Tíminn - 09.12.1988, Page 12
Föstudagur 9. desember 1988
12 Tíminn
ÚTLÖND
Tugir þúsunda láta
lífið I hörðum jarð-
skjálfta I Armeníu
Tugir þúsunda sovéskra borgara fórust í gífurlega hörðum
jarðskjálftá sem gekk yfir norðurhluta Armeníu á miðviku-
dagskvöld. Telja menn að jafnvel 50 þúsund manns hafi
farist. Meginhluti borgarinnar Leninakan eru nú rústir einar,
en í borginni bjuggu 200 þúsund manns. Það sama gildir um
fjölda þorpa og bæja á þessum slóðum. Er Ijóst að heimili
hundruð þúsunda Armena eru nú óíbúðarhæf og tugþúsundir
slasaðir.
FRÉTTAYFIRLIT
JERÚSALEM - fsraelskir
hermenn skutu palestínskan
ungling til bana og palestínskir
verslunareigendur lokuðu búð-
um sínum a hernumdu svæð-
unum þegar nákvæmlega ár
var liðið frá því að Palestínu-
menn hófu uppreisn sína gegn
hernámsliði Israela. Því létust
að minnsta kosti 330 Palest-
ínumenn á þessu fyrsta ári
uppreisnarinnar. Ellefu fsrael-
ar hafa týnt llfi.
BUENOS AIRES - Holl
endingur sem sakaður hefur
verið um stríðsglæpi var hand-
tekinn á heimili sínu í Buenos
Aires, 39 árum eftir að hann
flúði úr þýsku fangelsi. Argent-
ínsk fréttastofa sagði manninn I
vera Johann Olij Hottentort.
TEL AVIV - Miðstjórn ísra-
elska Verkamannaflokksins
samþykkti að halda í samn-
ingaviðræður um stjórnar-
myndum við aðalandstæðing-
inn, Likudbandalagið, um
áframhaldandi samsteypu-
stjórn. Eftir margra klukku-
stunda umræður kusu 690
manns viðræður en 390 voru á
móti.
BELGRAD - Níu manns
létust og tuttugu og einn slas-
aðist þegar strætisvagn fór út
af þjóðvegi í mikilli hálku.
LISSABON - UNITA
skæruliðahreyfingin sem berst
gegn marxistastjórninni í Ang-
ólu segist hafa drepið 45
stjórnarhermenn í bardaga í
síðustu viku. Þeirsegjastsjálfir
aðeins hafa misst þrjá skæru-
liða.
PRAG - Tékknesk yfirvöld
gáfu leyfi fyrir útifundi óopin-
berra mannréttindasamtaka í1
miðbæ Prag. Slíkt leyfi hefur
ekki fengist sfðan Vorið í Prag ■
blómstraði árið 1968. Tilefnio
var það að 40 ár eru liðin frá
mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna. Ekki er langt j
síðan lögreglan í Prag réðst j
að 10 þúsund mótmælendum I
er minntust 20 ára innrásar1
Rauða hersins. Talið er að ,
heimsókn Mitterrands forseta!
Frakklands hafi spilað inn í en i
hann kom til Tékkóslóvakíu í
gær.
Mikhaíl Gorbatsjov æðsti maður
Sovétríkjanna var staddur í Banda-
ríkjunum og hélt hann snarlega
heim á leið er umfang hörmunganna
var ljóst. Hann hyggst sjálfur taka
að sér yfirstjórn björgunaraðgerð-
anna er hann kemur heim, en björg-
unarsveitir víðs vegar frá Sovétríkj-
unum hafa verið sendar á þessar
slóðir og hafa erlend ríki og hjálpar-
stofnanir þegar boðið aðstoð sína.
Jarðskjálftinn sem átti upptök sín
í 50 km fjarlægð frá Leninakan var
um 9 stig á Richterkvarða og varð
hans vart á jarðskjálftamælum hér á
íslandi. Hann olli einnig miklu tjóni
Herinn í Brasilíu getur nú leikandi
létt smíðað sér atómbombu og þann-
ig skipað Brasilíu sess í hinum
alþjóðlega kjarnorkuvopnaklúbb,
jafnvel þó stjórnvöld í landinu vilji
ekkert með kjarnorkusprengju hafa.
