Tíminn - 07.12.1988, Blaðsíða 14

Tíminn - 07.12.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn •Miðvikudagur 7. desember 1988 Siglaugur Brynleifsson: Myndir og bréf Collingwoods Komnar eru út svipmyndir og sendibréf úr islandsför W.G. Collingwoods 1987. Haraldur Hannesson hafði umsjón með útgáfunni, samdi ævisögu Collingwoods, þýddi sendibréf hans og samdi við þau skýringar, ritaði eftirmála, kannaði allt myndefni og samtíi ásamt Ásgeiri. S. Björnssyni texta með Ijósmyndum. Umsjón með útgáfunni hafði Ásgeir S. Björnsson. Hann kannaði allt myndefni og samdi texta með lista- verkum Collingwoods. Haraldur Hannesson, Björn Th. Björnsson og Janet B. Collingwood Gnosspelius rituðu formála. Sigurþór Jak- obsson sá um uppsetningu og útlit. Bókaútgáfan Örn og örlygur 1988. Upphafið að ferðalagi Williams Gershoms Collingwoods og dr. Jóns Stefánssonar til Islands má rekja til tveggja íslenskra menntamanna, Guðbrands Vigfússonar prófessors í Oxford og meistara Eiríks Magnús- sonar bókavarðar í Cambridge á síðari hluta 19. aldar. „Meðal þeirra sem Eiríkur Magn- ússon kynntist var William Morris, skáld, listhönnuður og mikill áhuga- maður um miðaldabókmenntir, ekki síst íslenskar. Morris tók að „nema íslensku undir handleiðslu Eiríks Magnússonar haustið 1868, og unnu þeir jafnframt að þýðingum á nokkr- um perlum hinna íslensku forn- sagna“ (Haraldur Hannesson: ís- landsförin 1897). „Morris ferðaðist hér á Iandi á árunum 1871 og 1873. Síðar stofnaði hann eitt frægasta einkaprentverk á Englandi, Kelm- scott Press, sem starfaði frá 1891- 1898. Þær 52 bækur, sem þar voru fullprentaðar og unnar eru meðal fegurstu bóka 19. aldar.“ (William S. Peterson: A Bibliography of the Kelmscott Press. Oxford 1984). Meðal vina Morrisar var Colling- wood og þannig kynntist hann Eiríki Magnússyni og einnig dr. Jóni Stef- ánssyni sem varð ferðafélagi Colling- woods um ísland. Collingwood hóf rannsóknir á norrænum menningar- áhrifum í Miðlöndum og leitaði þá oft til Eiríks Magnússonar varðandi norræn efni og arfleifð. Samstarf Eiríks og Collingwoods við þýðingu Kormákssögu og síauk- inn áhugi hans á íslenskum bók- menntaarfi varð til þess að ákveðið var að hann og dr. Jón Stefánsson færu til íslands í þeim tilgangi að kanna sögustaði íslendingasagna og teikna þá og mála, dr. Jón skyldi rita textann í væntanlegri bók um ferð- ina. Afrakstur ferðarinnar voru um 300 myndir, sem sýnir augljóslega að Collingwood hefur ekki slegið slöku við á ferðalaginu. Margar þessara mynda vann hann nánar þegar heim var komið. Af þessum myndum birtust 152 myndir í bók þeirra félaga um ferðina, sem kom út 1899, „Að Pilgrimage to the Saga-Steads of Iceland." Þegar um sagnfræðirit og enn frekar ferðalýsingar og lýsingar á samfélagsháttum er að ræða, er nauðsynlegt að vita hver höfundur- inn er, þá fyrst og fremst úr hvaða umhverfi hann er sprottinn. Hver setning er persónuleg tjáning, yfir- gripsmiklar lýsingar eru mótaðar af viðfangsefninu, en viðhorf höf- undarins til þess skiptir meginmáli. Hver var William Gershom Colling- wood? „W.G. Collingwood fæddist í Liverpool 6. ágúst 1854. Faðir hans var kunnur vatnslitamálari, móðir hans af svissneskum ættum... hann stundaði heimspeki og fagurfræði við háskólann í Oxford og síðar við listaháskólann í London. .