Tíminn - 09.12.1988, Síða 3
ff.i'f.iY v
Tíminn 3
k Fostúdágur ‘ð'. 'desember 1988
Skipulagsstjóri ríkisins um bíóið sem varð að búðum:
Fyrsta eintakið af Nýja testamenti Odds í útgáfu Lögbergs, var aflient í Haligrímskirkju. F.v. Jón Aðalsteinn
Jónsson, hr. Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands, dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, og Sverrir Krístinsson, útgef-
andi. Tímamynd Gunnar
Lögberg gefur útfyrstu íslensku prentuðu bókina sem enn er þekkt:
„Leitun að þvílíkum
atburði í sögu okkar“
Nýja testamenti Odds Gott-
skálkssonar er komið út að nýju og
nú í aðgengilegri útgáfu fyrir al-
menning og er letrið m.a. fært til
nútímalegrar stafsetningar. Oddur
varð fyrstur til að þýða Nýja testa-
menti á íslensku og auk þess er
útgáfa hans í Hróarskeldu árið
1540 fyrsta bók sem prentuð var á
íslensku og enn er til svo vitað sé.
Við þessa nýju útgáfu Lögbergs
gat dr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup, þess að leitun væri að
þvílíkum atburði í sögu landsins
með tilliti til áhrifa þýðingar Odds
á íslenska tungu og þróun málsins.
Sagði Sigurbjörn við þetta tækifæri
að útgáfa Odds væri að þessu leyti
meira afrek en sjálf útgáfa Guð-
brandsbiblíu fjörutíu árum síðar.
Þess má geta að enginn einn maður
hefur haft meiri áhrif á íslenska
þýðingu Nýja testamentis en
Oddur, eins og við höfum hana
fyrir augum í útgáfu Biblíunnar frá
1981.
Það var árið 1981 sem hafist var
handa við þessa útgáfu Lögbergs
og var það er Árni Óskarsson hóf
að vélrita upp N.t. Odds. Skömmu
síðar slógust fleiri í för með Árna
og varð fljótlega til útgáfuráð til
ráðuneytis um stafsetningu. Hana
skipuðu dr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup, Guðrún Kvaran, dr. phil,
Gunnlaugur Ingólfsson, cand.
mag. og Jón Aðalsteinn Jónsson,
cand. mag. Þessi fjögur síðar-
nefndu rita og merk inngangsorð
að N.t. Odds um Odd sjálfan og
um þýðingu Odds. Þegar vélritun
var lokið að fullu tók frú Halldóra
Eldjám að sér að slá textann inn á
tölvu og var það verk unnið í
samvinnu við Orðabók Háskóla
íslands.
Það er bókaforlagið Lögberg
sem gefur þessa útgáfu á N.t. Odds
út í samvinnu við Hið íslenska
biblíufélag, kirkjuráð og Orðabók
Háskólans, en hópur valinkunnra
fræðimanna og bókagerðarmanna
hefur lagt hönd á plóginn til að
gera þessa útgáfu sem besta úr
garði.
Á kynningarfundi í Hallgríms-
kirkju sagði útgefandinn, Sverrír
Kristinsson, að þó svo allt þetta
fólk hafi lagt sig mjög fram við
verk sitt, sé það umhugsunarvert
að verkið tók lengri tíma nú en sem
nemur tímanum frá því Oddur hóf
að þýða N.t. og þar til bókin kom
út í Hróarskeldu.
Það var herra Pétur Sigurgeirs-
son, biskup íslands, sem tók við
fyrsta eintakinu fyrir hönd þjóð-
kirkjunnar, úr hendi Sverris Krist-
inssonar. Við það tilefni sagðist
hann efast um að við íslendingar
töluðum íslensku í dag ef ekki
hefði komið til stórvirki Odds
Gottskálkssonar sem hann vann í
fjósinu í Skálholti fyrir nær fjórum
og hálfri öld. KB
Amælisverðar
Félagsmálaráðherra óskaði eftir
því við embætti skipulagsstjóra ríkis-
ins fyrir nokkru að athugað yrði
hvort farið hefði verið að lögum og
reglugerðum um skipulagsmál við
byggingu Kringlunnar nr.4.
Eins og fram kom hér í blaðinu 2.
des. s.l. var talsverður hluti Kringl-
unnar nr. 4 skipulagður og sam-
þykktur sem kvikmyndahús. Hins
vegar virðast byggingaraðilar mjög
fljótlega hafa hætt við kvikmynda-
húsið og ákveðið að breyta húsnæð-
inu í verslanir og þjónustuhúsnæði.
Hins vegar komu þessar breyting-
ar ekki fyrir skipulagsyfirvöld og
aðrar stofnanir borgarinnar fyrr en
um og eftir miðjan síðasta mánuð og
hinar róttæku breytingar t.d. fyrst
samþykktar með fyrirvörum í bygg-
inganefnd þann 24. nóvember s.l.,
sex dögum áður en Kringlan 4 var
opnuð.
„Svar við fyrirspurn ráðherra hef-
ur nú borist og samkvæmt því er
ljóst að uppdrættir og teikningar
hafa nú fengið umfjöllun og endan-
lega afgreiðslu hjá byggingayfirvöld-
um Reykjavíkur.
