Tíminn - 09.12.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.12.1988, Blaðsíða 5
Föstudagur 9. desember 1988 O Tíminn 5 Lögreglufélag Reykjavíkur sendir frá sér skýrslu um ástandið innan lögreglunnar: EINN LOGREGLUBILLI UTKOLLUMIREYKJAVIK Lögreglufélag Reykjavíkur sendi í gær frá sér „all- svæsna“ skýrslu um ástandiö innan lögreglunnar. Skýrslan ber nafnið „Löggæsla í Reykjavík 1988 - Mannafli, Yinnuaðstaða, Vandamál. í framhaldi af skýrslunni var boðað til blaðamannafundar þar sem saman var komin stjórn félagsins auk nokkurra lögreglumanna og fjölda frétta- og blaðamanna. Hér á eftir verður tæpt lítillega á því helsta sem fram kom í skýrslunni og á fundinum. Einn bíll frá Gróttu að Hvalfjarðarbotni! „Ástandið er orðið það slæmt að dæmi eru til um að aðeins hafi einn lögreglubíll sinnt útköllum á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu í allt að því þrjá og hálfan tíma. Petta hefur ekki gerst einu sinni og ekki tvisvar. Þegar ástandið er orðið slíkt sjáum við lögreglumenn okkur neydda til að kynna almenn- ingi ástandið. Finnst fólki það eðlilegt? Finnst fólki rúðubrotin í miðbænum í lagi? Við .fullyrðum að við það er hægt að ráða, sé vilji fyrir hendi. “ Það var varaformaður Lögreglufélagsins, Benedikt Lund, sem þannig lýsti ástandinu. „Segja má að eftirlitsþáttur lög- reglustarfsins hafi verið lagður niður. Ástæðan er einföld, það er ekki tími til neins annars en að sinna útköllum. Þegar svo naumt er skorið að starfsmenn fíkniefna- deildar verða að velja á milli þess að sleppa því að upplýsa ákveðin mál, eða vinna áfram í sjálfboða- vinnu, þá er ástandið orðið heldur dapurt“, sagði Jóhannes Jónasson, en hann vann að miklu leyti skýrsl- una í samvinnu við einstaka lög- reglumenn. Ónafngreindur starfsmaður fíkniefnadeildar vildi reyndar taka það fram að þeir hefðu aldrei verið beðnir að vinna kauplaust, slíkt hefði verið ákvörðun hvers og eins. í máli Jóns Péturssonar, for- manns félagsins, kom m.a. fram að um helgar færist löggæslan algjör- lega úr úthverfunum og niður í miðbæ. Útstöðvarnar verða óvirk- ar og því fer mestur tíminn í það á kvöldin og um helgar að aka á milli staða. Eftir hádegi, á laugardögum á meðan á vaktaskiptum stendur, sem er tíminn frá hálfeitt til fjögur, er allt niður í einn lögreglubíll við störf á svæðinu frá Gróttu upp í Hvalfj arðarbotn. Einnig eru dæmi þess að aðeins einn varðstjóri hafi verið á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu og enginn maður annar, á sama tíma. Vaktaskiptunum er þannig hátt- að að þau fara öll fram í aðalstöð- inni sem leiðir til þess að þrisvar á sólarhring, klukkutíma í senn, má segja að borgin sé meira og minna löggæslulaus. í slíkum tilfellum, við bestu aðstæður, tekur það t.d. íbúa í Breiðholti a.m.k. 15 mínútur að fá aðstoð lögreglu. Hvað þá ef kallið berst úr Mosfellsbæ og líf liggur við! Áf þessu sést meðal annars að það eru vissir tímar sem bjóða hreinlega upp á lögbrot af ýmsu tagi. Ekki hugsuð sem ádeila á einstaka menn - og þó Forsvarsmenn Lögreglufélagsins voru að því spurðir hvort ekki væri hér um að ræða beina ádeilu á Böðvar Bragason. Formaður félagsins sagði skýrsl- una ekki hugsaða sem ádeilu á einstaka menn, hcldur væri hún hugsuð sem upplýsingarit og til þess ætluð að vekja umræður og umhugsun um ástand löggæslunn- ar. Sem dæmi um aðbúnað lögregl- unnar sagði Jón: „Hjálmarnir sem okkur er ætlað að nota þegar það á við eru síðan um 1914. Eg held að það sé nú enginn búnaður síðan á tímum Napóleons, en það liggur nærri“. Benedikt Lund tók nokkuð í annan streng og sagði m.a. „Það kemur alveg fram í skýrslunni að við erum ekki á allan hátt ánægðir með störf Böðvars Bragasonar, og höfum ekkert farið leynt með það. Okkur