„ (Harald- ur Hannesson: W.G. Colingwood - Ævi hans og starf). Collingwood stundaði fornminjarannsóknir og búsetusögu og ritaði bækur um fag- urfræðileg efni að námi loknu. Hann kynntist John Ruskin, sem var talinn fremsti Iistfræðingur Englendinga þá og fram á 20. öld. Hann var sam- starfsmaður Ruskins um langa hríð. Hann skrifaði ævisögu hans „The Life and Work of John Ruskin", mikið rit sem kom út í tveimur bindum 1893. Ritverk Collingwoods eru fjölmörg og eru birtar skrár um þau í þessu riti. Auk þessara starfa stundaði Coll- ingwood málaralistina, hann hafði snemma hrifist af litum og formi, faðir hans kenndi honum frumatrið- in og með honum hafi hann ferðast um fegurstu héruð Englands þar sem hann málaði. Kynni hans af Ruskin urðu ekki til þess að slæva áhugann. Collingwood ólst upp og mótaðist af viðmiðunum og smekk mennta- manna og listamanna, þ.e. yfirstétt- anna. Það er oft vitnað í orð Disrael- is um hinar tvær þjóðir, sem byggðu England, yfirstétt og lágstétt. Skilin voru mjög skörp og skilningur milli stétta takmarkaður. Þetta var bæði menningarleg skipting og efnahags- leg. Málfarsleg skipting var áber- andi. Petta ber að hafa í huga þegar bréf Collingwoods til fjölskyldu hans eru lesin og hann kynnist samfélagi, sem stakk mjög svo í stúf við samfélags- legar venjur og smekk hans sjálfs. íslenskt samfélag um síðustu alda- mót var fyrst og fremst samfélag bænda og fiskimanna ásamt fámenn- um hópi embættismanna og kaup- manna. Efnamunur var mikill; þessa gætti mjög meðal bænda. Um alda- mótin voru auðugustu einstakling- arnir nokkur hópur stórbænda og jarðeigenda, nokkur hópur taldist til meðalbænda, en meginhluti stéttar- innar gerði vart meir en að skrimta sem einyrkjar. Útvegur hafði aukist á 19. öld og þar var sama munstrið og meðal bænda, nokkrir útvegs- menn efnuðust allvel, margir þeirra stunduðu jafnframt landbúnað, svo sem hákarlamenn við Djúp og við Eyjafjörð og þeir sem gerðu út skútur frá Reykjavík. Verslunar- ábati fór vaxandi með auknum út- vegi. Fjármagnsmyndun var hér sáralítil í samanburði við t.d. England. Þéttbýli var takmarkað viö fá- menn kauptún og bæi, íbúar þéttbýl- is töldust 15.561 og sveita 62.909, árið 1901. Það sérstæðasta við þetta samfélag miðað við evrópskt var að málfarslegrar og menningarlegrar stéttaskiptingar gætti lítt. Þar kom til fámenni þjóðarinnar. SVÍNADALUR í Borgarfirði. Myndin er máluð sunnan í Geld- ingadraga, hjá Brennigili. Drag- hálsá liðast fram í Geitabergsvatn og á bænum Geitabergi rýkur glatt. Fjær sér á Glammastaða- vatn. í hlíðinni mótarfyrirtveimur dölum. Upp af Geitabergi er Hös- uldalur en fjær Kuhallardalur. Milli dalanna er Gláma en handan Kúhallardals Þúfufjall og Fer- stikluháls. Örnefnin Geldinga- drangi, Svínadalur og Kúhallar- dalur eiga öll rætur í ránsferðum Harðar og Hólmverja að því er segir í sögu þeirra. (27. júlí) Fátækt var hér mikil og öllum ferðamönnum auðsæ, búsetuhættir gerðu það að verkum. Á Englandi hagaði öðruvísi til, þar var fátæktina einkum að finna í eymdarhverfum stórborganna og þangað leituðu ferðamenn lítt. Samkvæmt lýsingum Mayhews og fleiri höfunda sem rannsökuðu þessi efni á Englandi var eymdin ömurleg í verst komnu fátæktarvilpum stórborganna. Collingwood kemur hingað beint úr umhverfi siðmenntaðrar borgara- stéttar á Englandi til lands þar sem varla var hægt að tala um borgara- stétt, hvað þá siðaða borgarastétt, sem hefur reyndar átt harla erfitt uppdráttar allt fram á vora daga um alla samfélagsmótun. Enn er eitt atriði sem vert er að hafa í huga, sem var upphafið að upplausn fornra samfélagshátta á þessu tímabili, sem höfðu mótað íslenskt samfélag allt frá miðöldum. Þegar slík upplausn er í gerjun er fyrsta merkið afræksla fornra verð- mæta og gilda, andlegra sem efnis- legra. Röskun grafhelginnar er merki um upplausn og menningar- legt eymdarástand. Hirðuleysi og