Hjá bygginganefnd voru gerðir
aðfarir
fyrirvarar um samþykki heilbrigðis-
ráðs og slökkviliðsstjóra og því virð-
ist hafa verið kippt í lag samkvæmt
upplýsingum skipulagsstjóra," sagði
Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytis-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu við
Tímann.
Berglind sagði að í svari skipulags-
stjóra kæmi fram gagnrýni á hvernig
að breytingum á upphaflegum fyrir-
ætlunum um notkun hússins hefði
verið staðið gagnvart skipulagsyfir-
völdum, en embættið teldi að málin
hefðu nú hlotið endanlega af-
greiðslu. -sá
Steingrímur og Thatcher ræddu um Rockall:
Viðræður um
lausn deilu
Deila íslendinga og Breta um
yfirráðin yfir Rockall svæðinu kom
til umræðu á fundi Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra og
Margaret Thatchers forsætisráð-
herra Breta sem fram fór á þriðju-
dag.
Steingrímur sagði að hann hefði
farið fram á það við Thatcher að efnt
yrði til fundar með þeim þjóðum
sem gerðu tilkall til svæðisins og
reynt yrði að leysa deiluna áður en
alþjóða hafbotnsstofnunin gerir til-
kall til svæðisins. Forsætisráðherra
sagði að Thatcher hefði tekið vel í
þessa málaleitan, „niðurstaðan varð
sú að ég kem til með að skrifa henni
og fara fram á það formlega að slíkar
viðræður fari fram,“ sagði Stein-
grímur.
Innan skamms verða birtar niður-
stöður íslensks-dansks rannsóknar-
leiðangurs, þar sem jarðlög á Rock-
all svæðinu voru tekin til athugunar.
Rannsóknarleiðangurinn var farinn
árið 1987 en undanfarið ár hefur
verið unnið úr tölulegum upplýsing-
um sem safnað var. Samkvæmt
niðurstöðunum hafa fundist jarðlög
undir hraunskorpunni, sem ef til vill
eru setlög, svipuð þeim sem fundist
hafa 'í N-Evrópu og innihalda olíu.
Þessi vitneskja er grunnur þess að
svæðið verði rannsakað nánar, þar
sem ekki er lengur útilokað að olía
gæti leynst í jarðlögunum.
-ABÓ
S.H. eykur hlutafé
í dótturfyrirtæki
Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna samþykkti nýlega á fundi í
Grimsby að auka hlutafé í dótturfyr-
irtæki sínu þar, I.F.P.L. um sem
svarar 253 milljónum íslenskra
króna.
Fyrirtækið sem um ræðir hefur
verið í hraðri uppbyggingu á síðustu
árum, en fjármagnað nær eingöngu
með lánum, auk þess sem nokkurt
tap hefur verið á undanförnum mán-
uðum, m.a. vegna mikils fjármagns-
kostnaðar og umfangsmikillar vöru-
þróunar. Þess má geta að á yfirstand-
andi ársfjórðungi lýkur þróun 22
tegunda nýrra vara sem áætlað er að
fari á almennan markað fyrir mars
n.k.
Mikill vöxtur er nú á markaði fyrir
frosin matvæli í Bretlandi og öðrum
ríkjum Evrópubandalagsins og allar
spár benda til þess að sú þróun haldi
áfram.
Þessi ákvörðun stjórnar S.H. er
tekin m.a. vegna þess að hún álítur
að mjög mikilvægt sé að íslenskir
fiskframleiðendur styrki sem best
stöðu sína á mikilvægum markaði
Evrópubandalagsins og það verði
best gert með því að tryggja rekstur
eigin fyrirtækja innan þess.
SSH
SDÍ óhresst með meðferð Vestmannaeyinga á dýrum:
Barist fyrir
sex gemlinga
Samband dýravemdunarfélaga
íslands hefur farið þess á leit við
bæjarfógetann í Vestmannaeyjum
að sex gemlingar sem komið var
fyrir á Lambhillu í Stórhöfða til
vetrarbeitar verði teknir þaðan
aftur. Ástæðan fyrir því að Sam-
band dýraverndunarfélaga grípur
til þessa ráðs er sú að það telur
meðferð af þessu tagi vera
ómannúðlega og hún varði við lög
um dýravernd.
Á Lambhillu er gras grænt allt
árið og í fréttatíma Sjónvarpsins í
s.l. viku var sýnt er gemlingarnir
voru fluttir á sylluna en um 100
metra þverhnípi er af Lambhillu
og niður í sjó.
í Morgunblaðinu í gær var rang-
hermt að um kæru hafi verið að
ræða. Hjá Sambandi dýraverndun-
arfélaga íslands fengust þær upp-
lýsingar að beiðni af þessu tagi hafi
verið send með þeim rökum m.a.
að sá tími væri liðinn að svo þröngt
sé í búi að nýta þurfi hverja tuggu
og í lögum sé kveðið svo á að þeim
er halda dýr er skylt að sjá þeim
fyrir rúmgóðum og skjólgóðum
vörslustað, einnig nægilegu vatni
og fóðri. SSH
Baráttufundur er í Háskólabíói í dag kl. 15
o o
ASI - BHMR - BSRB - FBM - KÍ - SÍB