Tíminn - 09.12.1988, Síða 6
6 Tíminn
Föstudagur 9. desember 1988
örlygur Hálfdánarson, útgefandi, með vcrðlaunagripina á lofti, þegar Tíminn veitti gjöfinni viðtöku í Síðumúlanum í gær.
Tímamynd Gunnar
REYKJAVÍK PÁLS L
VEin í VERDLAUN
í fyrra jólablaöi Tímans, sem kemur út 15. desember er
efnt til krossgátu, sem byggð er á minnum úr bókmenntum
okkar. Höfundur gátunnar er séra Þórarinn Þór. Veitt
verða vegleg verðlaun frá Erni og Örlygi. Það er Reykja-
vík, Sögustaður við Sund, myndskreytt útgáfa í þremur
bindum eftir Pál Líndal. Þessi bókmenntaverðlaun eru að
verðmæti um 14 þúsund krónur.
Reykjavíkurbók Arnar og Ör-
lygs hf. er merkileg útgáfa. Hún
ætti að vera freistandi lesning fyrir
alla landsmenn og er efni hennar
sett fram á aðgengilegan hátt. Þeir
sem þekkja til bókarinnar Landið
þitt Island, sjá strax og þeir fletta
Reykjavíkurbókinni, að hún er
ekki sett upp á mjög ólíkan hátt að
grunni til. Allargöturogöllörnefni
eru í réttri stafrófsröð og er t.d.
hægt að fletta upp á öllum þekktum
húsheitum. Inn á milli eru svo
stuttar rammagreinar þar sem fram
koma skemmtilegar sögur og sagn-
ir sem ekki er beint hægt að setja í
flokk með einu atriði í stafrófsröð.
Mikill fjöldi mynda er í bókinni og
eru gamlar myndir gjarnan settar
við hlið nýrra sem teknar eru á
svipuðum slóðum. Það getur því
verið bæði skemmtilegt og fróðlegt
að fletta Reykjavíkurbókunum án
þess að vera að leita uppi einhvern
einn stað eða hús.
Páll Líndal er höfundur textans
í Reykjavíkurbókinni og leitar
hann víða fanga eins og sést best af
stöðugum tilvísunum til heimilda.
Fullt heiti bókarinnar er Reykja-
vík, Sögustaður við Sund, og ber
hún skýringartitilinn Saga og sér-
kenni höfuðborgarinnar í máli og
myndum. í bókinni er hver gata,
hvert sögufrægt hús og hvert ör-
nefni uppsláttarorð. Rakin er saga
Reykjavíkur og dregin fram sér-
kenni í markvisssm og efnisríkum
texta og auk þess í hátt á þriðja
þúsund gömlum og nýjum
myndum, málverkum, teikning-
um, kortum og uppdráttum. Þegar
Sýnishorn úr einni opnu Reykjavíkurbókarinnar.
eru komin út þrjú bindi Reykjavík-
urbókarinnar og þar með allir stað-
ir sem flokkaðir verða í stafrófsröð
frá a til ö. Fjórða bindið kemur út
á næsta ári og verður það svokölluð
lykilbók líkt og segja má um síð-
asta bindi í bókaflokknum Landið
þitt fsland. Hvert bindi um sig
kostar liðlega fjögur þúsund krón-
ur og er bókargjöf Arnar og Örlygs
hf. því að verðmæti 13-14 þúsund
krónur, en bækurnar eru gjöf frá
útgefanda til verðlaunakrossgátu
Tímans. Lausn krossgátunnar þarf
að skila fyrir 18. janúar 1989.
Örlygur Hálfdánarson, útgef-
andi, sagðist vona að bókarverð-
laun þessi kæmu að góðum notum
hvar sem þau lentu og yrðu verð-
launahafanum til skemmtunar og
fróðleiks. KB
Stjarn-
vísinda-
, félag
íslands
Stjarnvísindafélag íslands var
stofnað föstudaginn 2,desember síð-
astliðinn. Markmið félagsins er að
efla stjarnvísindi á íslandi. í þeim
tilgangi mun félagið m.a. stuðla að
vexti og viðgangi rannsókna í
stjörnufræði og stjarneðlisfræði hér-
lendis og leitast við að efla kynni
íslenskra stjarnvísindamanna inn-
byrðis og við aðra áhugamenn um
stjarnvísindi í landinu.
Félaginu er ætlað að vera vett-
vangur fræðslu og skoðanaskipta um
stjarnvísindaleg efni og mun það í
fyrstu gegna því hlutverki sínu með
því að halda umræðu- og fyrirlestra-
fundi. Síðar er reiknað með útgáfu
fréttabréfs og ráðstefnum á sviði
stjarnvísinda. Jafnframt mun það
beita sér fyrir auknum samskiptum
íslenskra og erlendra stjarnvísinda-
manna.
