gær.
Gyðingarnir á eigin vegum
Gyðingarnir komu ekki til fundar
við PLO leiðtogann í umboði neinna
samtaka, en eru í fylkingarbrjósti
fyrir friðleitandi gyðinga í Banda-
ríkjunum. í fyrstu stóð til að gyðing-
arnir yrðu fleiri á fundinum, en að
minnsta kosti þrír hættu við að koma
til Svíþjóðar á síðustu stundu. Meðal
þeirra sem komu er Rita Hauser
repúblikani, sem áður starfaði með
utanríkisráðherra B andaríkj anna,
áðurnefndum Shultz, í friðarum-
leitunum hans í Mið-Austurlöndum.
Hún er einn stofnenda þrýstisamtak-
anna International Center for Peace
in the Middle-East, ICPME.
Öll samtök gyðinga í Bandaríkj-
unum hafa lýst því yfir að þau eigi
engan þátt í þessum samræðum við
Arafat. Gyðingarnir eru í Svíþjóð á
eigin vegum.
„Ekkert hefur breyst eftir yfirlýs-
ingarnar í Alsír,“ segir Tom
Neuman foringi í stærstu gyðinga-
samtökum í Bandaríkjunum í viðtali
við Dagens Nyheter og vísar til þess
að Arafat lýsti yfir stofnun Palest-
ínuríkis hinn 15. nóvember sl.
„ Arafat er ennþá hryðjuverkamaður
og við tölum ekki við hryðjuverka-
menn, en bandarískir gyðingar eru
eins misjafnir og þeir eru margir,
það er hægur vandi að safna saman
litlum hóp sem er reiðubúinn að tala
við Arafat.“
ísraelsmenn tóku einnig óstinnt
upp að leiðtoga PLO skyldi boðið til
Svíþjóðar. Sendiherra Svía í Jerúsa-
lem voru afhent formleg mótmæli
utanríkisráðuneytisins á mánudag.
Samtök gyðinga í Svíþjóð hafa ein-
nig lýst yfir óánægju sinni.
Mikil lögregluvemd
Ýtrustu öryggisráðstafanir voru
viðhafðar þegar leiðtogi PLO lenti á
Arlandaflugvelli í Stokkhólmi, énda
mun Arafat vera hótað morði upp á
hvern dag. Ekki færri en 300 ein-
kennis- og óeinkennisklæddir lög-
reglumenn gæta leiðtogans og hann
er fluttur milli húsa í Stokkhólmi í
þyrlu. Það mun vera einsdæmi í
Svíþjóð að gestur sænsku stjórnar-
innar er fluttur með þessum hætti frá
dvalarstað til fundarhalds. Fjórar
þyrlur fara alltaf saman, tvær sams-
konar þyrlur fljúga á undan og í
annarri situr Arafat. Þetta er til að
villa um fyrir hugsanlegum hermdar-
verkamönnum. Svo hefur hann tvær
lögregluþyrlur til fylgdar. Skýli úr
skotheldu gleri var reist yfir gröf
Olof Palme, áður en Arafat lagði
blómsveig á leiði hans í gær. Palme
tók á móti Arafat í fyrri heimsókn
hans til Svíþjóðar árið 1983. Engin
teljandi mótmæli hafa verið gegn
Arafat á götum Stokkhólmsborgar
líkt og síðast þegar hann heimsótti
borgina. Miklu heldur hefur honum
verið fagnað.
—.'•'.■.swsMiXWAW