Þetta kom fram á ráðstefnu banda-
rískra og brasilískra vísindamanna í
háskólanum í Rio de Janeiro í gær.
Vísindamennirnir segja að ein-
ungis þurfi að gera minniháttar
breytingar á verksmiðju er vinnur
Afganskir skæruliðar höfnuðu
samstundis tilboði Mikhaíl Gor-
batsjovs um vopnahlé og friðarvið-
ræður frá og með 1. janúar, en hann
lagði þetta til í ræðu sinni á Allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna í fyrra-
dag. Virðist lítið skipta hvaða flokk-
ar innan Mujahideen skæruliðasam-
takanna eiga í hlut.
- Á meðan innrásarher er í land-
inu er fáránlegt að biðja um vopna-
hlé. Fólkið í Afganistan er staðráðið
í að losa sig við innrásarliðið. Þetta
sagði háttsettur embættismaður af-
ganska Jamiat-i-Islami flokksins í
gær, en flokkurinn berst gegn stjórn-
inni í Kabúl vopnaðri baráttu.
Talsmaður Hezb-i-Islami flokks-
ins sem einnig berst gegn Sovét-
mönnum og stjórninni í Kabúl tók í
í nálægum héruðum í Tyrklandi, en
þar létust þó ekki nema innan við tíu
manns.
Um leið og yfirvöld í Moskvu
gerðu sér grein fyrir umfangi hörm-
unganna í Armeníu settu þau á fót
neyðarnefnd undir forsæti Nicholais
Ryzhkov forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna. Skipulagði hún þegar
flugbrú frá Moskvu svo koma mætti
hjálpargögnum til Armeníu.
Gorbatsjov mun hins vegar taka
við stjórn nefndarinnar er hann
kemur til Sovétríkjanna, en hann
var talinn ætla að fljúga beint til
Armeníu frá New York í gær.
úraníum í kjarnorkumiðstöð brasil-
íska sjóhersins í Sao Paulo til að
herinn geti framleitt hráefni í kjarn-
orkusprengju.
í kjarnorkumiðstöð sjóhersins í
Sao Paulo hefur verið unnið á laun
að kjamorkuáætlun þar sem herinn
hefur tögl og hagldir á sama tíma og
brasilísk stjórnvöld hafa unnið að
sömu hlutum, en með friðsamlega
notkun kjarnorku í huga.
- í Aramar kjarnorkumiðstöðinni
sama streng:
- Þetta er aðeins tilraun Gorbat-
sjovs til að sigra stjórnmálalega
þegar hann hefur tapað hernaðar-
lega í Afganistan.
- Við höfum barist gegn ríkis-
stjórninni í tíu ár og við höldum
áfram að berjast gegn henni hvort
sem Rússar eru hér eða ekki, sagði
talsmaður Mahaz-i-MilIi flokksins
sem berst einnig með Mujahideen.
Gorbatsjov hafði lagt til að vopna-
hlé tæki gildi 1. janúar, öllum her-
gagnastuðningi við stríðandi aðila
yrði hætt, friðargæslusveitir Samein-
uðu þjóðanna sæju um að vopnahlé
yrði haldið og ný ríkisstjórn yrði
mynduð í Afganistan á breiðum
grundvelli.
Gorbatsjov sem hafði sett allt á
annan endann í New York með
ræðu sinni á Allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna varð að aflýsa síðari
hluta heimsóknar sinnar um Banda-
ríkin, heimsókn sinni til Kúbu og til
Bretlands.
