Tíminn - 09.12.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.12.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 9. desember 1988 Tíminn 7 Jólaþrenna Happdrættis Háskólans komin á sölustaði: Happaþrennan tveggja ára Happdrætti Háskólans er nú að ljúka við að dreifa Jólaþrennu sinni á sölustaði um land allt. Með Jólaþrennunni lýkur öðru ári happaþrennu Happdrættis Háskól- ans en alls hefur happdrættið greitt út 650 milljónir króna í vinninga í happaþrennunni og 180 manns hafa unnið 500 þúsund krónur hver. Ágóði af sölu happaþrennumið- anna rennur til byggingafram- kvæmda og tækjakaupa fyrir Há- skólann. -sá Það myndi eitt sér valda miklum breytingum á íslenskum fjármagns- markaði. Ekki er vitað hvaða áhrif það hefði á vexti. Þeir gætu rokið upp úr öllu valdi þannig að um talsverða hættu gæti verið að ræða fyrir lántakendur auk annarra hrær- inga sem ekki verður séð fyrir end- ann á,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagðist að lokum alls ekki vera alfarið á móti hugmyndum um húsbréfakerfið. Hann teldi þvert á móti sjálfsagt að prófa kerfið í litlum mæli samhliða núverandi kerfi en fara yrði varlega í þessum sökum og varast kollsteypur. Þannig ætti að vera hægt að sjá bæði kosti og galla þess án þess að bylta núverandi kerfi sem hann sagð- ist álíta að leggja bæri áherslu á, efla og bæta. —sá ATBURÐIRNIR ÚNN'URnCiAA % I *' ? r % Atburðirnir á Stapa eftir Jón Dan 2. útgáfa er komin í bókabúðir Hvað var það sem átti sér stað á Stapa sumarið góða? Lesið um einn mesta grallara í íslenskum bókmenntum. Saga full af kynlegum atburðum, kímni og lúmsku háði. og spennu. Bókaútgáfan Keilir. Samtök launafólks halda baráttufund í Háskólabíói: Afnámi samnings- réttar mótmælt „VERJUM HEIMILIN - MEÐ SAMNINGSRÉTTI - GEGN AT- VINNULEYSI" er yfirskrift bar- áttufundar sem heildarsamtök launafólks efna til í Háskólabíói n.k. laugardag kl. 15:00. Á fundin- um verður mótmælt því mannrétt- indabroti, sem samtökin telja að felist í afnámi samningsréttar. Þau samtök, sem að fundinum standa eru Alþýðusamband íslands, Bandalag háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Félag bókagerðarmanna, Kennarasam- band íslands, og Samband ís- lenskra bankamanna. Ávörp fundarins flytja Ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. Á dagskrá verður ennfremur kórsöngur, upplestur o.fl. Fundar- stjóri verður Svanhildur Kaaber, formaður K.í. Lúðrasveit verkalýðsins mun leika í anddyri Háskólabíós frá kl. 14:30. Barnagæsla verður á staðnum. í fréttatilkynningu frá sam- tökunum er lögð áhersla á að með fjöldaþátttöku sýni fólk í verki þann hug sem býr að baki kröfunni um endurheimt samningsréttarins. SSH Guðmundur Gylfi Guðmundsson: Húsabréfahugmyndimar settar fram eins og að nóg sé af lánsfé. Áherslan verði á núverandi kerfi: Biðtíminn að skreppa saman Hugmyndir um nýtt húsnæðiskerfi sem byggjast á svoköll- uðum húsbréfum hafa verið nokkuð til umræðu undanfarið. Nefnd á vegum félagsmálaráðherra hefur samið drög að frumvarpi sem ekki hafa enn verið birt opinberlega en voru þó til umræðu á þingi ASÍ. Tíminn ræddi við einn þeirra sem sátu í nefnd félagsmálaráðherra og telur húsbréfafyrirkomulagið vera framför, Ingva Örn Kristinsson hag- fræðing hjá Seðlabankanum. Viðtal við Ingva birtist þann 