fínnst embættið hafa dalað allverulega. Hvað varðar aukið álag á starfs- menn lögreglunnar má t.d. benda á að við höfum nú tekið við löggæslu á Seltjamarnesi, Mos- fellsbæ og Kjalarnesi. Með tilliti til þess var sagt upp sex mönnum í Hafnarfirði. Ekki einn einasti mað- ur hefur verið ráðinn til Reykjavík- urlögreglunnar í staðinn. Það má kannski segja að Böðvar hefði ekki átt að taka við auknum verkefnum án þess að fá til þess aukinn mannafla, en þó held ég að vandamálið megi fyrst og fremst rekja til ráðuneytisins. Þú getur ekki sagt manni að skerá niður og láta hann alfarið um að finna til þess leiðir sem jafnvel eru ekki til. Maður segir ekki við konu sína einn daginn að nú verði að spara. Matarreikningurinn megi ekki fara yfir tíuþúsund krónur. Hún veit sem er að til þess er eina leiðin að svelta góðan part mánaðarins." Ölvaðir ökumenn látnir afskiptalausir „Tölur sýna að færri eru teknir ölvaðir við akstur nú enn í fyrra. Á sama tíma fjölgar þeim tilfellum þar sem ölvaðir valda slysum. Ölv- uðum ökumönnum hefur síst fækkað, það er hreinlega ekki mannskapur til að fylgjast með slíku.“ Til staðfestingar á því hversu margir ölvaðir ökumenn sleppa við afskipti lögreglu sökum mannfæð- ar má nefna að fyrir nokkrum árum fékk þáverandi lögreglustjóri liðsauka úr lögregluskólanum. „Nánast hver einasti bíll sem sást til var stöðvaður, og sumir allt upp í þrisvar. Þessa umræddu helgi voru teknir á fimmta tug ökum- anna fyrir ætlaða ölvun. Þetta var áður en bílafjöldi landsmanna tók þann kipp sem hann seinna gerði, svo auðvelt er að gera sér í hugarlund hverjar niðurstöðurnar yrðu ef slíkt væri gert í dag!“ „Ölvunartékk eru liðin tíð. Mannskapurinn er ekki til staðar. Jafnvel þó við fengjum 30 stöðu- gildi í dag til viðbótar við það sem fyrir er, myndi það ekki duga til.“ Benedikt Lund nefndi sem dæmi að fyrir um hálfum mánuði hafi hann verið á helgarvakt í Mosfells- bæ. Þá hafi borist böð til hans um aðstoð í Reykjavík. Hann átti einungis að sinna eftirliti með ölv- unarakstri. Klukkan 02:00 var hann kominn í austurhluta borgarinnar þar sem Frá blaðamannafundinum í gær, (f.v.) Jóhannes Jónusson, Jón Pétursson, Lund. honum var gert að halda sig. Það var svo ekki fyrr en klukkan að ganga sex um morguninn sem hann gat farið að sinna upphaflegu verk- efni. Ástæðan var sú að hann lenti strax í útköllum. Fyrstu afskipti hans af ölvunar- akstri komu til af því að hann var á leið í enn eitt útkallið „en mætti þá svo áberandi dauðadrukknum ökumanni að ekki var annað verj- andi en hafa af honum afskipti." Hraðaóðir einnig látnir afskiptalausir Radarsveitir lögreglunnar eru að mestu horfnar af götunum. Ekki er lengur um að ræða radarmælingar við fjölfarnar leiðir eins og áður var. Ástæðan er sú sama og áður, mannaflinn hefur ekki undan við útköll. Eftirliti á ómerktum bílum var hrundið af stað á síðasta ári. Því var fljótlega hætt, jafnvel þó að áhrif þess væru augljós. Ökuhrað- inn minnkaði, mun færri voru tekn- ir á svokölluðum sviptingarhraða. Það sama er uppi á teningnum hvað varðar eftirlit með ölvuðum ökumönnum, það hefur að mestu verið aflagt. Sem dæmi má nefna síðustu helgi. „í Breiðholti hefur myndast ann- að Hallærisplan. Þar voru rúðu- brjótar og brennuvargar um síð- ustu helgi, þar af leiðandi var umferðardeildin öll í Breiðholtinu að sinna þessum málum, í stað þess að sinna umferðarmálum. Þetta var á föstudagskvöldi og það kvöld var enginn ökumaður sviptur ökuleyfi en kvöldið eftir þegar minna var að gera við útköll voru fjórir sviptir ökuleyfi fyrir of hraðan akstur og talsverður fjöldi tekinn vegna gruns um ölvunar- akstur." Umferðardeildin meira og minna I lamasessi Benedikt Lund benti sérstaklega á þann gríðarlega niðurskurð sem hefði átt sér stað í umferðardeild lögreglunnar, þrátt fyrir spreng- ingu í bílaflota landsmanna að undanförnu. Árið 1984 voru u.