Ronald Reagan hringdi til Gor-
batsjovs í gær og vottaði honum
samúð sína og bandarísku þjóðar-
innar og bauð alla þá aðstoð sem
Sovétmenn kærðu sig um. Nancy
talaði einnig við Raisu í nokkrar
mínútur í sömu erindagjörðum.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands fékk persónulega
afsökunarbeiðni frá Gorbatsjov er
hann afboðaði heimsókn sína til
Bretlands. Thatcher harmaði at-
burðina í Armeníu og bauð Sovét-
mönnum aðstoð. Þá aðstoð hafa
Sovétmenn þegið, því í gær hélt
sveit sérþjálfaðra slökkviliðsmanna
frá London til jarðskjálftasvæðanna,
en sérsveit þessi er þjálfuð í því að
bjarga fólki úrhúsarústum. Hún tók
er úraníum nú hreinsað 20% en gæti
auðveldlega verið hreinsað 90% sem
er meira en nóg til að nota það í
kjarnorkusprengju, sagði David Al-
bright hjá Samtökum bandarískra
vísindamanna en hann tók þátt í
ráðstefnunni.
Ný stjórnarskrá Brasilíu kveður á
um að kjarnorka í Brasilíu verði
einungis notð til friðsamlegra hluta,
en Jose Sarney forseti landsins hefur
lengi sagt að Brasilíumenn hafi ein-
meðal annars þátt í björgunarstörf-
um eftir jarðskjálftann í Mexíkó-
borg 1985. Þá eru aðrar breskar
björgunarsveitir sem starfa á al-
þjóðavettvangi í viðbragðsstöðu.
Talsmenn Alþjóða Rauða kross-
ins og Alþjóðlega Rauða hálfmán-
ans í Genf skýrðu frá því í gær að
yfirmaður sovéska Rauða krossins
væri að kynna sér aðstæður og taka
ákvörðun um hvort hjálp alþjóð-
legra samtaka væri nauðsynleg.
Sovésk stjórnvöld skýrðu frá því í
gærkveldi að eftir gaumgæfilega at-
hugun á kjarnorkuverum þeim er
staðsett eru í Armeníu þá sé ljóst að
þau hafa sloppið algerlega við
skemmdir.
Allt bendir til að jarðskjálftinn í
Armeníu sé sá mannskæðasti í heim-
inum frá því 240 þúsund manns
létust í jarðskjálfta í norðaustur-
hluta Kína árið 1976, en þá lagðist
milljónaborgin Tangshan algerlega í
rúst.
ungis friðsamlega notkun kjamorku
í huga.
Brasilíski flotinn segist einungis
ætla að brúka úranið sem unnið er í
Aramar sem eldsneyti á kjarnorku-
kafbáta sem í framleiðslu era og eiga
að vera komnir í notkun um alda-
mót.
Níkaragva:
Stjórnarandstæð'
ingar fá frelsi
Síðustu stjóraarandstæðingarnir
sem fangelsaðir voru í mótmælun-
um gegn Sandínistastjórninni í
Níkaragva í júlímánuði fengu frelsi
sitt á ný í gær. Alls voru þrjátíu og
átta stjórnarandstæðingar teknir
höndum í kjölfar óeirðanna sem
Sandínistastjórnin sagði að skipu-
lagðar hefðu verið af bandarísku
leyniþjónustunni.
Áður hafði sextán stjórnarand-
stæðingum verið sleppt eftir að
dómstóll úrskurðaði þá saklausa
og níu höfðu fengið skilorðsbund-
inn fangelsisdóm og því getað um
frjálst höfuð strokið.
1 gær var dæmt í málum hinna
þrettán síðustu. Fengu níu þeirra
átján mánaða skilorðsbundinn
dóm, en fjórir þeir frægustu fengu
þriggja ára skilorðsbundinn dóm
fyrir að hafa hvatt til uppþota og
valdið skemmdum á opinberum
eignum. Þeir þurftu að auki að
greiða sem samsvarar fimmtíu þús-
und krónum í skaðabætur.
Mikill styr stóð á sínum tíma um
handtöku stjórnarandstæðinganna
meðal margra ríkisstjórna sem
hliðhollar eru Sandínistastjórn-
inni.
Brasilíuher
leið í kjarna-
vopnaklúbbinn?
Afganskir skæruliðar
höfnuðu vopnahléi