30. nóvember. Guðmundur Gylfi Guðmundsson hagfræðingur hjá Fasteignamati ríkisins var einnig í nefnd félags- málaráðherra. Hann hefur sumpart aðrar skoðanir á húsbréfakerfinu. Hann segir: „Lánsfjárskortur er það sem helst er til vandræða í húskaupamálum hér. Lánsfjárskorturinn stafar eink- um af tvennu, hárri eiginfjárstöðu í íbúðarhúsnæði og litlum áhvílandi lánum og almennu ástandi lána- markaðarins. Skorturinn veldur því að þeir sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn þurfa mjög mikið af nýjum lánum. Mark- aðurinn með eldra húsnæði er enn mjög fjárþurfi en eftir því sem núverandi húsnæðislánakerfi starfar lengur þá fjölgar eldri eignum með áhvílandi lánum. í Reykjavík hvíla nú lán stofnun- arinnar á um einum tíunda íbúðar- húsnæðis og biðtími eftir láni frá því að úrskurður liggur fyrir um láns- hæfi, er nú tvö ár en fer minnkandi. Húsnæðislánakerfið þarf að standa undir lánum á ekki bara nýju húsnæði, heldur eldra einnig. Að vísu kemur það fé að einhverju leyti inn í kerfið aftur sem sparnaður þeirra sem eru að selja þannig að nettó tölur um þessa hluti eru ýktar". Guðmundur sagði að lánsfjár- skortur hefði lengi verið verulegur og rifist um hverja lánskrónu þannig að skammta hefur þurft fé í húsnæð- islánakerfið. Þess vegna væru allar þessar reglur um lánsrétt og slíkt. Vegna þessa væri ekki rétt að bera saman húsnæðislánamál í Dan- mörku og hér eins og gert hefði verið í umræðunni um nýtt fyrirkomulag húsnæðislána; húsbréfin. „Ég tel,“ sagði Guðmundur, „að danska kerfið sé að sumu leyti líkara okkar núverandi kerfi heldur en húsbréfakerfinu sem verið er að ræða um. Ég vildi helst kalla hús- bréfakerfið skuldabréfaskiptakerfi. Þegar íbúð er seld er þar gert ráð fyrir að útbúið verði sérstakt skuldabréf sem selt er í skiptum fyrir annað svipað í Húsnæðisstofnun nema að á því síðarnefnda tekur Húsnæðisstofnun ábyrgð. Þetta bréf á að vera hægt að selja á opnum markaði eða fólk getur átt það. Þessi bréf eiga að vera betur gjaldgeng en bréf fólks með veð í eigin húsi - afföll af þeim mun minni og mun auðveldara að selja þau og öll áhætta á að vera óveruleg. í Danmörku hins vegar fær fólk peningana greidda en skrifar upp á skuldabréf en húsnæðisstofnunin selur sjálf bréfin. Ef Húsnæðisstofnun fengi heimild til að selja sjálf skuldabréf þá væri hér komið nánast sama kerfið og er í Danmörku. Yrði húsbréfakerfinu komið hér á, þyrfti jafnframt að sjá til þess að innlánsvextir eða vextir af keyptum skuldabréfum og útlánsvextir kæmu saman. Það sem hefur einkum háð húsnæðiskerfinu upp á síðkastið er mikill vaxtamunur milli þess og al- menns peningamarkaðar. Vaxtamunurinn hefur haft mikinn kostnað í för með sér fyrir Húsnæðis- stofnun og ríkið. Hugmyndirnar um húsabréfin finnst mér hafa verið settar fram eins og að ekki sé um lánsfjárskort að ræða og nóg sé til af peningum. Svo er því miður ekki og þess vegna álít ég að einhvers konar skömmtun sé nauðsynleg enn um sinn. Þó svo að lánsfé ykist er ég ekki viss um að húsbréfakerfið væri neitt betra en núverandi kerfi. Samkvæmt því yrðu öll ákvæði gagnvart lífeyris- sjóðunum felld niður og samið yrði við þá og aðra sjóði á opnum markaði og reynt að ná þannig öllu tiltæku fé. PÓSTFÁX TÍMANS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.