þ.b. eitt þúsund bílar á hvern lögreglu- mann, en í dag er ástandið þannig að nú eru u.þ.b. 2040 bílar á hvern lögreglumann. Álagið á hvern lög- reglumann í umferðardeildinni hefur því rúmlega tvöfaldast á tæpum fimm árum. Á sama tíma hafði deildin yfir að ráða fimm bílum og fjórtán bifhjól- um. í dag eru bílarnir fjórir og bifhjólin níu, þar af eru tvö mjög léleg og varla er hægt að segja að nema sex þeirra geti talist duga til daglegra nota. Niðurskurðurinn í tækjakostin- um er reyndar víðar. Vegfarendur verða varir við þetta á þann hátt að nærri liggur að lögreglubíll sé orð- inn harla sjaldgæf sjón í Reykja- vík! Það kom fram í umræðum um bílakost lögreglunnar að fyrir nokkru þegar Volvoumboðið hafi flutt inn Volvo með máttlausri vél og ætlunin hafi verið að sýna fólki fram á að Volvo þyrfti ekki að vera dýr hafi sá bíll ekki selst. Þegar liðið var á annað ár og bíllinn var enn óseldur var lögreglunni afhent- ur hann. Fjarskiptabúnaðurinn hlægilegur { fyrrnefndri skýrslu kemur með- al annars fram að fjarskiptabúnað- ur lögreglunnar sé gamall og úr sér genginn, meira eða minna bilaður og þörf sé endurnýjunar. Einnig er bent á að þrátt fyrir athugasemdir lögreglunnar hafi verið ákveðið að kaupa fjarskipta- kerfi frá LM Ericson, sem ku ekki vera gallalaust. Yfirmenn lögreglunnar báru fyr- ir sig ástæður svo sem þær að leitáð hefði verið eftir tilboðum hér á landi og þetta kerfi komið best út. Það var fljótlega hrakið. Þá var gripið til þess ráðs að formaður lögreglufélagsins, Benedikt Tfmamynd: Gunnar segja að tilboða hafi verið leitað erlendis. Það var einnig hrakið. Það virðist því vera sem um geðþóttaákvörðun einstakra manna hafi verið að ræða, ekki síst með tilliti til þess að leitað hefur verið álits sænsku lögreglunnar á þessum tækjum, en þeir nota þau einmitt. Svörin voru þau að þeir væru á höttunum eftir nýjum tækjum. Þau væru alls ekki hentug við þær aðstæður sem lögreglan vinnur við. Þetta kerfi mun í heild sinni kosta á bilinu 10-12 milljónir. Sú tala inniheldur reyndar ekki kostn- að við uppsetningu, smíði utan um tækin og söluskatt, enda er nú svo komið að ekki er til fé til að greiða af þeim söluskattihn. Hver lítil hand-talstöð í þessu kerfi kostar um 190.000 krónur. Á sama tíma treystirt.d. umboðsaðili Motorola sér til þess að útvega mun hentugri og ekki óvandaðri tæki fyrir um 50.000 krónur. Fjöldi lögreglumanna álíkaog 1944 - Árásir á lögreglumenn hafa aukist mjög að undanförnu. Hver eru ykkar viðbrögð? „Nýjasta dæmi um viðbrögð lög- reglumanna við þessum árásum er frá því um síðustu helgi. Þá kom stúlka að fjórum lög- reglumönnum niðri í miðbæ. Hún hafði verið slegin í andlitið og óskaði eftir því að lögreglan hefði afskipti af þeim sem það gerði. Það gerðu þeir ekki heldur kölluðu þeir á liðsauka. Þeir þorðu ekki á staðinn til að handtaka þennan ákveðna aðila af hræðslu við lík- amsmeiðingar. Ég hef margoft, sem formaður félagsins, farið fram á að lögreglu- mennirnir séu ekki látnir vera tveir og tveir saman niðri í miðbæ en það er samt gert.“ Sem dæmi um það hversu mannfá lögreglan er orðin nefndi Benedikt Lund að áður en Mos- fellsbær og Seltjarnarnes bættust við þeirra umdæmi hafi fyrrum lögreglustjóri farið fram á sextíu stöðugildi til viðbótar við þau sem þá voru. Sú fjölgun hafi verið mjög rökrétt miðað við stækkun borgar- innar. Nú hefði umdæmið enn stækkað en þrátt fyrir það hefði mönnum ekki verið fjölgað. Fjöldi lögreglu- mannanna er reyndar sagður vera í líkingu við það sem hann var árið 1944! - áma

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.