Félagið mun fylgjast með kennslu
í stjörnufræði í skólum og vinna að
framförum á því sviði. Einnig mun
það beita sér fyrir aukinni almenn-
ingsfræðslu um þessi vísindi og sögu
þeirra.
Formaður Stjarnvísindafélags ís-
lands er Einar H. Guðmundsson.
Auk hans sitja í stjórninni þeir Einar
Júlíusson og Karl Jósafatsson, og
eru þeir allir stjarneðlisfræðingar.
Rætt um stefnu-
atriði í
skólamálum
Menntamálaráðherra Svavar
Gestsson bauð dr. Wolfgang Edel-
stein, forstöðumanni Max Planck-
rannsóknastofnunarinnar í þrosk-
avísindum og skólarannsóknum í
Vestur-Berlín til vikudvalar hér á
landi nýlega til þess að ræða við
hann ásamt aðstoðarmönnum sínum
um ýmis stefnuatriði varðandi ís-
lenska skólastefnu. SSH
Fjórði stæða-
sjálfsalinn
Þann 21. nóv. s.l. var tekinn í
notkun nýr stæðasjálfsali, og er hann
sá fjórði sem settur er upp í Reykja-
vík. Þessi er nyrst við Þverholt,
austan Búnaðarbankans við Hlemm.
Gjaldið er 50 krónur á klukkustund
og er hámarkstími 2 klst. Sömu
reglur gilda um aukaleigugjald sem
á stöðumælum. Leiðbeiningar um
notkun er að finna á sjálfsalanum og
munu stöðumælaverðir leiðbeina
fólki til að byrja með.
Slæm frammistaða atvinnurekenda varðandi jafnréttismál:
Kærur aldrei fleiri
Það sem af er þessu ári hefur Jafnréttisráð fjallað um 15
kærur vegna brota á jafnréttislögunum. Kærur vegna meintra
brota á ákvæðum 5. greinar jafnréttislaganna hafa aldrei
verið eins raargar frá því að ráðið hóf störf.
Fimmta greinin fjallar um s&m-
skipti atvinnurekenda og starfsfólks
og kveður á um að atvinnurekendur
megi ekki í neinu tilliti mismuna
starfsfólki sínu eftir kynferði. f öll-
um tilvikum þar sem kært er vegna
brota á þessari grein er um að ræða
konur sem telja að sér hafi verið
mismu#iað vegna kynferðis á þann
veg að gengið hafi verið fram hjá
þeim við ráðningar í stöður eða
stöðuhækkanir, eða vegna launamis-
munar.
Allt síðastliðið ár voru kærur af
þessu tagi aðeins þrjár en eru hins
vegar orðnar níu taisins á þessu ári.
Af þessum kférumálum er búið að
afgreiða sex. í tveimur tilvikum taldi
ráðið að um brot á jafnréttislögunum
hafi verið að ræða. Annað þessara
mála varðaði ráðningu í stöðu spari-
sjóðsstjóra á Neskaupstað, en þar
var gengið fram hjá hæfri konu og
karl með minni menntun og starfs-
reynslu ráðinn í starfið án þess að
gildandi rök kæmi á móti. Jafnrétt-
isráð hefur nú höfðað mál vegna
þessarar kæru.
Ekki liggja alfarið fyrir skýringar
á þessari aukningu í kærumálum til
Jafnréttisráðs. Bent hefur verið á að
mikil umræða um réttindi og stöðu
kvenna í tengslum við norræna
kvennaþingið í sumar eigi hér e.t.v.
einhvern hlut að máli. Jafnréttisráð
hefur bent á að brot á 5. greininni
eru sjálfsagt ekkert algengari nú en
undanfarin ár, en konur eru hins
vegar duglegri við að leita réttar síns
í þessum efnum en þær hafa verið.
SSH
Nefnd um málefni RÚV:
ÁLITISKILAÐ
ÁLAUGARDAG
Starfsnefndin sem Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra,
skipaði til að kanna stöðu Ríkisút-
varpsins og gera tillögur um eflingu
þess mun skila áliti sínu næstkom-
andi laugardag. Ráðgert hafði ver-
ið að nefndin lyki störfum fyrir lok
nóvembermánaðar en enn munu
ekki vera fuilfrágengnar tillögur
varðandi fjármál stofnunarinnar.
Fjárhagsstaða Ríkisútvgrpsins
er slæm og skuldir þess nema nú
um hálfum milljarði króna og nálg-
ast því æ meir að geta ekki staðið
við skuldbindingar sínar.
Verkefni starfsnefndarinnar
miðast að því að finna afgerandi
lausn á fjárhagsvandanum og leiðir
til að tryggja fjárhag þess til fram-
búðar.
Ekki hefur reynst unnt að fá
uppgefnar þær tillögur sem nefndin
hefur nú þegar samþykkt, enda
vinnur hún á vegum ráðherra og
hann mun fyrstur berja þær augum.
SSH