sóðaskapur varðandi fornar minjar, kirkjugripi og legsteina urðu Coll- ingwood ásteytingarsteinn, sem hann getur nokkrum sinnum um í bréfum sínum. Hann nefnir nokkur hrikaleg dæmi um eyðileggingu leg- steina og hirðuleysi um forna kirkju- gripi, altaristöflur, prédikunarstóla, kaleika og patínur. Og fyrir slíkum barbarisma stóðu ýmsir merkis- klerkar landsins á þeirri tíð. Þessari stefnu er reyndar haldið áfram nú, því að undanfarna áratugi hefur sléttun kirkjugarða verið talið mikið framfaraspor til þæginda þeim sem sjá um slátt þeirra og umhirðu. Tæknivæddum barbörum nú á dög- um verður því enn meira ágengt í röskun grafhelginnar en forverum þeirra ótæknivæddum. í fyrstu bréfum Collingwoods frá Reykjavík gætir mikilla vonbrigða, „allt virðist hálfkarað“ og sóða- skapurinn og óreiðan hvarvetna. En þó er margt sem vegur á móii þessu: „En í allri þessari fátækt og deyfð býr hér margt ágætt og gáfað fólk“. Ahuginn á ætlan þeirra félaga var mikill og ferð þeirra þótti miklum tíðindum sæta. Collingwood rekur síðan ferðasöguna. Þeir halda á Snæfellsnes og í Dali á sögustaði HAUKADALUR í Biskupstungum, óðal Haukdæla og lærdómssetur. Þar undi Ari fróði Þorgilsson forð- um og nam fræði sín. Hallur Þór- arinsson, fóstri hans, mundi þá Þangbrandurskírði hann þrevetr- an. T.v. sést Geysir. (8. ágúst). Eyrbyggju og Laxdælu, Colling- wood verður oft hugsað til hinna glæstu kappa og kvenna íslendinga- sagnanna og lýsinga á húsakynnum og öllum búnaði. Nú var öldin önnur. Honum fellur aldrei verk úr hendi, hann teiknar og málar sögu- staðina og auk þess oft myndir af börnum, sem greiðslu fyrir góðgerð- ir og næturgreiða, þegar neitað var að taka við greiðslu. Aðbúðin var misjöfn, þrifnaðurinn var ekki alls staðar til fyrirmyndar, en á stöku stað var allt eins og best var á kosið. Húsakynnin hjá Torfa í Ólafsdal minntu hann á þokkalegt býh í Sviss, þrifalegt og að auki menningarlegt og siðað viðmót húsráðenda. Ferða- mátinn þreytir hann og enn frekar rigningin og volkið. Síðan er farið um Húnaþing, þar unir hann sér vel eins og á Stóru-Borg, Komsá og í Hvammi f Vatnsdal. Þrátt fyrir erfiðleika og vonbrigði þá var allt til vinnandi að sjá landið, hina fjölbreytilegu náttúru og fegurð hauðurs og hafs. Landið var óbreytt frá sviði Islendingasagna og engir ferðasöguhöfundar hafa látið eftir jafn dýrlega ferðasögu og Colling- wood í myndum og teikningum. Bréfin um ferðalagið um Suður- land eru mettuð rigningarsudda, mýrafenjum og volki. Öðru hvoru stytti þó upp, en hann gerir þó nokkurn samanburð á Vestur- og Norðurlandi og hins vegar Suður- landi. Ýmsar frægustu myndir hans eru úr þessum landsfjórðungi, Skálholt, Óddi og Þingvellir. Bréfið til eiginkonu listamannsins, skrifað í Reykjavík 13. ágúst er mjög opinskátt varðandi skoðanir Colling- woods á neikvæðari einkennum ís- lendinga. Hann skrifar þetta bréf þegar sér fyrir lok ferðalagsins og kominn til Reykjavíkur úr Suður- landsferðinni. í þessu bréfi segir m.a.: „Sé í raun og veru um ein- hverjar gáfur (landsmanna) að ræða væri það einna helst á bókmennta- sviðinu, enda er fjöldi manna kallað- ur skáld á þessu landi þar sem hver gæs er gerð að háfleygum svani. Aftur á móti virðist engin sála bera skyn á... efnahagsleg sannindi, stjórnmálalegt raunsæi eða nokkur önnur fræðileg efni...“ Þetta er skrifað annó 1897. Hefur eitthvað breyst? Það sem er athyglisvert í umsögn bréfritara er viðhorf landsmanna til skáldskapar, hér var annar hvor maður yrkjandi,- sem var hvergi stundað af sveitaalþýðu annars stað-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.